Morgunblaðið - 23.05.2017, Page 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2017
Afmælisdagurinn fer íað undirbúa ferð tilChicago, en við mað-
urinn minn förum til Chicago
á morgun ásamt vinahópi.
Svo þegar við komum heim
þá ætlum við út að borða með
mínum allra nánustu,“ segir
Roald Viðar Eyvindssson,
blaðamaður og ritstjóri Gay-
Iceland, en hann á 40 ára af-
mæli í dag.
„Ég er vanur að lesa mér
vel til um staði sem ég heim-
sæki og ákveða dagskrána,
en í þetta sinn eru vinir okk-
ar sem taka á móti okkur
svolítið búnir að skipuleggja
ferðina og ég ætla að leyfa
þeim að stjórna þessu. Ég
verð því í farþegasætinu, sem
verður bara skemmtilegt.“
Eiginmaður Roalds er Sigurþór Gunnlaugsson, sem er yfir ferðadeild
Air Atlanta. Þeir reka saman frétta- og lífsstílsmiðilinn GayIceland.
„Sigurþór fékk hugmyndina að síðunni fyrir nokkrum árum, en ég var
þá nýhættur á Fréttablaðinu og hugsaði með mér: Af hverju ekki? Og
sló til. Reyndar fórum við hægt í sakirnar í upphafi til að athuga hvort
það væri áhugi fyrir svona miðli yfirleitt. Sigurþór sá um tæknilegu
hliðina og ég um ritstjórn og við vorum sammála um að einblína á rétt-
indabaráttu hinsegin fólks í bland við fréttir og svo léttara efni og hafa
allt efni á ensku til að ná líka til fólks sem er búsett á Íslandi en skilur
ekki íslensku og eins til ferðamanna á leið til landsins. Og það er óhætt
að segja að við sjáum ekki eftir því. Viðtökurnar hafa farið fram úr
björtustu vonum, eins og sést meðal annars af góðum lestri og eins af
því að miðlar eins og Guardian, Independent, Huffington Post og BBC
vitna reglulega í síðuna. Til að byrja með vorum við bara tveir í þessu
en erum núna með blaðamenn, ljósmyndara og umbrotsmann í vinnu,
allt saman frábært fólk.“
Afmælisbarnið hefur haft fleira fyrir stafni því Roald leikur í nýrri
auglýsingu frá Icelandair ásamt eiginmanni sínum. „Þeir höfðu sam-
band og vildu fá okkur í auglýsinguna, meðal annars af því að við erum
par og búnir að vera lengi saman, eða í tæp 20 ár. Þar sem hinsegin fólk
er enn tiltölulega sjaldséð í kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og auglýs-
ingum, því miður, þótt þetta stefni hægt í rétta átt, þá fannst okkur ekki
annað hægt en að taka þátt til að gera hinsegin fólk sýnilegra. Gerð
auglýsingarinnar reyndist síðan vera heilmikið ævintýri og ótrúlega
gaman að hún skuli „fara í loftið“ svona rétt fyrir afmælið.“
Ritstýrir vefmiðli
um hinsegin fólk
Roald Viðar Eyvindssson er fertugur í dag
Ritstjórinn Roald Viðar Eyvindsson.
B
jörn Þorsteinsson fædd-
ist í Kaupmannahöfn
23.5. 1967 en ólst upp í
Vesturbæ Reykjavíkur
til átta ára aldurs og
síðan í Háaleitishverfinu og Foss-
vogi.
Björn gekk í Melaskóla og Álfta-
mýrarskóla, lauk stúdentsprófi frá
MH 1986, nam heimspeki við HÍ og
lauk BA-prófi 1993, stundaði nám í
frönsku í Montpellier í Frakklandi
1993-94 og hóf síðan MA-nám í
heimspeki við University of Ottawa/
Université d’Ottawa í Kanada,
haustið 1994, og lauk MA-prófi frá
þeim skóla vorið 1997. Hann hóf
doktorsnám í heimspeki við
Université Paris 8 (Vincennes/St.
Denis) í Frakklandi haustið 1999 og
lauk því vorið 2005.
Samhliða námi starfaði Björn við
bókaútgáfu, fyrst hjá Erni og Örlygi
og síðar Máli og menningu. Hann
var í ritstjórn Íslensku alfræðiorða-
bókarinnar 1990 og annar tveggja
ritstjóra Heimsatlass Máls og menn-
ingar 1998. Þá var hann ritstjóri
Lærdómsrita Hins íslenska bók-
menntafélags 2005-15.
Að loknu doktorsprófi var Björn
um árabil stundakennari og sér-
fræðingur við HÍ, var ráðinn lektor í
heimspeki við skólann 2014, en árið
2016 fékk hann framgang í starf
prófessors.
Björn hefur verið virkur í alþjóð-
legu samstarfi, m.a. á vettvangi Nor-
ræna fyrirbærafræðifélagsins, sem
haldið hefur þrjár ráðstefnur hér á
landi á síðustu ellefu árum. Hann
hefur birt fjölda greina um heim-
spekileg efni á ensku, frönsku,
dönsku og japönsku, m.a. hjá bóka-
forlögunum Routledge, Blackwell,
Brill og Rodopi. Þar að auki hefur
hann birt fjölmargar greinar og þýð-
ingar á íslensku í tímaritum og
bókum.
Björn er höfundur bókanna La
question de la justice chez Jacques
Derrida, útg. 2007, og Eitthvað ann-
að, útg. 2016, og ritstjóri bókarinnar
Náttúran í ljósaskiptunum, útg.
2016. Ritaskrá Björns má finna á
Björn Þorsteinsson, prófessor í heimspeki við HÍ – 50 ára
Dætur Björns og Sigrúnar F.v.: Snædís og Matthildur og Charlotta lætur fara vel um sig á milli eldri systranna.
Fer að ráðum Birtíngs
og ræktar garðinn sinn
Sumarstemming í Þýskalandi
Björn og Sigrún í Berlín árið 2015.
Mosfellsbær Ýr Stef-
ánsdóttir fæddist 3.
júní 2016 kl. 6.07. Hún
vó 4.020 g og var 54
cm löng. Foreldrar
hennar eru Guðfinna
Birta Valgeirsdóttir og
Stefán Pálsson.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Tíska &
förðun
Fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 2. júní
Fjallað verður um sumartískuna 2017
í fatnaði, förðun og snyrtingu auk
umhirðu húðarinnar, dekur og fleira
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til kl. 16 mánudaginn 29. maí
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
SÉRBLAÐ