Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Donald John Trump sór embættis-
eið sem 45. forseti Bandaríkjanna í
Washington DC síðdegis í gær.
Rúmlega 800 þúsund áhorfendur
mættu til höfuðborgarinnar að fylgj-
ast með athöfninni sem var með
hefðbundnu sniði. Allir núlifandi
fyrrverandi forsetar Bandaríkjanna
voru mættir að 41. forsetanum
undanskildum, George H.W. Bush.
Hann komst ekki vegna veikinda.
Hillary Clinton, keppinautur
Trumps, var viðstödd athöfnina og
lét hafa eftir sér að innsetningar-
athöfnin væri til að heiðra lýðræðið
og viðvarandi gildi þess.
„Ég mun aldrei hætta að trúa á
landið okkar og framtíð þess,“ sagði
hún.
Valdið aftur fólksins
Trump lagði áherslu á að færa
valdið aftur til fólksins í innsetning-
arræðu sinni. Hann sagði daginn
marka þau þáttaskil þegar valdið
færi frá fámennum hópi í Wash-
ington til allra Bandaríkjamanna.
„Þetta er ykkar stund,“ sagði
Trump. „Þetta er ykkar dagur og
þetta er ykkar fögnuður og þetta
land, Bandaríkin, er ykkar land. 20.
janúar 2017 verður minnst sem
dagsins sem fólkið tók á ný við
stjórn landsins. Hinir gleymdu
menn og konur okkar lands verða
ekki gleymd lengur. Þau verða hluti
af sögulegri hreyfingu á þeim skala
sem heimurinn hefur ekki áður séð.“
Störf og framleiðsla heim
Tími uppbyggingar er kominn,
sagði Trump, en líkt og í kosninga-
baráttu sinni lagði hann áherslu á að
fá framleiðslu aftur til Bandaríkj-
anna og bæta þannig upp störf sem
glatast hafa.
„Allar viðskipta- og skattaákvarð-
anir, sem og í utanríkismálum, verða
teknar með það í huga að bæta hag
Bandaríkjanna,“ sagði Trump og
kvað slíka verndarstefnu leiða til
aukins velfarnaðar.
„Við munum koma Bandaríkja-
mönnum af bótum og aftur til
starfa,“ sagði hann og kvað það gert
með því að kaupa bandarískar vörur
og ráða Bandaríkjamenn til starfa.
„Við munum vingast við aðrar þjóð-
ir, en við munum gera það á þeim
grundvelli að það er réttur hvers
ríkis að setja sína eigin hagsmuni
framar hagsmunum annarra.“
Þá hrópaði hann „Ég mun aldrei
bregðast ykkur. Við munum fá störf-
in okkar, landamærin okkar, auðinn
okkar og drauma okkur aftur.“
Öryggi og þjóðarstolt
Trump ræddi um vandamál fá-
tækrahverfa í Bandaríkjunum,
eiturlyfjavandann og glæpi. Sagði
hann mikilvægt að leysa farsællega
úr þeim málum. Hann kom einnig
inn á baráttu Bandaríkjanna gegn
hryðjuverkum og sagði Bandaríkin
mundu má róttæka íslamista af yfir-
borði jarðar.
Að lokum bað Trump landsmenn
að rækta hollustu hver í garð annars
og reisa við þjóðarstolt. Það væri
leiðin til þess að brúa þá gjá sem hafi
myndast milli landsmanna.
„Tíma orðagjálfurs er lokið. Nú er
kominn tími aðgerða,“ sagði Trump.
„Þið verðið aldrei aftur gleymd,“
sagði hann undir lok ræðu sinnar en
endaði hana á að segja tíma til kom-
inn að gera Bandaríkin að stórveldi
á ný og bað Guð að blessa Bandarík-
in.
Mótmæli gegn Trump
Mótmæli gegn nýjum forseta fóru
að mestu friðsamlega fram en beita
þurfti táragasi á fámennan hóp mót-
mælenda sem köstuðu grjóti og
kveiktu í bíl í gær áður en
innsetningarathöfnin fór fram.
AFP
Forsetinn Donald Trump ásamt varaforseta sínum, Mike Pence, við innsetningarathöfnina í gær. Á milli Trumps og Pence er nýja forsetafrúin og eiginkona Trump, Melania Trump.
Ætlar að færa valdið til fólksins
Donald J. Trump sór embættiseið sem 45. forseti Bandaríkjanna í gær Nýi forsetinn lofaði að
hefja enduruppbyggingu landsins og færa valdið til fólksins Áhorfendur voru um 800 þúsund
Mikil vinna fer í innsetningar-
athöfn forseta Bandaríkjanna
enda er athöfnin talin merki um þá
ríku lýðræðislegu hefð að vald-
hafaskipti fari fram fyrir augum al-
mennings á friðsaman hátt.
Innsetningarathöfnin og ræða
nýs forseta er aðeins hluti af
langri dagskrá forsetans. Deginum
fylgir skrúðganga, matarboð og
nokkur svokölluð innsetningarböll.
Þá mætir forsetinn ásamt vara-
forseta sínum til messu í dag í
Washington’s National Cathedral.
Meðan á öllu þessu stendur
vinna starfsmenn Hvíta hússins
hörðum höndum að því að flytja
búslóð fráfarandi forseta úr Hvíta
húsinu og flytja inn húsbúnað nýs
forseta.
Forsetanum fylgir meira en bara
búslóð og fjölskylda því fjöldi
nýrra starfsmanna tekur til starfa
í Hvíta húsinu með nýjum forseta í
svokallaðri vesturálmu.
Valdaskiptin birtast því með
ýmsu móti, þó ekki alltaf í kast-
ljósi fjölmiðlanna.
Flutningurinn í Hvíta húsið
ÓBROTIN LÝÐRÆÐISHEFÐ
AFP
Vinna Meðan nýr forseti er settur í embætti er unnið hörðum höndum í Hvíta húsinu.
AFP
Mannfjöldi Rúmlega 800 þúsund áhorfendur voru við innsetningarathöfn
Donalds Trump, 45. forseta Bandaríkjanna, í Washington í gær.
AFP
Forsetar Allir núverandi forsetar Bandaríkjanna mættu í gær að undan-
skildum George H.W. Bush, eða Bush eldri, en hann var veikur heima.
Bandaríkin fagna lýðræðinu með innsetningarathöfn nýs forseta