Morgunblaðið - 23.05.2017, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 3. M A Í 2 0 1 7
Stofnað 1913 125. tölublað 105. árgangur
GÖMUL OG NÝ
ÖKUTÆKI OG
REYNSLUAKSTUR
EINN BESTI
LEIKMAÐURINN
ER Í EYJUM
AFMÆLI LÚTHERS
EFNIVIÐUR Í MYND-
LISTARSÝNINGU
CLOÉ LACASSE ÍÞRÓTTIR NAGLAR Í HALLGRÍMSKIRKJU 30BÍLAR 24 SÍÐUR
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Að minnsta kosti 19 létust og 50 særðust í
sprengingu í tónleikahöllinni Manchester
Arena í Manchesterborg í Bretlandi í gær-
kvöldi. Sprengingin varð um klukkan hálfell-
efu að staðartíma, en þegar Morgunblaðið
fór í prentun eftir klukkan hálftvö í nótt lá
ekki fyrir hvað það var nákvæmlega sem or-
sakaði sprenginguna. Lögreglan segir málið
rannsakað sem hryðjuverk þar til annað
kemur í ljós. Sprengjusveit lögreglunnar í
Manchester sprengdi upp grunsamlegan
hlut í nágrenni tónleikahallarinnar í nótt
vegna gruns um að þar væri á ferðinni önn-
ur sprengja, en sá grunur reyndist ekki rétt-
ur.
Margir tróðust undir
Tónlistarkonan Ariana Grande var með
tónleika í höllinni þegar sprengingin kvað
við í anddyrinu og voru þá í höllinni hátt í 20
þúsund tónleikagestir, þeirra á meðal fjöldi
barna og unglinga. Mikil geðshræring greip
um sig meðal tónleikagesta og herma fregn-
ir að margir hafi troðist undir í æsingnum
sem myndaðist í kjölfar sprengingarinnar.
Einn viðmælandi breska ríkisútvarpsins
(BBC), Andy Holey, segir að ástandið í and-
dyri hallarinnar hafi verið líkast stríðs-
ástandi, en hann beið eftir konu sinni og
dóttur í anddyrinu þegar sprengjan sprakk
og féll hann við höggið.
„Þegar ég stend upp og lít í kringum mig
sé ég liggja 20 til 30 manns. Ég get ekki
sagt hvort þau hafi öll verið látin, en þau litu
út fyrir það,“ sagði hann.
Lestarferðir felldar niður í kjölfarið
Mikill viðbúnaður var hjá lögreglu og öðr-
um viðbragðsaðilum. Var svæðið allt lokað
af auk þess sem allar lestarferðir voru felld-
ar niður og Manchester Victoria-lestarstöð-
inni lokað en hún er í nágrenni við tónleika-
höllina. Lestarstöðin verður einnig lokuð í
allan dag. Einhverjir vagnar munu fara í
gegnum stöðina, en án þess að stansa.
Borgarstjórinn í Manchester, Andy Burn-
ham, vottaði í nótt fórnarlömbum árás-
arinnar og fjölskyldum þeirra samúð sína.
„Hjarta mitt er hjá fjölskyldum þeirra
sem hafa misst þá sem eru þeim kærir og ég
dáist að því hugrakka fólki sem starfar á
vettvangi. Hræðilegt kvöld fyrir okkar frá-
bæru borg,“ skrifaði hann á Twitter.
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands,
vottaði fórnarlömbunum samúð sína „í því
sem lögregla telur að sé hryllileg hryðju-
verkaárás,“ sagði Theresa May.
MANNFALL Í MANCHESTER
AFP
Að minnsta kosti 19 eru látnir
og 50 særðir eftir sprengingu
Lögreglan rannsakar spreng-
inguna sem hryðjuverkaárás
Fjöldi barna og ungmenna á
tónleikum með Ariana Grande
Þorsteinn Ásgrímsson
thorsteinn@mbl.is
„Ég hugsaði bara um að grípa í
dóttur mína, 11 ára, og hlaupa í
burtu. Hljóp út og yfir handriðið og
út á einhverja götu,“ segir Linda
Björk Hafþórsdóttir, en hún var ein
þeirra fjölmörgu sem staddir voru
á tónleikum Ariana Grande í Man-
chester Arena þegar sprenging
kvað skyndilega við í byggingunni.
Linda Björk segir sprengingu
hafa orðið við lok tónleikanna, sem
sóttir voru af ungmennum, í and-
dyri tónleikahallarinnar og að hún
hafi verið fáeina metra frá þeim
stað þar sem sprengingin varð.
„Við löbbuðum niður úr tón-
leikasalnum og vorum í aðalsalnum
við innganginn,“ segir hún, en þær
mæðgur voru þá á leið á Victoríu-
lestarstöðina sem tengist leikvang-
inum. Þær hafi þó ákveðið að snúa
við og fara út um annan útgang og
þá hafi sprengingin orðið.
Reykur og mikill hávaði
„Ég hef aldrei heyrt svona há-
væra sprengingu áður, það kom
reykur og það var gríðarleg skelf-
ing og öskur,“ segir Linda Björk og
lýsir því svo hvernig hún hafi,
ásamt Margréti Maríu dóttur sinni,
hlaupið í skelfingu út úr tónleika-
höllinni.
Þegar þær voru að koma sér út
úr höllinni segir Linda Björk að
hún hafi séð manneskjur sem voru
blóðugar í framan. Hún segist jafn-
framt hafa séð nokkurn reyk.
Þá segir hún viðbrögð fólks hafa
verið mjög mismunandi. Voru sum-
ir tónleikagestir hálfstjarfir en aðr-
ir hugsuðu einungis um að komast í
burtu og bjarga ástvinum sínum, en
mikill fjöldi barna var á staðnum er
sprengingin varð.
Gríðarleg skelfing greip um sig í höllinni
Óhultar Linda Björk og Margrét
María voru á tónleikunum.
Íslendingar voru staddir skammt frá þeim stað þar sem sprengingin varð
AFP
Söngkona Ariana Grande hélt tón-
leika í höllinni í Manchester.