Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017 Halldór Benjamín Þorbergsson,framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, birti í gær kveðju til nýs fjármálaráðherra þar sem bent var á að „Ísland er háskattaland og það er ekkert svig- rúm til skattahækk- ana á komandi miss- erum“.    Það er dapurlegtað benda þurfi á að ekkert svigrúm sé til skattahækk- ana, en eins og talað hefur verið að undanförnu er því miður þörf fyrir slíka ábendingu.    Samtök atvinnu-lífsins vekja athygli á að á síð- ustu árum hefur skattheimta þyngst hér á landi og að fá ríki í besta falli, af þeim sem við berum okkur saman við, leggja meiri byrðar á íbúa sína.    Þá er bent á að jaðarskattar hafifarið hækkandi og að háir jaðarskattar dragi úr hvata ein- staklinga til tekjuöflunar.    Ennfremur kemur fram hjá fram-kvæmdastjóra SA að trygg- ingagjaldið sé enn allt of hátt, þrátt fyrir að atvinnuleysi sé hverfandi.    Tekjur ríkisins af tryggingagjaldihafi aukist um 28% á síðustu fjórum árum, sem hlýtur að gefa til- efni til lækkunar gjaldsins, nema þeir sem skattheimtunni stýra séu sérstaklega áhugasamir um að halda í háskattastimpilinn fyrir Ís- land.    Það kynni að vera eðlilegt metn-aðarmál vinstri stjórnar, en ástæða er til að minna á að lands- menn höfnuðu þeim kosti í þing- kosningunum. Halldór Benjamín Þorbergsson Háskattalandið Ísland STAKSTEINAR Benedikt Jóhannesson Veður víða um heim 20.1., kl. 18.00 Reykjavík 5 skúrir Bolungarvík 5 súld Akureyri 6 skýjað Nuuk -5 skýjað Þórshöfn 8 skýjað Ósló 0 heiðskírt Kaupmannahöfn 5 heiðskírt Stokkhólmur 5 heiðskírt Helsinki 0 snjókoma Lúxemborg 0 heiðskírt Brussel 4 heiðskírt Dublin 7 léttskýjað Glasgow 4 alskýjað London 6 heiðskírt París 0 heiðskírt Amsterdam 2 heiðskírt Hamborg 1 súld Berlín 1 þoka Vín -4 þoka Moskva -3 heiðskírt Algarve 12 heiðskírt Madríd 8 léttskýjað Barcelona 9 skýjað Mallorca 11 léttskýjað Róm 12 léttskýjað Aþena 7 léttskýjað Winnipeg 1 súld Montreal 1 alskýjað New York 5 þoka Chicago 3 þoka Orlando 21 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 21. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:39 16:40 ÍSAFJÖRÐUR 11:07 16:23 SIGLUFJÖRÐUR 10:50 16:05 DJÚPIVOGUR 10:14 16:04 Í samningi sem gerður var í gær milli Rauða kross Íslands og íslenskra stjórnvalda er stigið skref til að jafna þjónustu við flóttafólk hér á landi, hvort sem það kemur í boði stjórn- valda, sem svonefnt kvótaflóttafólk, eða á eigin vegum. Þetta kemur fram á vef velferðarráðuneytisins. „Mér finnst sérstaklega ánægjulegt að fyrsti samingurinn sem ég undirrita sem ráðherra skuli fela í sér tímamót eins og hér um ræðir, því það var orð- ið mjög mikilvægt að stuðla að jafnari stöðu flóttafólks sem hingað kemur,“ segir Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra. Segir á vef ráðuneytisins að á síðustu árum hafi hælisleitendum sem sækja um og fá alþjóðlega vernd hérlendis, og þar með réttarstöðu flóttafólks, fjölgað verulega. Lengi hafi verið rætt um að þessir einstaklingar njóti ekki aðstoð- ar og stuðnings til aðlögunar í sama mæli og kvótaflóttafólk og að jafna þurfi stöðu þessara hópa. Samning- urinn er til þriggja ára og kveður á um hlutverk Rauða kross Íslands varðandi móttöku, aðstoð og stuðning við flóttafólk, svo sem að flóttafólki standi til boða stuðningur sjálfboða- liða Rauða krossins sem veiti því al- mennar leiðbeiningar, fræðslu og ráð- gjöf og vísi á úrræði sem standa því til boða. Semja um stuðning við flóttafólk  Flóttafólk á eigin vegum verði jafn- sett kvótaflóttafólki í boði stjórnvalda Samningur Þorsteinn Víglundsson og Sveinn Kristinsson undirrituðu. Eftir að sala eggja frá Brún- eggjum hrundi í kjölfar umfjöll- unar í Kastljósi um aðbúnað fuglanna hafa birgðir hlaðist upp. Þá er þeg- ar búið að slátra hluta af bú- stofninum á búinu, að sögn Kristins Gylfa Jónssonar, framkvæmdastjóra Brúneggja. Fyrirtækið er í sölu og eru nokkrir áhugasamir aðilar að skoða það, að sögn hans. Ljóst sé hins vegar að verði ekki af þeim viðskiptum þurfi að slátra öllum varphænum Brúneggja. Áður en viðskiptin stöðvuðust var hlutur Brúneggja á mark- aðnum nálægt 20% en ef starf- semin leggst alveg af má að mati Kristins búast við eggjaskorti á markaðinum á næstu mánuðum. omfr@mbl.is Kristinn Gylfi Jónsson Hluta bú- stofnsins slátrað  Sala á Brúneggj- um er til skoðunar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.