Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017 Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Ungum dreng og móður hans var bjargað síðdegis í gær úr rústum Rigapiano-hótelsins á Ítalíu, sem snjóflóð féll á fyrir þremur dögum. Björgunarsveitarmenn hafa nú fundið alls tíu manns á lífi í rúst- unum en talið er að minnst 30 manns hafi verið í hótelinu þegar snjóflóðið féll síðdegis á miðvikudag. Staðfest hefur verið að fjórir hafi látið lífið í snjóflóðinu á hótelið. Aðstæður erfiðar til björgunar Björgunarsveitarmenn hafa átt erfitt með að komast á svæðið þar sem tveggja metra snjór féll á veg- inn að hótelinu. Þá hefur veður á svæðinu verið slæmt og þurftu fyrstu björgunarsveitirnar að fara á skíðum síðasta kaflann að hótelinu eða um 10 km langan veg. Óskað var aðstoðar björgunarþyrlu við aðgerð- ir vegna aðstæðna en brak úr hót- elinu barst að minnsta kosti 10 metra með snjóflóðinu. Samkvæmt upplýsingum frá yfirvöldum á staðn- um voru björgunarbílar og tæki komin að hótelinu í gær. Einn af fyrstu björgunarmönn- unum sem kom á svæðið, Marshall Lorenzo Gagliardi, sagði aðstæður hafa verið skelfilegar. „Hlið hótelsins sem sneri að fjall- inu er algjörlega í rúst og grafin undir snjó, eldhúsið, hótelherbergi og gangar. Allt undir snjó.“ Nærri upptökum jarðskjálfta Hótelið er í um 1200 metra hæð yfir sjávarmáli og um 90 km frá upp- tökum jarðskjálftans, sem varð við Montereale, sem er lítið þorp suður af Amatrice. Í ágúst síðastliðnum létust að minnsta kosti 300 manns þegar stór skjálfti skók borgina. Tvær íslenskar ferðaskrifstofur, Úrval útsýn og Vita ferðir, sem bjóða skipulagðar skíðaferðir til Ítalíu fara ekki á þessar slóðir Tíu manns bjargað úr hóteli AFP Björgun Fjöldi björgunarmanna hefur verið við störf við Rigapiano hótelið.  Talið er að minnst 30 manns hafi verið í ítalska hótelinu Rigapiano sem varð undir snjóflóði  Aðstæður til björgunar voru erfiðar og kalla þurfti á þyrlur Snjór hreinsaður við stíga Gyeongbokgung- hallarinnar í Seoul í Suður Kóreu í gær. Tölu- verður snjór hefur fallið í borginni undanfarið og hefur fólk átt erfitt með að komast ferða sinna þar. Tafir hafa verið á almennings- samgöngum og almenn umferð verið hæg vegna snjóþyngsla. Veturinn í Suður-Kóreu er líkari því sem við Íslendingar eigum að venjast en hér helst varla snjór lengur en í nokkra daga. AFP Snjómokstur við Gyeongbokgung-höllina Snjóþungir dagar í Seoul í Suður-Kóreu Guðrún Hálfdánardóttir guna@mbl.is Mexíkóski eiturlyfjabaróninn Joa- quín „El Chapo“ Guzmán kom til Bandaríkjanna í fyrrinótt eftir að hafa verið framseldur af yfirvöldum í heimalandinu. Í Bandaríkjunum er honum gert að svara til saka í nokkrum málum. Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur staðfest að flugvél sem flutti Guzmán frá Mexíkó hafi lent á Mac- Arthur-flugvellinum í Islip á Long Island. Samkvæmt fréttum banda- rískra fjölmiðla átti að leiða hann fyrir alríkisdóm í Brooklyn í gær. Guzmán, sem gengur undir viður- nefninu „El Chapo“ eða „Sá stutti“, stýrði Sinaloa-eiturlyfjahringnum, en glæpahópurinn er einn sá valda- mesti í heiminum. Viðskipti Sinaloa nema mörgum milljörðum Banda- ríkjadala og ná um allan heim líkt og margar alþjóðlegar fyrirtækjasam- steypur. Framsalið þykir mikill sigur fyrir bandarísk yfirvöld en óvíst er hvort það breyti nokkru um áhrif Sinaloa og framtíð hans enda eiturlyfja- hringurinn af mörgum talinn of stór og valdamikill til þess að falla. Forðast réttvísina Guzmán hefur ítrekað komist í fréttirnar fyrir flótta úr fangelsi, en í tvígang tókst honum að flýja og í það síðara á ævintýralegan hátt eins og hægt er að lesa hér að neðan. En yfirvöld höfðu hendur í hári þess stutta (hann er 168 cm að hæð) og er fylgst með honum allan sólarhring- inn. Sinaloa-eiturlyfjahringurinn dregur nafn sitt af héraðinu þar sem hann var stofnaður. Sinaloa annast stóran hluta alls heróíninnflutnings til Bandaríkjanna en glæpahópurinn er einnig stórtækur í kókaínsölu sem og sölu á öðrum ólöglegum efnum. Guzmán er einnig þekktur fyrir að hafa skipulagt drjúgan hluta þeirra morða sem framinn hafa ver- ið í Mexíkó undanfarin ár í tengslum við baráttuna gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Guzmán var dæmdur í 20 ára fangelsi eftir að hafa verið fram- seldur frá Gvatemala árið 1993 fyrir morð og eiturlyfjasölu. Honum tókst hins vegar að flýja úr fangelsinu ár- ið 2001 í þvottakörfu eftir að hafa greitt fangavörðum háar fjárhæðir fyrir að aðstoða við flóttann. Einn sá valdamesti í heiminum Allt frá árinu 2009 hefur tímaritið Forbes sett Guzmán á lista yfir valdamesta fólkið í heiminum. Hann var árið 2011 í tíunda sæti yfir rík- ustu Mexíkóana en þá voru eignir hans metnar á um einn milljarð Bandaríkjadala, rúmlega 120 millj- arða króna. Tímaritið hefur gengið enn lengra og jafnvel sagt hann helsta eiturlyfjabarón sögunnar. Telja ýmsir að hann sé ekki síður áhrifamikill en Pablo Escobar og standi fyllilega undir heitinu guð- faðir eiturlyfjaheimsins. Guzmán framseldur  Mexíkóski eiturlyfjabaróninn Joaquín „El Chapo“ Guzmán er kominn til Bandaríkjanna  Framsalið þykir mikill sigur fyrir yfirvöld í Bandaríkjunum AFP Sá stutti Lögreglumenn fylgja Guzmán fyrir framsalið. Breski sjóherinn var kallaður út til að farga gamalli sprengju sem fannst í Thames-ánni í London, skammt frá breska þinghúsinu. Lögregluyfirvöld segja allar líkur á að sprengjan sé frá tímum síðari heimsstyrjaldar. Gripið var til víðtækra var- úðarráðstafana eftir að sprengjan fannst og var meðal annars tveimur fjölförnum brúm yfir ána lokað á meðan. Westminster-neðanjarðar- lestarstöðin var einnig rýmd um tíma vegna málsins en um háanna- tíma var að ræða. Sprengjan kom í ljós við bakkann skammt frá Victoria Embankment. BRETLAND Sprengja fannst rétt hjá þinghúsinu AFP Stríð Loka þurfti tveimur brúm yfir ána Thames í London vegna sprengju. Fjórir létu lífið og tuttugu eru særðir eftir að maður ók bifreið sinni á fullri ferð inn í hóp vegfar- enda í Melbourne í Ástralíu í gær. Að sögn lög- regluyfirvalda á svæðinu var maðurinn á flótta undan lögreglu eftir að hafa stung- ið bróður sinn og tekið konu í gísl- ingu. Lögreglan hefur handsamað manninn. Atvikið er ekki talið vera hryðju- verk, segir yfirlögregluþjónninn Stuart Bateson. Þó er talið að maðurinn hafi ekið viljandi inn í hóp vegfarenda. ÁSTRALÍA Fjórir látnir og 20 slasaðir í Melbourne Ekki talið hryðjuverk. Irina Bokov, framkvæmda- stjóri UNESCO, segir eyðilegg- ingu Ríkis íslams á ómetanlegum menningar- verðmætum í sýrlensku borg- inni Palmyra vera stríðsglæp. Meðal þess sem skemmt var eru rómverskur minnisvarði og hring- leikahús borgarinnar frá tímum Rómverja. Ríki íslams endurheimti Palmyra, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, 11. desember og átti eyðileggingin sem nú er greint frá sér stað í byrjun janúar. SÝRLAND Forn menningar- verðmæti skemmd Palmyra-borg Sænska Hag- stofan greindi frá því í gær að Svíar væru orðn- ir tíu milljónir talsins. Svíar náðu níu milljóna manna markinu árið 2004 og það er áætlað að þeir verði 11 milljónir árið 2024. Fjöldinn er byggður á mannfjöldaspá Hagstofunnar og því ekki vitað hver tíu milljónasti Svíinn er. SVÍÞJÓÐ Tíu milljónir Svía í heiminum Svíar fjölga sér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.