Morgunblaðið - 18.02.2017, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2017
Lágmúli 5, 108 Reykjavík | Sími 571 5800 | gudrun@garun.is | garun.is
Guðrún Antonsdóttir
Lögg.fasteignasali
Sími 697 3629
Vilt þú vera með þinn eigin rekstur?
Eða eiga hlut í verslun?
Er með á skrá
- ísbúð, staðsett í Kópavogi
- hárgreiðslustofu, staðsett í Kópavogi
- eignahluta í verslun í Reykjavik.
Áhugasamir hafið samband fyrir frekari upplýsingar.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Vilborg Arna Gissurdardóttir og
Cintamani gerðu í vikunni sam-
starfssamning. Mun Vilborg Arna
klæðast Cintamani-fatnaði í þeim
verkefnum sem hún mun taka sér
fyrir hendur á næstunni.
Eins mun Cintamani vera bak-
hjarl fyrirlestra og annarra nám-
skeiða sem boðið verður upp á í
tengslum við útivist með Vilborgu.
Fram kemur í tilkynningu, að Cin-
tamani hafi undanfarna 14 mánuði
unnið að hönnun á nýrri vörulínu
sem komi í verslanir með vorinu.
Vörulínan hafi verið í prófun, þar á
meðal hjá Vilborgu.
Vilborg Arna hefur á undan-
förnum árum gengið yfir Græn-
landsjökul, farið ein á suðurpólinn,
klifið hæstu tinda í sex heimsálfum
og reynt tvisvar sinnum Við Eve-
rest en þurft að hverfa frá vegna
náttúruhamfara. Vilborg hefur
jafnframt klifið sjötta hæsta fjall
jarðarinnar, Cho Oyu, án utanað-
komandi aðstoðar og súrefnis.
Samningur Vilborg Arna og Cintamani
hafa gert með sér samstarfssamning.
Vilborg Arna semur
við Cintamani
Sjö ný frímerki
komu út á
fimmtudag í fjór-
um útgáfuröðum.
Eitt frímerkið er
tileinkað fyrstu
ríkisstjórn Ís-
lands, sem kom
saman fyrir 100
árum, annað Iðn-
aðarmanna-
félaginu í Reykjavík sem fagnar 150
ára afmæli og frímerki er tileinkað
fyrsta íslenska arkitektinum, Rögn-
valdi Á. Ólafssyni. Þá koma fjögur
ný frímerki út í áttundu frímerkja-
röðinni um íslenska samtímahönn-
un, sem að þessu sinni er tileinkuð
textílhönnun.
Afmæla minnst á
nýjum frímerkjum
Kiwanishreyfingin mun í dag af-
henda styrki að upphæð 19 millj-
ónir króna sem söfnuðust í Lands-
söfnun Kiwanis, Lykill að lífi, í
október á síðastliðnu ári.
Styrkþegar í ár eru BUGL og
Pieta Ísland, sjálfsvígsforvarn-
arsamtök. Forseti Íslands, Guðni
Th. Jóhannesson, verndari söfn-
unarinnar, verður viðstaddur af-
hendinguna, auk fulltrúa frá BUGL
og Pieta Ísland.
Afhendingin fer fram í Kiwanis-
húsinu, Bíldshöfða 12, kl. 12.
Kiwanis afhendir 19
milljónir úr söfnun
STUTT
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
„Hvergi er nú alhvítt af snjó á
landinu á veðurstöð og aðeins á
stöku stað er jörð flekkótt.“
Svo mælir Sigurður Þór Guð-
jónsson veðursagnfræðingur í
bloggi sínu Nimbus á Mogga-
blogginu.
„Það er ekki oft sem það er
svona snjólítið á láglendi í miðjum
febrúar,“ segir Trausti Jónsson
veðurfræðingur þegar blogg
Nimbusar er borið undir hann.
„Reyndar er nú spáð snjó eftir
helgi – hvað sem svo verður úr
því,“ segir Trausti.
„Hiti verður með mildara móti
um helgina, en útlit fyrir að það
kunni að breytast um miðja næstu
viku og að loks geri almennilegt
vetrarveður, sem vissulega er í
takti við árstíðina,“ skrifar veður-
fræðingur Veðurstofu Íslands í
gær og spáir norðanáttum í næstu
viku.
Hlýrra var árið 1932
Þegar febrúar er hálfnaður er
meðalhitinn í Reykjavík 4,05 stig.
Hann hafði aðeins einu sinni verið
meiri fyrstu 14 dagana, segir Sig-
urður Þór. Það var árið 1932, fyrir
85 árum, þegar hann var 4,5 stig
en sá mánuður tók enn meiri hlý-
indakipp seinni hlutann og endaði
með meðalhita upp á ótrúleg 5,0
stig. Hann er langhlýjasti febrúar
sem mælst hefur á landinu og í
Reykjavik. Mars var 1932 með 2,9
stig.
Næsti mánuður hvað hlýindi
varðar fyrri helming febrúar er
1940 með 4,3 stig. Síðan kólnaði
það ár svo mánuðurinn endaði í
1,3 stigum. Næstir i hlýindum
fyrstu 14 dagana eru svo 1991,
1965 og 1959 með 3,7 stig. En
lokatölurnar þau ár voru 2,2 stig,
4,1 og 2,3 stig. Febrúar 1965 er
sem sagt næst hlýjasti febrúar í
Reykjavík.
„Meðalhitinn i mars það ár var
hins vegar -0,1 stig í Reykjavík og
má sá mánuður jafnvel kallast
upphaf hafísáranna illræmdu.
Fleiri dæmi eru um það að fyrri
hluti febrúar eða hann allur hafi
verið mjög hlýr en á eftir fylgi
kaldur mars, alvöru vetrarmán-
uður,“ segir Sigurður.
„Vetrarhlýindi, jafnvel í margar
vikur samfellt, eru engin trygging
fyrir því að vorið komi snemma,“
bætir Sigurður við.
Á Akureyri er meðalhitinn núna
í febrúar enn hærri en í Reykja-
vik, 4,58 stig, og enn þá meiri á
Dalatanga á Austfjörðum þar sem
hann er 5,66 stig og 5,30 stig á
Höfn í Hornafirði.
Hlýjasti allur febrúar sem
mælst hefur á veðurstöð á Íslandi
er 5,9 stig á Suðureyri og í Vík í
Mýrdal árið 1932.
Þegar febrúar í fyrra er skoð-
aður koma í ljós ótrúleg umskipti.
Meðalhiti í Reykjavík var -0,5 stig,
-0,9 stigum neðan meðallags ár-
anna 1961 til 1990, en -1,9 stigum
undir meðallagi síðustu tíu ára.
Þetta var kaldasti febrúar í
Reykjavík síðan 2002 en þá var
mun kaldara en nú. Meðalhiti á
Akureyri var -3,3 stig, -1,9 stigum
undir meðallagi áranna 1961 til
1990, en -3,0 stigum undir með-
allagi síðustu tíu ára. Þetta var
kaldasti febrúar á Akureyri síðan
árið 2009, sagði í yfirliti Veður-
stofunnar.
Nú er hvergi alhvítt
á veðurstöð á landinu
Fádæma hlý byrjun á febrúar Norðanátt er í kortunum í næstu viku
Morgunblaðið/Eggert
Grænn gróður Ótrúleg sjón um miðjan febrúar. Myndin var tekin í miðborg Reykjavíkur í fyrradag.
Í gær, föstudag-
inn 17. febrúar,
tók Arnbjörg
Sveinsdóttir sæti
á Alþingi sem
varamaður fyrir
Njál Trausta
Friðbertsson.
Arnbjörg var
alþingismaður
Austurlands
1995-2003 og al-
þingismaður Norðausturkjördæmis
2004-2009 fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Hún var varaþingmaður Norð-
austurkjördæmis nóvember-
desember 2003, október 2011 og
október 2012, þegar hún tók síðast
sæti á Alþingi.
Arnbjörg er búsett á Seyðisfirði,
þar sem hún sat um árabil í bæjar-
stjórn. sisi@mbl.is
Arnbjörg tekur sæti
Njáls Trausta á Alþingi
Arnbjörg
Sveinsdóttir