Morgunblaðið - 23.05.2017, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2017
Lífeyrissjóður verzlunarmanna | Kringlan 7 | 103 Reykjavík | Sími 580 4000
Aukaársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
verður haldinnmiðvikudaginn 21. júní
kl. 9:00 áGrandHótel Reykjavík
DAGSKRÁ FUNDARINS
» Samþykktabreytingar
Reykjavík 18. maí 2017
Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
Aukaársfundur
live.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
báru fyrstu ærnar 14. maí og þar
lýkur burði í kringum mánaða-
mótin.
Markið sem bænum fylgir er
sneitt að framan á báðum eyrum
og tvíbitað að aftan í vinstra eyra.
Ekkert fer á milli mála og um 100
lömb eru mörkuð á hverjum degi.
„Það er mikið að gerast þessa
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Sauðburðurinn er talsverð törn, en
þetta er líka skemmtilegt. Þetta
krefst stöðugrar viðveru og að
mörgu er að hyggja þegar koma
kannski hundrað lömb á dag,“ segir
Þóra Sverrisdóttir á Stóru-Giljá í
Austur-Húnavatnssýslu.
Þóra og Sigurður Erlendsson,
eiginmaður hennar, eru með eitt af
stærri sauðfjárbúum landsins og
ærnar sem bera í vor eru 740 tals-
ins. Veturgamlar gimbrar voru ekki
látnar bera að þessu sinni. Lömbin
eftir sauðburð vorsins á bænum
ættu því að verða á bilinu 1.300 til
1.400, en í gær var talan hins vegar
komin í rúmlega 500.
Veðráttan hjálpar
Sauðburður í sveitum landsins er
langt kominn, þótt slíkt sé misjafnt
frá bæ til bæjar. Á Stóru-Giljá
daga vorsins og einhver er á vakt í
fjárhúsinu allan sólarhringinn. Yf-
irleitt eru lömbin í stíu hjá ánum í
um sólarhring, en fara þá út í hag-
ann. Það hefur hjálpað mikið hve
veðrið hefur verið gott að undan-
förnu; hlýtt og haginn farinn að
grænka og er fallegur yfir að líta,“
segir Þóra á Stóru-Giljá.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sveitafólk Bændurnir á Stóru-Giljá, Sigurður Erlendsson og Þóra Sverr-
isdóttir, og Sverrir Helgi, sonur þeirra, með nýfædd lömb.
1.400 lamba er vænst í vor
Mikið er nú að
gera í sauðburði
á Stóru-Giljá
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Logi Einarsson, formaður Samfylk-
ingarinnar, gagnrýndi á Alþingi þær
breytingar sem orðið hafa á áfengis-
frumvarpinu í meðförum allsherjar-
og menntamálanefndar þingsins.
Sagði hann ótrúlegt að mál breyttist
þannig að úr yrði eitthvað algjörlega
nýtt.
„Ég geri mér grein fyrir því að
hlutverk nefndanna er að fjalla um
frumvörp og gera á þeim breyting-
ar,“ sagði Logi og bætti við að heppi-
legra væri að leggja frumvarpið
fram að nýju næsta haust. „Þetta er
svona svipað og ef þingflokksfor-
maður sendi mig út í bókabúð til að
kaupa heftara og ég kæmi með
steypuhrærivél til baka.“
Birgir Ármannsson, þingflokks-
formaður Sjálfstæðisflokksins, segir
viðbrögð Loga vera heldur sterk og
koma á óvart.
„Það sem mér virðist hins vegar
hafa gerst og vekja þessi sterku við-
brögð er það að meiri hluti nefndar-
innar hefur tekið tillit til helstu at-
hugasemda sem fram komu við þetta
frumvarp. Frumvarpið var gagnrýnt
vikum saman í þinginu fyrir það að
það væri algjör ósvinna að setja
áfengissölu í almennar verslanir.
Breytingartillögurnar sem hér
eru á borðinu gera ráð fyrir að svo
verði ekki heldur að áfengi verði selt
í sérverslunum. Með öðrum orðum
er það mikla hneyksli sem hér er tal-
að um fólgið í því að flutningsmenn
og meiri hluti allsherjar- og mennta-
málanefndar hafa tekið tillit til
helstu athugasemda sem fram hafa
komið við frumvarpið,“ sagði Birgir
enn fremur.
Steypuhrærivél
í stað heftara
Deilt um áfengisfrumvarpið á Alþingi
Morgunblaðið/Heiddi
Áfengi Deilt hefur verið um breyt-
ingar á áfengisfrumvarpinu á þingi.
Tvö alvarleg umferðarslys urðu í
gær og var tilkynnt um fyrra slysið
um klukkan 14. Fannst þá hjólreiða-
maður meðvitundarlaus á Nesja-
vallavegi og var hann fluttur með
sjúkrabíl á Landspítala í Fossvogi.
Vegfarendur komu að manninum
þar sem hann lá meðvitundarlaus á
jörðinni við reiðhjól sitt. Tildrög
þessa voru í gær ókunn, en sam-
kvæmt upplýsingum frá slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins var gripið til
þess að loka fjölförnum gatnamótum
í Reykjavík til að flýta för sjúkra-
bílsins. Engin vitni urðu að slysinu
og ekki voru í gær veittar upplýs-
ingar um líðan mannsins.
Seinna slysið átti sér stað rétt fyr-
ir klukkan 16 og varð það á Eyja-
fjarðarbraut vestari, skammt sunn-
an við Hrafnagil. Einn var fluttur
alvarlega slasaður á sjúkrahúsið á
Akureyri í hæsta forgangi. Ekki
fengust í gær upplýsingar um líðan
viðkomandi.
Tvö alvar-
leg um-
ferðarslys
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Bensínverðið hjá Costco er talsvert
lægra en stjórnendur N1 bjuggust
við. Í samtali við Morgunblaðið segir
forstjóri N1 ótímabært að spá fyrir
um hver áhrif Costco á eldsneytis-
markað verði, en segir það víst að
ekki sé hægt að reka bensínstöð á
Costco-verði.
Eggert Þór Kristófersson, for-
stjóri N1, telur áhrifin af komu
Costco óveruleg þó að erfitt sé að
segja nákvæmlega eins og stendur
hversu mikil þau verði. Tekur hann
sem dæmi að rúmlega 300 milljónir
lítra af eldsneyti séu seldar á bifreið-
ar ár hvert og selur stærsta einstaka
bensínstöðin um það bil tíu milljónir
lítra árlega, en að meðaltali selur
hver stöð milljón lítra árlega.
„Ef Costco verður stærst, þá selur
hún tíu milljónir lítra af 300. Það
breytir ekki miklu varðandi mark-
aðshlutdeild,“ segir Eggert Þór.
Verslun Costco verður opnuð í dag
en skrúfað var frá eldsneytisdælum
fyrirtækisins á sunnudag. Bensín-
lítrinn kostar 169,90 krónur hjá
Costco en tæpar 200 krónur hjá
stóru olíufélögunum. Á eftir Costco
bjóða X-stöðvar Orkunnar lægst
verð, lítrann á tæpar 186 krónur.
„Maður vissi ekki hvert verðið
yrði, en þetta er talsvert hressilegra
niður en ég átti von á,“ segir Eggert,
spurður út í verðlagningu Costco.
Hann segir miklu muna á þjónustu-
stigi N1 og Costco, bæði í fjölda út-
sölustöðva, staðsetningu, afgreiðslu-
tíma og þjónustu á hverri stöð.
„Auðvitað er ljóst að ef það er fram-
tíðin að selja eldsneyti með lítilli eða
engri, eða nánast engri, álagningu,
þá verð ég ekki með 6-800 manns í
vinnu við að selja eldsneyti og reka
stöðvarnar,“ segir Eggert.
Spurður út í gerbreytt landslag í
eldsneytissölu, þar sem Hagar hafa
fest kaup á Olís og Skeljungur á
Basko, sem á m.a. 10-11, Iceland og
Dunkin’ Donuts, segir Eggert að
hugsanlega muni íslenski eldsneyt-
ismarkaðurinn færast nær því sem
gerist t.a.m. í Bretlandi þar sem
bensínstöðvarnar eru oft útibú versl-
unarkeðja. „Okkar vöxtur hefur ver-
ið í ferðamanninum á landsbyggð-
inni. Það þótti hallærislegt fyrir
hrun, en reyndist vera hárrétt
ákvörðun hjá forverum mínum,“ seg-
ir Eggert um stöðu N1 í dag og
bendir á að félagið hafi einbeitt sér
aftur að kjarnastarfseminni á und-
anförnum árum.
Verðið á eldsneyti
Costco kom N1 á óvart
Segir ekki hægt að reka bensínstöðvar á Costco-verði
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins á
Alþingi mun ekki styðja óbreytta
þingsályktunartillögu Benedikts Jó-
hannessonar fjármálaráðherra um
fjármálaáætlun til næstu fimm ára.
Þar ræður mestu gagnrýni þing-
flokksins og meirihluta fjárlaga-
nefndar á áform fjármálaráðherra
um að hækka virðisaukaskattstig
ferðaþjónustunnar með þeim hætti
sem tillagan gerir ráð fyrir, úr 11%
í 22,5%, þegar á næsta ári. Morg-
unblaðið hefur þetta eftir áreiðan-
legum heimildum.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins, eru þær skoðanir ráð-
andi innan þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins, að ríkisstjórnin, einkum
Viðreisn, þar sem fjármálaráðherra
er formaður, hyggist einfaldlega
fara of bratt í virðisaukaskatt-
shækkanir á ferðaþjónustuna.
Vissulega séu góð rök fyrir því að
skatturinn hækki og verði í sama
skattþrepi og í öðrum atvinnugrein-
um í landinu, en greinin þurfi,
vegna ytri aðstæðna og samninga
við erlend ferðaþjónustufyrirtæki,
að fá lengri aðlögunartíma, a.m.k.
til ársins 2019.
Ekki liggur ljóst fyrir hvernig
fjármálaráðherra mun bregðast við
þessari hörðu afstöðu þingflokks
Sjálfstæðisflokksins, en búist er við
því að Benedikt Jóhannesson muni
á næstu stigum málsins gefa eitt-
hvað eftir í afstöðu sinni á Alþingi.
Sjálfstæðismenn munu ekki
samþykkja áætlun ráðherra
Sjálfstæðisþingmenn og Viðreisn ekki á einu máli um fjárhagsáætlunina
Morgunblaðið/RAX
Fastur fyrir Benedikt Jóhannesson hefur ekki breytt afstöðu sinni.