Freyr - 01.04.2007, Blaðsíða 21
BÚNAÐARÞING
Ályktanir Búnaðarþings 2007
Hér fara á eftir ályktanir Búnaðarþings 2007, raðað eftir nefndum.
ALLSHERJARNEFND
Þjóðlendumál
Búnaðarþing 2007 lýsir fullum stuðningi við
ályktun stjórnar Bændasamtaka íslands frá
24. október 2006 vegna dóma í þjóðlend-
umálum. Jafnframt skorar Búnaðarþing á
Ríkisstjórn íslands að beita sér fyrir breyt-
ingum á lögum nr. 58/1998 um þjóð-
lendur til samræmis við það sem farið er
fram á í framangreindri ályktun stjórnar
Bændasamtaka íslands.
Ályktun stjórnar Bændasamtaka
íslands frá 24. október 2006
"Stjórn Bændasamtaka íslands beinir því til
Ríkisstjórnar íslands að beita sér fyrir end-
urskoðun á lögum nr. 58/1998 um þjóð-
lendur með hliðsjón af framkvæmd þeirra.
( Ijósi nýlegra dóma Hæstaréttar (slands
ríkir óvissa um eignarrétt bænda að jörðum
þeirra. Óvissa þessi veldur bændum marg-
háttuðu tjóni og óþægindum. Verðmæti
jarða rýrnar og lánadrottnar halda að sér
höndum. Viðskipti með jarðir hafa víða
lent í sjálfheldu. Mikilvægt er að jafnræð-
is sé gætt þegar eignarréttur er metinn og
að jarðeigendur á (slandi sitji allir við sama
borð. Ljóst er að það var ekki vilji löggjaf-
ans við setningu þjóðlendulaga að hrófla
við þeirri aldagömlu skipan sem lögfest var
með landamerkjalögum frá 1882 að jarðir
bænda séu háðar beinum eignarrétti þeirra.
Nú þegar fyrir liggur að dómstólar telja sér
heimilt að meta gildi hvers landamerkja-
bréfs fyrir sig er nauðsynlegt að tryggja
réttarstöðu jarðeigenda í þjóðlendulög-
unum með því að í lögunum verði ákvæði
sem styrki þýðingu þinglýstra landamerkja-
bréfa. Því er nauðsynlegt að setja í lögin
ákvæði þess efnis að jörð með athuga-
semdalausum þinglýstum landamerkjum
sé eignarland, sá sem haldi öðru fram hafi
sönnunarbyrðina fyrir því".
Forkaupsréttur ábúenda
Búnaðarþing 2007 felur stjórn
Bændasamtaka (slands að láta gera úttekt
á þvf hvort ákvæði jarðalaga um forkaups-
rétt ábúanda þarfnist endurskoðunar.
Skattlagning veiðihlunninda
Búnaðarþing 2007 krefst þess að leigu-
tekjur vegna veiðihlunninda verði með-
höndlaðar skattalega sem fjármagnstekjur,
ótengdar rekstri, hjá öllum sem þeirra
njóta.
Bótaréttur vegna framkvæmda í
almannaþágu
Búnaðarþing 2007 krefst þess að við allar
framkvæmdir í almannaþágu, svo sem virkj-
anir, vegalagnir, línulagnirog fleira liggi fyrir
áður en framkvæmdir hefjast, leigusamn-
ingur um landnotkun og bætur til þeirra
landeigenda sem viðkomandi framkvæmd
snertir. Jafnframt krefst Búnaðarþing þess,
að sú löggjöf sem slíkar framkvæmdir
varða, verði endurskoðuð.
Til þess að ná ofangreindum markmið-
um beinir Búnaðarþing 2007 því til stjórn-
ar Bændasantaka íslands að skipaður verði
starfshópur sem skili tillögum fyrir árslok
2007 um fyrirkomulag ofangreindra mála
til frambúðar.
Fagráða- og búfjárræktarnefnd
Endurskoðun á Hagþjónustu landbúnaðar-
ins.
Búnaðarþing 2007 beinir þvf til landbún-
aðarráðherra að endurskoðuð verði starf-
semi Hagþjónustu landbúnaðarins með það
að markmiði:
• Að efla starfsemi hennar á sviði kennslu
og leiðbeininga í hagfræði og á rekstr-
arsviði. Slík efling Hagþjónustunnar er
lykillinn að eflingu kennslu og rannsókna
á sviði hagfræði við Landbúnaðarháskóla
íslands.
• Að efla almennar hagrannsóknir, bæði
sem byggja á gögnum sem Hagþjónustan
hefur safnað gegnum tíðina, jafnframt
þvf sem leggja þarf áherslu á aukna
gagnaöflun, s.s. hvað varðar vinnufram-
lag bænda, framleiðni og arðsemi fjár-
festinga.
• Að skoða hvernig létta má af
Hagþjónustunni vinnufrekum verkefnum,
sem hugsanlega væri betur fyrir komið
hjá öðrum stofnunum landbúnaðarins.
Úttekt á loðdýrabúum
Búnaðarþing 2007 samþykkir að vísa þessu
máli til stjórnar Bændasamtaka íslands.
Þjónusta dýralækna
Búnaðarþing 2007 beinir því til stjórnar
B( að hún skoði framkvæmd á reglum um
greiðslur á ferða- og aksturskostnaði vegna
þjónustu dýralækna í dreifðum byggðum.
Fundin verði leið til að þessi sjóður þjóni
sem best tilgangi sfnum.
Endurskoðun á vörnum gegn búfjár-
sjúkdómum
Búnaðarþing 2007 hefur fjallað um skýrslu
nefndar landbúnaðarráðherra frá júlí 2006
um endurskoðun á vörnum gegn búfjár-
sjúkdómum. Þingið felur stjórn BÍ að skipa
starfshóp er geri tillögur um álitamál sem
uppi eru og tengjast efni skýrslunnar. Haft
skal samráð við forystumenn allra búgreina-
félaga.
FREYR 2007
21