Morgunblaðið - 18.02.2017, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2017
Norður England 12.-17. maí
Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar
Sími 511 15 15 – ferdir.is
Skemmtileg ferð um Norður England.
Gist í Jórvík, þar sem Egill Skallgrímsson gerði
garðinn frægan, ekið um Jóvíkurheiðar að
Norðursjávarströndinni og einnig yfir Pennínafjöllin til
Vatnahéraðsins, innblásturs skálda og listamanna.
Í lok ferðar er gist í stórborginni Manchester.
Verð frá 179.400,-
Umhverfis- og skipulagssviðReykjavíkurborgar stendur
um þessar mundir fyrir fundum um
það hvernig við sköpum „heillandi
borg fyrir gangandi vegfarendur“.
Ekki er ástæða til
að draga úr mikil-
vægi þess að borgin
sé aðlaðandi fyrir
gangandi vegfar-
endur. Og raunar
hefur lengi verið
áhersla á það í
Reykjavík að gangandi eigi greiða
leið um borgina. Og það hafa þeir
átt.
En það að gangandi eigi greiðaleið um borgina nægir núver-
andi borgaryfirvöldum ekki. Þau
vilja ekki aðeins að gangandi kom-
ist leiðar sinnar á sem bestan hátt,
heldur kosta þau kapps um að
hindra ferðir þeirra sem velja
einkabílinn.
Það er sérkennileg afstaða aðþurfa að beita sér gegn einum
ferðamáta til að lyfta undir annan
eða aðra.
Væri ekki nær að borgaryfirvöldlétu fólki sjálfu eftir að velja
sér ferðamáta í stað þess að reyna
stöðugt að þrengja að einum kost-
inum.
Einkabíllinn er sá ferðamáti semhentar flestum og þess vegna
ættu borgaryfirvöld að leggja
áherslu á að greiða götur fyrir bíla-
umferð í stað þess að þrengja þær
og grípa til annarra umferðarspill-
andi aðgerða.
Hvernig væri nú, fyrst borgin erfarin að funda um ferðamáta,
að hún héldi fundi um það hvernig
mætti bæta skilyrði akandi fólks í
borginni, í stað þess að hygla öðr-
um ferðamátum og sýna þessum
fjandskap?
Má ekki funda
um fleira?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 17.2., kl. 18.00
Reykjavík 7 alskýjað
Bolungarvík 2 rigning
Akureyri 1 rigning
Nuuk -12 léttskýjað
Þórshöfn 7 skýjað
Ósló 0 léttskýjað
Kaupmannahöfn 2 skýjað
Stokkhólmur 3 heiðskírt
Helsinki 0 heiðskírt
Lúxemborg 7 léttskýjað
Brussel 8 alskýjað
Dublin 10 skýjað
Glasgow 7 skýjað
London 11 léttskýjað
París 11 heiðskírt
Amsterdam 7 skýjað
Hamborg 5 alskýjað
Berlín 4 rigning
Vín 6 léttskýjað
Moskva -2 alskýjað
Algarve 18 léttskýjað
Madríd 13 heiðskírt
Barcelona 13 heiðskírt
Mallorca 14 heiðskírt
Róm 12 skýjað
Aþena 12 heiðskírt
Winnipeg 0 heiðskírt
Montreal -5 heiðskírt
New York -1 heiðskírt
Chicago 4 heiðskírt
Orlando 15 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
18. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:12 18:12
ÍSAFJÖRÐUR 9:26 18:08
SIGLUFJÖRÐUR 9:09 17:51
DJÚPIVOGUR 8:44 17:39
Mark Zuckerberg, stofnandi sam-
félagsmiðilsins Facebook, minntist
á Ísland í langri færslu sem hann
póstaði í vikunni. Zuckerberg lýsti
því hvernig hann sér miðilinn fyrir
sér sem afl til að byggja upp
„hnattrænt samfélag“, á sama tíma
og fólk missi trúna á það pólitíska
kerfi sem sé ríkjandi. Í nær sex
þúsund orða færslu á síðu sinni seg-
ir Zuckerberg að Facebook geti
gegnt því hlutverki að stefna fólki
saman, þegar það stendur and-
spænis önugum stjórnmálum og
viðhorfi annarra gegn frekari hnatt-
væðingu. Tekur hann Ísland sem
dæmi um land þar sem almenn-
ingur getur „taggað“ eða merkt
stjórnmálamenn inn í almenna um-
ræðu um þjóðfélagsmál. Vísar hann
þar til mikilvægis þess að stjórn-
málamenn geti tekið mál sem eru
ofarlega í huga almennings inn á
löggjafarþingið.
Yfirlýsing Zuckerbergs er nokk-
uð pólitísk þar sem hann lýsir
markmiði fyrirtækis síns.
„Á tímum eins og þessum er það
mikilvægasta sem við hjá Facebook
getum gert, að byggja samfélags-
legu innviðina til að gefa fólki vald
til að byggja hnattrænt samfélag,
sem virkar fyrir okkur öll,“ skrifar
Zuckerberg.
Stofnandi Facebook vísar til Íslands
Land þar sem almenningur „taggar“
eða merkir stjórnmálamenn í umræðuna
AFP
Netið Mark Zuckerberg stofnandi
Facebook eða smettisskruddunnar.
inlandi Evrópu. Ráðandi stofn er
inflúensa A(H3N2), sem leggst
þyngst á eldri borgara, og er það í
samræmi við aldursdreifinguna hér á
landi. Í Evrópu má greina nokkra
aukningu á dauðsföllum meðal aldr-
aðra, sem hugsanlega má rekja til ár-
legs inflúensufaraldurs.
Það er mat sóttvarnalæknis að
inflúensan muni ekki ná eins mikilli
útbreiðslu hér á landi í vetur og und-
anfarin ár. Það skýrist hugsanlega af
meiri þátttöku í inflúensubólusetn-
ingu en undanfarin ár en ætla má að
milli 70–75 þúsund einstaklingar hafi
verið bólusettir í vetur.
Sóttvarnalæknir telur að byrjað sé
að draga úr inflúensunni, sem byrjaði
í haust, en hún er þó enn útbreidd í
samfélaginu. Gera má ráð fyrir að til-
fellum fækki á næstu vikum. Inflú-
ensa A(H3N2) er sá stofn sem hefur
verið í dreifingu, en ekki er útilokað
að inflúensa A(H1N1) eða inflúensa
B eigi eftir að koma í kjölfarið á
næstu vikum.
Frá því í lok nóvember 2016 hefur
inflúensa A(H3) verið staðfest hjá
280 einstaklingum. Í síðustu viku
greindust álíka margir með staðfesta
inflúensu samanborið við vikurnar á
undan. Inflúensan hefur nú verið
staðfest í öllum landshlutum. Veikin
er hlutfallslega algengari meðal 60
ára og eldri, meðalaldurinn er 63 ár
hjá þeim sem greinst hafa frá því í
nóvember. Enginn hefur greinst með
inflúensu A(H1) en tveir ein-
staklingar hafa greinst með inflúensu
B. Frá því í byrjun september 2016
hafa alls 119 einstaklingar legið á
Landspítala vegna inflúensu, þar af
greindust 10 í síðustu viku sem er
nokkur fækkun borið saman við vik-
urnar á undan. Flestir eiga það sam-
eiginlegt að vera 70 ára og eldri,
meðalaldurinn er tæp 74 ár.
Inflúensan er nú útbreidd á meg-
Byrjað að draga
úr inflúensunni
Aukin bólusetning minnkar útbreiðsluna
Ljósmynd/Getty
Flensa Aukin þátttaka í bólusetn-
ingu hefur skilað árangri.