Morgunblaðið - 18.02.2017, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2017
H
a
u
ku
r
0
1
.1
6
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
• Nýtt, lítið og sérlega fallegt hótel í Reykjanesbæ. Fær mjög góða
dóma á bókunarsíðum.
• Stofa, búin mjög sérhæfðum tækjum og sú eina á sínu sviði, sem
sérhæfir sig í meðferð sem bætir útlit líkamans. Arðbær rekstur.
• Hádegisverðarþjónusta fyrir stofnanir og fyrirtæki og veislumatur fyrir
sérstök tækifæri. Tilvalið fyrir kokk sem hefur áhuga á að byggja á
góðum grunni.
• Lúxusíbúðir í mismunandi stærðum í tveimur glæsilegum húsum í
miðborginni sem leigðar eru ferðamönnum.
• Ört vaxandi fyrirtæki í framleiðslu myndefnis (auglýsingar og
kynningar) vil vaxa enn hraðar með því að fá inn hluthafa sem getur
lagt slíkri uppbyggingu lið. Fyrirtækið er með gott orðspor, ársveltu
um 100 mkr. og góða framlegð.
• Fiskvinnsla á SV-horninu í framleiðslu á fiski og harðfiski. Velta 50
mkr. Inannlandsssala og útflutningur. Miklir möguleikar til
veltuaukningar.
• Gott hótel miðsvæðis á Suðurlandi sem býður upp á mikla möguleika
fyrir áhugasaman, nýjan eiganda.
• Framleiðslufyrirtæki fyrir íhluti í skófatnað. Viðskiptavinir eru mörg
þekktustu merkin í skóm í heiminum. Fyrirtækið, sem er alfarið í eigu
Íslendinga, er syðst í Kína (nálægt Hong Kong) í nútímalegu
húsnæði, með góðan vélakost og 50 manns í vinnu.
• Leiðandi fyrirtæki í sölu á legsteinum og tengdum vörum. Ársvelta
160 mkr. og mjög góð afkoma.
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Þórarinn Arnar Sævarsson
fasteignaráðgjafi,
thorarinn@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
brynhildur@kontakt.is
Sigurður A. Þóroddsson
hæstaréttarlögmaður,
sigurdur@kontakt.is
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Íþróttafélagið Mjölnir færir alla
starfsemi sína úr Vesturbæ Reykja-
víkur í Öskjuhlíðina í dag. Flutning-
urinn hefur legið fyrir í þónokkurn
tíma enda húsnæði félagsins í Vest-
urbænum orðið of lítið fyrir allt það
starf sem fer fram hjá félaginu.
„Nýja húsnæðið okkar í Öskju-
hlíðinni er tvisvar sinnum stærra,
við erum að fara úr 1500 fermetrum
í 3000 fermetra,“ segir Jón Viðar
Arnþórsson, bardagakappi og for-
maður Mjölnis, en félagið flytur í
húsnæði sem áður hýsti Keiluhöll-
ina.
Útiæfingar í Öskjuhlíð
Stærðin er ekki það eina sem
skiptir máli, að sögn Jóns Viðars,
heldur staðsetningin.
„Nýja húsnæðið okkar er meira
miðsvæðis en margir meðlimir okk-
ar voru farnir að kvarta undan því
að þurfa að keyra í gegnum miðbæ-
inn til að komast á æfingar til okk-
ar.“
Umhverfið er heldur ekki af verri
endanum og segir Jón að Öskjuhlíð-
in verði nýtt vel til æfinga.
„Við ætlum ekki bara að nýta hús-
næðið vel heldur allt umhverfi þess
líka. Hér verða nokkrir salir og yfir
100 skipulagðar æfingar í hverri
viku. Öskjuhlíðina sjálfa ætlum við
síðan að nýta til útiæfinga en þar má
lyfta drumbum og steinum auk þess
að stunda alls konar æfingar utan-
húss.“
Jón bendir einnig á að stutt sé í
Nauthólsvíkina fyrir þá sem vilja
skella sér í sjóinn eftir æfingu.
Rakarastofa og bar
Ekki verða eingöngu æfðir vöðvar
og helstu tökin í hvers konar bar-
dagaíþróttum hjá Mjölni því gestum
nýja hússins stendur til boða alls
konar þjónusta.
„Við ákváðum að nýta húsnæðið
vel og það verður bar hér í húsinu
þar sem hægt verður að fá sér
heilsudrykki og bjór. Einnig verður
hárgreiðslustofa í húsinu en gestir
hennar munu t.d. geta pantað sér
kaffi af barnum. Það verður því nóg
um að vera í húsinu.“
Þá verður hægt að kaupa allan
íþróttafatnað á staðnum en lítil
verslun með öllu því helsta sem með-
limir Mjölnis þurfa á að halda verður
í húsinu.
„Þar verða aðallega seld íþróttaföt
og búnaður sem nauðsynlegur er
fyrir þá sem æfa hjá okkur.“
Opnunarhátíð nýja æfinga-
húsnæðisins fer fram í dag og hefst
hún klukkan 14 og stendur til 16.
Gestir hátíðarinnar geta látið taka
myndir af sér með bardagköppum
félagsins og verður í boði ókeypis
axlanudd og fleira. Um kvöldið verð-
ur svo boðið í heljarinnar partý, að
sögn Jóns.
„Við endum hátíðardaginn á því
að halda partý á barnum í húsinu en
síðan taka við strangar æfingar
strax næstu daga,“ segir hann
sposkur á svip.
Æfing Síðasta æfing liðsmanna Mjölnis fór fram á þriðjudaginn í gamla húsnæði félagsins úti á Granda
Bardagaíþróttir, rak-
arastofa og kaffibar
Mjölnir fagnar opnun nýs æfingarhúsnæðis í Öskjuhlíðinni
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Sveitarfélög hyggja á umtalsverðan
vöxt fjárfestinga á yfirstandandi ári.
Eru það mikil umskipti frá seinustu
árum en fjárhagsáætlanir þeirra fyrir
seinasta ár gerðu ráð fyrir umtals-
verðum samdrætti.
Á þessu og næsta ári áforma sveit-
arfélögin að auka fjárfestingar á ný
og er nettófjárfesting áætluð um 23-
24 milljarðar kr. Árin þar á eftir er
hins vegar reiknað með að aftur dragi
úr framkvæmdum og nettófjárfesting
verði 15-16 milljarðar, sem er litlu
meira en gert var ráð fyrir að fjárfest
yrði í sveitarfélögum á seinasta ári.
Þessar upplýsingar koma fram í
nýlegri samantekt hag- og upplýs-
ingasviðs Sambands íslenskra sveit-
arfélaga, sem farið hefur yfir fjár-
hagsáætlanir 65 af 74 sveitarfélögum
landsins fyrir yfirstandandi ár. Í þeim
búa um 99% landsmanna.
,,Í ljósi áforma um auknar fjárfest-
ingar áforma sveitarfélögin að taka
ný langtímalán í ár sem nema hærri
fjárhæðum en afborganir af slíkum
lánum. Skuldir og skuldbindingar
munu þó lækka sem hlutfall af
tekjum, verða 105% í stað 109% 2016.
Ellefu reikna með tapi
Í þriggja ára áætlunum sínum
reikna sveitarfélögin með að skulda-
hlutfall A-hluta lækki enn og að það
muni verða um 100% árið 2020,“ segir
í úttektinni.
,,Af þeim 65 sveitarfélögum sem
hér eru til skoðunar skiluðu 11 fjár-
hagsáætlun með tapi, að meðaltali
sem nemur 2,9% af tekjum þeirra.
Rekstrarafgangur sex sveitarfélaga
var yfir 10% af tekjum, en flest voru
með afgang á bilinu 0-2,5% af
tekjum,“ segir í úttektinni.
Fram kemur að það sem framar
öðru einkennir fjárhagsáætlanir A-
hluta sveitarfélaga fyrir árið 2017 er
mikil aukning í fjárfestingum í var-
anlegum rekstrarfjármunum í sam-
anburði við áætlanir fyrir 2016 eins og
fyrr segir. „Áformað er að fjárfest-
ingar sveitarfélaga muni nema 28,9
[milljörðum] .kr. Til samanburðar
hljóðuðu áætlanir 2016 upp á 18,2
[milljarða] kr. Hafa verður í huga að
fjárfestingarumsvif sveitarfélaga
voru með minnsta móti árið 2016, átti
það einkum við um Reykjavíkurborg
og ber borgin uppi áformaða
aukningu fjárfestinga frá 2016 til
2017,“ segir ennfremur.
Bent er á að Reykjavíkurborg hef-
ur uppi ráðgerðir um að sala bygging-
arréttar muni skila borginni 2,9 millj-
arða kr. tekjum og Hafnarfjörður
áformar að selja lóðir fyrir 1,2 millj-
arða.
13 milljarða ný langtímalán
Sveitarfélögin gera ráð fyrir að
taka ný langtímalán upp á 12,9 millj-
arða á þessu ári og að afborganirnar
verði 19,6 milljarðar. Munu því lang-
tímaskuldirnar aukast frá því í fyrra.
Fjárhagsáætlanir gera ráð fyrir að
í lok árs 2017 muni heildarskuldir og
skuldbindingar A-hluta sveitarfélaga
nema röskum 303 milljörðum eða sem
nemur 105% af tekjum.
Skuldastaða sveitarfélaga er afar
mismunandi. Fram kemur í úttekt-
inni að skuldahlutfallið er hæst á höf-
uðborgarsvæði án Reykjavíkurborg-
ar, eða 129% og 121% á
vaxtarsvæðum, en mun lægra í
Reykjavíkurborg eða 86%.
Fjárfesta fyrir 23-24 milljarða
Sveitarfélög gera ráð fyrir að taka ný langtímalán upp á 12,9 milljarða á þessu ári og að afborganirn-
ar verði 19,6 milljarðar 11 sveitarfélög skiluðu fjárhagsáætlun fyrir yfirstandandi ár með tapi
Morgunblaðið/Ómar
Ráðhús Reykjavíkur Hlutfall skulda af tekjum er hæst í úttektinni á höfuð-
borgarsvæðinu án Reykjavíkurborgar eða 129% en 86% hjá borginni.