Morgunblaðið - 18.02.2017, Page 13
sinni tíð, um 180 cm, hafa þeir
reiknað út. Hæðin sleppur alveg,
en aðrar lýsingar þeirra eru ekk-
ert sérstaklega tilkomumiklar.
Þeir segja hann hafa verið með
sporöskjulagað andlit, mjóa
höku, lítinn munn og millisítt,
púðrað hvítt hár. Þá rökstuddu
fræðimennirnir þá skoðun sína að
herra Darcy hefði verið grannur
og siginaxla með því að þegar
Jane Austen skáldaði hann, voru
einungis verkamenn með vöðvas-
tælta bringu og breiðar axlir.
„Hann [herra Darcy] er dular-
fyllsta og eftirsóknarverðasta aðal-
söguhetja allra tíma,“ sagði prófess-
or við University College í London,
sem fór fyrir útlitsrannsóknar-
hópnum. Fyrir framtakinu stóð
breska sjónvarpsstöðin Drama
Channel, sem í tilefni 200 ára dán-
ardægurs Jane Austen, sem lést 18.
júlí 1817, sýnir um þessar mundir
valda sjónvarpsþætti sem gerðir
hafa verið eftir bókum skáldkon-
unnar ástsælu.
Fyrirmynda leitað
Hvort rannsóknarteymið hafi
gefið raunsanna mynd af herra
Darcy skal ósagt látið. Fyrir tveim-
ur árum greindi breska dagblaðið
The Telegraph frá því að dr. Susan
Law hefði leyst gátuna hvað varðar
innblásturinn að persónu herra
Darcy. Hún sagði hana byggða á
John Parker, fyrsta jarlinum af
Morley, sem kvæntur var vinkonu
skáldkonunnar og lýst hefur verið
sem „manni með sterka nærveru“.
Law kvaðst hafa varið fimm árum í
að fara í gegnum sendibréf, dag-
bækur og dagblöð til að sýna fram á
sú væri raunin. Máli sínu til stuðn-
ings benti hún á að Austen hefði
dvalið á heimili jarlsins og konu hans
í Saltram House í Plymouth, De-
von þegar hún skrifaði Hroka og
hleypidóma.
Aðrir sem nefndir hafa verið
til sögunnar sem fyrirmynd herra
Darcy eru Írinn Thomas Lefroy,
sem Austen ku hafa átt í ástar-
sambandi við 1796, og dr. Samuel
Blackall guðfræðinemi sem hún
hitt í fríi í Cambridge. Þótt slíkar
vangaveltur séu studdar alls kon-
ar mistrúverðugum rökum hafa
þær trúlega litla þýðingu fyrir
þorra kvenna. Fyrir þeim verður
herra Darcy aldrei annar en Colin
Firth. Í alvörunni.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2017
Ljóðelskir unglingar á aldrinum 13-
15 ára kætast efalítið að fá tækifæri
til að sækja námskeið í ljóðagerð í
samtali við myndlist í vetrarfríinu
sínu. Námskeiðið er haldið kl. 14-16
mánudaginn 20. febrúar og þriðju-
daginn 21. febrúar í Gerðarsafni í
Kópavogi.
Ásta Fanney Sigurðardóttir, skáld
og myndlistarmaður, leiðir nám-
skeiðið, en það er í beinu samtali
við sýninguna Normið er ný framúr-
stefna, sem fjallar um hversdags-
leikann og hið óvenjulega venjulega.
Ásta Fanney hefur unnið ljóða-
bækur, vídeóljóðasýningar, tónlistar-
tengda ljóðaupplestra, sviðsljóðlist
og gjörninga.
Þátttaka í námskeiðinu er ókeypis
en fjöldi þátttakenda er takmark-
aður. Skráning á netfanginu:
menningarhusin@kopavogur.is
Ljóð og list fyrir unglinga í Gerðarsafni í Kópavogi
Listakona Ásta Fanney hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóðið Silkileið nr. 17.
Ljóðagerð í samtali við myndlist
Guðmundur Oddur Magnússon, pró-
fessor í grafískri hönnun við Listahá-
skóla Íslands, leiðir spjall um sýn-
inguna ,,Á pappír“ í Hönnunarsafni
Íslands kl. 14 á morgun, sunnudaginn
19. febrúar.
Á sýningunni er úrval teikninga og
skissna úr safneign safnsins og úr
einkasöfnum. Verkin á sýningunni
gefa mynd af vinnubrögðum hönnuða
og myndlistarmanna við gerð um-
búða, auglýsinga, bókakápna og hús-
gagna- og innanhússhönnunar allt
frá þriðja áratug síðustu aldar fram á
þann sjöunda.
Goddur vinnur við rannsókn á
myndmálssögu Íslendinga sem felst í
greiningu á upphafi og þróun stíl-
sögu innan grafískrar hönnunar og
prentiðnar á Íslandi frá um 1840 til
stofnunar lýðveldisins 1944.
Í spjalli sínu leggur Goddur áherslu
á verk Stefáns Jónssonar arkitekts,
sem jafnframt var einn af frum-
kvöðlum á Íslandi í auglýsingateikn-
ingu. Stefán bjó yfir margvíslegum
stíltökum sem hann notaði eftir því
hvert verkefnið var, hvort sem það
var beinskeytt myndmál til áróðurs
eða í anda rómantíkur til að efla þjóð-
erniskennd og samstöðu.
Allir velkomnir.
Spjall um sýninguna Á pappír, í Hönnunarsafni Íslands
Morgunblaðið/Eggert
Goddur Guðmundur Oddur.
Verk frumkvöðuls í auglýsinga-
teikningu á Íslandi í brennidepli
Auk skáldsögunnar Hroki og hleypidómar
(Pride and Prejudice) skrifaði Jane Austen
(1775-1817) fimm fullgerð skáldverk; Sense and
Sensibility, Mansfield Park, Emma, Northanger
Abbey og Persuasion, og komu tvær síðast-
nefndu út eftir andlát hennar. Hroki og hleypi-
dómar var önnur bók hennar og tvímælalaust
sú frægasta.
Sagan hefur verið sögð hafa allt til að bera
sem prýða má góða sögu; margbrotna persónu-
sköpun, spennandi atburðarás, hárfína og oft
háðslega samfélagslýsingu, ástir, rómantík,
húmor og siðferðisboðskap. Bókin kom út á
íslensku árið 1956 undir heitinu Ást og
hleypidómar. Síðan í þýðingu Silju Aðal-
steinsdóttur árið 1988 undir heitinu Hroki
og hleypidómar.
„Ung, fögur, en peningalaus stúlka fær
bónorð frá glæsilegum, forríkum, ungum
manni, vísar honum stolt á bug vegna þess
hve hann er hrokafullur og auðmýkjandi við
hana en fer svo að iðrast . . . “ Þannig rakti
Silja söguþráð þessarar sígildu sögu í við-
tali í Lesbók Morgunblaðsins sama ár.
HROKI OG HLEYPIDÓMAR
Rómantík og háðsleg samfélagslýsing
Rómantík Colin Firth og Jennifer Ehle í sjónvarpi og Matthew Macfady og Keira Knightley áratug síðar í bíómynd.
John Parker Thomas LeFroy
Sími 788-2070 / 787-2070 | hotelrekstur@hotelrekstur.is | hotelrekstur.is
Sængurverasett
fyrir hótel, gistiheimili,
dvalarheimili, veitingahús,
veisluþjónustur,
heilsugæslustofnanir o.fl.