Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 13
Lengst fór ég til Grundarfjarðar, þar sem Kristín Karólína Jakobsdóttir bjó á Skerðingsstöðum, en hún var föðuramma móður minnar og lést ár- ið 1957. Einnig fór ég á slóðir Her- dísar Þórðardóttur, föðurömmu pabba, á Reykjanesinu. Ég vissi af- skaplega lítið um langömmur mínar en í þessu ferli öllu hitti ég í fyrsta skipti nokkur skyldmenni mín af eldri kynslóðinni sem mundu eftir þeim og gátu sagt mér undan og ofan af lífs- hlaupi þeirra.“ Í tengslum við sýninguna skrif- aði Anna Leif stutta hugleiðingu og æviágrip kvennanna í sýningarskrá. Sumar sögurnar eru býsna dramat- ískar, mikið um harmleiki og barns- missi eins algengt var í gamla daga. „Mér þótti afar vænt um að fá tæki- færi til kynnast nokkrum frænkum mínum, afkomendum Kristínar Kar- ólínu. Þær komu á sýninguna og á eftir sátum við eina kvöldstund og röbbuðum um þessa formóður okkar. Þegar maður veit um skyldleikann finnst mér frændfólkið standa manni með einhverjum hætti nær hjartanu en aðrir. Næst á dagskrá er að kynn- ast afkomendum Herdísar Þórðar- dóttur betur. Í þessu rannsóknarferli fannst mér ég tengjast Kristínu Kar- ólínu betur en hinum, kannski vegna þess að ég sá ákveðið svipmót með okkur. Þegar ég fór svo að mála Indi- önu Leifsdóttur, ömmu mína, sá ég að mér kippti einnig heilmikið í kynið í föðurættina.“ Karlarnir kannski seinna Anna Leif málaði eftir ljós- myndum sem hún fékk hjá foreldrum sínum og skyldmennum. Elsta mynd- in er af Herdísi frá árinu 1915. „Hún er um tvítugt og situr ægilega prúðbúin í peysufötum og horfir dreymin á svip í myndavélina. Mig langaði að mála konurnar á svipuðum aldri en það gekk ekki eftir því ljós- myndirnar voru frá ýmsum aldurs- skeiðum. Málverkin af mömmu, mér og dóttur minni eru þó frá því við vor- um á þessum aldri og spegla, eins og allar myndirnar, tísku hvers tímabils, til dæmis er mamma með mikla hár- greiðslu eins og var í tísku árið 1968.“ Önnu Leif kom á óvart hversu skemmtilegt henni þótti að mála myndirnar, en hún hafði ekki áður spreytt sig á portrettmálun. „Ég fékk styrk frá Uppbyggingarsjóði Vesturlands til að halda sýninguna, hófst handa í júní og lauk verkinu fimm mánuðum síð- ar. Þegar ég var í Listaháskólanum dreymdi mig um að halda kvennaboð, nokkurs konar gjörning, sem ég átti þó eftir að útfæra nánar. Afmælisár kosningaréttar kvenna ýtti svolítið við mér að láta til skarar skríða,“ segir hún og lætur þess getið að ný- verið hafi hún verið beðin um að mála mynd eftir ljósmynd af formóður fyr- irspyrjanda. „Kannski maður leggi portrettmálun fyrir sig í framtíðinni. Ég á alveg eftir að gera körlunum í ættinni skil,“ segir hún bæði í gamni og alvöru. Spurð hvort einhver hafi falast eftir málverkunum á sýningunni til kaups segist hún reyndar hafa verið spurð hvort hún gæti selt ömmu sína. „Spurningin var auðvitað sett fram í gríni, en svar mitt var og er: Maður selur ekki ömmu sína,“ svarar mynd- listarkonan. Kvenleggurinn Anna Leif er önnur frá vinstri, lengst til vinstri er dóttir hennar Íris Jana Ásgeirsdóttir, hægra megin er móðir hennar, Auður S. Þorvaldsdóttir. Myndirnar af þeim þremur málaði hún af þeim þegar þær voru um tvítugt. Bergþóra Árnadóttir, móðuramma hennar, önnur frá hægri, og Guðbjörg Jónsdóttir, langamma hennar í móðurætt, lengst til hægri, voru eldri. Listakonan Önnu Leif langaði að heiðra minningu formæðra sinna á 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017 Ljóðahátíðin Dagar ljóðsins í Menn- ingarhúsunum í Kópavogi hefst í dag, laugardaginn 21. janúar, þegar100 ár eru liðin frá fæðingu Jóns úr Vör. Há- tíðin stendur til 28. janúar með fjöl- breyttri dagskrá fyrir börn og fjöl- skyldur sem og áhugafólk um Jón úr Vör og ljóðlistina. Boðið verður upp á tvær fjöl- skyldustundir í dag. Sá ég sauð, ljóðatónleikar fyrir börn eru í Salnum kl. 13. Jón Svavar Jósefsson og Hrönn Þráinsdóttir flytja ljóðaperlur eftir íslensk skáld og tónskáld. Bergrún Íris Sævarsdóttir, teiknari og rithöfundur, verður á Bókasafni Kópavogs kl. 14-16 og leiðir sögu- smiðjuna Búum til bók þar sem hug- myndaflug 5-7 ára barna er beislað og búin til bók. Ætlast er til að einn fullorðinn fylgi hverju barni. Skráning á menningarhusin@kopavogur.is Kl. 16 veitir Lista- og menningarráð Kópavogs verðlaun í ljóðasamkeppn- inni Ljóðstafur Jóns úr Vör í Salnum og einnig verða veittar viðurkenn- ingar í ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs. Hátíð í bæ – Ljóðstafur Jóns úr Vör afhentur í Salnum Fjölskyldustund Bergrún Íris Sævarsdóttir, teiknari og rithöfundur, leiðir sögusmiðjuna Búum til sögu fyrir fimm til sjö ára börn. Ljóðatónleikar og sögusmiðja fyrir börn á Dögum ljóðsins Styrkir úr Lýðheilsusjóði 2017 Lýðheilsusjóður óskar eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til heilsueflingar og forvarna á sviði geðræktar, næringar, hreyfingar og tannverndar auk áfengis-, vímu- og tóbaksvarna. Áhersla er lögð á eftirfarandi: • Aðgerðir sem miða að því að efla geðheilsu. • Árangursríkar áfengis- og vímuvarnir. • Aðgerðir sem miða að heilbrigðu mataræði og hreyfingu. • Aðgerðir til að draga úr tóbaksnotkun. • Verkefni sem beinast að minnihlutahópum til að stuðla að jöfnuði til heilsu. • Forvarnir gegn sjálfsvígum. Við úthlutun verður tekið mið af lýðheilustefnu velferðarráðuneytisins, sbr. skjalið Lýðheilsustefna og aðgerðir sem stuðla að heilsueflandi samfélagi – með sérstakri áherslu á börn og ungmenni að 18 ára aldri. (Útg. 2016) Verkefni sem uppfylla eftirtalin skilyrði hafa forgang: - Verkefni sem unnin eru í víðtæku samstarfi hagsmunaaðila í samfélaginu. - Verkefni með eigin fjármögnun og/eða aðra fjármögnun. Verkefnin eiga að byggja á faglegum grunni og hafa raunhæf og skýr markmið. Gera þarf grein fyrir því hvernig árangur verkefnis verður metinn og skal skila framvin- duskýrslu að verkefni loknu. Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar 2017 og skal sótt um á vefsvæði Lýðheilsusjóðs, http://lydheilsusjodur.sidan.is/pages/. Nánari upplýsingar í síma 510 1900 eða á vef Embættis landlæknis. Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum vefsvæði sjóðsins. Embætti landlæknis - Barónsstíg 47 - 101 Reykjavík - Sími 5101900 - lydheilsusjodur@landlaeknir.is - www.landlaeknir.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.