Morgunblaðið - 18.02.2017, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.02.2017, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2017 ÖFLUG LAUSN VIÐ HÁLSBÓLGU! Bólgueyðandi og verkjastillandi munnsogstafla við særindum í hálsi Nýtt Strefen 8,75 mg munnsogstöflur og Strefen Orange 8,75 mg Sukkerfri, munnsogstöflur. Innihalda flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga tímabundið úr særindum í hálsi hjá fullorðnum og börnum eldir en 12 ára. Sjúga skal eina munnsogstöflu rólega og láta leysast upp í munni á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, mest 5 töflur á sólahring. Ekki er ráðlagt að nota lyfið lengur en í 3 sólarhringa. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. HUNANGS OG SÍTRÓNU- BRAGÐI APPELSÍNU- BRAGÐ SYKURLAUST Guðni Einarsson gudni@mbl.is Alþjóðleg sendinefnd sem Ögmund- ur Jónasson, fyrrverandi ráðherra og alþingismaður, er í reyndi í gær að fá inngöngu í fangelsið í Edirne (Adrianopolis). Þar situr í haldi Selahattin Demirtas, annar helsti leiðtogi HDP-flokks Kúrda. „Við óskuðum eftir að fá að hitta Demirtas að máli. Lögfræðingar hans voru með okkur í för,“ sagði Ögmundur. „Þegar við komum að fangelsishliðinu var okkur meinaður aðgangur. Við héldum fréttamanna- fund fyrir utan fangelsishliðið. Þessi reisa okkar vekur athygli í fjöl- miðlum hér.“ Sendinefndin hefur ekki enn fengið svar frá tyrkneska dómsmálaráðherranum við beiðni um að fá að heimsækja helstu leið- toga Kúrda í fangelsi. Nefndin ósk- aði eftir að fá annars vegar fund með Demirtas og hins vegar með Abdullah Öcalan, helsta leiðtoga Kúrda. Öcalan hefur setið í einangr- unarfangelsi á Imrali-eyju í Marm- arahafi frá árinu 1999. „Meginmarkmið okkar er að ná tali af Öcalan,“ sagði Ögmundur. Hann sagði að nefndin ætlaði að bíða svars frá dómsmálaráðherr- anum fram á fyrrihluta sunnudags, ef þörf krefur. Sendinefndin kom til Tyrklands 13. febrúar síðastliðinn. „Við erum þrettán talsins í hópn- um og erum bæði núverandi og fyrrverandi þingmenn, fræðimenn og blaðamenn og fólk sem hefur beitt sér í mannréttindabaráttu,“ sagði Ögmundur. Nefndarmenn koma frá Evrópu og Norður- Ameríku. Sendinefndin naut liðsinnis Euro- pean Union Turkey Civic Commiss- ion (EUTCC) við undirbúning og skipulagningu ferðarinnar. EUTCC er hópur innan Evrópuþingsins sem er hlynntur aðild Tyrklands að Evr- ópusambandinu (ESB) og notar það til að setja Tyrkjum ýmis skilyrði, m.a. varðandi Kúrda. Erindi sendinefndarinnar er m.a. að kynna sér stöðu mannréttinda- mála í byggðum Kúrda í austan- verðu Tyrklandi. Fengu ekki að hitta leiðtoga Kúrda Ljósmynd/Nathan McDonnell Tyrkland Ögmundur Jónasson (lengst t.h.) ásamt hluta af hópnum við fang- elsið í Edirne. Þau fengu ekki að hitta einn leiðtoga Kúrda sem þar situr.  Mannréttindi í Tyrklandi Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Öryggismiðstöðin stóð fyrir fundi í gær um hvort öryggismyndavélar gætu aukið öryggi í bæjum og borg- um. Henrik Loeb Svenstrup var einn tveggja erlendra sérfræðinga sem töluðu á fundinum en hann starfar sem tæknistjóri eftirlitsmyndavéla hjá Nordjyllands Beredskab. Hann fór ítarlega yfir reynslu Norður-Jót- lands af öryggismyndavélum. Árið 2011 fór af stað verkefni á Jótlandi þar sem settar voru upp 500 öryggis- myndavélar til þess að fá betri yfirsýn yfir bæi og bæjarfélög. Í viðtali við Morgunblaðið segir Henrik það klárt mál að Ísland geti fylgt þessu for- dæmi og notið góðs af. „Það er enginn vafi á því að miðstýrt kerfi sem veit hvar myndavélarnar eru og hefur yf- irsýn yfir þær mun vera til góðs,“ seg- ir Henrik. Norður-Jótland vel vaktað Verkefnið sem um ræðir er gagn- virkt og miðlægt kerfi eftirlitsmynda- véla sem Álaborg og 10 minni sveit- arfélög hafa komið sér saman um að reka. Pólitísk ákvörðun var tekin á Jótlandi um að hrinda þessu í fram- kvæmd og mætir verkefnið kröfum um persónuvernd og meðhöndlun upplýsinga þar í landi. Myndavélarn- ar eru á 67 mismunandi svæðum, t.d. í stjórnsýslustofnunum, bókasöfnum og skólum, svo eitthvað sé nefnt. Hen- rik segir verkefnið ekki hafa mætt neinni pólitískri andstöðu. „Það kom upp atvik í skóla þar sem starfsmenn höfðu verið að skoða öryggismynd- bönd án leyfis. Það var því litið á það sem jákvætt að þetta yrði miðstýrt og vitað hverjir væru með aðgang að ör- yggismyndavélum hjá sveitarfélög- unum,“ segir Henrik. Kerfið sem þeir vinna með núna er lokað og einungis þrjár stofnanir hafa aðgang að eigin myndavélakerfi. „Starfsmenn hafa aðgang að eigin myndavélakerfi á þremur stöðum, þ.e. á bókasöfnunum, listasafninu í Álaborg og bæjarskrif- stofunum. Allar aðrar öryggismynda- vélar eru lokaðar fyrir starfsfólki á staðnum,“ segir hann. Sjálfvirkt kerfi sendir boð þegar upp koma atvik og þá senda þeir viðeigandi viðbragðs- aðila myndband í rauntíma. Aukið eftirlit minnkar kostnað Henrik sagði reynslu þeirra af verkefninu vera mjög góða. Bæjar- félögunum hefur tekist að spara gríð- arlegt fjármagn með því að fækka tjónum og upplýsa um skemmdaverk en einnig sparast árlega um milljón evra vegna lækkunar á tryggingar- kostnaði hjá sveitarfélögunum. Þegar koma upp atvik sem öryggismynda- vél nær þá finnast gerendur í 90% til- fella. Henrik segir að sú tölfræði sé eitt af því sem hann sé stoltastur af. Slíkt gæti einnig gerst hér heima að hans mati. „Ég trúi því að ef það fer af stað samtal á Íslandi um þessi mál og fólk samþykkir slíkt kerfi ásamt því að sjá fjárhagslegan ávinning af því, þá sé hægt að taka þetta skref,“ segir Henrik. Innviðirnir eru til staðar Ómar Rafn Halldórsson, vörustjóri Öryggismiðstöðvarinnar, sem er með 30 ára reynslu af öryggismálum, tek- ur undir með Henrik og segir að vel sé hægt að búa til svipað kerfi hér heima á Íslandi. „Innviðirnir eru til staðar hér heima til að gera þetta, þetta er hægt, menn þurfa bara að taka sig saman og ákveða málin á þann hátt. Ákvörðunin er lagaleg og snýst um hvað má og hvað má ekki,“ segir Ómar. Spurður um gagnvirkt miðlægt eftirlitskerfi og hvort það sé raunhæft hér á næstu árum segir hann slíkt vera í raun til staðar. „Við erum að gera þetta í reynd hjá okkur, við tökum við boðum frá öryggiskerf- um viðskiptavina okkar og við erum að skrá okkur inn í kerfið og forkönn- um ástandið,“ segir Ómar. Myndavél- arnar sjálfur yrðu ódýrasta hliðin af uppsetningu slíks kerfis að hans sögn en með vinnutíma og hugbúnaði hlaupi kostnaður á tugum milljóna. „Það þarf samt ekki mikið til að svona kerfi réttlæti tilvist sína og borgi sig hreinlega upp, til dæmis ef þú ert með 10 manna rannsóknarteymi að vinna að atburði sem myndavélakerfi hefði getað leyst fyrir þig á nokkrum klukkutímum.“ Aukið eftirlit minnkar kostnað  500 öryggismyndavélar hafa verið settar upp á 67 stöðum á N-Jótlandi  Tæknistjóri verkefnisins segir þetta vel hægt hér  Sveitarfélögin spara með lækkun á tryggingarkostnaði og færri vinnutímum Eftirlit á Norður-Jótlandi » 500 myndavélar á 67 stöð- um. » Spara milljón evra á ári í tryggingarkostnað. » 90% gerenda sem nást á mynd finnast. » Þrír starfsmenn með eftirlit allan sólarhringinn. » Senda myndbönd í rauntíma til viðbragðsaðila. Ljósmynd/Hari Öryggi Henrik Svenstrup segir að Íslendingar þurfi að hefja samtal um auk- ið myndavélaeftirlit. Hann segir að Ísland myndi njóta góðs af slíku kerfi. Norræn höfuð- borgarráðstefna var haldin í Hels- inki í Finnlandi dagana 16.-17. febrúar sl. Ráðstefnan hefur verið hald- in annað hvert ár en hún var fyrst haldin í Reykja- vík 2003. Forsætisnefnd brá á það ráð að halda fund í gær í höfuðstöðvum Norræna fjárfestingabankans í Helsinki. Viðstödd voru Líf Magn- eudóttir, Sigurður Björn Blöndal og Halldór Auðar Svansson. Einnig sátu fundinn Kjartan Magnússon, Heiða Björg Hilmisdóttir, Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir og Helga Björk Laxdal sem ritaði fundar- gerð. Á fundinum voru ma. lögð fram drög að dagskrá fundar borgar- stjórnar þriðjudaginn 21. febrúar næstkomandi. sisi@mbl.is Forsætisnefnd fundaði í banka
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.