Morgunblaðið - 23.05.2017, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2017
ANDBLÆR: OPIN FJÁRFESTAKYNNING
Þynnsta loftræstikerfi í heimi
Miðvikudag 24. maí kl.15:00 að Ofanleiti 2, Reykjavík (Verkís)
Breather Ventilation er nýsköpunarfyrirtæki sem gefur fjárfestum
rétt á skattaívilnun skv. lögum 90/2003 um tekjuskatt.
Nánari upplýsingar: www.breatherventilation.com
hluta. Tilnefningar Alþingis á
fulltrúum meirihluta og minnihluta
hafi tafist, en nú séu þær komnar
fram og því hafi verið hægt að funda.
Þá sitja í ráðinu forstjóri Landhelg-
isgæslunnar, ríkislögreglustjóri og
fulltrúi Landsbjargar.
Gera ráð fyrir góðu samráði
Bjarni var spurður hvort raun-
veruleg þörf hafi verið á skipan þjóð-
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Þjóðaröryggisráð kom saman í
fyrsta sinn í gærmorgun en lög um
þjóðaröryggisráð voru samþykkt á
þingi í september á síðasta ári.
Ráðinu er ætlað að framfylgja
þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland
eins og hún er á hverjum tíma, að
stefnan sé endurskoðuð reglulega og
að viðeigandi samráð stjórnsýslu-
aðila innbyrðis og við Alþingi eigi
sér farveg og fari reglulega fram.
Með stofnun ráðsins er jafnframt
stigið skref í þá átt að styrkja sam-
hæfingu og, sé þjóðaröryggi ógnað,
að tryggja samræmd viðbrögð hlut-
aðeigandi viðbragðsaðila, segir í
fréttatilkynningu forsætisráðuneyt-
isins.
Bjarni Benediktsson forsætisráð-
herra er formaður ráðsins og stýrir
fundum þess, sem skulu haldnir eigi
sjaldnar en ársfjórðungslega. „Það
var mikilvægt að koma ráðinu af
stað, en vegna kosninganna í haust
tafðist það talsvert. Þessi fyrsti
fundur var til þess að fara yfir það
hvert verði verklag okkar og önnur
formsatriði. Við munum halda annan
fund bráðlega,,“ sagði forsætisráð-
herra í samtali við Morgunblaðið í
gær, að afloknum fundi ráðsins.
Tilnefningar Alþingis töfðust
Bjarni segir að lögin geri ráð fyrir
því að ellefu fulltrúar sitji í ráðinu.
Auk forsætisráðherra eiga sæti ut-
anríkisráðherra, dómsmálaráðherra
og ráðuneytisstjórar ráðuneytanna
þriggja. Enn fremur eiga sæti í
ráðinu tveir þingmenn, annar úr
þingflokki sem skipar meirihluta á
þingi en hinn er úr þingflokki minni-
aröryggisráðs, þar sem hér séu fyrir
almannavarna- og öryggismálaráð
starfandi: „Þjóðaröryggisráð horfir
víðar yfir sviðið og verkefnin eru
ekki alveg sambærileg, eins og sést
af þingsályktunartillögunni sem
samþykkt var í fyrra. Lögin gera
líka ráð fyrir því að það sé gott sam-
ráð á milli ráðanna og að hluta til eru
sömu aðilar í báðum ráðum,“ sagði
Bjarni Benediktssson.
Morgunblaðið/RAX
Safnahúsið Fyrsti fundur þjóðaröryggisráðs var haldinn í gærmorgun í Safnahúsinu við Hverfisgötu.
Þjóðaröryggisráðið með sinn fyrsta fund
Ráðinu er ætlað að framfylgja þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland Tilnefningar Alþingis á fulltrúum
meirihluta og minnihluta í ráðið töfðust og því var ráðið ekki kallað fyrr en í gær til síns fyrsta fundar
Eftirtalin skipa þjóðaröryggis-
ráð: Bjarni Benediktsson for-
sætisráðherra, formaður, Guð-
laugur Þór Þórðarson utan-
ríkisráðherra, Sigríður Á.
Andersen dómsmálaráðherra,
Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðu-
neytisstjóri í forsætisráðuneyt-
inu, Stefán Haukur Jóhann-
esson, ráðuneytisstjóri í
utanríkisráðuneytinu, Ragnhild-
ur Hjaltadóttir, settur ráðu-
neytisstjóri í dómsmálaráðu-
neytinu, Haraldur Johannessen
ríkislögreglustjóri, Georg Krist-
inn Lárusson, forstjóri Land-
helgisgæslunnar, Smári Sig-
urðsson, tilnefndur af
Landsbjörg, Jóna Sólveig El-
ínardóttir, tilnefnd af þeim
flokkum sem skipa meirihluta
á þingi, og Katrín Jakobsdóttir,
tilnefnd af flokkum minnihlut-
ans.
Þingið
tilnefnir tvo
ELLEFU MANNS Í RÁÐINU
Tjaldapar í Mosfellsbæ hefur komið sér kirfilega fyrir og gert sér hreiður
á umferðareyju á hringtorginu þar sem Þingvallavegur og Vesturlands-
vegur mætast.
Tjaldurinn liggur rólegur á þótt bílarnir þjóti hjá í aðeins 2-3 metra fjar-
lægð, jafnt dag og nótt. Mikil umferð stórra og smárra bíla er um Vest-
urlandsveg og hringtorgið. gudni@mbl.is
Tjaldar til margra
nátta á hringtorgi
Morgunblaðið/Ómar
Geimvísindastofnun Bandaríkj-
anna, NASA, hefur birt MODIS-
mynd af Íslandi og sýnir hún meðal
annars hve snjólétt er nú um að lit-
ast á hálendinu. Vetur konungur
hefur þó enn ekki sleppt taki sínu á
Öskjuvatni og Hágöngulóni, sem
eru ísilögð, og Tröllaskaga, sem
einnig er áberandi vetrarlegur.
Ljósmynd/NASA
Ísland að mestu laust úr klakaböndum
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Stjórnarfund Neytendasamtakanna
tók fljótt af í gær þegar formaður
samtakanna setti fundinn og sleit í
sömu setningu. Varaformaður sam-
takanna, Ása Steinunn Atladóttir,
sagði af sér embætti í gærkvöldi og
segir það miður hvernig nafn hennar
hafi verið dregið inn í umræðuna.
Ása gekk frá ráðningu Ólafs Arn-
arsonar, formanns samtakanna, sem
hefur verið deilt um í fjölmiðlum
undanfarna daga. Samþykki stjórn-
ar fyrir þeirri ákvörðun liggur fyrir,
en í yfirlýsingu sem meirihluti
stjórnar sendi frá sér í gærkvöldi, og
Ása Steinunn
skrifaði undir
ásamt öllum
stjórnarmönnum
samtakanna, að
Ólafi undanskild-
um, kemur fram
að Ólafur hafi lof-
að að bera undir
stjórnina álit
starfskjaranefnd-
ar áður en ráðningarsamningur yrði
gerður, en nefndin var fengin til að
fara yfir laun Ólafs og annarra
starfsmanna Neytendasamtakanna.
Stefán Hrafn Jónsson, einn
stjórnarmanna, segir stjórnina
ósátta við hvernig formaðurinn hafi
tekið ákvarðanir á bak við hana og
segir það miður að fram hafi komið í
fjölmiðlum að Ólafur hafi gert samn-
ing við sjálfan sig. Það hafi ekki verið
raunin.
Ólafur segir í samtali við Morg-
unblaðið að verið sé að bera hann
þungum sökum sem enginn fótur sé
fyrir. Hann vísar til fundargerðar-
innar sem hefur birst í fjölmiðlum
þar sem umrædd ákvörðun stjórnar
kemur fram, að fela varaformanni að
ganga frá ráðningarsamningi við
Ólaf á grundvelli álits starfskjara-
nefndar. Segir hann ummæli nokk-
urra stjórnarmanna vera ærumeið-
andi og hungsanlega láti hann reyna
á ábyrgð nokkurra þeirra.
Segir formann hafa beitt
blekkingum við ráðningu
Varaformaður Neytendasamtakanna segir sig úr stjórn
Ólafur Arnarson