Morgunblaðið - 21.01.2017, Síða 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017
✝ Helga Krist-jana Ólafsdótt-
ir fæddist á Húsa-
vík 9. desember
1944. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga á
Húsavík 9. janúar
2017.
Foreldrar henn-
ar voru Ásgerður
Júlíusdóttir, f. 20.7.
1926, d. 1. ágúst
2008, og Ólafur Jón Að-
alsteinsson, f. 17.6. 1919, d.
18.12. 1981.
Helga ólst upp í faðmi fjöl-
skyldu í Brún á Bakkanum á
Húsavík hjá foreldrum sínum og
systkinum. Helga var elst fimm
systkina. Hin eru: Ólína Eygló, f.
4.5. 1946, Aðalsteinn, f. 31.3.
1953, sjómaður á Húsavík,
kvæntur Huldu Sigríði Ingadótt-
ur, Andrés Júlíus, f. 13.9. 1960,
kvæntur Guðrúnu Sigurð-
ardóttur, og Rannveig, f. 9.3.
1962.
Hinn 4. júlí 1964 giftist Helga
skólagöngu þess tíma. Ung hóf
hún störf við sjúkrahús Húsa-
víkur og áttu öll umönnunar-
störf löngum vel við Helgu. 16
ára gömul kynntist hún Sveini
og hófu þau fljótlega búskap í
Krossdal ásamt foreldrum
Sveins. Helga var mikil hann-
yrða- og listakona og saumaði
og prjónaði alla tíð fatnað á
börn sín og annarra. Var heim-
ilið gjarna fullt af sumarbörnum
og seinna barnabörnum og
barnabarnabörnum. Hugur
hennar hneigðist mikið til list-
rænnar sköpunar og aflaði hún
sér menntunar á því sviði í fjar-
námi og á ýmsum námskeiðum
gegnum árin. Helga tók virkan
þátt í kvenfélagsstarfi og söng
alla tíð í kirkjukór Garðskirkju.
Helga bjó allan sinn búskap í
Krossdal og rak mötuneyti á
vegum Landgræðslu ríkisins á
sumrin og ferðaðist þá mikið
ásamt Sveini og vinnuflokknum.
Þá vann hún við lax- og silungs-
eldi í Árlaxi og Ísnó.
Helga dvaldist á dvalarheim-
ilinu Skógarbrekku síðustu
misseri og naut aðhlynningar
starfsfólks þar.
Útför Helgu fer fram frá
Garðskirkju í Kelduhverfi í dag,
21. janúar 2017, og hefst athöfn-
in kl. 14.
Sveini Þórarinssyni,
bónda og land-
græðsluverði í
Krossdal í Keldu-
hverfi, f. 29.9. 1938,
hann var sonur Þór-
arins Jóhannessonar
bónda og konu hans,
Ingveldar Guðnýjar
Þórarinsdóttur.
Börn: 1) Ólöf,
matráður, búsett í
Svíþjóð, f. 24.10.
1962, gift Matthíasi Guðmunds-
syni rafvirkja. Börn þeirra:
Sveinn Björnsson, látinn, Guðný
Jónsdóttir, Salbjörg og Björgvin.
2) Ingveldur Guðný, grunnskóla-
kennari í Fljótshlíð, f. 7.9. 1965,
gift Þorsteini Guðjónssyni
bónda. Börn: Guðjón, Helgi,
Sveinn Víkingur, Þórný, Guðný
Ósk, J. Jóhanna Mctewitt og Ísa-
bella Ósk Svansdóttir. 3) Þór-
arinn, bóndi í Krossdal, f. 8.8.
1968, kvæntur Thiphawan S.
Sveinsson. Börn: Úlfur Saraphat
og Sveinn Saraphat.
Helga naut hefðbundinnar
Elsku amma Helga.
Mikið var ég heppin að eiga
ömmu eins og þig. Þitt knús var
alltaf það besta, alltaf stórt, langt
og með látum.
Ég var mikið hjá þér sem barn
og unglingur og lærði svo margt
af þér. Við vorum mikið að
föndra, laga til í garðinum, þrífa,
elda, fara í berjamó, baka, spila,
spá í tónlist og svo margt fleira.
Við elskuðum að taka góða
vælumynd, væla saman og háma
í okkur popp. Ég veit ekki hvað
við horfðum oft á uppáhalds-
myndina þína, Dansað við úlfa.
Þú varst minn fyrsti vinnuveit-
andi, við elduðum fyrir fólkið í
Landgræðslunni, þínu fræga tún-
fisksalati, grænmetissamlokum
og öðru lostæti röðuðum við
vandlega ofan í bláu mjólkur-
kassana. Það var nóg að gera all-
an daginn í eldamennsku, þrifum,
bókhaldi og fleira. En samt
reyndum við alltaf að hafa pásuna
okkar yfir Glæstum vonum þó að
ég hafi kannski ekki haft eins
gaman af söguþræðinum og þú,
en þegar gelgjan fór að gera vart
við sig þá naut ég þess alltaf að
sitja með þér. Þér fannst aldrei
óþægilegt hvað ég talaði mikið,
þótt það væri meira að segja yfir
sjónvarpinu eða í matartímanum.
Þú talaðir alltaf um þetta sem
minn kost, hvað ég væri lifandi og
skemmtileg.
Við sungum oft saman „horfðu
á björtu hliðarnar“ eins og stóð á
bollanum þínum, þú kenndir mér
að reyna alltaf að sjá það besta í
fólki, taka brosandi á móti öllum
og líta á það jákvæða. Þér fannst
svo gaman að hlæja og það var
best í heimi að fá hláturskast með
þér. Þú varst lúmskt stríðin, sér-
staklega við krakka. Sindri minn
talaði alltaf um skemmtilegu
stríðnu konuna þegar við vorum
nýbúin að hitta þig.
Þér fannst gott að vera í kring-
um börn sem og fullorðna, þér
fannst yndislegt þegar við kom-
um öll saman í Krossdal, borð-
uðum góðan mat og helling af ís
sem var þitt allra mesta uppá-
hald. Eftir ísinn var svo oft sett
skaff í skál og spilað Undir sól-
inni eða Trivial Pursuit.
Ég gisti ófá sumur hjá ömmu
og afa í Krossdal. Uppáhaldið
mitt var þegar húsið var smekk-
fullt og ég þurfti að gista á dýnu
við hliðina á rúminu ykkar, því í
hvert skipti spjölluðum við um
alla heima og geima langt fram á
nótt, ég á svo margar yndislegar
minningar frá þessum stundum.
Tvær ferðir koma í hugann
þegar ég hugsa um allar
skemmtilegu minningarnar sem
ég átti með þér, elsku amma. Ég
fékk einu sinni að fara með ykkur
í kórnum á kóramót undir leið-
sögn James orgelleikara. Ég spil-
aði undir á flautuna með ykkur,
þetta var svo yndisleg upplifun
og ég man hvað þú varst stolt af
mér.
Hin ferðaminningin er land-
græðsluferðirnar, þegar við vor-
um að gera stóra girðingu og
þurftum að gista nokkrar nætur.
Þá komst þú með til að hugsa um
okkur, elda handa okkur dýrindis
morgunmat, kvöldmat og útbjóst
nesti fyrir allan daginn.
Það voru erfiðir tímar hjá okk-
ur fjölskyldunni fyrir rúmum
þremur árum þegar hann Sveinn
okkar kvaddi allt of snemma. Ég
veit að þú munt passa hann og
gefðu honum endalaust stór
ömmuknús frá mér.
Þín,
Guðný.
Helga Kristjana
Ólafsdóttir
Elsku yndislega
og fallega tengda-
móðir mín, nú hefur
þú kvatt þennan
heim. Ég er viss um að þér verð-
ur fagnað vel í nýjum heimi hjá
honum Tryggva þínum.
Það var stór stund í lífi mínu
þegar við hittumst fyrst vorið
1989, þegar við Ásgeir heimsótt-
um ykkur Tryggva til Húsavíkur.
Þú tókst mér opnum örmum og
ég fann hvað ég var velkomin.
Gestrisni ykkar, tilvonandi
tengdaforeldra minna, var mikil
og ekki varst þú lengi að töfra
fram dýrindis veitingar. Það var
gaman að fylgjast með því hvað
þér fórst þetta vel úr hendi. Þú
varst svo létt í spori og dillandi
hlátur þinn ómaði um húsið. Allt-
af var hlaðið borð á hverri máltíð
og búrið fullt af alls konar kræs-
ingum. Enginn skyldi vera
svangur sem hjá ykkur dvaldi.
Svona var þetta alltaf þegar við
Ásgeir og eldri dæturnar gistum
hjá ykkur á Höfðabrekkunni. Við
komum á hverju sumri og áttum
þar frábærar stundir með ykkur
Tryggva. Þú varst gjarnan snögg
að draga fram spilastokkinn og
tókum við oft slag saman. Þá var
glatt á hjalla, keppnisskap þitt
var svo mikið, enda hafðir þú oft-
ast betur. Svona stundir áttum
við líka oft á seinni árum við eld-
húsborðið í Þórsberginu. Þá var
tekið Ólsen Ólsen með okkur Ás-
geiri og stelpunum. Þá gleymdist
tíminn, þú varðst aftur ung og
dillandi hláturinn ómaði.
Elsku Sigrún, þú varst alltaf
svo ljúf, glaðleg og hlý. Þú geisl-
aðir líka af glæsileika. Hafði svo
Sigrún Pálsdóttir
✝ Bjarney Sig-rún Pálsdóttir
fæddist 12. júní
1919. Hún lést 23.
desember 2016.
Sigrún var jarð-
sungin 4. janúar
2017.
gaman af því að
punta þig, áttir
jakka og dragtir í öll-
um regnbogans lit-
um sem allt klæddi
þig svo vel. Hjá þér
skipti hagur fjöl-
skyldunnar miklu
máli og fundu þínir
nánustu sterkt fyrir
kærleika þínum. Ég
á þér margt að
þakka, elskulega
tengdamóðir, og ég á eftir að
sakna stundanna með þér. Ég
mun ávallt minnast þín með virð-
ingu og ást. Guð verndi þig og
geymi. Þín tengdadóttir,
Heiða.
Elsku yndislega amma okkar
var enn svo falleg og glæsileg
þegar hún fór frá okkur níutíu og
sjö ára að aldri. Þegar við hugs-
um til ömmu Sigrúnar þá er það
fyrsta sem kemur upp í hugann
hversu blíð og góð hún var og
hvað hún hugsaði alltaf vel um
fólkið í kringum sig. Amma var
mjög gestrisin og það fór enginn
svangur heim eftir að hafa heim-
sótt hana. Við eigum margar frá-
bærar minningar um hana, eins
og þegar við sátum við eldhús-
borðið og spiluðum eða horfðum
á handboltaleiki í sjónvarpinu.
En það sem stendur upp úr er
hvað hún var alltaf hress og bros-
mild.
Það er okkur einnig eftir-
minnilegt þegar Bryndís tók eitt
sinn viðtal við ömmu í tengslum
við skólaverkefni. Þá talaði amma
um margt áhugavert úr fortíð
sinni og eftir þetta skemmtilega
spjall dáðumst við jafnvel en
meira að þessari frábæru konu.
Við lærðum margt af ömmu og
hún er okkur fyrirmynd.
Elsku fallega amma okkar, þú
munt alltaf lifa í hjörtum okkar.
Valgerður Sif, Bryndís Lilja
og Snædís María.
Elskulega Ólöf
hefur kvatt okkur.
Við kynntumst Löllu fyrst
þegar hún var komin inn í
skemmtilega saumagengið hjá
Steinari tengdapabba. Það gust-
aði í kringum Löllu, það var alltaf
eitthvað að gerast. Hún saumaði
mikið bæði á viðskiptavini og fjöl-
skylduna. Það voru ekki bara föt,
það voru líka kápurnar. Og jafn-
vel nestið sem hún mætti með í
vinnuna var gert að listaverki. Og
við minnumst þess einhverju
sinni þegar Lalla kom í vinnuna
og skellti sér í skinnskó sem
henni fannst alltof stórir og þá
Ólöf Ragnheiður
Guðjónsdóttir
✝ Ólöf Ragn-heiður Guð-
jónsdóttir fæddist
16. desember
1919. Hún lést 18.
desember 2016.
Útför Ólafar
Ragnheiðar fór
fram 4. janúar
2017.
bara minnkaði hún
þá í snarhasti og
komst að því þegar
Júlli kom í vinnuna
að þetta voru ekki
hennar skór heldur
Júlla og þá var mikið
hlegið.
Og Lalla fékkst
við myndlist og það
voru fallegar myndir.
Við munum líka vel
hvað Lalla var glöð
með aðstöðu sem hún hafði í bíl-
skúrnum og hafði eflaust fengið
góða hjálp frá bóndanum til að
koma sér vel fyrir. Það var sama
hvað fengist var við, allt gat
Lalla. Þau hjónin Lalla og Ketill
voru glæsileg hjón og það var svo
fallegt að heyra hana segja frá
Katli, þar var mikil virðing og
væntumþykja. Og í leiðinni:
Takk, Ketill, fyrir alla góðvildina
í okkar garð.
Við kveðjum elsku Löllu með
þakklæti fyrir allt.
Sigrún og Júlíus (Júlli).
Elsku sonur okkar og bróðir,
SÓFUS ÞÓR JÓHANNSSON,
Austurvegi 7, Seyðisfirði,
lést á Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar föstudaginn
13. janúar 2017. Jarðarförin fer fram frá
Seyðisfjarðarkirkju þriðjudaginn 24. janúar
klukkan 14.
Blóm og kransar afþökkuð, en bent er á Hollvinasamtök
Sjúkrahússins á Seyðisfirði.
.
Jóhann Björn Sveinbjörnsson, Svava Sófusdóttir,
Sveinbjörn Már Jóhannsson,
Jóhann Björn Jóhannsson.
Okkar ástkæra
HÓLMFRÍÐUR GUNNARSDÓTTIR,
Lindarbraut 17,
Seltjarnarnesi,
lést á heimili sínu 12. janúar. Útförin fer
fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn
25. janúar klukkan 11.
.
Guðmundur Baldur Sigurgeirsson,
Ingi Haukur Georgsson, Sigrún Guðný Péturdóttir
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
JÓNA BJÖRNSDÓTTIR
frá Vík í Mýrdal,
lést á heimili sínu Hrafnistu, Hafnarfirði,
17. janúar.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
27. janúar klukkan 15.
.
Birna Fríða Björnsdóttir, Guðmundur Þorsteinsson,
Þórunn Ólafsdóttir,
Ragnar Ólafsson, Rakel Sigurðardóttir,
barnabörn, langömmubörn og aðrir ástvinir.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
HERDÍS JÓNSDÓTTIR,
Lundi, Fnjóskadal,
lést á dvalarheimilinu Hlíð 18. janúar.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 26. janúar klukkan 10.30.
Innilegar þakkir til starfsfólks á Eini- og Grenihlíð fyrir góða
umönnun.
.
Þórólfur Guðnason,
Guðni Þórólfsson, Aðalheiður Pétursdóttir,
Aðalbjörg Þórólfsdóttir, Guðlaugur Óli Þorláksson,
Ólafur Haukur Þórólfsson,
Sigríður Þórólfsdóttir, Pétur Ringsted,
Jón Þórólfsson, Hólmfríður Rúnarsdóttir,
ömmubörn og langömmubarn.
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Ellert Ingason
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og
umhyggju að leiðarljósi
og af faglegum metnaði.
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Ástkær sambýliskona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og systir,
ÁSTA GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Hólmi,
Arnarhóli, Landeyjum,
lést aðfaranótt sunnudagsins 15. janúar.
Útförin fer fram frá Krosskirkju, A-Landeyjum, föstudaginn
27. janúar klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð
Guðmundar Jónssonar, Hólmi, reiknnr.: 0308-18-930750,
kt. 071009-1850.
.
Erlendur Guðmundsson,
Jón Heiðar Erlendsson, Monika Freysteinsdóttir,
Magni Freyr Jónsson,
Eygló Guðmundsdóttir, Erla Guðmundsdóttir,
Jóna Guðmundsdóttir, Garðar Guðmundsson.