Morgunblaðið - 21.01.2017, Qupperneq 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Á tónleikunum fléttast saman nor-
ræn miðaldatónlist, íslensk, sænsk
og norsk, þjóðlög og spuni þar sem
raddir tríósins og hljóðfæri okkar og
raddir fléttast saman í tímalausu
flæði. Hljóma munu rímur, tví-
söngur, Þorlákstíðir og önnur mið-
aldatónlist,“ segir Skúli Sverrisson
bassaleikari um tónleika barokk-
raddhópsins Trio Mediaeval og
djasstríósins Saums sem fram fara í
Hallgrímskirkju í kvöld kl. 19.
Þetta er í fyrsta sinn sem Trio
Mediaeval heldur tónleika hérlendis,
en tríóið er skipað norsku söngkon-
unum Önnu Mariu Friman, Linn
Andrea Fuglseth og Berit Opheim.
„Tríóið var stofnað í Osló 1997. Þær
hafa frá upphafi einbeitt sér að
flutningi miðaldatónlistar og nýrrar
tónlistar en hópurinn hefur átt í
frjóu samstarfi við nokkra af
fremstu tónskáldum og tónlist-
armönnum samtímans. Hópurinn
hefur gefið út sex plötur hjá hinni
virtu ECM-útgáfu sem hafa verið til-
nefndar til Grammy-verðlauna,
prýtt efstu sæti Billboard-lista og
fengið frábærar viðtökur hjá gagn-
rýnendum stórblaða á borð við The
New York Times,“ segir Skúli og
bendir á að tríóið hafi komið fram
vítt og breitt í Evrópu og Bandaríkj-
unum á virtum tónleikastöðum á
borð við The Wigmore Hall og Bar-
bican Centre í Lundúnum, Concert-
gebouw í Amsterdam, Bozar í
Brussel, The Carnegie Hall í New
York og The Kennedy Center í
Washington DC.
Rýmið hluti af upplifuninni
„Upp á síðkastið hafa þær farið að
starfa í auknum mæli með nýjum
tónskáldum á borð við David Lang
og Gavin Bryars. Einnig hafa þær
haft meiri áhuga á að vinna með
spunatónlistarmönnum og í þeirra
hópi er trompettleikarinn Arve Hen-
riksen,“ segir Skúli, en í næsta mán-
uði kemur út hjá ECM-útgáfufyr-
irtækinu platan Rímur sem hefur að
geyma tónlist í flutningi Trio Medi-
aeval og Arve Henriksen og munu
þau fylgja þeim diski eftir með tón-
leikahaldi í Noregi og víðar.
„Arve hefur aftur starfað með
okkur Hilmari Jenssyni gítarleikara,
en á síðasta ári gáfum við út plötuna
Saum hjá Mengi sem markar upp-
hafið að samstarfi okkar sem tríós,“
segir Skúli og bendir á að Henriksen
hafi átt hugmyndina að samstarfi
tríóanna tveggja. „Þær lýstu yfir
áhuga á því að blanda þessum tveim-
ur heimum saman, þ.e. tónlist sem
er búin til í gegnum spuna og mið-
aldamúsíkinni.“
Spurður hvers vegna Hallgríms-
kirkja hafi orðið fyrir valinu sem
tónleikastaður segir Skúli hljóm-
burð kirkjunnar henta tónlistinni.
„Miðaldatónlistin hljómar ótrúlega
vel í stórum rýmum. Þær eru líka
þekktar fyrir að koma fram í íkon-
ískum byggingum, bæði gömlum og
nýjum. Hluti af upplifuninni við að
hlýða á þær tengist umhverfinu og
samhenginu. Þær kusu því þennan
stað, sem mér finnst henta vel.“
Talar sterkt við nútímann
Inntur eftir því hvernig tónlist-
arfólkið undirbúi sig fyrir spuna-
tónleika kvöldsins bendir Skúli á að
þeir Hilmar og Henriksen hafi spilað
mikið saman. „Öll okkar músík verð-
ur til í gegnum spuna og þar notum
við bara ákveðna aðferð við tónlist-
arsköpunina sem við höfum þróað
bæði sem einstaklingar og sem tríó.
Við höfum síðan undirbúið tón-
leikana í samvinnu við söngkon-
urnar. Þær flytja lög sem þær hafa
fundið, æft og útsett, en við spinnum
í kringum efnið,“ segir Skúli og
bendir á að áhuginn á miðaldatónlist
hafi aukist nokkuð á síðasta áratug.
„Það er eitthvað sérstakt við nálgun
norsku söngkvennanna og hvernig
þær hljóma þegar þær syngja þessa
gömlu tónlist sem hefur laðað að
mörg tónskáld sem eru að búa til
nýja tónlist. Þær hafa líka náð mik-
illi hlustun. Það er stór hópur fólks
sem fær mikið út úr þessari tegund
tónlistar. Þó þetta sé elsta tónlistar-
formið sem við þekkjum þá talar það
mjög sterkt við samtímann.“
Ljósmynd/Karolina Thorarensen
Spunameistarar Skúli Sverrisson, Arve Henriksen og Hilmar Jensson.
Ljósmynd/Ingvil Skeie Ljones
Söngstjörnur Anna Maria Friman, Linn Andrea Fuglseth og Berit Opheim
stofnuðu Trio Mediaeval árið 1997 og hafa vakið mikla athygli.
Rímur og spuni
Trio Mediaeval og Saumur koma
fram í Hallgrímskirkju í kvöld kl. 19
Xander Cage, sem allir héldu að væri dauður,
snýr aftur úr sjálfskipaðri útlegð í flottara
formi en nokkru sinni til að takast á við hinn
hættulega Xiang, en hann hefur náð á sitt vald
hátæknivopni sem gæti hæglega gert út af við
allt mannkyn.
IMDb 5,6/10
Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.00, 22.20, 22.40
Sambíóin Egilshöll 13.00, 15.20, 17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 20.00, 22.40
Sambíóin Akureyri 17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Keflavík 17.30, 20.00, 22.20
Smárabíó 19.30, 20.00, 22.00, 22.30
xXx: Return of Xander Cage 12
Live By Night 16
Myndin gerist á bann-
árunum og fjallar um hóp
einstaklinga sem lifir og
hrærist í heimi skipulagðrar
glæpastarfsemi.
Metacritic 51/1010
IMDb 7,2/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.40
Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.40
Sambíóin Akureyri 22.35
Sambíóin Keflavík 22.20
Hjartasteinn
Örlagarík þroskasaga sem
fjallar um sterka vináttu
tveggja drengja sem eru að
taka sín fyrstu skref inn í
unglingsárin og uppgötva
ástina.
Morgunblaðið bbbbm
IMDb 7,9/10
Laugarásbíó 17.00, 20.00
Smárabíó 13.30, 14.00, 17.00, 20.10, 22.20
Háskólabíó 15.00, 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 17.40, 20.00
Rogue One:
A Star Wars Story 12
Uppreisnarmenn fara í leið-
angur til að stela teikning-
unum af Helstirninu.
Metacritic 66/100
IMDb 8,3/10
Sambíóin Álfabakka 14.00,
17.00, 20.00, 22.40
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.40
Sambíóin Kringlunni 17.20
Sambíóin Akureyri 17.20,
20.00
The Great Wall 16
Metacritic 36/100
IMDb 6,0/10
Laugarásbíó 22.40
Sambíóin Keflavík 20.00
Smárabíó 20.10, 22.55
Borgarbíó Akureyri 22.20
Assassin’s Creed 16
Metacritic 36/100
IMDb 6,7/10
Smárabíó 22.30
La La Land Sambíóin Kringlunni
20.00, 21.40, 22.40
Monster Trucks 12
Tripp dreymir um að komast
í burtu úr uppeldisbænum.
Metacritic 37/100
IMDb 5,6/10
Sambíóin Álfabakka 13.00,
14.50, 15.20, 17.40
Sambíóin Egilshöll 13.00,
15.20, 17.40
Sambíóin Kringlunni 15.20
Sambíóin Akureyri 15.00
Sambíóin Keflavík 17.30
Fantastic Beasts and
Where to Find Them
Ævintýri Newt Scamander í
leynilegu samfélagi norna og
galdramanna í New York.
Bönnuð yngri en 9 ára.
Metacritic 66/100
IMDb 7,7/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Sambíóin Egilshöll 14.40,
20.00
Allied
Metacritic 60/100
IMDb 7,2/10
Sambíóin Álfabakka 22.40
Patriot’s Day 16
Metacritic 70/100
IMDb 7/10
Laugarásbíó 20.00, 22.40
Háskólabíó 15.10, 18.10,
21.20
Borgarbíó Akureyri 22.50
Passengers 12
Aurora og Jim eru farþegar
um borð í geimskipi sem er
að flytja þau til annarra plán-
etu þar sem þau munu hefja
nýtt líf. Skyndilega vakna
þau í svefnhylkjunum, 90 ár-
um á undan áætlun.
Metacritic 41/100
IMDb 6,8/10
Smárabíó 16.30
Háskólabíó 18.10, 21.20
Silence 16
Árið er 1639 og tveir portú-
galskir prestar ákveða að
ferðast til Japans til að
kanna hvort fyrrverandi læri-
meistari þeirra hafi gengi af
trúnni.
Laugarásbíó 18.50, 22.00
Háskólabíó 21.00
Borgarbíó Akureyri 20.00
Why Him? 12
Metacritic 38/100
IMDb 6,5/10
Smárabíó 17.20, 19.50
Rómeó og Júlía
Sambíóin Kringlunni 17.55
Collateral Beauty Metacritic 24/100
IMDb 6,2/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.20
Sambíóin Egilshöll 17.40,
22.40
Syngdu Metacritic 60/100
IMDb 7,3/10
Laugarásbíó 14.00, 16.30
Sambíóin Álfabakka 13.00,
14.30, 15.20, 17.30
Sambíóin Keflavík 15.00
Smárabíó 13.00, 15.00,
17.35
Háskólabíó 15.20
Vaiana Metacritic 81/100
IMDb 8,3/10
Sambíóin Álfabakka 15.00,
17.30
Sambíóin Álfabakka 13.00,
15.20, 17.30
Sambíóin Egilshöll 13.00,
15.20, 17.30
Sambíóin Kringlunni 13.00,
14.00, 17.40
Sambíóin Akureyri 15.00
Sambíóin Keflavík 15.00
Billi Blikk
Kóalastrákur fer í hættuför.
Laugarásbíó 14.00, 16.00,
18.00
Smárabíó 13.00, 15.15,
17.30
Háskólabíó 15.00, 18.00
Borgarbíó Akureyri 13.30,
15.40
Tröll Metacritic 45/100
IMDb 6,8/10
Smárabíó 13.00, 15.25
Sjöundi dvergurinn Sambíóin Álfabakka 13.00
Moonlight
Myndin gerist á þremur
tímaskeiðum, og segir upp-
vaxtarsögu svarts, samkyn-
hneigðs manns á Florida í
Bandaríkjunum.
Metacritic 99/100
IMDb 8,5/10
Bíó Paradís 17.45, 20.00,
22.15
Embrace of The
Serpent
Metacritic 82/100
IMDb 8,0/10
Bíó Paradís 22.30
Gimme Danger
Bíó Paradís 22.30
Lion Metacritic 68/100
IMDb 7,9/10
Bíó Paradís 20.00
Eiðurinn 12
Morgunblaðið bbbbb
IMDb 7,7/10
Bíó Paradís 17.45
Graduation
Bíó Paradís 20.00
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna