Morgunblaðið - 21.01.2017, Qupperneq 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég veit ekki betur en að við séum að
Íslandsfrumflytja þennan kvintett al-
veg eins og við Íslandsfrumfluttum
fyrri píanókvintett hennar fyrir
tveimur árum á tónleikum Kammer-
músíkklúbbsins við afar góðar undir-
tektir,“ segir Þórir Jóhannsson
kontrabassaleikari um Píanókvintett
nr. 2 í E-dúr op. 31 eftir Louise Far-
renc sem fluttur verður á fyrstu tón-
leikum ársins á vegum Kammermús-
íkklúbbsins. Tónleikarnir fara fram í
Norðurljósum Hörpu á morgun kl.
17.
Flytjendur auk Þóris eru fiðluleik-
arinn Greta Guðnadóttir, víóluleik-
ararnir Guðrún Þórarinsdóttir og
Jónína Auður Hilmarsdóttir, selló-
leikarinn Bryndís Björgvinsdóttir og
píanóleikarinn Ingunn Hildur Hauks-
dóttir. Hitt verkið á efnisskránni er
Píanósextett í D-dúr op. 110 eftir Fel-
ix Mendelssohn, sem hann samdi að-
eins fimmtán ára gamall. „Þetta eru
mjög ólík verk, en bæði auðvitað há-
rómantísk,“ segir Þórir og tekur fram
að þau séu sjaldan flutt og því gaman
að kynna þau fyrir tónleikagestum.
Greinilega mikill femínisti
Þórir rifjar upp að hin franska
Louise Farrenc og þýski Felix Mend-
elssohn hafi bæði verið fædd á fyrsta
áratug 19. aldar og átt það sameig-
inlegt að semja tónverk af flestum
gerðum nema óperur. „Þau voru
bæði afar þekkt og vel metin á sinni
tíð sem tónskáld og píanóleikarar,
Mendelssohn raunar eitt stærsta
nafn tónlistarheimsins á fyrri hluta
19. aldar. Skoðanir á gildi og vægi
verka Mendelssohns hafa sveiflast
mjög frá andláti hans árið 1847 en
tónlist hans hefur aldrei glatað vin-
sældum sínum, enda er hún full af
birtu og fegurð. Tónlist Louise Far-
renc féll hinsvegar í gleymsku fljót-
lega eftir að hún lést árið 1875,
kannski ekki síst út af kyni. Það er
ekki fyrr en á síðustu árum sem þau
hafa aftur verið dregin fram í dags-
ljósið og hlotið þá athygli sem þau
eiga skilið,“ segir Þórir og tekur fram
að hljóðheimur Farrenc sé afar
spennandi, en eftir hana liggja tæp-
lega fimmtíu verk.
„Farrenc var virtur píanókennari á
sínum tíma. Hún sótti það fast og
fékk það í gegn að hún fengi jafn-
mikið greitt fyrir píanókennslu sína
og karlkyns samkennarar hennar.
Hún var greinilega mikill femínisti.
Sem tónskáld hefur hún sinn stíl og
tón. Það hefur verið ákveðin áskorun
fyrir okkur í kvintettnum að átta okk-
ur á tónmáli hennar. En þetta er
virkilega flott músík,“ segir Þórir og
tekur fram að píanóið sé í forgrunni í
báðum verkum. Athygli vekur að í
verki Mendelssohns eru tvær víólur.
„Það gefur dekkri tón, en ekkert
endilega angurværari. Síðasti kaflinn
í sextettinum er mjög líflegur og
kómískur, en fyrsti kaflinn er dekkri
og hægari.“
Spennandi hljóðheimur Hljóðfæraleikararnir Þórir Jóhannsson, Bryndís Björgvinsdóttir, Guðrún Þórarinsdóttir,
Greta Guðnadóttir, Ingunn Hildur Hauksdóttir (fremst til hægri) og Jónína Auður Hilmarsdóttir (fremst til vinstri).
„Virkilega flott músík“
Flytja verk eftir Louise Farrenc og Felix Mendelssohn
á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í Hörpu á morgun
Sönghópurinn Olga Vocal En-
semble kemur fram á tónleikum í
Norðurljósasal Hörpu á mánudags-
kvöld kl. 20 og flytur a cappella-
tónlist víðs vegar að úr heiminum.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
Sönghópurinn er fjölþjóðlegur en
tveir meðlimir eru frá Hollandi,
þeir Jonathan Ploeg og Gulian van
Nierop, Philip Barkhudarov er frá
Rússlandi og þá eru Pétur Odd-
bergur Heimisson og Bjarni Guð-
mundsson í hópnum.
Efnisskráin er fjölbreytt og þar
má nefna lög sem tengjast heima-
löndum söngvaranna, til að mynda
fallega íslenska tónlist, en líka
drykkjuvísur og slagara.
Tónleikarnir eru liður í undir-
búningi fyrir tónleikaferðalag um
Bandaríkin sem Olga Vocal En-
semble leggur upp í í lok mánaðar-
ins. Heldur hópurinn tíu tónleika í
mörgum ríkjum.
Að tónleikaferðinni lokinni
breytist liðsskipan sönghópsins
þegar Bjarni Guðmundsson yfir-
gefur hópinn og við tekur Englend-
ingurinn Matthew Smith.
Glaðbeittir Vígalegir félagarnir í Olga Vocal Ensemble sem koma fram á mánudag.
Olga Vocal Ensemble í Norðurljósum
Japanskur and-
blær er heiti sýn-
ingar á vatns-
litamyndum eftir
Maríu Lofts-
dóttur sem verð-
ur opnuð í Hann-
esarholti við
Grundarstíg í
dag, laugardag,
kl. 16.
María Lofts-
dóttir hefur numið myndlist og sótt
sér innblástur víða um heim. Hún
hefur fjölskyldutengsl í Japan og
hefur ferðast þar víða, ætíð með
vatnslitablokkina í farteskinu.
Þegar jarðskjálftinn mikli reið
yfir Japan árið 2011 ákvað María
að stundin væri runnin upp og hóf
að mála af miklum móð. Hún sýndi
síðan afraksturinn arið 2013 í
Toyako-listasafninu í Hokkaido.
Eftir að sýningunni lauk var upp-
boð haldið á myndunum og rann
ágóðinn til Rias-safnsins á jarð-
skjálftasvæðinu sem safnar upplýs-
ingum um jarðskjálfta. Sumarið
2016 fór María enn á ný til Japan
með skissublokkina, dró í sig jap-
anskan andblæ og málaði mynd-
irnar sem nú verða sýndar í Hann-
esarholti.
Japansmyndir
í Hannesarholti
María Loftsdóttir.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Lau 21/1 kl. 20:00 143. s Lau 4/2 kl. 20:00 148. s Lau 18/2 kl. 20:00 153. s
Sun 22/1 kl. 20:00 144. s Sun 5/2 kl. 20:00 149. s Sun 19/2 kl. 20:00 154. s
Fim 26/1 kl. 20:00 145. s Fös 10/2 kl. 20:00 150. s Fim 23/2 kl. 20:00 155. s
Lau 28/1 kl. 20:00 146. s Lau 11/2 kl. 20:00 151. s Fös 24/2 kl. 20:00 156. s
Sun 29/1 kl. 20:00 147. s Fös 17/2 kl. 20:00 152. s Lau 25/2 kl. 20:00 157. s
Glimmerbomban heldur áfram!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Lau 21/1 kl. 13:00 28.s Lau 4/2 kl. 13:00 31. s Lau 25/2 kl. 13:00 34. s
Sun 22/1 kl. 13:00 29.s Lau 11/2 kl. 13:00 32. s Sun 5/3 kl. 13:00 35. s
Sun 29/1 kl. 13:00 30. s Sun 19/2 kl. 13:00 33. s Sun 12/3 kl. 13:00 36. s
Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Ræman (Nýja sviðið)
Fös 27/1 kl. 20:00 8. sýn Mið 1/2 kl. 20:00 aukas. Fös 3/2 kl. 20:00 10.sýn
Nýtt verk sem hlaut Pulitzer-verðlaunin 2014!
Hún Pabbi (Litla svið )
Lau 21/1 kl. 20:00 6. sýn Lau 28/1 kl. 20:00 8. sýn
Fös 27/1 kl. 20:00 7. sýn Fim 2/2 kl. 20:00 9. sýn
Í samstarfi við leikhópinn Trigger Warning
Illska (Litla sviðið)
Fim 2/3 kl. 20:00 Fös 10/3 kl. 20:00
Fös 3/3 kl. 20:00 Lau 11/3 kl. 20:00
Samstarfsverkefni við Óskabörn ógæfunnar
Vísindasýning Villa (Litla svið )
Fim 2/2 kl. 14:00 Fors. Sun 5/2 kl. 13:00 2. sýn Lau 18/2 kl. 13:00 5. sýn
Fös 3/2 kl. 14:00 Fors. Lau 11/2 kl. 13:00 3. sýn Sun 19/2 kl. 13:00 6. sýn
Lau 4/2 kl. 13:00 Frums. Sun 12/2 kl. 13:00 4. sýn
Ferðalag fyrir börn um töfraheim vísindanna.
Salka Valka (Stóra svið)
Þri 24/1 kl. 20:00 8. sýn Mið 1/2 kl. 20:00 11. sýn Mið 8/2 kl. 20:00 14. sýn
Mið 25/1 kl. 20:00 9. sýn Fim 2/2 kl. 20:00 12. sýn Fim 9/2 kl. 20:00 15 sýn
Fös 27/1 kl. 20:00 10.sýn Fös 3/2 kl. 20:00 13. sýn Sun 12/2 kl. 20:00 16.sýn
Ein ástsælasta saga þjóðarinnar í leikstjórn verðlaunaleikstjórans Yönu Ross
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Djöflaeyjan (Stóra sviðið)
Fim 26/1 kl. 19:30 36.sýn Lau 11/2 kl. 19:30 38.sýn
Lau 4/2 kl. 19:30 37.sýn Lau 18/2 kl. 19:30 39.sýn
Kraftmikill söngleikur um skrautlegt mannlíf í braggahverfum Reykjavíkur!
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Sun 22/1 kl. 19:30 aukasýn Lau 4/2 kl. 19:30 36.sýn Lau 11/2 kl. 19:30 39.sýn
Fim 26/1 kl. 19:30 34.sýn Sun 5/2 kl. 19:30 37.sýn Fös 17/2 kl. 19:30 aukasýn
Fös 27/1 kl. 19:30 35.sýn Fös 10/2 kl. 19:30 38.sýn
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Óþelló (Stóra sviðið)
Fös 27/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 3/2 kl. 19:30 9.sýn Fim 16/2 kl. 19:30 aukasýn
Lau 28/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 9/2 kl. 19:30 10.sýn Fös 17/2 kl. 19:30 11.sýn
Fim 2/2 kl. 19:30 8.sýn Fös 10/2 kl. 19:30 aukasýn Lau 25/2 kl. 19:30 12.sýn
Vesturport tekst á nýjan leik á við Shakespeare!
Gott fólk (Kassinn)
Lau 21/1 kl. 19:30 6.sýn Lau 28/1 kl. 19:30 7.sýn Sun 29/1 kl. 19:30 8.sýn
Nýtt og ágengt íslenskt verk um ungt fólk, ástarsambönd, ofbeldi og refsingu
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 22/1 kl. 13:00 Frums Sun 12/2 kl. 13:00 4.sýn Sun 19/2 kl. 16:00 aukasýn
Sun 29/1 kl. 13:00 2.sýn Sun 12/2 kl. 16:00 aukasýn
Sun 5/2 kl. 13:00 3.sýn Sun 19/2 kl. 13:00 5.sýn
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Gísli á Uppsölum (Kúlan)
Sun 22/1 kl. 14:00 Sun 5/2 kl. 14:00 Fim 9/2 kl. 19:30
Mið 25/1 kl. 19:30 Mið 8/2 kl. 19:30
Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins.
Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 21/1 kl. 20:00 9.sýn Lau 28/1 kl. 20:00 14.sýn Lau 4/2 kl. 20:00 19.sýn
Lau 21/1 kl. 22:30 10.sýn Lau 28/1 kl. 22:30 15.sýn Lau 4/2 kl. 22:30 20.sýn
Fim 26/1 kl. 20:00 11.sýn Fim 2/2 kl. 20:00 16.sýn Fim 9/2 kl. 20:00 21.sýn
Fös 27/1 kl. 20:00 12.sýn Fös 3/2 kl. 20:00 17.sýn
Fös 27/1 kl. 22:30 13.sýn Fös 3/2 kl. 22:30 18.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Húsið (Stóra sviðið)
Lau 11/3 kl. 19:30 Frums Lau 18/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 25/3 kl. 19:30 5.sýn
Fim 16/3 kl. 19:30 2.sýn Fös 24/3 kl. 19:30 4.sýn
Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga.
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 8/2 kl. 20:00 Mið 1/3 kl. 20:00 Mið 22/3 kl. 20:00
Mið 15/2 kl. 20:00 Mið 8/3 kl. 20:00 Mið 29/3 kl. 20:00
Mið 22/2 kl. 20:00 Mið 15/3 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Íslenski fíllinn (Brúðuloftið)
Lau 4/2 kl. 13:00 Lau 11/2 kl. 13:00 Lau 18/2 kl. 13:00
Lau 4/2 kl. 15:00 Lau 11/2 kl. 15:00 Lau 18/2 kl. 15:00
Hrífandi brúðusýning fyrir alla fjölskylduna!
Þjónustuauglýsingar
Fáðu tilboð hjá söluráðgjafa í síma 569 1100 eða á augl@mbl.is