Morgunblaðið - 23.05.2017, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 23.05.2017, Blaðsíða 13
um með eina nýja í þróun ásamt fyr- irtækinu hennar Rivu, en hún rekur Nine Stories Productions ásamt leik- aranum Jake Gyllenhaal. Það er líka þannig að gott handrit stendur alltaf fyrir sínu, þannig að ef þú nærð því rétt, nærðu athygli leikaranna.“ - Hvernig kvikmyndir viltu helst framleiða? „Markmiðið hefur alltaf verið að gera myndir sem mögulega hafa sam- félagsleg áhrif en eru skemmtun á sama tíma. Myndir sem geta komið jákvæðum áhrifum út í samfélagið, geta jafnvel breytt einhverju og skilið eftir sig mikilvægar samræður. Mér finnst svo magnað að geta tekið á mannúðlegum málefnum í gegnum kvikmyndir og komið skilaboðum þannig út í heim. Ég er alltaf að leita að slíku efni til að þróa.“ Draumur að þróa handrit með leikurum Eva Maria segist oftast þróa handritin frá grunni; hún skoði bæk- ur, greinar og annað sem getur orðið að fullbúnum handritum, en það taki mjög langan tíma. Hún framleiðir líka kvikmyndir sem hún kemur að inni í miðju ferli. „Ég var með í kvikmyndinni The Dinner frá því að bókin kom til mín frá öðrum framleiðanda, en Oren Mo- verman leikstýrði henni og sömuleið- is Time Out of Mind sem ég kom inn í þegar handritið var tilbúið. Oren er algjör snillingur og það er mikill heið- ur að hafa fengið tækifæri til að gera kvikmyndir með honum með sterkum skilaboðum um málefni heim- ilislausra og geðveikra. Richard Gere hafði þróað Time Out of Mind í mörg ár sem ástríðuverkefni, en þessi málaflokkur stendur honum mjög nærri hjarta. Hann leikur einmitt að- alhlutverkið í myndinni sem fjallar um heimilislausan mann í New York. Kvikmyndin Object of Beauty sem enn er í þróun hefur verið gælu- verkefni leikkonunnar Amy Adams. Það verkefni kom líka til mín frá öðr- um framleiðanda aðeins seinna í þró- unarferlinu. Fyrsti handritshöfund- urinn var kominn á skrið áður en ég kom inn í verkefnið þannig að Amy og leikarinn Steve Martin, sem skrifaði skáldsöguna sem myndin byggist á, voru byrjuð að þróa persónurnar,“ segir Eva Maria sem finnst alltaf al- gjör draumur að fá tækifæri til að þróa handrit með leikurunum. - Hvað finnst þér skemmtilegast við starfið þitt? „Að skapa nýja heima og finna skapandi leiðir til að koma samfélags- legum málefnum að í bíómyndum. Sem og þessi stanslausi lærdómur, bæði í gegnum samstarfsfólk og alla þá rannsóknarvinnu sem er í kring- um þróunina á hverri mynd fyrir sig. Það er líka meiriháttar að geta tekið upp símann og átt samræður við fólk sem mann gat eingöngu dreymt um að vinna með áður. Svo er það að upp- götva ný talent líka ótrúlega gef- andi.“ Flott sýn á myndina Eva Maria og félagar voru að ljúka tökum í Kanada og Marokkó á kvikmyndinni Hold The Dark, sem fjallar um úlfaskyttu sem eltir uppi barn í óbyggðum Alaska. Jeffrey Wright leikur úlfaskyttuna, en sænski leikarinn Alexander Skars- gård leikur Slone, föður barnsins, sem er eitthvað í nöp við úlfaskytt- una. „Myndin er byggð á skáldsögu eftir William Giraldi sem ég heillaðist alveg af. Hún gerist í litlu þorpi í Alaska þar sem börn hafa verið tekin af úlfum og sérfræðingur er fenginn til að rannsaka málið. Hann finnur sig fljótt í togstreitu á milli móðurinnar sem síðan hverfur og eiginmanns hennar sem snýr tilbaka til þorpsins eftir stríðið í Írak. Leikstjórinn Jeremy Saulnier er einn af þeim leikstjórum sem mig hefur lengi langað að vinna með svo það var mikill fengur í honum við þró- un þessa verkefnis. Hann er ein- staklega hæfileikaríkur og var með mjög flotta sýn á hvernig myndin ættti að verða. Handritshöfundurinn Macon Blair er æskuvinur hans og einnig mikið talent, svo það var raf- magnað að fylgjast með þeirra sam- starfi meðan á skrifunum stóð. Þetta verkefni er mjög ólíkt öllu öðru sem ég hef tekið að mér, eða séð áður, svo allt við það var mjög spennandi.“ - Og er Alexander jafn jarðbund- inn og vinalegur og pabbi hans Stell- an Skarsgård er þekktur fyrir að vera? „Já, hann er algjört gull af manni.“ Spennt fyrir nýjum nöfnum - Er eitthvert draumaverkefni sem þig langar að þróa, draumaleik- stjóri eða leikari sem þig langar að vinna með? „Ég er með nokkrar myndir í þróun með kvikmyndastúdíóinu A24 sem er í miklu uppáhaldi hjá mér, en stúdíóið framleiddi m.a. Moonlight sem fékk Óskarinn sem besta mynd- in. Ég tek bara einn dag í einu og reyni að setja orkuna í núið. Það tek- ur svo langan tíma að koma hverri þróun í framleiðslu, svo maður verður að reyna að njóta ferðarinnar og ein- blína á lærdóminn á leiðinni. Annars er ekkert eitt ákveðið verkefni sem ég er að stefna að, en það er alltaf markmiðið að gera fleiri kvikmyndir um samfélagsleg málefni sem og að gera mynd á Íslandi. Varðandi leikstjóra og leikara eru heldur betur mörg nöfn þar í pottinum. Núna þegar ég er komin aftur til Evrópu eftir tíu ára dvöl í Bandaríkjunum er ég mjög spennt að kynnast fleiri nöfnum hérna megin á hnettinum,“ segir Eva Maria Daniels kvikmyndaframleiðandi sem ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. What Maisie Knew Julianne Moore og Alexander Skarsgård í myndinni What Maisie Knew, sem er um harða forræðisdeilu. „Markmiðið hefur alltaf verið að gera myndir sem mögulega hafa samfélagsleg áhrif en eru skemmt- un á sama tíma. Myndir sem geta komið jákvæðum áhrifum út í samfélagið, geta jafnvel breytt ein- hverju og skilið eftir sig mikilvægar samræður.“ The Dinner James Coogan, Laura Lynney, Richard Gere og Rebecca Hall í The Dinner, sem fjallar um börn og foreldra. Time Out of Mind Richard Gere lék heimilislausan mann í Time Out of Mind, en honum er viðfangsefnið hugleikið. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2017 Hringbraut-Fjölmiðlar ehf. | Eiðistorgi 17 | 170 Seltjarnarnesi | www.hringbraut.is | Sími +354 561 3100 Missið ekki af áhugaverðum þætti um starfsemi ÖBÍ og viðtali við varaformann og forsvarsmenn fyrirtækja innan ÖBÍ og Kvenna- og Ungliðahreyfingar bandalagsins. Hringbraut næst á rásum 7 (Síminn) og 25 (Vodafone) ATVINNULÍFIÐ ÁdagskráHringbrautar í kvöld kl. 20.00 í þættinum Atvinnulífið - seinni hluti sem er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld • Örtækni er öflugt rafeinda- fyrirtæki sem stofnað var 1976 • Hringsjá er náms- og starfs- endurhæfingarúrræði • Brynja hússjóður á um 800 íbúðir sem leigðar eru til öryrkja • Staða atvinnumála fatlaðs fólks á Íslandi og styrkir til bifreiðakaupa fyrir hreyfi- hamlaða Heimsókn til Öryrkjabandalags Íslands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.