Morgunblaðið - 23.05.2017, Page 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2017
✝ Elías Arasonfæddist 11. júní
1924 að Butru í
Fljótshlíð. Hann
lést á Landspít-
alanum 17. maí
2017.
Hann var sonur
hjónanna Ara
Markússonar, f. 31.
maí 1900, og Guð-
rúnar Jónsdóttur, f.
1. maí 1905. Systk-
ini Elíasar eru Ester, Ester
Anna, Helgi, Emil og Hörður.
Elías Arason ólst upp í Valstrýtu
í Fljótshlíð, hjá ömmu sinni Sig-
ríði Aradóttur og börnum henn-
ar; Bjarna, Mörtu, Guðbjörgu og
Ingólfi. Guðbjörg Markúsdóttir,
fædd 29. september 1907, og
Ingólfur Markússon, fæddur 8.
febrúar 1916, eru síðan ábú-
endur á Valstrýtu eftir 1956, en
það ár andaðist Bjarni. Marta
andaðist 1968. Systkinin í Valst-
rýtu, Guðbjörg og Ingólfur, ólu
þeirra eru Hulda Heiðrún, Guð-
rún Sóley og Elísa Sóldís. 3)
Erna Björk Elíasdóttir, fædd 11.
mars 1965, maki Gissur Skarp-
héðinsson, börn þeirra eru Ing-
unn, Signý og Eydís. Auk ofan-
greindra barna (3) og
barnabarna (9), átti Elías 11
langafabörn og 2 langa-
langafabörn.
Elías var í vegavinnu í Fljóts-
hlíð, á vertíð í Vestmannaeyjum,
í byggingarvinnu í Reykjavík er
hann kynntist Guðrúnu, á bíla-
verkstæði og síðan með eigin
rekstur frá árinu 1963 (Járniðjan
sf). Síðast starfaði Elías í Áhalda-
húsi Hafnarfjarðar.
Eftir að Guðrún lést árið 2000
tóku við nokkur erfið ár hjá
Elíasi. En eftir að hann fór í dag-
vistun á Hrafnistu í Hafnarfirði
má segja að nýr kafli hafi hafist
hjá honum. Hann tók fullan þátt
félagstarfinu, var í kórnum,
stundaði pútt, leikfimi og lyft-
ingar. Árið 2014 flutti Elías síðan
alfarið á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Útför Elíasar fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 23.
maí 2017, klukkan 11.
upp þrjá syst-
kinasyni sína, þá
Elías, Karl Guð-
jónsson og Markús
Guðjónsson.
Árið 1946 kynn-
ist Elías eiginkonu
sinni Guðrúnu Jóns-
dóttur frá Hafn-
arfirði. Guðrún var
fædd 29. júlí 1923
en hún lést 11. júní
2000. Þau hófu bú-
skap sinn á Kirkjuvegi 36 í Hafn-
arfirði árið 1946. Elías og Guð-
rún gengu í hjónaband 21.
desember 1947. Vorið 1948
fluttu þau á Hellisgötu 19 þar
sem þau bjuggu alla sína tíð.
Börn þeirra eru : 1) Guðný Sig-
ríður Elíasdóttir, fædd 13. sept-
ember 1947, maki Guðmundur
Grétar Bjarnason, börn þeirra
Elías Bjarni, Gunnar Ingi og
Margrét Ólöf. 2) Sigurður Ari
Elíasson fæddur 28. mars 1953,
maki Sigríður Ágústdóttir, börn
Elsku afi minn og nafni, Elías
Arason, afi Elli, er látinn, 92 ára
gamall. Allt mitt líf hef ég þekkt
og umgengist afa mikið. Hann og
amma Guðrún bjuggu allan sinn
búskap á Hellisgötu 19 í Hafnar-
firði og við fjölskyldan bjuggum
ekki langt frá þeirra heimili þann-
ig að oft gengum við bræðurnir
eða hjóluðum til ömmu og afa.
Vorum við alltaf aufúsugestir þar.
Erna móðursystir mín er aðeins
tveimur árum eldri en ég og því
brölluðum við oft mikið saman
heima hjá ömmu og afa.
Afi Elli var fæddur í Fljótshlíð-
inni og alinn upp á bænum Valst-
rýtu. Tengsl afa við Fljótshlíðina
voru alltaf sterk. Afi Elli ólst þar
upp hjá ömmu sinni Sigríði Ara-
dóttur og börnum hennar; Bjarna,
Mörtu, Guðbjörgu og Ingólfi. Guð-
björg og Ingólfur tóku seinna
meir við búinu á Valstrýtu, eða
Gudda og Ingi í Strýtu eins og þau
voru oftast kölluð. Öll börn afa
Ella sem og ég og Gunnar bróðir
minn vorum svo lánsöm að fá að
vera vinnufólk í Valstrýtu á sumr-
in, sjálfur var ég þar frá 10 til 16
ára aldurs. Þar kynntist maður
mikilli hlýju og væntumþykju,
ásamt því að læra að vinna, eitt-
hvað sem maður býr að alla ævi. Í
þessu umhverfi hafði afi Elli alist
upp, sem sannarlega mótaði hann
og gerði hann að þeim góða ein-
staklingi sem hann sannarlega
var. Afi og amma voru tíðir gestir í
Strýtu, komu nánast um hverja
helgi austur yfir sumartímann og
oftar en ekki með eitthvert góð-
gæti í poka sem ungir drengir
kunnu að meta.
Afi Elli var góð fyrirmynd; allt-
af hlýr en harðduglegur og hafði
sterkar skoðanir. Ég á sterkar
minningar frá þeim tíma þegar
hann rak Járniðjuna, sem smíðaði
aðallega handrið í stigaganga og
sinnti annarri járnsmíði. Hendur
hans og allt atgervi minnti einna
helst á ofurhetju úr teiknimynd-
um nútímans, risastórar hendur
og hraustmenni mikið. Afi Elli
trúði á sjálfstæði einstaklingsins
og að menn ættu að njóta síns
dugnaðar en ekki var hann fylgj-
andi meðalmennsku.
Afi Elli var einstaklega stoltur
og áhugasamur um sín börn og af-
komendur þeirra, hvort sem þau
voru að nema, starfa eða stunda
íþróttir. Það er alveg á hreinu að
við aðrar aðstæður nær nútíð
hefði afi Elli lært meira. Hann las
mikið, sérstaklega seinni árin og
var stálminnugur, fór með gam-
anmál og vísur og fylgdist vel með
þjóðmálum alveg fram að andláti.
Við töluðum oft saman í síma,
við afi. Símtölin byrjuðu alltaf
eins: „Sæll nafni.“ Ég á eftir að
sakna þessara símtala og sam-
verustunda og er ákaflega stoltur
að fá að bera nafnið hans. Að lok-
um langar mig að þakka mömmu
og pabba fyrir að sinna afa Ella
einstaklega vel á hans efri árum
og í veikindunum hans undanfarn-
ar vikur.
Hvíl í friði, nafni.
Elías Bjarni Guðmundsson.
Elsku pabbi, takk fyrir allt.
Nú leikur blær um lífsins vor
og ljóma slær á gengin spor
er Drottinn blessar stað og stund,
við stefnum hingað á hans fund
Í von um ást er vaki sönn
og veiti gleði’ í hvíld og önn.
Þú, Drottinn, verndar heilög heit
og hjónabandsins vígða reit.
Við eigum hvort hjá öðru skjól
og okkur hlýjar lífsins sól.
En annað ræðst af okkur tveim,
að efla, byggja lítinn heim.
Og heimur sá er okkar allt
er auðgar bæði hlýtt og svalt.
Því allt mitt líf þú átt með mér
og allt þitt líf á ég með þér.
Við lútum Kristi kærleikans,
við krjúpum hljóð í nafni hans
sem aldrei sínum börnum brást
en blessar þeirra tryggð og ást.
(Höf. Hjálmar Jónsson)
Kveðja
Guðný og Grétar.
Elías Arason
✝ Steinþór Þor-valdsson fædd-
ist á Húsavík 28.
maí 1932. Hann
andaðist á Líkn-
ardeild HSS 17.
maí 2017.
Foreldrar hans
voru Þorvaldur
Helgason Þórð-
arson sjómaður, f.
1909, d. 1939, og
Guðrún Jón-
asdóttir verkakona, f. 1911, d.
1992. Systkini Steinþórs eru
Stefnir, f. 1930, Stella, f. 1934,
Gestur, f. 1935, Erna Þorvalds-
dóttir, f. 1936, Snær Karlsson,
f. 1940, Sif Karlsdóttir, f. 1941,
Hlífar Karlsson, f. 1946, Sig-
tryggur Karlsson, f. 1949,
Björg Karlsdóttir, f. 1950,
Gerður Karlsdóttir, f. 1954.
Steinþór missti föður sinn
ungur og tók þá föðursystir
hans, Sigríður Þórðardóttir, og
hennar maður, Ásgeir Krist-
jánsson, við uppeldinu og þar
eignaðist hann aðra tvo bræð-
ur, þá Þórð og Kristján.
Steinþór kvæntist Jóhönnu
Pétursdóttur frá Hauksstöðum
á Jökuldal 24. júní 1955. Börn
þeirra Steinþórs og Jóhönnu
eru fjögur. 1) Guðrún, f. 5.2.
1956, d. 7.5. 2013, maki Haf-
dóttir, f. 1987, maki Daníel
Stefánsson, f. 1988, börn þeirra
eru Tristan Pétur, Alexandra
Nótt og Viktor Örn. c) Elísabet
Bjarnadóttir, f. 1989, og d)
Marín Bjarnadóttir, f. 1995. 4)
Sigrún, f. 30.4. 1964, maki
William Hommerding, 4.8.
1948, sonur hennar er Guð-
mundur Sigurðsson, f. 1982.
Dóttir Williams af fyrra hjóna-
bandi er Tara Burt, f. 1970,
maki Eric Burt, f. 1964, börn
þeirra eru Austin, Brendan og
Audrey.
Mestalla sína ævi starfaði
Steinþór til sjós. Hann lauk
prófi frá Stýrimannaskólanum í
Reykjavík og starfaði upp frá
því ýmist sem stýrimaður eða
skipstjóri. Seinna á ævinni
réðst hann til starfa í fiskeldi
og var þar í nokkur ár. Síðustu
starfsárin vann hann hjá Hita-
veitu Suðurnesja í orkuverinu í
Svartsengi. Steinþór og Jó-
hanna hófu búskap í Reykjavík
þar sem öll þeirra börn eru
fædd og uppalin og þar kynnt-
ust þau sinni bestu vinkonu,
Brynhildi, sem átti litla telpu,
Erlu Elínu, sem varð strax eins
og þeirra fimmta barn og gekk
Steinþór henni nánast í föð-
urstað og enn er eins og stóra
systir barna þeirra. Steini og
Jóhanna fluttu 1974 til Grinda-
víkur þar sem þau hafa búið all
tíð síðan, fyrst í Staðarvör og
síðustu árin á Árnastíg.
Útför Steinþórs fer fram frá
Grindavíkurkirkju í dag, 23.
maí 2017, klukkan 13.
steinn Kristinsson,
f. 4.5. 1946. Börn
þeirra: a) Steinþór,
f. 1975, sonur hans
er Ásgeir. b)
Dagný, f. 1976,
maki Valgarður
Magnússon, börn
þeirra eru Haf-
steinn, hans börn
eru Benedikt,
Thelma, Viktor og
Kara. c) Jón Hauk-
ur, f. 1981. d) Sunna, f. 1987,
maki Óli Jóhannesson, börn
þeirra eru Guðrún Tinna og
Rökkvi Steinn. 2) Jón Haukur, f
22.7. 1961, d. 8.10. 1978. 3) Pét-
ur Ásgeir, f. 23. nóv. 1962, maki
Guðrún Þorbjarnardóttir, f. 13.
sept. 1967. Synir hans eru: a)
Sigmar Örn, f. 1982, maki Lára
Þórðardóttir, f. 1985, dóttir
þeirra er Anna Guðbjörg. Fyrir
átti Lára Hafstein og Daníel
Lárussyni. b) Þorvaldur, f.
1987, og c) Ársæll, f. 1989, maki
Ásdís Sveinbjörnsdóttir, f. 1985,
dóttir hans er Charlotta Jó-
hanna, fyrir á Ásdís Vilmar
Huga Jóhannsson og Védísi
Óskarsdóttur. Dætur Guðrúnar
af fyrra hjónabandi eru: a)
Halldóra Baldursdóttir, f. 1983,
sonur hennar er Baldur Rafn
Víkingsson. b) Aldís Péturs-
Elsku pabbi, tengdapabbi, afi
og langafi. Nú ertu lagður af
stað til mömmu, elsku besti
pabbi og afi, og okkur sem eftir
sitjum langar að senda þér
nokkur orð í kveðjuskyni. Mikið
óskaplega eigum við öll eftir að
sakna þín, þú sem alltaf varst til
staðar fyrir okkur öll, sama á
hverju gekk, í gleði sem og sorg
eða erfiðleikum leituðum við öll
til þín því þú varst ávallt besti
vinurinn til að leita til. Heim-
sóknirnar í Grindó eru orðnar
óteljandi og minningarnar enda-
lausar þar sem þú og mamma
tókuð alltaf vel á móti öllum og
sérstaklega þótti barnabörnun-
um gott að koma til ykkar og
var ekki óalgengt að þau hrúg-
uðust svo upp í fangið á afa sín-
um að ekki sást í hann fyrir
börnum og var þá mikið hlegið
kitlað og strítt. Það fjölgaði allt-
af í barnahópnum en alltaf hafð-
ir þú nóg að gefa þeim og öll
sóttu þau í afa sinn, bæði til að
skemmta sér og ekki síður til að
fá góð ráð á sinni lífsleið, þegar
þau fóru að vaxa úr grasi. Við
ætlum ekki að hafa þetta lengra
og kveðjum þig með söknuði og
trega en fögnum því um leið að
þú ferð til þeirra sem hafa beðið
þín líka með söknuði. Takk fyrir
að hafa verið til fyrir okkur öll
sem okkar stoð og stytta en um-
fram allt okkar besti vinur.
Pétur, Guðrún, Sigrún
(Sissa), barnabörn og
barnabarnabörn.
Elsku afi, nú ertu farinn frá
okkur. Það er alltaf erfitt að
kveðja en minningar um stór-
merkilegan og glæsilegan mann
lifa í hjörtum okkar. Hár og
flottur með ljúfa en virðulega
framkomu. Það fylgdi því alltaf
svo mikið stolt að segja frá því
að Steinþór Þorvaldsson skip-
stjóri og öflugur golfari væri afi
minn. Alltaf svo hlýr og glað-
lyndur og naust þess að vera
umkringdur börnum, barna-
börnum, frændum og vinum. Þú
varst alltaf svo fróður og lagðir
þig fram um að kynnast öllum
sem á vegi þínum urðu. Þú
fylgdist alltaf vel með pólitík
innanlands og utan og flestum
íþróttum líka. Þú spilaðir golf
svo lengi sem heilsan leyfði
enda naustu þar góðs fé-
lagsskapar ekki síður en íþrótt-
arinnar sjálfrar. Það verður
skrítið að geta ekki kíkt á afa í
Grindó, farið í hið árlega jólaboð
þar sem ávallt var stjanað við
mann og svo tekið í spil á eftir.
Þar var okkur sko kennt að
spila eins og „maður“ og ef við
stóðum okkur ekki „hótaðirðu“
að fara með okkur út í skúr og
smúla okkur. En þú varst ein-
mitt alltaf svo léttur og kátur
með skemmtilegan húmor. Það
voru forréttindi að fá að alast
upp við ást og umhyggju þína.
Blessuð sé minning þín, elsku
afi, við munum sakna þín sárt.
Þín barnabörn,
Steinþór, Dagný,
Jón Haukur og Sunna.
Fallinn er frá félagi minn og
vinur til margra ára, Steinþór
Þorvaldsson, Steini. Kunnings-
skapur okkar hófst fyrir 28 ár-
um þegar við hjónin áttum sam-
leið með þeim Steina og
Jóhönnu konu hans í ferð um
nokkur Evrópulönd. Síðan þró-
aðist þessi kunningsskapur í
vináttu sem ekki bar skugga á
til síðasta dags þeirra hjóna.
Jóhanna andaðist fyrir
nokkrum árum og var það
Steina þungt áfall þó hann bæri
harm sinn í hljóði.
Það sem varð til að treysta
vináttu okkar enn frekar gegn-
um árin var sameiginlegur
áhugi okkar á golfíþróttinni.
Þær eru ófáar golfferðirnar sem
við fórum saman bæði innan-
lands og erlendis, stundum tveir
saman en oftar í góðra vina
hópi.
Þó svo Steini byrjaði ekki að
spila golf fyrr en hann var kom-
inn vel yfir miðjan aldur náði
hann undraverðum tökum á
íþróttinni og var sífellt að bæta
sig kominn á níræðisaldur. Með-
al annars tókst honum fjórum
sinnum það sem flestir golfarar
þrá, það að fara holu í höggi.
Á seinni árum átti Steini við
ýmis veikindi að stríða og þurfti
að gangast undir stórar og erf-
iðar aðgerðir, en löngu áður en
nokkur bjóst við honum var
hann mættur á teig. Hann var
járnkarl.
Við göntuðumst stundum með
það félagar hans, þegar Steini
spilaði sem best, að það væri
svo sem eðlilegt, það væri að-
eins ytra byrðið sem væri gam-
alt, annað væri búið að end-
urnýja.
Steina verður sárt saknað af
okkur félögum hans sem erum
hættir að vinna og hittumst á
golfvellinum í hádeginu til að
taka golfhring, en minningin um
góðan vin og félaga mun fylgja
okkur.
Við Helga sendum börnum
Steina og ættingjum hans inni-
legar samúðarkveðjur.
Halldór Ingvason.
Síðasti stólpinn er fallinn, sá
síðasti af þeim „fullorðnu“ sem
voru í kringum mig þegar ég
var að alast upp. Steinþór, eða
Steini eins og flestir kölluðu
hann, var fyrir mér maðurinn
hennar Jóhönnu P. Hún leigði
um tíma uppi í risi á Laugavegi
56, fyrst hjá afa Erlendi og
seinna hjá mömmu, Brynhildi
Kjartansdóttur. Jóhanna pass-
aði bæði afa og mig, fyrsta vet-
urinn minn og síðasta vetur afa.
Svo fór Jóhanna á sjóinn og
gerðist kokkur á togaranum
Jóni Baldvinssyni. Þar kynntust
þau Steini.
Steini var frá Húsavík, úr
stórum hópi systkina. Þegar Jó-
hanna og Steini eignuðust
fyrsta barnið sitt, hana Guðrúnu
heitna, þá vorum við eins og
systur þó að það væru þrjú og
hálft ár á milli okkar. Guðrún
dvaldi oft hjá okkur mömmu
þegar Jóhanna var á sjónum og
svo kom Jóhanna að passa mig
ef ég var veik og mamma að
kenna. Það var alltaf mikill sam-
gangur milli heimilanna. Á þess-
um árum var Steini alltaf á
sjónum. Stundum gekk vel en
stundum verr. Árið 1975 ákváðu
þau að flytja til Grindavíkur því
að Steini var alltaf á bátum sem
gerðir voru út þaðan. Það hafði
engin áhrif á tengslin. Við fór-
um að vísu ekki eins oft í heim-
sókn en síminn var mikið not-
aður. Síðar fór Steini í land,
vann í laxeldinu og var svo vakt-
maður í Svartsengi í mörg ár. Á
þeim tíma kom ég oft með er-
lenda nemendur í heimsókn í
Gjána sem var þar og Steini
kom með okkur að skoða hana.
Mikilvægast var að fara í
jóladagsboð í Grindó með hangi-
kjöti og heimagerðum ís og svo
var spilað eftir matinn. Jóla-
dagsboðið hélt áfram eftir að
Jóhanna dó og það síðasta var
gott því svo til allir afkomendur
Steina voru mættir. Það var
honum mikilvægt að halda boð-
inu við. Það var alltaf gaman að
spila við hann. Hann var rút-
ineraður bridgespilari en á jóla-
dag var spilaður gosi, tíkort og
annað slíkt.
Frá því að móðir mín lést ár-
ið 2007 og Jóhanna árið 2009
hefur Steini verið duglegur að
koma á tónleika með mér í Hall-
grímskirkju. Hann hefur notið
þess að hlusta á kórana flytja
bæði stórverk og minni. Núna
hefur eldri kynslóðin gengið
sinn veg hjá mér en ekki síst
hjá Pétri og Sissu og börnum
þeirra og börnum Guðrúnar
heitinnar, öllum langafabörnun-
um og langalangafabörnunum.
Ég veit að þetta er erfiður tími
fyrir þau öll. Um leið og ég
sendi þeim mínar innilegustu
samúðarkveðjur, bið ég Guð að
vera með þeim.
Erla Elín.
Fallinn er frá fyrrverandi
formaður Golfklúbbs Grindavík-
ur og heiðursfélagi klúbbsins,
Steinþór Þorvaldsson.
Steinþór byrjaði seint í golfi
og talaði oft um það að hann
hefði byrjað allt of seint að
sveifla kylfu, en hann var um
fimmtugt þegar hann hóf að
leika golf á Húsatóftavelli. Hann
náði ótrúlega fljótt tökum á
golfinu og var bara býsna góður
golfari. Það eru ekki margir
sem eiga fleiri hringi en Stein-
þór Þorvaldsson þar sem högga-
fjöldinn er undir aldri viðkom-
andi. Þrisvar sinnum fór
Steinþór holu í höggi, 2009,
2013, 2014 og einu sinni að auki
nú í vetur sem leið, en þá var
holan skorin á vetrarflöt og ekki
skráð.
20 ár eru síðan Steinþór tók
við formennsku í Golfklúbbi
Grindavíkur, en Steinþór var
formaður GG árin 1997 og 1998.
Hann kom oft og iðulega til mín
og ræddi framtíð golfklúbbsins
og Húsatóftavallar, en völlurinn
var honum mjög hugleikinn.
Klúbburinn sem slíkur var líka
oft umræðuefni okkar en Stein-
þór var mjög virkur félagsmað-
ur og talaði oft um það að þeir
væru að ná um 300 golfhringj-
um á ári, kallarnir eins og hann
kaus að nefna spilafélaga sína.
Síðustu hringina sína spilaði
Steinþór nú í byrjun apríl, vant-
aði rúman mánuð í áttugasta og
fimmta afmælisdaginn.
Fyrir hönd félaga í Golf-
klúbbi Grindavíkur vil ég votta
fjölskyldu og aðstandendum
okkar dýpstu samúð. Við hjá
GG vitum að Steinþór er búin
að bóka rástíma á mjög fínum
golfvelli og er spenntur að slá
sitt fyrsta högg á þeim stað.
Halldór Einir Smárason.
Steinþór
Þorvaldsson
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma okkar og systir,
RAGNHEIÐUR ÞÓREY
FRÍMANNSDÓTTIR,
Willow Valley,
Pennsylvania, USA,
lést fimmtudaginn 18. maí.
Ove Krebs
Lisa Krebs Mark Munro
Carl Krebs
barnabörn
Jónas Frímannsson
Birna S. Frímannsdóttir