Freyr - 01.10.2006, Blaðsíða 35
Austurríkismenn snúa á skammdegisskuggana
I þorpinu Rattenberg am Inn í Austurrlki
búa um 450 manns. Þar háttar þannig til að
ekki sér til sólar I fjóra mánuði í skammdeg-
inu. Nú á að ráða bót á því.
Frá því í nóvember fram í miðjan febrúar
sjá íbúar Rattenberg I Týrólsku-Ölpunum
ekki til sólar. Bærinn liggur á milli hás fjalls
að sunnan og árinnar Inn að norðan. Um
háveturinn er hann í skugga frá fjallinu allan
sólarganginn.
Þegar bærinn var reistur fyrir 1000 árum
var staðsetningin mikilvægari en llðan íbú-
anna. Fjallið veitti vernd fyrir óvinunum. Nú
veldur staðsetningin hins vegar óánægju,
íbúunum líður illa og vetrarskuggarnir leggj-
ast á sálina. íbúum bæjarins fækkar, árið
1951 bjuggu þarna um þúsund manns, nú
einungis 449. Mörg íbúðarhús standa auð
og litla vinnu er að hafa. Drunginn sem ríkir
í bænum fælir burt ferðamenn og minjagrip-
irnir eru seldir á útsölu.
Hin alvarlega staða bæjarins birtist Ijós-
lega þegar bæjarfélagið lét gera áætlun um
uppbyggingu staðarins.
Gerð var skoðanakönnun meðal íbúanna
þar sem í Ijós kom að meirihluti þeirra taldi
vetrarmyrkrið helsta ókost bæjarins. Bæj-
arstjórinn, Franz Wurtzenrainer, ákvað að
leita til fyrirtækisins Licht Labar GmbH í
Aldran, skammt frá Innsbruck, en það hefur
sérhæft sig í tækni við notkun á dagsbirtu.
Fyrirtækið kannaði aðstæður og lagði til
að settir yrðu upp svokallaðir „Heliostater"
en það eru sléttir speglar sem endurvarpa
sólarljósinu með hjálp fleiri spegla á ákveð-
inn stað. Fyrirtækið hefur beitt þessari
tækni víða um heim, m.a. á flugvöllum og
járnbrautarstöðvum.
Verkefnið í Rattenberg er þó brautryðj-
endaverk. Aðalspeglinum er komið fyrir í
sólríkum nágrannabæ. Þaðan er sólarljósinu
endurvarpað til speglaraðar á fjalli I grennd
við Rattenberg, þaðan sem því er varpað
áfram með prismum og speglum til valinna
staða í Rattenberg. „Helíostatarnir" erufest-
ir á tvo öxla og er stjórnað af tölvum. Þeir
snúast með sólinni en varpa Ijósinu alltaf á
sama stað.
Sólarljósið skín ekki í hvern krók og
kima í Rattenberg en íbúarnir munu skynja
nærveru sólarinnar og finnast þeir búa á
sólríkum stað. Stefnt er að því að hin nýja
tækni verði tekin f notkun veturinn 2007-
2008. Áætlað er að verkefnið kosti tvær
milljónir evra en talið er að 60-70 þorp séu
í Týról sem gætu notfært sér þessa tækni.
Þar mundi reynslan frá Rattenberg koma
að gagni.
(Landsbygdens Folk, 4/2006)
• Hentar inni sem úti
Steinefnastastampur frá Fóðurblöndunni
hentar jafnt inni sem úti, enda er innihaldið
einstaklega veðurþolið. Burðarefnið er melassi,
innihaldið er sérstaklega framleitt fyrir
Fóðurblönduna og samsett úr steinefnum og
vítamínum sem sérfræðingar fyrirtækisins hafa
valið. Lágt innihald kopars gerir stampinn að
góðum kosti fyrir sauðfé. Ca/P hlutfallið er 2/1
og Mg innihald 10%. Steinefnastampurinn
hentar því jafnt jórturdýrum sem hestum.
Samstarfsaðilar í héraði:
Kf. Skagfirðinga og KB Borgarnesi
Afgreiðslustaðir eru hjá verslunum
Fóðurblöndunnar
og hjá Bústólpa á Akureyri.
FÓÐURBLANDAN FB Reykjavik simi 570 9800
FB Selfossi simi 482 3767
FB Hvolsvelli sími 487 8413
FB Egilsstöðum simi 570 9860
Bústólpi simi 460 3350
www.fodur.is
Hentugur steinefnastampur
- fyrir jórturdýr og hesta
• Innihald 20kg
FÓÐURBLANDAN
- qæöi í hverri qjöf
FREYR 10 2006
35