Morgunblaðið - 23.05.2017, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 23.05.2017, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2017 Frönsk flétta reið yfir höf-uðstaðinn af metnaði ogsæmilegustu hind, þ.e. sexstyttri tónsmíðar úr suðr- inu á einn eða annan hátt. Verkefna- valsnefnd tókst líkt og oft áður vel upp við að para saman áhugaverð verk, jafnvel sjaldheyrð og forvitnileg líkt og fyrir hlé. Mignon-forleikurinn hófst á léttum leik með fallegu þýðu hornsólói fyrr- verandi hornleiðara hljómsveitar- innar, Joseph Ognibene. Petite suite er annarskonar tónsmíð í fjórum stuttum köflum og hljómaði nú í fyrsta sinn í fluttningi sinfóníu- hljómsveitarinnar íslensku. Fyrri hlutinn sækir efnivið í ljóðlínur sym- bólistans Verlaine úr Fêtes galantes frá 1869; upp var dregin mynd af prúðbúnu hefðarfólki við leik og skemmtan. Dulúð með dökkum undir- tóni vaggaði bátnum á vatninu (En bateau). Heldur glaðlegri stemmning lék undir Fylgdarliðinu (Cortege); hljómsveitin töfraði fram léttan and- vara er blés lífi í reisu hefðarfrúar ásamt fylgdarliði, litlum apa og mennskum sendisveini líkt og stóð í efnisskrá. Þriðji kaflinn, Menuet, dró upp mynd af friðsælli náttúru og í seinasta kaflanum, Ballet, var kominn meiri sláttur í þetta fagra stemnings- fulla tónverk. Poème er í senn bragðsterk og til- finningarík tónsmíð en furðanlega sjaldheyrð á efnisskrám hljómsveita. Tiltölulega hægur hraði opnaði vel á hið draumkennda og ljóðræna í ofur- viðkvæmri skaphöfn elskanda eins sem tjáði brotið hjarta og sársauka á fiðluna. Lamsma lék af öryggi á Stra- divarius-fiðlu frá 1718 blóðheitan tón og ástríðu af öruggri bogfimi og sker- andi vibrató á efri registerum. Hún fékk nægt rými frá hljómsveit er hélt sér til hlés án þess þó að þynna neitt út. Verkin eftir hlé voru heldur stór- brotnari í sniðum. Áður en Alborada del graciosio hljómaði ávarpaði hljóm- sveitarstjórinn gesti yfir sig ánægður með uppskeru starfsársins með hljómsveitinni. Það má heyra og skynja á Yan Pascal að hann sé í frönsku tónlistar-trúboði uppi á Klak- anum. Þá loks hófst flutningur á einu af glansstykkjum Ravels. Helst til fá- menn strengjasveitin hélt vel utan um staði þar sem gjóska og gufustrókar léku um salinn en þó bar á hörku og ójafnri intóneringu hjá brassi, sér- staklega undir lokin. Carmen-fantasía var flutt á helst til letilegu tempói en fyrir vikið gafst Lamsma meiri tími og svigrúm til svipmeiri hendingamótunar, sem hún lék af næmni og snerpu. Hljómsveitin virkaði á köflum helst til svifasein og þung undir stjórn í þessu annars skapmikla virtuósastykki. Capriccio Italien er innblásin á þeim tíma þegar sérkenni lifðu í öllum hornum álfunnar, löngu fyrir staðlaða tíma Evrópusambandsins. Hljóm- sveitin náði allgóðu flugi í þessari fjör- ugu ítölsku glettu Rússans en hljóm- aði þó ögn ribbaldaleg, jafnvel framlág á annars svipmiklum tónleikum. Örugg „Lamsma lék af öryggi á Stradivarius-fiðlu frá 1718 blóðheitan tón og ástríðu af öruggri bogfimi og skerandi vibrató á efri registerum. Hún fékk nægt rými frá hljómsveit er hélt sér til hlés án þess þó að þynna neitt út.“ Af suðrænum smáréttum Eldborg í Hörpu Sinfóníutónleikar bbbbn Mignon, forleikur (1866) eftir Ambroise Thomas. Petite suite (1899/1907) eftir Claude Debussy. Poème (1896) eftir Ern- est Chausson. Alborada del gracioso (1905/1918) eftir Maurice Ravel. Car- men-fantasía (1883) eftir Pablo de Sara- sate. Capriccio Italien (1880) eftir Pjotr Tsjajkovskíj. Einleikari: Simone Lamsma. Stjórnandi: Yan Pascal Tortelier. Fimmtu- daginn 18. maí 2017 kl. 19.30. INGVAR BATES TÓNLIST Hætt hefur verið við uppfærslu á Hver er hræddur við Virginiu Woolf? eftir Edward Albee í Oregon í Bandaríkjunum eftir að dánarbú leikskáldsins lagðist gegn því að hlutverk Nicks væri leikið af hörunds- dökkum leikara. Frá þessu greinir The Guardian. Leikstjórinn, Michael Streeter, segist reiður og orðlaus yfir afstöðu dán- arbúsins. Sam Rudy, talsmaður dánarbúsins, gagn- rýnir Streeter fyrir að hafa ætlað sér að setja verkið upp án þess að hafa tryggt sér nauð- synlegan rétt. Bendir hann á að Albee hafi, meðan hann var á lífi, hafnað því með öllu að hægt væri að hafa hjónaböndin í leikritinu blönduð, enda hefði slík blöndun óhjákvæmi- lega ratað inn í samtöl persóna verksins miðað við stað og stund atburða. Að mati Streeter hefði hörundsdökkur leikari í hlutverki Nicks bætt aukadýpt við verkið. „Ég véfengi ekki ástæður ákvörðunar þeirra, því þeir vilja virða sýn Albee. Ég hafði samt vonað að neikvæð viðhorf Albee hefðu dáið með honum,“ segir Streeter. Albee, sem lést 2016, höfðaði mál til að koma í veg fyrir pörin tvö í ofangreindu leikriti væru túlkuð sem fjórir samkynhneigðir karlmenn. Nick má ekki vera hörundsdökkur Edward Albee Vorvindar Íslandsdeildar IBBY voru afhentir við hátíðlega athöfn í Gunn- arshúsi, húsi Rithöfundasambands Íslands, um nýliðna helgi. Viðurkenning- arnar eru veittar árlega fyrir framlög til barnamenningar. „Vorvindum er ætl- að að vekja athygli á verkum og starfsemi sem hleypir ferskum og endurnærandi vindum inn í íslenska barnamenningu,“ segir í tilkynningu frá samtökunum, en þar kemur fram að verðlaununum sé ætlað að hvetja til frek- ari dáða. Töfrahurð tónlistarútgáfa var verðlaunuð fyrir að opna börnum gátt inn í heim tónlistar með fjölbreyttu og metnaðarfullu útgáfustarfi og tónleikahaldi. KrakkaRÚV hlaut Vorvinda fyrir starf sitt við framleiðslu efnis fyrir börn og með börnum, einkum fréttaefnis fyrir börn, og fyrir að gera eldra efni aðgengi- legt. Jenny Kolsöe rithöfundur hlaut viðurkenningu fyrir bækurnar um ömmu óþekku og afa sterka, sem flétta fræðslu um landið okkar og þjóðsögurnar inn í fyndna samtímafrásögn. Lára Garðarsdóttir, mynd- og rithöfundur, fékk viðurkenningu fyrir bók sína Flökkusögu, en hún greinir frá hættuför lítillar hvítabirnu sem verður að flýja heimkynni sín og leita að nýju heimili. Ljósmynd/Sigríður Wöhler Vinningshafar Fv. Pamela De Sensi, listrænn stjórnandi Töfrahurðar, Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson frá KrakkaRÚV, Jenný Kolsöe og Lára Garðarsdóttir. Vorvindar IBBY á Íslandi afhentir www.solning.is Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Mið 24/5 kl. 20:00 173 s. Fim 1/6 kl. 20:00 179 s. Lau 10/6 kl. 20:00 185 s. Fim 25/5 kl. 20:00 174 s. Fös 2/6 kl. 20:00 180 s. Sun 11/6 kl. 20:00 186 s. Fös 26/5 kl. 20:00 175 s. Lau 3/6 kl. 20:00 181 s. Mið 14/6 kl. 20:00 Sing-along Lau 27/5 kl. 20:00 176 s. Mið 7/6 kl. 20:00 Sing-along Fim 15/6 kl. 20:00 188 s. Sun 28/5 kl. 20:00 177 s. Fim 8/6 kl. 20:00 183 s. Mið 31/5 kl. 20:00 178 s. Fös 9/6 kl. 20:00 184 s. Allra síðustu sýningar komnar í sölu! RVKDTR- THE SHOW (Litla svið) Lau 3/6 kl. 20:00 5. sýn. Reykjavíkurdætur taka yfir Litla sviðið og láta gamminn geisa. Elly (Nýja sviðið) Fim 1/6 kl. 20:00 43. sýn Mið 7/6 kl. 20:00 48. sýn Sun 11/6 kl. 20:00 52. sýn Fös 2/6 kl. 20:00 44. sýn Fim 8/6 kl. 20:00 49. sýn Mið 14/6 kl. 20:00 53. sýn Lau 3/6 kl. 20:00 45. sýn Fös 9/6 kl. 20:00 50. sýn Fim 15/6 kl. 20:00 54. sýn Þri 6/6 kl. 20:00 aukas. Lau 10/6 kl. 20:00 51. sýn Opnar kl. 18:30, frjálst sætaval. Panta verður veitingar með dags fyrirvara. Elly - haustið 2017 (Stóra sviðið) Fim 31/8 kl. 20:00 1. sýn Fim 7/9 kl. 20:00 4. sýn Sun 10/9 kl. 20:00 7. sýn Fös 1/9 kl. 20:00 2. sýn Fös 8/9 kl. 20:00 5. sýn Fim 14/9 kl. 20:00 8. sýn Lau 2/9 kl. 20:00 3. sýn Lau 9/9 kl. 20:00 6. sýn Fös 15/9 kl. 20:00 9. sýn Sýningar í haust komnar í sölu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.