Morgunblaðið - 21.01.2017, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð hefur samþykkt að bjóða
út framkvæmdir vegna breytinga á
gatnamótum Geirsgötu og Lækjar-
götu/Kalkofnsvegar. Kostnaðar-
áætlun er 600 milljónir króna og
áætlað er að framkvæma fyrir um
400 milljónir á árinu 2017.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins og Framsóknar og flug-
vallarvina sátu hjá við afgreiðslu
málsins.
Gatnamót færast í vestur
Fram kemur í kynningu að gatna-
mót Geirsgötu og Lækjargötu/
Kalkofnsvegar færist vestar og
verður Geirsgatan hornrétt á göt-
una.
Útbúin verða svokölluð T-gatna-
mót í stað sveigðrar Geirsgötu eins
og nú er. 30 kílómetra hámarkshraði
verður á þessum götum.
Ný göngugata, Reykjastræti, mun
liggja frá Hörpu að Hafnarstræti og
þvera Geirsgötuna á upphækkuðu
svæði.
Hjólastígur verðu í norðurkanti
Geirsgötu og á Kalkofnsvegi.
Göngu- og hjólaleiðir á svæðinu
verða upphitaðar.
Í greinargerð kemur fram að
breytingar á gatnamótunum fari
fram samhliða uppbyggingu á lóð
Hörpu. Áætlað er að framkvæmdir
hefjist í apríl og hægt verði að opna
gatnamótin í september í haust.
Þá kemur fram í greinargerðinni
að farið verði í sértækar aðgerðir
varðandi lokanir og aðgengi á svæð-
inu í tengslum við viðburði í mið-
borginni á framkvæmdatímanum,
svo sem á Menningarnótt.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins lögðu fram bókun þar sem
þeir útskýra hjásetu sína við af-
greiðslu málsins í borgarráði. Þeir
segjast ekki geta fellt sig við fyrir-
liggjandi hönnun gatnamóta Geirs-
götu, Lækjargötu og Kalkofnsvegar.
Best hefði verið að vinna að því að
setja Geirsgötuna í stokk á umrædd-
um stað í stað þess að hafa þessi
gatnamót á yfirborði.
„Mikil skammsýni“
„Þannig skapast tækifæri til þess
að móta torg og fleira þar sem göt-
urnar liggja nú og þannig má auka
umhverfisgæði og skapa fjölbreyti-
legan og eftirsóknarverðan mið-
borgarbrag. En þar sem niður-
staðan varð sú að hafa gatnamótin á
yfirborði, hefði verið mun betra að
hafa þau svokölluð Y-gatnamót í
stað T-gatnamóta eins og meirihluti
Samfylkingar, Bjartrar framtíðar,
Pírata og Vinstri grænna hefur nú
samþykkt af mikilli skammsýni,“
segir í bókun sjálfstæðismanna.
Gatnamótum breytt í sumar
T-gatnamót verða á Geirsgötu og Lækjargötu/Kalkofnsvegi Ný göngugata,
Reykjastræti, mun liggja frá Hörpu að Hafnarstræti Vildu Geirsgötu í stokk
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þrenging við Geirsgötu Vegna framkvæmda við bílakjallara undir Geirs-
götu hefur umferð verið beint tímabundið á hjáleið á Hörpulóðinni.
Laugavegi 77, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033
ÚTSALAN
í fullum gangi
30-50%
afsláttur af öllum vörum
Flottir í fötum
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Umhverfis- og skipulagsráð Reykja-
víkur hefur heimilað niðurrif húss-
ins Thorvaldsensstræti 6. Ráðið
hafði áður hafnað beiðni um að fá að
rífa húsið og byggja annað hús sem
betur hentaði þeirri starfsemi sem
þar verður. Síðan þá hafa verið lögð
fram ný gögn í málinu, m.a. jarð-
skjálftagreining, en fram hafði kom-
ið það álit að byggingin stæðist ekki
kröfur hvað varðar jarðskjálftaálag.
Umrædd bygging var reist á ár-
unum 1966 til 1967 og er í svoköll-
uðum síðfúnkísstíl. Hún var við-
bygging við Landsímahúsið sem
tekið var í notkun árið 1932. Það var
upphaflega fimm hæðir. Stórbygg-
ing var reist vestan við húsið árið
1952.
Uppbygging á Landsímareitnum
stendur fyrir dyrum. Þetta er sam-
starfsverkefni Icelandair Group og
Dalsness í gegnum félagið Lindar-
vatn, sem báðir aðilar eiga helming
í. Þarna hyggjast Icelandair Hotels
opna 160 herbergja glæsihótel.
Í fundargerð segir að umhverfis-
og skipulagsráð taki jákvætt í að
fyrirspyrjandi, Lindarvatn ehf, láti
vinna tillögu að breytingu á deili-
skipulagi í samræmi við fyrir-
spurnina, á eigin kostnað.
Sex fulltrúar í ráðinu greiddu til-
lögunni atkvæði en einn sat hjá.
Fulltrúarnir sem samþykkir voru
niðurrifi hússins gerðu eftirfarandi
bókun:
„Deiliskipulag Landsímareitsins
byggir á þeirri grunnhugmynd að
flétta skuli nýjar byggingar við þær
sem fyrir eru. Við teljum mikilvægt
að halda í þá hugmynd. Burðarvirki
og hönnun hússins við Thorvald-
sensstræti 6 taka hins vegar mið af
mjög sértækri starfsemi. Þær að-
stæður virðast hamla vel heppnaðri
umbreytingu þess til nýrra nota.
Styrking burðarvirkis á jarðhæð er
ekki til þess fallin að auka gæði
byggingarinnar og dregur hugsan-
lega úr gildi jarðhæðarinnar sem al-
menningsrýmis.
Samkvæmt gildandi deiliskipulagi
fyrir reitinn er heimilt að breyta
skipulagi og útliti hússins til þess að
fá betri nýtingu. Hótelstarfsemi er
einnig leyfð. Með þessi atriði í huga
samþykkir ráðið niðurrif á húsinu
en hvetur uppbyggingaraðila til að
halda í sérkenni gamla hússins í
nýrri byggingu.“
Skipulagsráð breytti ákvörðun
Heimilt að rífa
húsið Thorvald-
sensstræti 6
Morgunblaðið/Eggert
Thorvaldsensstræti 6 Veitt hefur verið leyfi til að rífa bygginguna.
Borgaráð samþykkti á síðasta
fundi sínum að heimila umhverf-
is- og skipulagssviði að bjóða út
framkvæmdir vegna lagfæringa
og endurnýjunar á boltagerðum á
skólalóðum 2017. Framkvæmdir
verða á 16 boltagerðum 2017 og
er áætlaður kostnaður 50 millj-
ónir króna.
Fram kemur í greinargerð að
ýmist sé um að ræða lagfæringar
á gervigrasi eða endurnýjun á
gervigrasi og fyllingarefni. Á
árinu 2017 verða framkvæmdir á
boltagerðum Austurbæjarskóla,
Álftamýrarskóla, Ártúnsskóla,
Breiðholtsskóla, Háteigsskóla,
Hlíðaskóla, Hólabrekkuskóla,
Ingunnarskóla, Kelduskóla/Vík,
Klébergsskóla, Korpuskóla, Lang-
holtsskóla, Réttarholtsskóla,
Rimaskóla, Seljaskóla og Sæ-
mundarskóla.
Á árinu 2018 eru áætlaðar
framkvæmdir á boltagerðum Ár-
bæjarskóla, Norðlingaskóla, Sel-
ásskóla, Fellaskóla, Öldusels-
skóla, Foldaskóla, Hamraskóla,
Vættaskóla/Borgum, Breiðagerð-
isskóla, Fossvogsskóla og Laug-
arnesskóla.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins lögðu fram bókun þar
sem þessari samþykkt var fagn-
að.
„Hins vegar er harmað að ekki
sé fyrirhuguð nein nýframkvæmd
á battavelli (upphitaður og upp-
lýstur sparkvöllur með gervi-
grasi) í borginni í ár. Gengur því
hægt að fylgja eftir þeirri stefnu
sem mörkuð var undir stjórn
Sjálfstæðisflokksins á sínum tíma
að battavellir yrðu lagðir við alla
borgarrekna grunnskóla í
Reykjavík. Enn á eftir að leggja
battavelli við sjö grunnskóla:
Grandaskóla, Hagaskóla, Húsa-
skóla, Hvassaleitisskóla, Lauga-
lækjarskóla, Vesturbæjarskóla og
Vogaskóla. Þá er einnig mik-
ilvægt að huga að lagningu slíkra
valla við sjálfstætt rekna grunn-
skóla,“ segir í bókuninni.
sisi@mbl.is
Laga boltagerði við 16 skóla
Morgunblaðið/Árni Torfason
Í leik Boltagerðin hafa notið mikilla
vinsælda um allt land.
Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir að
malbika götur og fræsa fyrir um
1,5 milljarða króna á þessu ári, eða
fyrir ríflega tvöfalt meiri fjárhæð
en á síðasta ári.
Áhersla verður lögð á endurnýj-
un bæði með fræsingu og mal-
bikun, sem og malbikun yfirlaga
og er það gert til að koma í veg
fyrir miklar og kostnaðarsamar
viðgerðir síðar, segir í tilkynningu
frá borginni.
Áætlað er að slík endurnýjun
verði í ár 243.000 fermetrar, eða
sem nemur um 32 km í lengd
gatna. Að auki og fyrir utan áður
talinn kostnað kemur nýtt malbik
á götur sem endurnýjaðar eru frá
grunni, s.s. endurgerð Hafnar-
strætis milli Pósthússtrætis og
Tryggvagötu, sem og vegna end-
urgerðar gatnamóta Lækjargötu
og Geirsgötu. Þá eru framkvæmd-
ir Vegagerðarinnar á stofnbraut-
um ekki inni í þessum tölum.
Borgarráð heimilaði á fundi sín-
um á fimmtudag að malbikunar-
framkvæmdir ársins yrðu boðnar
út.
Þá hefur verið gerð áætlun um
endurnýjun og viðgerðir á malbiki
á götum borgarinnar til næstu
fimm ára. Í fjárhagsáætlun 2017-
2021 er lagt til að um 8,4 millj-
örðum verði varið til verkefnisins.
Fyrstu þrjú árin (2017-2019) verð-
ur áhersla lögð á endurnýjun á
umferðarþungum götum. Á árun-
um 2020-2021 er ætlunin að end-
urnýja fjölmargar götur sem þá
hafa náð endingartíma sínum og
eru það einkum íbúðagötur í
Breiðholti, Árbæ og Grafarvogi.
Malbikað í borginni
fyrir 1,5 milljarða
8,4 milljarðar í áætlun til ársins 2021
Morgunblaðið/RAX
Malbikun Meira verður malbikað í
borginni í ár en á síðasta ári.