Morgunblaðið - 23.05.2017, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2017
Sameinuðu þjóðirnar hvöttu í gær
Norður-Kóreu til að hætta til-
raunum með langdræg flugskeyti.
Norður-Kóreustjórn hélt slíkum til-
raunum áfram um helgina.
„Þessar aðgerðir ógna svæð-
isbundnu og alþjóðlegu öryggi,“
sagði Stephane Dujarric, talsmaður
SÞ, í gær.
Öryggisráð SÞ mun halda lok-
aðan fund í dag um málið að ósk
Bandaríkjanna, Japans og Suður-
Kóreu.
Norður-Kórea hætti
kjarnorkutilraunum
Eldflaugaskot Ódagsett mynd af flug-
skeytatilraun í Norður-Kóreu.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Donald Trump sýndi samhug sinn og
stuðning við Ísraelsríki í gær þegar
hann varð fyrsti sitjandi forseti
Bandaríkjanna til þess að heimsækja
Grátmúrinn í Jerúsalem. Lagði hann
hönd sína á vegginn, sem talinn er
einn helgasti staður í gyðingdómi.
Heimsóknin var liður í fyrstu utan-
landsferð Trumps sem forseti, en
hann kom til Ísraels frá Sádi-Arabíu.
Vestanhafs er litið á ferðina sem
tækifæri fyrir Trump til þess að fjar-
lægja sig frá vandamálunum sem um-
lukið hafa forsetatíð hans á síðustu
vikum, sem snúast flest um meint
tengsl bandamanna hans við yfirvöld
í Rússlandi.
Gagnrýndi Írani hart
Trump nýtti einnig tækifærið til
þess að hvetja alþjóðasamfélagið til
samstöðu gegn Íran og tilraunum
yfirvalda þar til þess að verða sér úti
um kjarnorkuvopn. „Bandaríkin og
Ísrael geta sagt með einni röddu að
það megi aldrei leyfa Íran að eignast
kjarnorkuvopn,“ sagði Trump í ræðu
sinni og bætti við að ríkið yrði að
hætta stuðningi sínum við hryðju-
verkamenn og vígahópa annars stað-
ar í Mið-Austurlöndum.
Trump fundaði síðar um daginn
með Benjamín Netanyahu, forsætis-
ráðherra Ísraels. Hélt hann þar uppi
gagnrýni sinni á Írani, sem Trump
sagði vanþakkláta. Lýsti hann yfir
þeirri skoðun sinni að Íranir hefðu átt
að segja „takk fyrir“ við Bandaríkin
fyrir kjarnorkusamkomulagið frá
árinu 2015, þar sem samið var um að
refsiaðgerðum yrði aflétt á Íran gegn
því að ríkið frestaði tilraunum sínum
til þess að eignast kjarnorkuvopn. Í
staðinn hefðu Íranir gerst djarfari í
að ýta undir óróa í Mið-Austurlönd-
um.
Vill fá „besta samninginn“
Trump nýtti heimsókn sína einnig
til þess að ýta á eftir framgangi
friðarviðræðna milli Ísraela og Pal-
estínumanna, en Trump, sem gert
hefur ýmsa samninga á viðskiptaferli
sínum, hefur kallað það „besta samn-
inginn“ sem hann myndi ná á ferli
sínum, sér í lagi þar sem margir fyr-
irrennarar hans í embætti hafa ekki
náð árangri þar. Fréttaskýrendur
meta hins vegar möguleika hans litla,
þar sem Trump sé enn óreyndur í
embætti og enn standi of mörg flókin
deilumál út af borðinu til þess að
samkomulag geti verið í sjónmáli.
„Við stöndum frammi fyrir sjald-
gæfu tækifæri til þess að færa þess-
um heimshluta og fólkinu þar öryggi,
stöðugleika og frið, og búa til framtíð
þar sem samhljómur, hagsæld og
friður ríkja,“ sagði Trump við komu
sína til Ísraels.
Trump mun í dag funda með
Mahmoud Abbas, forseta Palestínu-
manna, í Bethlehem á Vesturbakk-
anum og heimsækja minnismerki um
helförina í síðari heimsstyrjöld.
Lagði hönd á Grátmúrinn
Trump fyrstur Bandaríkjaforseta til þess að heimsækja múrinn í embætti
Gagnrýndi Írani fyrir stuðning þeirra við hryðjuverkamenn og vígahópa
AFP
Virðingarvottur Donald Trump leggur hægri hönd sína á Grátmúrinn, einn helgasta stað gyðinga.
Björgunarmenn á Everest-fjalli í
Nepal fundu í gær lík indversks fjall-
göngumanns, Ravi Kumar, sem sakn-
að hafði verið síðan á laugardag. Ravi
náði toppi fjallsins á laugardag en
missti samband við grunnbúðir stuttu
síðar. Nepölskum leiðsögumanni
hans hafði tekist að komast í skjól í
fjórðu búðum, rétt neðan 8.000 metra
hæðarlínunnar, en svæðið þar fyrir
ofan er oft nefnt dauðasvæðið.
Þetta er fjórða skráða dauðsfall
helgarinnar á fjallinu en áður höfðu
bandarískur læknir, Slóvaki og Ástr-
ali látið lífið á fjallinu og eru öll
dauðsföllin rakin til svokallaðrar
háfjallaveiki. Hún orsakast af minni
loftþrýstingi og takmörkuðu súrefn-
isinnihaldi andrúmslofts.
Síðustu vikur hafa einkennst af
sterkum vindum og óvenju köldu
loftslagi en um helgina lægði og opn-
aðist glufa fyrir fjallgöngumenn að ná
toppnum. Talið er að allt að 150
manns séu á fjallinu nú og bíði færis
áður en monsúnregntímabilið skellur
á í júní. Fjölmargir náðu tindi Ever-
est um helgina, þeirra á meðal Vil-
borg Arna Gissurardóttir sem náði
toppnum fyrst íslenskra kvenna á há-
degi á laugardag. Hún er nú komin
niður í aðrar búðir á fjallinu en þær
eru í um 6.400 metra hæð.
agunnar@mbl.is
Reuters
Mannmergð Það getur verið margt um manninn í hlíðum Everest.
Fjórir létu lífið á
Everest í vikunni
Dagblaðið The
Guardian hefur
birt skjöl sem
sögð eru afhjúpa
hvernig sam-
skiptamiðillinn
Facebook rit-
skoðar það sem
notendur hans
birta. Þar er far-
ið yfir þær við-
miðanir sem not-
ast er við til þess að skera úr um
hvort það efni sem er birt á miðl-
inum telst á einhvern hátt óæski-
legt. Að sögn starfsmanna Facebo-
ok eru þessar viðmiðunarreglur
hins vegar í miklu ósamræmi og
afar ruglingslegar. Open Rights
Group, hópur sem beitir sér fyrir
stafrænum réttindum fólks, segir
að skjölin sýni hversu mikil áhrif
Facebook getur haft á notendur
sína, sem eru um tveir milljarðar.
Miðillinn notast einnig við algrím
með gervigreind, sem fer yfir
myndir og annað efni áður en það
er birt, en í byrjun maí tilkynnti
Facebook að fyrirtækið hefði ráðið
rúmlega 3.000 nýja starfsmenn til
þess að fara yfir birt efni.
Ritskoðun Facebook
hin mesta áskorun
Mark Zuckerberg,
stofnandi Facebook.
Grátmúrinn, sem einnig er þekktur
sem Vesturmúrinn, var reistur um
árið 19 fyrir Krist, þegar Heródes
mikli lét stækka musteri gyðinga í
Jerúsalem, en múrinn girti af það
svæði sem helgað hafði verið
musterinu.
Múrinn hefur verið einn af helg-
ustu stöðum gyðinga í margar ald-
ir, en þeir ferðast gjarnan að
veggnum og minnast þar must-
erisins og eyðileggingar þess. Fékk
hann viðurnefnið „Grátmúrinn“
vegna þess, en gyðingar nota það
heiti ekki sjálfir.
Veggurinn hefur löngum verið
bitbein gyðinga og múslima, sem
ríktu lengi vel yfir Jerúsalem og
takmörkuðu aðgang gyðinga að
borginni og veggnum. Á milli ár-
anna 1948 og 1967 var austurhluti
Jerúsalem og múrinn á valdi Jórd-
aníumanna. Bönnuðu þeir gyð-
ingum alfarið að heimsækja hina
fornu hluta borgarinnar, og ráku
þá sem þegar bjuggu þar frá heim-
ilum sínum. Því tímabili lauk eftir
Sex daga stríðið 1967, þegar Ísr-
aelar náðu yfirráðum yfir allri
Jerúsalem.
Reistur af Heródesi mikla
GRÁTMÚRINN