Freyr - 01.04.2007, Qupperneq 15
BÚNAÐARÞING
hvort Mannréttindadómstóllinn tekur málið
fyrir. Þýðingavinna hefur reynst t.d. afar dýr.
Mjög erfitt er að fá mál tekin fyrir hjá dóm-
stólnum og þetta er því ákveðið hálmstrá.
80.000 mál bíða á undan þessu mál og 2-3
ár geta liðið áður en úrskurður um hvort
málið verður tekið fyrir fellur. Grundvöllur
þess að lagt var í þetta voru þær 2 milljónir
króna sem BÍ lagði til og endurtók hann
þakkir fyrir það.
SIGURÐUR LOFTSSON, ræddi
matvælaverðsumræðuna og breyt-
ingar frá sl. hausti. Hann þakkaði góða
setningarathöfn og óskaði verðlaunahöf-
um landbúnaðarverðlauna til hamingju.
Hann þakkaði formanni BÍ og starfsmönn-
um vasklega framgöngu í matvælaverðs-
umræðunni. Hann lýsti ánægju með að
svarað var fyrir landbúnaðinn í heild og
tók undir það sem Valdimar Einarsson
sagði á fundi á Suðurlandi að Haraldur
Benediktsson væri góður fjölmiðlafulltrúi
samtakanna. Eins skipti aukin dreifing
Bændablaðsins máli og sagð að blaðið vekti
athygli. Ein megin hugmynd þess að koma
Bændablaðinu á legg á sínum tíma var að
efla innbyrðis umræðu og efla aðhald að
þeim sem fara með stjórn á hverjum tíma,
hann taldi það hins vegar ekki eiga alveg
samleið með mikilli dreifingu blaðsins.
Freyr hefur komið út í breyttu formi en á
sama tíma birt svipað efni og Bændablaðið
sem væri e.t.v. óþarft. Hann sagði tengsl
bænda við pólitíkina í landinu skipta miklu
máli og ræddi tillögur Samfylkingarinnar
á sl. hausti í því sambandi. Kúabændur
á Suðurlandi buðu Ingibjörgu Sólrúnu
Glsladóttur á aðalfund sinn í haust og taldi
hann athyglisvert að þetta stórt stjórnmála-
afl fór kæruleysislega með tölur um stuðn-
ing við landbúnað. Hann taldi það hafa að
öðru leyti verið af hinu góða að fá formann
Samfylkingarinnar á þennan fund og það
væri ekki einkamál B( að þreyja þennan
róður. Hann ræddi gagnrýni á að B( væru
pólitísk og tengdust fyrst og fremst tveim-
ur stjórnmálaflokkun. Það væri áskorun um
að gera betur I að koma út upplýsingum
og bæta tengsl við aðra flokka. Ákvörðun
stjórnvalda í haust væri grundvallar breyt-
ing á því umhverfi sem landbúnaðurinn býr
við. Verðstöðvun í mjólk væri fyrsta skrefið,
tollalækkanir nú fyrsta mars væru annað
skref sem við erum ekki farin að sjá hvert
leiðir. Þetta mun væntanlega leiða af sér
harðari kjarabaráttu en undanfarin ár. Við
getum hæglega lent í erfiðri stöðu kjöt-
greina á ný. Því þarf að beita þeim ráðum
sem við höfum til að halda samstöðu innan
stéttarinnar. Hann kvaðst gefa kost á sér í
stjórn B( til að tryggja tengingu kúabænda
inn í stjórn BÍ í komandi kjarabaráttu og
umræðum um breytt form á stuðningi við
búgreinar eins og kúabændur, sem mest
eiga undir ríkisstuðningi.
ÞÓRHALLUR BJARNASON, sagði
garðyrkjubændur vana að takast á
við gagnrýni líkt og matvælaverðsumræðan
er. Hann kvaðst viss um, eftir að hafa tekist
á við þetta í garðyrkjunni, að þessi gagn-
rýni heldur áfram og Bændasamtök (slands
verði áfram að vinna vel að þessu máli.
Hann kvað upprunamerkingar matvæla
mjög mikilvægar og sagði að garðyrkju-
bændur væru að vinna að því að fá fán-
aröndina viðurkennda sem eigin vörumerki.
Hins vegar eru reglur um upprunamerking-
ar mjög fátæklegar og ekki miðaðar við
allan þann innflutning sem nú er í gangi.
( ESB eru þær reglur I gildi að koma skal
fram frá hvaða landi varan er. Hér á landi
er þetta ekki skýrt. Búið er að biðja um að
ESB reglugerðin verði tekin upp hér á landi
fyrir garðyrkjuafurðir og vel kann að vera
að þetta eigi einnig við kjötmarkaðinn hér
á landi. Hann ræddi síðan lækkun tolla og
sagði garðyrkjubændur vera búna að kom-
ast að því að nauðsynlegt er að aðgreina
sig frá markaðnum, þetta er ígildi tolla og
hann hvatti aðrar búgreinar til að huga að
þessu.
JÓHANN MÁR JÓHANNSSON tók
undir með þeim sem lýstu ánægju
með setningarathöfn og því hvernig stjórn
hefur haldið á matvælaverðsumræðunni
og ímyndarmálum. Hann lýsti einnig mikilli
ánægju með tónlistaratriði á setningarat-
höfn. Síðan ræddi hann boð til stjórnmála-
flokka og hvatti menn til að þiggja boð
stjórnarandstöðuflokka til að plægja þann
akur sem þar væri. Hann lýsti síðan yfir að
hann væri í framboði til stjórnar BÍ.
BIRNA ÞORSTEINSDÓTTIR tók
undir þakkir til stjórnar fyrir glæsi-
lega setningarathöfn og framgöngu und-
anfarna mánuði í kynningarmálum og mat-
vælaverðsumræðu. Hún lýsti ánægju með
niðurstöðu skoðanakönnunar og sagði hér
skýr skilaboð um hvar væri þörf á að vinna,
m.a. um að vinna áfram að skólaheimsókn-
um sem eru til umfjöllunar á þinginu. í
því sambandi mætti huga að því að dusta
rykið af verkefninu "Bændur bjóða heim".
Bændur gera aldrei of mikið af þvf að
tengjast þéttbýlisbúum. Hún fagnaði einnig
framkominni hugmynd um skoðanakönnun
meðal bænda um viðhorf til samtakanna og
skipulags og innra starfs þeirra. Kúabændur
eru að endurskipuleggja starf sitt og leita
Sigurður Loftsson, Árni V. Kristjánsson, Sigurgeir Hreinsson, Kristín Linda Jónsdóttir, Anna Bryndís Tryggvadóttir og Svana Halldórsdóttir.
15
FREYR 2007