Morgunblaðið - 18.02.2017, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 18.02.2017, Blaðsíða 34
34 MESSURá morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2017 Styrkur til tónlistarnáms MINNINGAR SJÓÐUR JPJ Ím y n d u n a ra fl / M -J P J www.minningarsjodur-jpj.is 2016BaldvinOddson-trompet 2015RannveigMarta Sarc-fiðla 2014Sólveig Thoroddsen-harpa 2013Hulda Jónsdóttir-fiðla 2012BenediktKristjánsson-söngur 2011Matthías I. Sigurðsson-klarinett 2010GunnhildurDaðadóttir-fiðla 2009Helga ÞóraBjörgvinsdóttir-fiðla 2008 JóhannNardeau-trompet 2007MelkorkaÓlafsdóttir-flauta 2006ElfaRúnKristinsdóttir-fiðla 2005ÖgmundurÞór Jóhannesson-gítar 2004VíkingurHeiðarÓlafsson-píanó 2003BirnaHelgadóttir-píanó 2002LáraBryndís Eggertsdóttir-orgel 2001PálínaÁrnadóttir-fiðla 2000Hrafnkell Orri Egilsson-selló 1999UnaSveinbjarnardóttir-fiðla 1998ÁrniHeimir Ingólfsson-píanó/tónv. 1997ÞórðurMagnússon-tónsmíðar 1996 IngibjörgGuðjónsdóttir-söngur 1995SigurbjörnBernharðsson-fiðla 1994GuðniA. Emilsson-hljómsveitarstj. 1993TómasTómasson-söngur 1992ÞóraEinarsdóttir-söngur f y r r u m s t y r k þ e g a r Minningarsjóður um Jean-Pierre Jacquillat, fyrrum aðalstjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands, mun á þessu ári veita efnilegum tónlistarmanni styrk til framhaldsnáms erlendis á skólaárinu 2017-2018. Veittur er einn styrkur að upphæð 1.500.000 kr. Umsóknir, með upplýsingum um námsferil og framtíðaráform, sendist fyrir 19. mars nk. til formanns sjóðsins: Minningarsjóður um Jean-Pierre Jacquillat Pósthólf 35, 121 Reykjavík Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár frumsaminna verka eða önnur gögn sem sýna hæfni umsækjenda. AÐVENTKIRKJAN í Reykjavík | Laugardag. Biblíufræðsla kl. 11, guðþjónusta kl. 12. Ræðumaður Eric Guðmundsson. Sameiginleg máltíð eftir guðþjónustu. Barnastarf. AÐVENTKIRKJAN í Vestmannaeyjum | Brekastíg 17. Laugardag. Guðsþjónusta kl. 12. Útsending frá Reykjavíkur kirkju. AÐVENTSÖFNUÐURINN í Hafnarfirði | Hólshrauni 3, laugardag. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður: Stefán Rafn Stefánsson. Biblíu- fræðsla kl. 11.50. Barna- og unglingastarf. Umræðuhópur á ensku. Súpa og brauð eftir samkomu. AKURINN kristið samfélag | Samkoma í Núpalind 1, sunnudaginn 19. feb. kl. 14. Bibl- íufræðsla, söngur og bæn. ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar. Organisti er Krisztina Kalló Szklenár. Kven- félagskonur flytja almenna kirkjubæn. Arnór Daði Brynjarsson leikur á horn og Sólveig Þóra Þorsteinsdóttir leikur á trompet. Sunnudaga- skólinn á sama tíma í umsjón Önnu Siggu og Aðalheiðar. ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Séra Helga Soffía Konráðsdóttir prófastur prédikar og þjónar fyrir altari. Benjamín Hrafn Böðv- arsson og Dagur Fannar Magnússon guð- fræðinemar annast samverustund sunnudaga- skólans. Kammerkór Áskirkju syngur, organisti er Þorvaldur Örn Davíðsson. Kaffi í Ási eftir messu. BESSASTAÐAKIRKJA | Konudagsmessa 19. febrúar kl. 17. Sr. Hans Guðberg og Mar- grét djákni leiða stundina ásamt konum úr Kvenfélagi Álftaness. Hljómsveitin Lærisveinar Hans leikur undir sönginn ásamt Bjarti Loga Guðnasyni organista. Allar konur fá rós og um kirkjukaffið sér æskulýðsfélagið. BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón með stund- inni hafa Sigrún Ósk og Hans Guðberg. BORGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Guðs- þjónusta í Brákarhlíð kl. 13.45. Organisti Steinunn Árnadóttir. Prestur Þorbjörn Hlynur Árnason BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er Þórhallur Heimisson. Organisti er Örn Magn- ússon. Kór Breiðholtskirkju syngur. Eftir mess- una er kökubasar á vegum Hollvinafélags Breiðholtskirkju. Sunnudagaskóli kl. 11. Um- sjón Steinunn og Steinunn. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Petra, Daníel, Andrea, Jónas Þórir og Pálmi leiða samveruna. Foreldrar og afar og ömmur hvött til þátttöku með börnunum. Messa kl. 14. Félagar úr kór Bústaðakirkju undir stjórn kantors Jón- asar Þóris. Messuþjónar aðstoða. Heitt á könn- unni eftir stundina. Prestur Pálmi Matthíasson. DIGRANESKIRKJA | Messa og sunnudaga- skóli kl. 11. Prestur Gunnar Sigurjónsson. Hljómsveitin Ávextir andans leiða safn- aðarsöng. Súpa í safnaðarsal að messu lok- inni. Dómkirkja Krists konungs, Landakoti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku, kl. 15 á litháísku og kl. 18 á ensku. Messa virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er sunnudagsmessa. DÓMKIRKJAN | Sunnudaginn 19. febrúar kl 11 er messa í Dómkirkjunni. Séra Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Sunnu- dagaskólinn í umsjón Sigurðar Jóns og Ólafs Jóns. Dómkórinn og organisti er Kári Þormar. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Kristín Kristjánsdóttir djákni og Þórey Dögg Jónsdóttir djákni þjóna og flytja saman hugvekju. Kór kirkjunnar syng- ur lög tileinkuð konum. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson. Reynir Þormar spilar á saxafón. Í tilefni dagsins bjóða karlar upp á nýbakaðar vöfflur með rjóma eftir stundina. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir stundina. Sönghópurinn við Tjörnina leiðir tón- listina ásamt Gunnari Gunnarssyni organista. Fermingarbörn og fjölskyldur þeirra eru hvött til að mæta. GLERÁRKIRKJA | Messa og sunnudagskóli kl. 11 sunnudag. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots. Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar og Kross- bandið leiðir almennan söng. GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigurður Grétar Helgason prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju syngur. Organisti er Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón hefur Þóra Björg og undirleikari er Stefán Birkisson. GRAFARVOGUR - KIRKJUSELIÐ Í SPÖNG | Selmessa kl. 13. Sr. Sigurður Grétar Helgason prédikar og þjónar fyrir altari. Biblíudagurinn haldinn hátíðlegur. Vox populi syngur og org- anisti er Hilmar Örn Agnarsson. Sunnudaga- skóli kl. 13. Umsjón hefur Bjarki Geirdal Guð- finnsson og undirleikari er Stefán Birkisson. GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10 og bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11. Messa kl. 11. Altarisganga. Samskot til Biblíufélagsins. Messuhópur þjón- ar. Félagar úr kirkjukór Grensáskirkju syngja. Organisti er Ásta Haraldsdóttir. Prestur Ólafur Jóhannsson. Molasopi eftir messu. Hversdagsmessa með léttu sniði á fimmtudag kl. 18.10-18.50. Þorvaldur Halldórsson sér um tónlist. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðsþjónusta í umsjón Félags fyrrum þjónandi presta klukkan 14 í hátíðasal. Sr. Gylfi Jóns- son þjónar. Grundarkórinn leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage organista. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðs- þjónusta og barnastarf í Guðríðarkirkju19. feb. kl. 11. Prestur er Karl V. Matthíasson, organ- isti er Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju syngur. Sunnudagaskólinn, umsjónarmenn Sigurður og Andrea Ösp. Hvetjum fermingarbörn og for- eldra þeirra að koma í messu. Kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffisopi eftir messu. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Kvennakór Háskóla Íslands syngur og leiðir messusöng. Stjórnandi er Margrét Bóasdóttir. Organisti er Guðmundur Sigurðsson. Prestur er Þórhildur Ólafs. Leiðtogar sunnudagaskól- ans eru Erla Björg og Hjördís Rós. Hressing eft- ir stundirnar. Aðalsafnaðarfundur í Vonarhöfn Strandbergs kl. 12.30. Morgunmessa miðvikudag kl. 8. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Hópur messuþjóna aðstoðar. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Umsjón barna- starfs Rósa Árnadóttir. Bænastund mánud. kl. 12.15. Fyrirbænaguðsþjónusta þriðjud. kl. 10.30. Árdegismessa miðvikud. kl. 8. Kyrrð- arstund fimmtud. kl. 12. HÁTEIGSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Félagar í kór Háteigskirkju syngja, org- anisti Kári Allansson, prestur Eiríkur Jóhanns- son. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson leiðir stundina. Þorvaldur Halldórsson sér um tónlist og leiðir söng. Sunnudagaskóli á sama tíma í salnum niðri í umsjón Markúsar og Heiðbjartar. HÓLANESKIRKJA Skagaströnd | Konu- dagsmessa kl. 18. Í messunni verða sungnir sálmar eftir konur. Sr. Bryndís Valbjarnardóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Hóla- neskirkju syngur undir stjórn Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur, organista og kórstjóra. Ritn- ingarlestrar eru í höndum Örnu Rúnar Arnars- dóttur og Ingólfs Eðvalds Björnssonar. Sunnu- dagaskóli kl. 11. HRUNAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Kirkju- kórinn leiðir söng undir stjórn Stefáns Þorleifs- sonar organista. Molasopi á eftir í safn- aðarheimili. HVAMMSKIRKJA í Norðurárdal | Guðsþjón- usta kl. 14. Organisti: Jónína Erna Arnardóttir. Prestur Elínborg Sturludóttir. HVERAGERÐISKIRKJA | Karlamessa kl. 11. Karlaraddir leiða söng undir stjórn Miklósar Dalmay. Guðmundur Brynjólfsson djákni pré- dikar. Jón Ragnarsson sóknarprestur þjónar fyrir altari. Meðhjálpari Helgi Þorsteinsson. Konur sérstaklega velkomnar. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Kl. 13. Barna- kirkja og almenn samkoma með lofgjörð og fyr- irbænum. Ragnar Schram predikar. Eftir stund- ina verður boðið upp á kaffi og meðlæti. KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa og sunnu- dagaskóli kl. 11. Ragnheiður Elín Árnadóttir flytur hugleiðingu. Félagar úr Kór Keflavík- urkirkju syngja einungis sálma sem samdir eru af konum. Fermingarforeldrar reiða fram súpu og Sigurjónsbakaríi gefur brauð. 22. febrúar kl. 12. Kyrrðarstund í kapellu von- arinnar. Gæðakonur matreiða súpu. 23. febrúar kl. 16. Fermingarfræðsla og söngstund í kirkjunni með öllum ferming- arbörnum. KOTSTRANDARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Karlaraddir leiða söng. Sóknarprestur pré- dikar og þjónar fyrir altari. LANGHOLTSKIRKJA | Konudagsmessa kl. 11. Sr. Jóhanna Gísladóttir þjónar og organisti er Árni Heiðar Karlsson. Lítill drengur verður borinn til skírnar í athöfninni. Gradualekór Langholtskirkju leiðir safnaðarsöng og tekur lagið fyrir kirkjugesti. Halldóra Eyjólfsdóttir sjúkraþjálfari og kvenfélagskona flytur hug- vekju. Sunnudagaskólinn er á sínum stað og Sara Grímsdóttir og Hafdís Davíðsdóttir taka vel á móti börnunum. Kirkjugestum verður boð- ið upp á heitar vöfflur með kaffinu í tilefni dagsins. LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Arn- gerður María Árnadóttir organisti og kór Laug- arneskirkju. Sr. Birgir Ásgeirsson þjónar fyrir altari. Sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu á meðan. Kaffi og samvera eftir messu. Miðvikudagur 22. febrúar kl. 12. Kyrrðarstund. Hugljúf tónlist, hugvekja, altarisganga og fyr- irbænir. Súpa og samvera í safnaðarheimilinu á eftir. Fimmtudagur kl. 14. Félagsmiðstöðin Dalbraut 18-20. Helgistund. Sr. Davíð Þór Jónsson og Arngerður María Árnadóttir organ- isti. NESKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Kór Neskirkju syngur og leiðir söng. Org- anisti er Douglas Brotchie. Prestur er Steinunn A. Björnsdóttir. Barnastarfið er í umsjá Katrínar H. Árnadóttur, Ara Agnarssonar og Margrétar Hebu Atladóttur. Sameiginleg hressing og samfélag á Kirkjutorgi að loknu helgihaldi. Þar verða til sýnist biblíur af ýmsu tagi og bækur um biblíuna. ÓLAFSVALLAKIRKJA á Skeiðum | Guðs- þjónusta kl. 11. Kirkjukórinn leiðir söng undir stjórn Þorbjargar Jóhannsdóttur organista. SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 14 í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð. Ræðumaður Guðlaugur Gunnarsson. Túlkað á ensku. Barnastarf. SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Súpa og fræðslusamvera kl. 12.30. Henning Emil Magnússon guðfræðingur og Bylgja Dís Gunnarsdóttir söngkona flytja erindið ,,Fjall- ræða Dylan“ í tali og tónum við undirleik Hrannar Þráinsdóttur. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti: Tómas Guðni Eggertsson. SELTJARNARNESKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Solveig Lára Guð- mundsdóttir vígslubiskup predikar. Bjarni Þór Bjarnason sóknarprestur þjónar fyrir altari. Kvenfélagið Seltjörn tekur þátt í athöfninni. Leiðtogar sjá um sunnudagaskólann. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngja. Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Axel Á. Njarðvík héraðsprestur þjónar fyrir alt- ari. Organisti Jón Bjarnason. SÓLHEIMAKIRKJA | Kirkjuskóli kl. 13.30 laugardag. Hressing eftir stundina. Blóma- messa á konudag sunnudag kl. 14. Sr. Sveinn Alfreðsson þjónar fyrir altari. Organisti er Ester Ólafsdóttir. Sigríður Laufey Gunnarsdóttir kvenfélagskona les guðspjallið. Valdís Ólöf Jónsdóttir meðhjálpari og djáknanemi flytur prédikun. VÍDALÍNSKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta kl.11. Útvarpað beint á RÚV. Jóna Hrönn Bolla- dóttir þjónar fyrir altari ásamt Helgu Björk Jóns- dóttur djákna og messuþjónum. Eliza Reid for- setafrú og Ragnhildur Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Hins íslenska biblíufélags, flytja ávarp. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimili. Barnakór Vídalínskirkju, ung- lingakór og gospelkór Jóns Vídalíns syngja undir stjórn Davíðs Sigurgeirssonar og Jó- hanna Guðrún Jónsdóttir syngur einsöng. Mat- ur í hádeginu. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Tónlistar- guðsþjónusta á konudaginn kl. 11. Kvennakór Hafnarfjarðar syngur undir stjórn Ernu Guð- mundsdóttur. Prestur: Bragi J. Ingibergsson. Sunnudagaskólinn kl. 11. Hressing í safn- aðarsalnum eftir guðsþjónustur. YTRI-Njarðvíkurkirkja | Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11. Barn borið til skírnar. Sókn- arprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Stefáns Helga Kristinssonar. Meðhjálpar er Pétur R. Guð- mundsson. Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Heiðars. Kaffi, djús og kökur að skóla loknum. Þessi helgi ætlum við að fagna æskulýðsdeg- inum og að ósk krakkanna í æskulýðsstarfinu hvetjum við ykkur til að mæta í náttfötum til messu. Orð dagsins Ferns konar sáðjörð (Lúk. 8) Morgunblaðið/Sigurður Bogi Víðimýrarkirkja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.