Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017 10% afsláttur af hringa- pörum CARAT Haukur gullsmiður O Hátúni 6a O s. 577 7740 O carat.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA K R A F T U R FÉLAG UNGS FÓLKS SEM GREINST HEFUR MEÐ KRABBAMEIN OG AÐSTANDENDUR STYRKTU KRAFT MEÐ MÁNAÐARLEGU FRAMLAGI Skráðu þig á www.lifidernuna.is LÍFIÐ ER NÚNA! ÞAÐ ÞARF KRAFT TIL AÐ TAKAST Á VIÐ KRABBAMEIN 21. janúar 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 112.84 113.38 113.11 Sterlingspund 139.09 139.77 139.43 Kanadadalur 84.9 85.4 85.15 Dönsk króna 16.16 16.254 16.207 Norsk króna 13.318 13.396 13.357 Sænsk króna 12.609 12.683 12.646 Svissn. franki 112.08 112.7 112.39 Japanskt jen 0.9833 0.9891 0.9862 SDR 152.52 153.42 152.97 Evra 120.18 120.86 120.52 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.8736 Hrávöruverð Gull 1199.1 ($/únsa) Ál 1830.0 ($/tonn) LME Hráolía 54.29 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Eimskip hefur átt í samningaviðræð- um við skipasmíða- stöðvar í Kína í tengslum við smíði á tveimur 2.150 gámaeininga skip- um með ísklassa, að því er fram kem- ur í tilkynningu félagsins til Kaup- hallar. Er stefnt að vali á skipasmíðastöð og undirritun samnings á næstu dögum. Eimskip og grænlenska skipafélagið Royal Arctic Line undirrituðu í fyrra viljayfirlýsingu um að meta möguleika á samstarfi um smíði slíkra skipa. Ráðgert er að skipin tvö verði afhent fyrir árslok 2019. Í viðtali við Gylfa Sigfússon, forstjóra Eimskips, í ViðskiptaMogganum í októ- ber var áætlað að kostnaður við smíði á skipi af þessu tagi gæti verið í kringum 30 milljónir dollara eða um hálfur fjórði milljarður króna. Eimskip að ljúka samn- ingum um smíði skipa Gylfi Sigfússon STUTT BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Fjármálaeftirlitið hefur enn ekki af- greitt umsókn BLM fjárfestinga ehf. um að fara með yfir 50% eignarhlut í Klakka, sem er 100% eigandi fjár- mögnunarfyrirtækisins Lýsingar. Meira en fjórir mánuðir eru liðnir síð- an BLM fjárfestingar keyptu 11,6% hlut sem áður var í eigu slitabús Glitnis og fór þá yfir 50% eignarhlut í Klakka. Það er umfram þann tíma- frest sem kveðið er á um í lögum um fjármálafyrirtæki. Af þessum sökum hefur umdeild sala Lindarhvols á 17,7% eignarhlut ríkisins í Klakka til BLM fjárfestinga í október síðastliðnum heldur ekki verið samþykkt af FME. Töluvert hefur verið deilt á framkvæmd Lind- arhvols við þá sölu. Umdeilt skúffufélag á Írlandi BLM fjárfestingar ehf. er í eigu Burlington Loan Management sem skráð er á Írlandi. Það félag er skúffufyrirtæki í eigu bandaríska vogunarsjóðsins Davidson Kempner í New York. Burlington Loan Management hef- ur verið í fréttum hér á landi vegna umsvifa sinna í fjármálafyrirtækjum eftir hrun, auk þess sem það hefur lát- ið til sín taka í öðrum löndum á sama tímabili. Fjallað var um félagið á Ír- landi í tengslum við Panamaskjölin svokölluðu, sem birtu yfirlit yfir eign- arhluti einstaklinga og félaga í skatta- skjólum á aflandseyjum. Í frétt The Irish Times kemur fram að Davidson Kempner hafi séð sér leik á borði árið 2009 þegar aðrir fjárfestar yfirgáfu Írland í ofboði eftir fjármálahrunið og stofnað fyrirtæki í landinu til að kaupa upp eignir sem orðið höfðu fyr- ir barðinu á kreppunni. Það fyrirtæki er umrætt Burling- ton Loan Management, sem sam- kvæmt frétt blaðsins hefur keypt eignir fyrir milljarða evra, þar á með- al skuldbindingar á fallna banka á Ís- landi og Spáni, og veðlán með trygg- ingu í írskum fasteignum. Burlington sé skráð ásamt 479 fyrirtækjum á skrifstofu Deutsche Bank í viðskipta- hverfinu í Dublin og nemi eignir þess yfir 6 milljörðum evra, þótt starfs- menn séu bara tveir og skattskyldur hagnaður nær enginn. Samkvæmt skrá um írsk hlutafélög eru stjórnar- menn félagsins fjórir og hafa þeir set- ið í stjórnum 461 annars fyrirtækis. FME tjáir sig ekki Í skriflegu svari segist Fjármála- eftirlitið ekki geta tjáð sig um einstök mál sem eru til meðferðar hjá stofn- uninni en tímafrestur til að fara yfir tilkynningu aðila um virkan eignar- hlut reiknast frá þeim tíma sem eft- irlitið hefur móttekið fullbúna til- kynningu. Haft var eftir Unni Gunnarsdóttur, forstjóra FME, í viðtali í Viðskipta- blaðinu í vikunni, að einu aðilarnir sem virðast hafa áhuga á því að kaupa banka séu sjóðir, t.d. vogunarsjóðir, sem leggi mikið á sig til að leyna því hverjir þeir séu í raun. „Þetta er mik- ið púsluspil og það er alls ekki einfalt að vinna úr þessu,“ er haft eftir Unni. Samþykki á virkum eignar- hlut í Lýsingu enn óafgreitt Morgunblaðið/Eggert Hæfismat Klakki á 100% í fjármálafyrirtækinu Lýsingu en BLM hefur óskað eftir að fara með yfir 50% hlut í Klakka. Úr lögum um fjármálafyrirtæki » FME hefur 60 virka daga frá staðfestingu tilkynningar til þess að meta hæfi til að fara með virkan eignarhlut. » Sé óskað eftir viðbótarupp- lýsingum frá viðkomandi bæt- ist bið eftir upplýsingum við dagafjölda, þó ekki umfram 20 virka daga. » Frestur getur samkvæmt því að hámarki verið 80 virkir dag- ar eða tæplega fjórir mánuðir.  Fjórir mánuðir síðan vogunarsjóður fór yfir 50% hlut  Ríkið seldi sjóðnum 17,7% Afkoma sjávarútvegsfyrirtækja batnaði í heild á milli áranna 2014 og 2015 samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Hagnaður sjávar- útvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnsliði og tekjuskatt (EBITDA) sem hlutfall af heildar- tekjum hækkaði úr 24,3% í 27% á árinu 2015. Í fiskveiðum hækkaði EBITDA-hlutfallið úr 20,5% í 25,7% en það lækkaði lítillega í fiskvinnslu. Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir sjávarútvegs í árslok 2015 rúmir 590 milljarðar króna, heildarskuldir tæpir 370 milljarðar og eigið fé rúmir 220 milljarðar. Eiginfjárhlutfallið reyndist 37,3% en það var 32,3% í árslok 2014. Í lok árs 2009 var eigin- fjárhlutfallið á núlli. Afkoma útvegs batnaði 2015

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.