Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.2007, Síða 22

Freyr - 01.04.2007, Síða 22
BÚNAÐARÞING Starfshópurinn fjalli m.a. um: - Flutning á vélum, búnaði og gripum milli varnarhólfa - Aðgerðaráætlanir og verklagsreglur fyrir bændur - Eftirlit með framkvæmd garnaveikibólu- setninga - Skipulag varnarhólfa m.a. tryggja stöðu "hreinna svæða" - Fyrirkomulag varna gegn loðdýrasjúk- dómum. Aðgerðaráætlanir gagnvart alvarlegum búfjársjúkdómum Búnaðarþing 2007 samþykkir að beina því til Landbúnaðarstofnunar að gerðar verði aðgerðaáætlanir fyrir alvarlega búfjársjúk- dóma sem upp kunna að koma í landinu. Einnig þarf að tryggja að nægt fjármagn fáist til að tryggt sé að "bestu leiðir" séu farnar við aðgerðir gegn alvarlegum búfjár- sjúkdómum. Greinargerð Mikilvægt er að fyrir liggi aðgerðaáætlanir ef alvarlegir búfjársjúkdómar koma upp í landinu. Það getur haft alvarlegar afleiðing- ar fyrir landbúnað á íslandi ef ekki liggur fyrir hvernig brugðist skuli við ef alvarlegur búfjársjúkdómur kemur upp. Þetta á ekki slður við þegar rfkisvaldið er nú að opna meira fyrir innflutning á hráu kjöti. Forritamál BÍ Búnaðarþing 2007 leggur ríka áherslu á að gerð nauðsynlegra forrita fyrir íslenska kúabændur komist í höfn þegar á þessu ári. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er mælt með því að kanna nú þegar til þrautar hvort nota megi forrit danskra kúabænda hér á landi. Gangi það eftir verði stefnt að því að það komist I almenna notkun meðal íslenskra kúabænda eigi síðar en á árinu 2008. Búnaðarþing 2007 hvetur B( til að kanna möguleika á því að stofna vefsvæði ein- stakra búa, "Bændatorg", (sambærilegt við heimasvæði í heimabanka). Bændatorgið tengi saman vefsvæðin og haldi utan um þau forrit og gögn sem hvert bú nýtir í sínum rekstri. Jafnframt er lögð áhersla á endurbæt- ur og framþróun allra þeirra forrita sem bændur nýta og eru í umsjá BÍ. FÉLAGSMÁLANEFND Skólaverkefni Bændasamtaka íslands Búnaðarþing 2007 hefur kynnt sér drög að stefnumótun og áætlun skólaverkefnanna næstu þrjú ár. Þingið samþykkir að unnið verði eftir þessari áætlun á næstu árum og telur að því fé sem varið er til þessarar starfsemi sé skynsamlega ráðstafað. Breytingar á samþykktum Bændasamtaka íslands Búnaðarþing 2007 samþykkir eftirtaldar breytingar á samþykktum Bændasamtaka (slands. 2. grein. ( upptalningu á aðildarsamtök- um komi "Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda" í stað "Búnaðarsamband Strandamanna", "Búnaðarsamband Vestur- Húnavatnssýslu", Búnaðarsamband Austur- Húnavatnssýslu". 10. grein. "( staðinn fyrir: Búnaðarsamband Strandamanna 1, Búnaðarsamband Vestur-Húnavatnssýslu 1, Búnaðarsamband Austur-Húnavatnssýslu 1" komi: "Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda 3" Viðhorfskönnun meðal bænda Búnaðarþing 2007 samþykkir að gerð verði víðtæk viðhorfskönnun meðal bænda um Bændasamtökin, hlutverk þeirra og starfs- semi, skipulag félagskerfis bænda, fagþjón- ustu, félagsstarfs og kjarabaráttu. Við skipulag könnunarinnar verði sér- staklega horft til hliðstæðra kannana, sem dönsku bændasamtökin gera reglulega. Aðildarfélögum BÍ verði gefinn kostur á að taka þátt í undirbúningi slíkrar könnunar. Greinargerð Nauðsynlegt er að þekkja sem best til skoðana bænda á starfssemi og skipulagi Bændasamtaka (slands. Niðurstöður könn- unar sem þessarar hjálpa okkur að móta stefnu til lengri tíma í ýmsum málum Bændasamtakanna svo sem húsnæð- ismálum, staðsetningu, kynningarmálum, félagsmálum, fagþjónustu og ýmsu fleiru. Könnun sem þessi hjálpar okkur einnig að bregðast við breytingum á ytri aðstæðum á hverjum tíma. Inn í slíka könnun mætti fella spurningar um viðhorf bænda til sölu Hótel Sögu ehf. og ráðstöfun söluandvirðis. Þessa könnun þarf að gera hið allra fyrsta, meðal annars vegna húsnæðismála Bændasamtaka (slands. FJÁRHAGSNEFND Reikningar Bændasamtaka íslands 2006 Búnaðarþing 2007 samþykkir reikninga Bændasamtaka íslands, Nautastöðvarinnar á Hvanneyri og Þorleifskoti fyrir árið 2006 eins og þeir liggja fyrir á þingskjali 1. Fjárhagsáætlun Bændasamtaka (slands og Nautastöðvar BÍ á Hvanneyri fyrir árið 2007 Búnaðarþing krefst þess að við allar framkvæmdir í almannaþágu, svo sem virkjanir, vegalagnir, línulagnir og fleira liggi fyrir áður en framkvæmdir hefjast, leigusamningur um landnotkun og bæturtil þeirra landeigenda sem viðkomandi framkvæmd snertir. 22 Freyr 2007

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.