Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017    Fallegir flækingsfuglar hafa ver- ið á sveimi í görðum og trjáreitum upp á síðkastið. Nokkrar silkitoppur hafa verið í sveitinni að gæða sér á reyniberjum og óneitanlega er fjaðurhamur þeirra skrautlegur. Þetta eru fjörugir fuglar og heim- sóknir þeirra eru kærkomin nýjung í fuglaflóruna. Þegar reyniberin þrýt- ur þiggja þær gjarnan epli eða annað sem að þeim er rétt. Þessir sjaldséðu gestir láta sig svo hverfa en enginn veit hvert þeir fara.    Ljósleiðaravæðing stendur yfir í Þingeyjarsveit og er stefnt að því að búið verði að leggja ljósleiðara á alla bæi í lok þessa árs. Nú þegar eru margir bæir orðnir tengdir og segir fólk að hraðinn hafi tífaldast og með það er mikil ánægja. Unga fólkið segir að allar sveitir verði að vera með ljósleiðara því annars sé ekki hægt að búa í þeim. Tjörnesingar fengu ljósleiðara fyrstir allra, en enn er enginn ljósleiðari í Reykjahverfi og er óánægja með það meðal íbú- anna.    Þorrablótin eru að byrja og nú um helgina verður þorri blótaður í Bárðardal, Mývatnssveit og á Tjör- nesi. Þorri er síðan blótaður í Fnjóskadal, Reykjadal, Aðaldal , Kinn og Reykjahverfi. Sumir ná því að fara á mörg blót og dæmi eru um að fólk hafi farið á sex blót ef Húsa- víkurblótið og grunnskólablótin eru talin með. Þetta er tími leikþátta, söngs og dans og því mikilvægt að færð og veður leyfi allt þetta sam- komuhald.    Sólin er farin að hækka á lofti og um leið lyftist brúnin á mörgum. Ekki hefur þurft að kvarta yfir tíðar- farinu og búsmali var lengur úti í haust en oft áður. Kýr voru t.d. úti á nokkrum bæjum fram yfir fyrsta vetrardag og þykir það mjög óvana- legt. Þá hafa útigönguhestar haft það mjög gott fram að þessu. Mörgum gafst frábært tækifæri til útiverka og stóð jarðvinna fram í desember, sem er ekki mjög vanalegt í Þingeyj- arsýslum. Á Víkurskarði hefur ekki verið mikil ófærð fram að þessu og mjólkurbíllinn frá Akureyri því nán- ast alltaf á réttum tíma. „Vonandi verður gott áfram,“ segja bænd- urnir, en snjóleysið og góða færðin virðist eiga vel við marga. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Í góðu yfirlæti Hestarnir á túninu við Presthvamm í Aðaldal hafa haft það gott í góðu tíðinni að undanförnu. Leitað að þingeysku monti ÚR BÆJARLÍFINU Atli Vigfússon Laxamýri Kúabúum heldur áfram að fækka í Suður-Þingeyjarsýslu. Fimm mjólkurframleiðendur hættu um áramótin og vitað er um nokkra sem eru að velta fyrir sér framtíðinni. Ekkert nýtt kúabú var stofnað enda ekki auðvelt að byrja í búgreininni. Sumir hafa töluverðar áhyggjur af kúabúskap í sýslunni og til marks um það eru nokkrir fundir sem Bún- aðarsamband S-Þing. og Félag þingeyskra kúabænda efndu til seint á haustdögum. Þar kom margt fram og ræddu bændur opið um það hver væri framtíð þessa búskapar á jörðum þeirra. Mjög margir sem framleiða mjólk í héraðinu eru að eldast og ungu bændurnir eru um fertugt eða að byrja fimmtugsald- urinn.    Búnaðarsambandið lætur sig ýmislegt varða og í áramótabréfi stjórnarinnar segir að íbúar sýsl- unnar séu svo heppnir að eiga mörg fjölskyldubú, gott samfélag og góða skóla. Fjölskyldubú séu rekin í sátt við umhverfið og það sé mikil auð- lind. Þar segir einnig að Þing- eyingar þurfi að draga djúpt and- ann og finna aftur það þingeyska mont sem héraðsbúar voru svo þekktir fyrir hér áður fyrr. Bún- aðarsambandið er með merkilegt verkefni í gangi þar sem menn velta fyrir sér hvernig bændafólk getur gert það besta úr vinnu sinni á bú- unum, skipulagt sig betur og bætt aðstöðu sína og búsmalans. Opið frá kl. 10 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga 15-60% AFSLÁTTUR STÓRÚTSALA Vara 102266 Bandsög frá Axminster Útsöluverð: 39.500,- kr. 40% Afsláttur Vara 28472 Fjölnota fræsi- og slípivél frá Proxxon Útsöluverð: 11.850,- kr. 37% Afsláttur Vara 501255 Slípiband og skífa frá Axminster Útsöluverð: 14.850,- kr. 25% Afsláttur Vara 502365 Snilldarlausn frá Sjöbergs Útsöluverð: 14.800,- kr. 43% Afsláttur Í tösku + 43 aukahlutir Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is Opið frá kl. 10 - 18 virka daga og 12 - 16 l ug rdaga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.