Morgunblaðið - 23.05.2017, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 23.05.2017, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2017 Hundrað sinnum hefur lögum um lífeyr- issjóði verið breytt, síðan öllum var gert skylt að greiða í lífeyr- issjóð árið 1969 án mikillar umræðu á þingi og alls engrar meðal þeirra sem voru skyldaðir til greiðslna, enda eiga þeir engan lögbundinn rétt til að- komu að eign sinni! Um 100 sjóðir voru stofnaðir, margir misfóru með fé og töpuðu á fjárfestingum, – sam- einuðust þá öðrum, þannig að í dag eru aðeins um 20 sjóðir starfandi. Þúsundir lífeyrisþega hafa tapað eignum sínum í týndum lífeyr- issjóðum. Í ársuppgjöri sjóðanna kemur fram að rekstrar- og fjárfest- ingarkostnaður þeirra er líklega um 18 milljarðar á ári. Við þau útgjöld gera alþingismenn engar at- hugasemdir! Ríkisjóður tapar háum fjár- hæðum, því lífeyrissjóðirnir taka við inngreiðslum án þess að skattur sé tekinn af þeim strax. Hann er greiddur þegar menn fá greitt úr líf- eyrissjóðum. Það fé sem lífeyrissjóð- irnir tapa í fjárfestingum, tapa þeir sem greitt hafa í sjóð- ina og ríkið þar með. Þá er einnig ákveðið með lögum að eign lífeyr- isþega í lífeyrissjóð- unum sé hirt með ólög- legri eignaupptöku! Áunnin lífeyrissjóðs- eign allt að um 250.000 kr. á mánuði er tekin til TR til að greiða lág- marksgreiðslu stofn- unarinnar, lögbundna lágmarks tekjutrygg- ingu. Þannig njóta þeir einskis af ævisparnaði sínum með lögskyldri lífeyrissjóðsgreiðslu. Þetta eru um 30 milljarðar á ári. Skatturinn Tíundin, sem Gissur Ísleifsson biskup innleiddi 1096, var afnumin í upphafi 20. aldar. Hún tryggði fá- tækum framfærslu til viðbótar þeirri grunnfátæktarframfærslu, sem var hjá hreppunum. Við breyt- inguna í upphafi 20. aldar tók við ný skattheimta með um 90 skatt- þrepum sem ívilnaði þeim tekjulágu. Í dag er hins vegar hagsmuna þeirra, sem mest hafa, gætt á marg- víslegan hátt, öfugt við það sem áður var: Skattþrepin eru tvö. Mán- aðartekjur að 834.707 bera 36,94% skatt og tekjur umfram það bera 46,24% skatt. Persónuafsláttur er aðeins kr. 52.907, sem þýðir að tekjur umfram 143.224 kr. eru skatt- lagðar! Sár fátækt er þannig skatt- lögð í dag. Persónuafsláttur hefur ekki fylgt launavísitölu frá 1988. Hefði hann gert það, ætti persónu- afsláttur að vera um 103.000 kr. á mánuði eða að mánaðartekjur að 280.000 kr. væru ekki skattlagðar. Til viðbótar við þessa mismunun er meðhöndlun þeirra sem lifa á eign- um sínum og greiða aðeins 20% fjár- magnstekjuskatt og að auki kunna þeir mörg lögleg ráð til að fresta eða lækka skattgreiðslur, t.d. með að varðveita eignir sínar í einkahluta- félögum. Fjárlög og meðferð fjármuna Árlega takast alþingismenn lengi á um fjárlög fyrir opnum tjöldum. Minna er rætt um aukafjárlög og enn minna um afskriftir og nær ekk- ert um millifærslur fjármuna hjá ríkisstofnunum með lagabreytingum eða reglugerðarákvæðum um kostn- aðargreiðslur. Nær aldrei er þess getið, þegar ekki er farið að lögum og reglugerðum hjá alþingi, rík- isstofnunum eða opinberum sjálfs- eignarstofnunum. Nýlega voru afskrifaðar um 5,9 milljarða skuldir hjá 57 ríkisstofn- unum, án umræðu og utan fjárlaga, að því er best verður séð! „Mistök“ í lagasetningu um breytingar á al- mannatryggingalöggjöfinni um síð- ustu áramót, kostuðu ríkisjóð 5 milljarða. Brugðist var við með nýju ákvæði í lögum til að leiðrétta þetta tveimur mánuðum síðar! Breytingar á sömu löggjöf afnámu greiðslu grunnlífeyris til um 40 þúsund eldri borgara og lækkuðu frítekjumark úr 109 þús. kr á mánuði í 25 þúsund kr. Þessi ákvörðun löggjafans stendur undir allri hækkun greiðslna TR til eldri borgara á árinu. Þannig borga eldri borgarar þessa hækkun sjálfir, alls um 16 milljarða kr. á þessu ári! Þessari hækkun hafa ráðherrar hælt sér af, sem mikilli viðbót á fjárlögum og að hún hafi skert möguleika á auknum framlögum til annarra verkefna! Kröfur um meiri kostn- aðarhlutdeild hafa hækkað þjón- ustu- og sjúkragjöld, en lögbundnar niðurgreiðslur hafa ekki hækkað, t.d. á ýmsum hjálpartækjum og tannviðgerðum hjá eldri borgurum og öryrkjum, þrátt fyrir ákvörðun ráðherra í reglugerð um annað! Árið 2004 var ákveðin 70% niðurgreiðsla tannviðgerða hjá eldri borgurum og öryrkjum. Ekkert viðbótarframlag hefur verið veitt síðan til að uppfylla ákvörðunina. Þetta veldur því að núna er niðurgreiðslan aðeins um 15% af kostnaðinum, sem orsakar það, að mjög margir þessara aðila hafa ekki ráð á tannviðgerðum! Lög um búseturétt og leigurétt eldri borgara eru ekki virt. Fregnir af Eir og Búmönnum og nýjasta dæmið frá Naustavör, dótturfélagi Hrafnistu, benda til hreinnar eignaupptöku, þar sem ekki stendur til að hlíta nið- urstöðu Héraðsdóms! Á einu ári hef- ur Kjararáð hækkað laun alþing- ismanna í þremur atrennum um 5-6 hundruð þúsund kr. á mánuði! Flestir voru þingmennirnir sammála um að ekkert væri hægt að gera gagnvart niðurstöðu ráðherraskip- aðrar nefndar! Eru þetta meðvituð launráð þeirra, með öllu öðru, sem hér hefur verið nefnt? Launráð alþingismanna? Eftir Halldór Gunnarsson Halldór Gunnarsson »Með afnámi grunnlíf- eyris og lækkun frí- tekjumarks í 25 þús. á mánuði borga eldri borgarar þessa hækkun sjálfir, alls um 16 millj- arða kr. á þessu ári! Höfundur er formaður kjararáðs EB í Rangárvallasýslu og fyrrverandi sóknarprestur. Mér blöskra þau læti og þau skrif og samtöl sem komið hafa frá aðilum ferðaþjón- ustunnar upp á síð- kastið vegna vænt- anlegrar hækkunar á virðisaukaskatti úr 11% í 22,5%. Hver að- ilinn úr ferðaþjónust- unni á fætur öðrum hefur komið fram og mótmælt þessari breytingu og talið henni allt til foráttu. Það er helst á þeim að skilja – og kannski er það gert viljandi til að reyna að blekkja almenning – að þessi skattur sé lagð- ur á fyrirtækin sem að ferðaþjónust- unni standa, en auðvitað er þetta skattur sem neytendur borga og ferðaþjónustan sér bara um inn- heimtu á. Maður skrifaði í blöðin um daginn og benti sérstaklega á að verð á her- bergi sem hann kallaði „geitakofa“ í Rangárvallasýslu væri allt að rúm- um 100 þúsund á dag. Hótelherbergi á Hótel Sögu er auglýst á 42 þúsund krónur nóttin og nýlega pantaði ég 2ja manna herbergi á Marina hóteli fyrir útlendinga sem koma til lands- ins í sumar og staðfestingin segir að herbergið kosti 42 þúsund og síðan er morgunmatur aukalega á þrjú þúsund á mann. Fyrir þessar fjár- hæðir er hægt að leigja svítur á hót- elum erlendis. Ég hef t.d. ferðast mikið til Þýskalands og þar hef ég gist á 4 stjörnu hóteli þar sem nóttin kostar um 24 þúsund fyrir tveggja manna herbergi og þar er ekki ein- göngu innifalinn morgunmatur, heldur einnig góður kvöldmatur og golf fyrir tvo. Stóra spurningin er; af hverju á ferðaþjónustan ekki að greiða fullan virðisaukaskatt – heimilin í landinu hafa þurft og þurfa að greiða fullan virðisaukaskatt af flestum sínum að- föngum og hafa þar til fyrir stuttu einnig þurft að greiða háa tolla og há vörugjöld á margar vörur. Tekið skal þó fram að bæði tollar og vöru- gjöld hafa verið felld niður í tíð nú- verandi forsætisráðherra sem og einnig þegar hann var fjár- málaráðherra í síðustu ríkisstjórn – Þetta hefur verið öllum aðilum til góðs – neytendum, versluninni, rík- issjóði og ekki síst ferðaþjónustunni. Framkvæmdastýra ferðaþjónustunnar kvartar undan því að ekki sé verið að hækka virðisaukaskatt hjá þeim sem innheimta engan virðisaukaskatt. Hún hefur hins vegar ekki fyrir því að segja frá að þeir örfáu aðilar sem slíkt á við um, fá ekki að draga neinn innskatt frá í sínum rekstri, heldur þurfa þeir að bera greiddan virðisaukaskatt að fullu. Ferðaþjónustan hefur hins vegar skilað 11% virðisaukaskatti en hefur fengið að draga allan innskatt – 11% og 24% frá við uppgjör og þess eru dæmi að ferðaþjónustufyrirtæki hafi fengið endurgreiðslur frá ríkinu við uppgjör sín, þar sem upphæð inn- skatts hefur verið hærri en út- skattur þeirra. Forkólfar ferðaþjónustunnar sem hafa komið fram í fjölmiðlum upp á síðkastið, svo og aðrir í þeirri grein þurfa nú einfaldlega að taka til hend- inni og skoða það tjón sem þeir hafa valdið með allt of hárri álagningu á gistingu og aðra þjónustu – að mað- ur nú ekki tali um okrið á því að fara ofan í „pollinn“ suður við Grindavík. Maður les einnig í blöðum að er- lend flugfélög sem senda flugmenn sína til þjálfunar í flugherminn hjá Icelandair kvarta ekki undan verð- inu í flugherminum, heldur undan dýrri gistingu á hótelum og samt rekur Icelandair hvort tveggja. Ferðaþjónustuaðilar: – Hættið þessu væli og standið að rekstri þjóðfélagsins eins og aðrar atvinnu- greinar sem innheimta 24% virð- isaukaskatt í dag. Ferðaþjónustan og virðisaukaskatturinn Eftir Kristmann Magnússon Kristmann Magnússon »Hættið þessu væli og standið að rekstri þjóðfélagsins eins og aðrar atvinnugreinar sem innheimta 24% virðisaukaskatt. Höfundur er fv. framkv.stjóri PFAFF hf. km@pfaff.is Góðir Íslendingar. Þið eruð í vanda. Þið eruð of fá í stóru landi til að hafa það opið, eins og hingað til, fyrir íslamskri yfir- burðahyggju. Góðvild ykkar við að taka á móti innflytjendum blekkir ykkur, en þið verðið að átta ykkur á hvernig veröldin er. Talsmenn íslamskrar yfirburðahyggju munu vera ykkur stimamjúkir og láta sem þeir unni ykkur, en þeir blekkja, til þess að ná ykkur á sitt vald. Þeir leitast vísvitandi við að vekja hjá ykkur sektarkennd þegar þið dragið í efa réttmæti illvirkja í nafni trúar þeirra víða um heim, í stað þess að bæta fyrir þau og horfast í augu við nútímann. Íslendingar, þið hafið eins og aðrir Vesturlandabúar hneigst til að bjóða minnihlutahópa velkomna og hafið komið á stjórnskipun þar sem lýst er yfir jafnrétti allra fyrir lögum. Ég er að uppruna jafnt Skoti, þeldökk, kínversk og ind- versk, en eini kuldinn sem ég fann fyrir á Íslandi var af gnauði vinds- ins. Þið hafið nú þegar mosku í smá- ríki ykkar, sem kostuð er af Sádí- Arabíu, landi sem styður wahab- isma – villimannlegt hugmynda- kerfi sem tekur undir karllæga, múslímska yfirburðahyggju og mannréttindabrot samkvæmt shari- alögum. Til stendur að byggja aðra mosku í höfuðstað ykkar, Reykja- vík. Ykkur er sagt að sharia sé skaðlaus, en sharia er guðræðis- lagakerfi sem meðal annarrar óhæfu kveður á um að fólk sem gengur af trúnni, samkynhneigðir og guðlastarar skuli líflátnir, að konur séu körlum óæðri, og að kon- ur skuli hylja sig að fullu samkvæmt Kór- aninum (24:31 og 33:59). Íslamismi er forskrift fyrir íslam í heild. Engin lög eru æðri íslömskum lög- um. Samkvæmt þeim eru landvinningar skylda og krafa. Allt frá falli Ós- mannaveldisins hafa leiðtogar íslams leitast við að endurheimta fyrri dýrðardaga, íslömsk yfirráð og drottinsvald. En hvað getið þið þá gert? Til að byrja með, þá getið þið hafnað til- hæfulausum ásökunum um „íslams- fóbíu“. Aðrir minnihlutahópar hafa ekki uppi ásakanir gegn ykkur, nema þeir séu gegnsýrðir af ísl- ömskum áróðri. Enginn annar hóp- ur leitast við að brjóta aðra undir sig eða gerir sig sekan um grimmi- leg mannréttindabrot um heim all- an, og hrópar um leið að hann sé fórnarlamb „nýlendustefnu“ og „heimsvaldastefnu“. Þið og aðrar vestrænar þjóðir verðið að rísa upp og verja stjórnskipun ykkar. Frels- isréttindi voru goldin dýru verði. Þegar þið heimilið múslimum að taka þátt í umræðufundum, gangið fyrst úr skugga um að þeir séu múslimar af því tagi sem taka vel spurningum, fjölhyggju og fjöl- breytni, og sem skilja að braut fjöl- menningar liggur í báðar áttir. Þeir verða að hafna sharialögum í öllum þeirra myndum. Á öllum tímum voru múslimar sem vildu lifa í samræmi við sinn eigin tíma, en voru myrtir fyrir að ganga af trúnni. Þeir skildu að vefengja varð óumbreytileika kennisetninganna og þrúgun hinna afluktu opinberu sjónarmiða, jafnt sem ulema (ráðandi öfl innan íslam) og alla stríðsmenn íslamsks einræð- is. Stjórnmálamenn ykkar og fjöl- miðlar búa við ótta. Margir hafa ásakað Robert Spencer, saklausan mann, um hatur, og byggja á orð- um og gerðum illmennisins Anders Breivik. Hvers konar undarlegt hugarfar hefur sá sem einfaldlega fylgir orðum nýnasísks morðingja að óathuguðu máli? Íslendingar, farið varlega. Ráðsk- ast er með ykkur. Berjist fyrir frelsi ykkar, takið vel þeim sem bjóða börnum ykkar farsæla fram- tíð og leyfið ekki íslamskri yfirburðahyggju, ágjörnum stjórn- málamönnum og stýrðum fjöl- miðlum að eyðileggja verk forfeðra ykkar og það góða sem þau hafa leitt til. Í djúpi hugans kann að búa nagandi ótti um að þú gætir sjálf (ur) verið dag nokkurn í sporum nefnds Roberts Spencer, sem eitrað hefur verið fyrir og gerður djöfli líkastur, ef ekki eitthvað þaðan af verra. Því meiri áhrifum sem óvinir frelsis og lýðræðis ná, því meiri hætta steðjar að saklausu fólki. Konur og stúlkur um alla Evrópu hafa sætt nauðgunum vegna þeirra kennisetninga, að múslimskir menn geti nýtt sér trúlausar konur að vild. Fólk sem ekki er múham- eðstrúar hefur verið rænt og það barið, og árásir jihadista hafa skilið eftir sig slóð limlestinga og sorga. Án andspyrnu munu íslamistar vega að þér, sama hve þeir brosa til þín nú. Verið á verði. Veitið athygli því sem predikað er í moskunum, því oft eru jihad, hatur og meintir yfirburðir íslams þar vegsamaðir. Enginn vinsamlegur múslimi mun nokkru sinni ásaka þig um íslams- fóbíu, vegna þess að þeir vita að þeirri ásökun er ætlað að hefta málfrelsi þitt og rétt þinn til að vefengja íslam. Íslendingar, það er bráðnauðsynlegt að velja sér vini af kostgæfni, rétt eins og vinsemd er mikilvæg. Varnaðarorð til Íslendinga Eftir Christine Douglass-Williams » Aðrir minnihluta- hópar hafa ekki uppi ásakanir gegn ykkur, nema þeir séu gegn- sýrðir af islömskum áróðri. Christine Douglass-Williams Höfundur er útvarpsmaður, rithöfundur og situr í Trúfrelsisstofu Kanada. Viðskipti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.