Morgunblaðið - 18.02.2017, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 18.02.2017, Blaðsíða 53
MENNING 53 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2017 Ung kona stendur við gröf íþýskum smábæ. Annasyrgir Frantz, sem féll ávesturvígstöðvunum í fyrri heimsstyrjöld og hún var heit- bundin. Hún er munaðarlaus, býr hjá foreldrum Frantz. Allt hennar líf er í greipum sorgarinnar og á hverjum degi kemur hún að leiðinu og hugar að því. Enginn er þó í gröfinni, Frantz liggur í ómerktri fjöldagröf einhvers staðar á vígvöllum Frakk- lands. Dag einn birtist ókunnur mað- ur við gröfina. Hann reynist fransk- ur, heitir Adrien Rivoire og segir að hann hafi verið vinur Frantz á náms- árum hans í París fyrir stríðið. Í fyrstu mætir honum tortryggni. Frantz gerist 1919 og það er nýbúið að undirrita Versalasamningana. Myndin sýnir glöggt þau ör og hatur, sem hryllingurinn í skotgröfum fyrri heimsstyrjaldar skildi eftir sig. Gríðarleg andúð ríkir á Frökkum og í myndinni kemur sterkt fram að Þjóðverjar líta á ósigur sinn og samn- ingana sem fullkomna niðurlægingu, sem beri að leiðrétta við fyrsta tæki- færi. Síðar í myndinni þegar leikurinn berst til Frakklands kemur í ljós að ekki ósvipuð andúð ríkir þar í garð Þjóðverja. Þegar foreldrar Frantz hleypa Adrien inn á heimili sitt vekur það furðu og óvild í þorpinu. Í áhrifaríku atriði kemur til uppgjörs milli föður Frantz og annarra feðra, sem misstu syni sína. Þegar þeir spyrja hvort hann geri sér ekki grein fyrir að Adrien sé fulltrúi morðingja sona þeirra svarar hann fullum hálsi að franskir synir hafi einnig fallið á víg- vellinum. Þýskir synir og franskir synir hafi verið strádrepnir vegna þess að feður þeirra sendu þá í opinn dauðann. Leikstjórinn kemur fyrir ýmsum táknum í myndinni, sem velta má fyr- ir sér. Adrien segir að Frantz hafi leitt sig að málverkinu Le suicidé (sennilega máluð einhvern tímann á milli 1877 og 1881) af manni, sem liggur örendur á fleti eftir að hafa fyr- irfarið sér, eftir Édouard Manet í Louvre. Síðar sést að Adrien er með eftirmynd, sem hann hefur jafnvel málað sjálfur, uppi á vegg í herbergi sínu í Frakklandi. Listfræðingurinn Ulrike Ilg segir að þetta sé ein mynda Manets þar sem hann geri einsemd nútímamannsins og yfirvofandi dauða að viðfangsefni sínu. Burðarásinn í myndinni er hins vegar samskipti Önnu og Adriens. Spurningin vaknar hvort stefni í ein- hvers konar þríhyrningssamband Önnu, Adriens og hins látna Frantz. Í ljós kemur hins vegar að meira býr að baki komu hans til þorpsins, en hann segir í upphafi, og atburðarásin tekur ýmsar vendingar áður en sú spurning er leidd til lykta. Paula Beer leikur Önnu. Hún þykir með efnilegri leikkonum Þýskalands um þessar mundir og sýnir í þessari mynd að full ástæða er fyrir því. Hún er stjarna myndarinnar. Pierre Nin- ey leikur Adrien og kemur hinum fín- gerða og brotthætta unga manni vel til skila. Ernst Stötzner og Marie Gruber eru hins vegar ekki jafn sannfærandi í hlutverkum foreldra Frantz og at- riðin þar sem þau eru í aðalhlutverki stirð og jafnvel þvinguð. Ozon fékk grunnhugmyndina að Frantz að láni frá Ernst Lubitsch, sem 1931 gerði myndina Broken Lullaby um franskan hermann, sem leggur land undir fót til að heimsækja þýska fjölskyldu til að létta á sam- visku sinni. Myndin er að mestu í svarthvítu eins og til að undirstrika tómarúmið, sem Frantz skilur eftir sig. Nokkur atriði eru þó í lit, annars vegar í leiftrum frá því Frantz var á lífi eða þegar hamingjuglæta virðist ætla að brjótast gegnum þoku sorg- arinnar. Leikstjórinn François Ozon hefur gert fjölda mynda og er sennilega þekktastur hér á landi fyrir Átta kon- ur með nokkrum helstu leikkonum Frakklands í aðalhlutverkum. Margt gott er að finna í Frantz og hún er upplagt tilefni til að skella sér á Þýska kvikmyndadaga. Í leit að framtíð í tómarúmi missis Óræðar tilfinningar Paula Beer í hlutverki Önnu og Pierre Niney í hlut- verki Adriens í kvikmyndinni Frantz sem François Ozon leikstýrði. Bíó Paradís – Þýskir kvikmyndadagar Frantz bbbmn Leikstjóri: François Ozon. Leikarar: Paula Beer, Pierre Niney, Ernst Stötz- ner, Marie Gruber, Johann von Bülow og Anton von Lucke. Þýskaland og Frakk- land. Tungumál: Þýska og franska. 2016, 113 mín. KARL BLÖNDAL KVIKMYNDIR Lokasýning 19. febrúar kl. 22. Arkitektúr sem fólk elskar að hata er yfirskrift um- ræðna sem fram fara á Kjarvalsstöðum á morgun, sunnudag, kl. 14. Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt verður með framsögu og leiðir í framhaldi umræð- urnar. Í panel verða arkitektarnir Guja Dögg Hauks- dóttir, Hjörleifur Stefánsson, Steve Christer og Ólöf Örvarsdóttir. Til umræðu á fundinum er „hlutverk arkitektúrs í ljósi þeirra átaka sem oft spretta upp varðandi nýbyggingar og endurgerðir eldri húsa í ný hlutverk,“ segir í til- kynningu. Þar kemur fram að Hildigunnur hefur sinnt fagstjórn, kennslu, rannsóknum og ráðgjöf í tengslum við félagspólítiskt samhengi manngerðs umhverfis. „Litið verður til þeirra miklu deilna sem oft skapast í samfélaginu í tengslum við byggingarlist. Hildigunnur leiðir gesti inn í samtal um þann mikla hita sem oft getur skapast í kringum nýbyggingar sem og breytt hlutverk eldri bygginga,“ segir í til- kynningu. Meðal þeirra spurninga sem varpað verður fram er hver sé hvati arkitekts- ins við hönnunina; af hverju arkitektar eigi hugverkarétt á eignum sem aðrir hafa greitt fyrir; hvað listrænt gildi hönnunar þýði; hver eigi að meta slíkt og hvaða vægi eigi hún að hafa. Arkitektúr sem fólk elskar að hata Arkitekt Hildigunnur Sverrisdóttir. Kór Langholtskirkju og Stórsveit FÍH flytja Sacred Concert eftir Duke Ellington í útsetningu John Høbye og Peder Pedersen í Lang- holtskirkju annað kvöld, sunnudag, kl. 20. Einsöngvari er Sigrún Erla Grétarsdóttir. Stjórnandi Kórs Langholtskirkju er Árni Heiðar Karlsson og stjórnandi Stórsveitar FÍH er Snorri Sigurðarson. „Duke Ellington var einn merk- asti djasslistamaður 20. aldar. Hann var afkastamikill og samdi ógrynnin öll af djasstónlist en einnig trúar- legri tónlist. Árin 1953-1973 samdi hann þrjá heilaga konserta fyrir stórsveit, kór og einsöngvara. Þeir hafa allir hlotið mikið lof en sá fyrsti hreppti m.a. Grammy- verðlaunin sem besta djasstónsmíð ársins. Í tónlistartímaritinu Down Beat hlaut upptaka af öðrum kons- erti „allar stjörnur á himni guðs“ árið 1969. Duke Ellington fullyrti sjálfur að síðari konsertinn væri mikilvægasta tónsmíð sem hann hafði samið,“ segir í tilkynningu frá tónleikahaldara. Miðar eru seldir á vefnum tix.is og við innganginn. Heilagur Árni Heiðar Karlsson stjórnar flutningi á verkinu Sacred Concert eftir Duke Ellington á tónleikum í Langholtskirkju annað kvöld. Flytja heilagan konsert Morgunblaðið/Ófeigur Miðasala og nánari upplýsingar TILBOÐ KL: 1.45 TILBOÐ KL: 1.45 TILBOÐ KL 2 5% SÝND KL. 10.40 SÝND KL. 5, 8, 10.30 SÝND KL. 8 SÝND KL. 1.45, 5.45 SÝND KL. 1.45, 3.50SÝND KL. 2, 3.40, 5.45 SÝND KL. 8, 10.30 Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan FERMINGAvEIsluR Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Verð frá kr. 2.750 Veislulist sér um veitingar fyrir fermingar af öllum stærðum, hvort sem er í veislusal okkar eða í aðra sali og heimahús. Í yfir 40 ár hefur Veislu- list lagt áherslu á góða þjónustu og framúrskarand matreiðslu. Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal. Bættu við kransaköku 30 manna á kr. 16.500 kaffihlaðborð Miðegisveisla kl. 14 - 17 Vörunúmer 55400 √ Marsipanterta √ Frönsk súkkulaðiterta √ Konfekt-marengsterta √ Kaffisnittur √ Flatkökur √ Heitur brauðréttur Ferming
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.