Morgunblaðið - 23.05.2017, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2017
Opið 09-23 | Laugavegi 12 | 101 Rvk | Sími 551 5979 | lebistro.is
Hefur þú
smakkað
Snigla?
Frönsk bylting
á þínum disk?
Hildur Loftsdóttir
hildurl@mbl.is
Eva Maria Daniels hefurmeira en nóg að gera oger á ferð og flugi um allanheim í sambandi við vinn-
una. Þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við hana var hún á leið frá
London til Cannes, þar sem hún
þurfti að funda og horfa á nýjustu
kvikmyndirnar. Hún millilenti þó á
Íslandi og leyfði okkur að smella af
sér mynd.
„Ég stofnaði fyrirtækið mitt Eva
Daniels Productions í Los Angeles
árið 2010 og það er enn þar til húsa.
Ég gerði tíu ára plan þegar ég flutti
frá Íslandi 22 ára um að búa í Kaup-
mannahöfn, London, New York og
Los Angeles,“ segir Eva Maria, sem
m.a. lærði kvikmyndaframleiðslu í
Kaupmannahöfn.
„Þegar það plan var orðið að
raunveruleika ákvað ég árið 2013 að
flytja aftur til New York og ætlaði
mér bara að vera þar. En á síðasta ári
varð ég ástfangin af manni sem býr
og starfar í London svo ég flutti
þangað aftur fyrr á þessu ári, þar sem
við búum loksins saman eftir milli-
landasamband. Ég var líka farin að
sakna Evrópu og fannst mjög
heillandi að vera nær Íslandi. Ég get
unnið svo mikið í fjarvinnu þannig að
það var auðveld ákvörðun að flytja.“
Góð handrit ná athygli
-Hvernig tókst þér að ná til þín
stórstjörnum allt frá byrjun?
„Ég hafði unnið í eftirvinnslu á
auglýsingum og bíómyndum í um sjö
ár áður en ég stofnaði fyrirtækið,
þannig að ég var búin að kynnast
ýmsu fólki í geiranum og nokkrir
urðu góðir vinir mínir. Ein af þeim er
Riva Marker sem var einn af kúnn-
unum mínum hjá Company 3 þar sem
ég vann áður. Hún bauð mér fyrsta
tækifærið til að vinna við fram-
leiðsluferlið og það var fyrir myndina
The Romantics með Katie Holmes,
Josh Duhamel og Önnu Paquin í aðal-
hlutverkum. Við Riva höfum síðan þá
framleitt þrjár myndir saman og er-
Skemmtilegast
að skapa nýja heima
Eva Maria Daniels rekur
sitt eigið framleiðslufyr-
irtæki erlendis, þar sem
hún framleiðir og þróar
vandaðar óháðar kvik-
myndir sem skarta stór-
stjörnum á borð við Rich-
ard Gere, Alexander
Skarsgård, Steve Coogan
og Julianne Moore.
The Romantics Fyrsta framleiðsluverkefni Evu Mariu var myndin The
Romantics með Josh Duhamel og Katie Holmes í aðalhlutverkum.
Morgunblaðið/Eggert
Kvikmyndaframleiðandinn Eva Maria Daniels kvikmyndaframleiðandi gerði tíu ára plan þegar hún fluttist frá Ís-
landi fyrir 22 árum; að búa í Kaupmannahöfn, London, New York og Los Angeles – planið gekk eftir.
Matarheill, samtök áhugafólks um
matarvanda, efna til málþings um
matarfíkn og meðferðarúrræði kl.
20-22 í kvöld, þriðjudag 23. maí, í
Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi
1. Erinda flytja m.a. Esther Helga
Guðmundsdóttir, formaður Mat-
arheilla og stofnandi og stjórnandi
MFM matarfíknimiðstöðvarinnar,
Ólöf Ásta Ólafsdóttir, ljósmóðir og
hjúkrunarfræðingur, og Monica
Colmsjo, næringarþerapisti, fíkniráð-
gjafi og höfundur bókarinnar Sug-
ardreams.
Á vefsíðu samtakanna, matar-
heill.is, er eftirfarandi skilgreining á
einkennum matarfíknar: „Þráhyggja
gagnvart mat, þráhyggja gagnvart
þyngd og það að missa stjórn á
magninu sem borðað er.“ Ennfremur
segir: „Þessi einkenni fela í sér að
fíkillinn hefur óstjórnlega þörf til að
breyta líðan sinni, sem hann gerir
með síendurteknu ofáti, þrátt fyrir
alvarlegar afleiðingar þess. Merking
orðsins „matarfíkn“ gefur til kynna
að um er að ræða lífeðlis- og líf-
fræðilegt líkamsástand, sem veldur
óstöðvandi löngun í unnin kolvetni.
Þessari óstjórnlegu löngun má líkja
við löngun alkóhólistans í alkóhól.“
Vefsíðan www.matarheill.is
Kolvetni Matarfíkn birtist í óstöðv-
andi löngun í unnin kolvetni.
Matarfíkn
og meðferðar-
úrræði
Menningarlands-
lagið í Garða-
hverfi á Álftanesi
er um margt ein-
stakt. Þar eru
kunnar fornleifar
sem minna á sjó-
sókn, búskap,
samgöngur,
trúarlíf, skóla-
hald og jafnvel
réttarsögu. Íbúar
á höfuðborgarsvæðinu þurfa ekki
að leita langt yfir skammt vilji þeir
fara í kvöldgöngu og skoða og
fræðast um gamlar minjar. Kl. 17.15
í dag, þriðjudag 23. maí, verður
efnt til sögugöngu undir leiðsögn
Ragnheiðar Traustadóttur fornleifa-
fræðings um svæðið. Mæting er við
bílastæði Garðakirkju og áætlað er
að gangan taki um einn og hálfan
tíma.
Um þessar mundir er tillaga um
að Garðahverfi verði gert að
,,verndarsvæði í byggð“ í kynningu.
Sögugangan er samstarfsverkefni
umhverfisnefndar, menningar- og
safnanefndar og Bókasafns Garða-
bæjar. Allir eru velkomnir.
Verndarsvæði í byggð
Morgunblaðið/Kristinn
Fornleifar Í Garðahverfi á Álftanesi eru fornleifar sem minna á sjósókn,
búskap, samgöngur, trúarlíf, skólahald og jafnvel réttarsögu.
Ragnheiður
Traustadóttir
Söguganga um menningar-
landslagið í Garðahverfi í kvöld
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.