Morgunblaðið - 18.02.2017, Page 1
L A U G A R D A G U R 1 8. F E B R Ú A R 2 0 1 7
Stofnað 1913 42. tölublað 105. árgangur
Besta
til að klára þáttinn
KRISTINN,
ÞÓRA OG
MATTHILDUR
ÁSTMÖGUR
HEIMSBÓK-
MENNTANNA
HULU SVIPT AF DARCY 12FRUMFLYTJA VERK ÁSKELS 51
Vatnsmýrin Svona kemur hugmyndahúsið
Gróska til með að líta út í framtíðinni.
Framkvæmdir hefjast brátt við
mikla byggingu sem rísa mun í
Vatnsmýrinni, gegnt Öskju og Nor-
ræna húsinu og við hlið húss Ís-
lenskrar erfðagreiningar. Húsið
hefur fengið nafnið Gróska, „nýtt
hugmyndahús í Vatnsmýri sem ætl-
að er að verða suðupottur nýsköp-
unar og samstarfs háskóla og at-
vinnulífs,“ eins og segir í kynningu.
Þegar hefur verið ákveðið að al-
þjóðlegi leikjaframleiðandinn CCP
flytji skrifstofur sínar frá Granda-
garði í nýbygginguna. Auk CCP er
ráð fyrir því gert að 30-40 fyrirtæki
starfi í húsinu og þar verði að jafn-
aði starfandi 800-900 manns.
Nýbyggingin verður alls 17.500
fermetrar að stærð á fjórum hæð-
um, auk bílakjallara. 100-150
manns munu vinna við húsið að
jafnaði á byggingartíma. Áætlaður
byggingarkostnaður er um 7 millj-
arðar króna. »20
800-900 störf gætu
skapast í nýju húsi
í Vatnsmýrinni
Ögurstund í deilunni
» Fundað var í húsakynnum
ríkissáttasemjara fram á
nótt.
» Staðan sögð erfið.
» Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir ráðherra fundaði með
deiluaðilum hvorum í sínu
lagi og bar upp málamiðl-
unartillögu, sem lagðist mis-
vel í menn.
Andri Steinn Hilmarsson
Elín Margrét Böðvarsdóttir
Fundað var fram á nótt í kjaradeilu
sjómanna í húsakynnum ríkissátta-
semjara. Þegar Morgunblaðið fór í
prentun höfðu samningar ekki enn
náðst en deiluaðilar útilokuðu þó
ekki að samningar næðust.
Útgerðin kæmi á móti
Í gærkvöldi voru forystumenn sjó-
mannahreyfingarinnar og SFS kall-
aðir hvorir í sínu lagi á fund Þorgerð-
ar Katrínar Gunnarsdóttur,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, í ráðuneytinu þar sem hún
lagði fram málamiðlunartillögu.
Fólst tillagan í því að sjómenn
fengju skattaafslátt á fæðispeninga
gegn því að útgerðin greiddi mis-
muninn annars staðar, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins. Af sam-
tölum við menn á göngum hjá rík-
issáttasemjara að dæma lagðist til-
laga ráðherrans illa í sjómenn.
Jens Garðar Helgason, formaður
SFS, sagði í samtali við Morgunblað-
ið að verið væri að gera lokatilraunir
til að ná samningunum. „Það skýrist
ekki fyrr en seinna í kvöld eða nótt.
En ef menn ná ekki saman í kvöld þá
veit ég ekki með hvaða hætti fram-
haldið á að vera,“ sagði Jens sem
vildi ekki tjá sig um efni tillögunnar
eða hvað hefði farið fram á fundin-
um. „Staðan er erfið, við erum að
fara yfir hlutina,“ sagði Vilhjálmur
Birgisson, formaður Verkalýðs-
félags Akraness, við Morgunblaðið
laust fyrir miðnætti. Spurður hvort
tillaga Þorgerðar verði lögð til
grundvallar fyrir samingaviðræður
næturinnar, segir Vilhjálmur tillög-
una lifa. „En hún getur dáið.“
Lokatilraun samninga
Sjávarútvegsráðherra lagði fram málamiðlunartillögu í sjómannadeilunni seint í
gærkvöldi Staðan var sögð erfið Fundað fram á nótt Tillagan „lifir eða deyr“
MKröfur til ríkisins... »4
Morgunblaðið/Eggert
Karphúsið Konráð Alfreðsson gengur hér fremstur í flokki samninganefndar sjómanna til fundar í Karphúsinu seint í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Eggert
Á vaktinni Óttast er að fjölmargir
hjúkrunarfræðingar segi nú upp.
Undanfarið hefur aukist að íslenskir
hjúkrunarfræðingar fari til starfa í
Svíþjóð, þar sem þeim bjóðast hærri
laun, betri vinnuaðstæður og styttri
vinnuvika en hér. Aftur á móti hefur
dregið úr ferðum þeirra til Noregs í
kjölfar breytinga á gengi norsku
krónunnar.
Þetta segir Guðbjörg Pálsdóttir,
formaður Félags íslenskra hjúkrun-
arfræðinga, en í gær var birt skýrsla
um vinnumarkað íslenskra hjúkrun-
arfræðinga þar sem m.a. kemur
fram að um 20% þeirra starfa við
annað en hjúkrun og að alls vanti yf-
ir 500 hjúkrunarfræðinga til starfa
um allt land. „Við sjáum að stéttin er
að eldast og inn í hana er komið ungt
fólk sem er ekki tilbúið til að fórna
sér fyrir íslenska heilbrigðiskerfið
og veit að það getur fengið betur
launuð störf með þessa menntun,“
segir Guðbjörg.
Helga Jónsdóttir, deildarforseti
hjúkrunarfræðideildar HÍ, segir að
leysa mætti þennan skort á hjúkr-
unarfræðingum að hluta með því að
fjölga námsplássum í hjúkrunar-
fræðinámi. Til þess þurfi meira fjár-
magn til námsins. »28
Horfa nú til Svíþjóðar
Hjúkrunarfræðingum bjóðast þar betri laun og aðstæður
„Það er ekki
oft sem það er
svona snjólítið á
láglendi í miðjum
febrúar,“ segir
Trausti Jónsson
veðurfræðingur.
Hiti í febrúar
hefur aðeins einu
sinni verið meiri
fyrstu 14 dagana í febrúar að sögn
veðursagnfræðingsins Sigurðar
Þórs Guðjónssonar en hann hefur
fjallað um fádæma hlýja byrjun
febrúarmánaðar. Búast má þó við
snjó og norðanátt í næstu viku. »16
Fádæma hlý byrjun
á febrúarmánuði