Freyr - 01.04.2007, Qupperneq 25
Sjúkrasjóður BÍ
Sjúkrasjóður Bændasamtaka (slands var
stofnaður eftir samþykkt Búnaðarþings
2004 og starfar eftir reglum sem sett-
ar voru af stjórn Bl. Sjóðurinn er skip-
aður þriggja manna stjórn sem tekur
ákvarðanir um styrkveitingar. Réttindi til
greiðslna úr Sjúkrasjóði BÍ hafa þeir félagar
í Bændasamtökum íslands og makar þeirra
sem stunda búrekstur á lögbýlum. Greitt
skal úr sjóðnum vegna langvarandi veikinda
og meðfylgjandi tekjutaps og/eða kostn-
aðar af þeirra völdum. Skal miðað við
að veikindin hafi staðið yfir í a.m.k. tvo
mánuði. Langvarandi veikindi barna félags-
manna, sem sannanlega hafa tekjutap og/
eða kostnað í för með sér, geta skapað
sömu réttindi. Aldrei skal greiða úr sjóðn-
um lægri styrk en sem nemur einum mán-
uði eða hærri styrk en sem nemur þremur
mánuðum samfleytt og ekki er greitt vegna
fyrsta veikindamánaðar. Mánaðargreiðslur
á árinu 2006 gátu að hámarki numið kr.
100.000 á mánuði fyrir hvern heilan mánuð
eða hlutfall þar af. Grunnupphæðin tekur
breytingum árlega miðað við breytingar á
kaupgjaldsvísitölu í janúar. Greiðslur/bætur
úr öðrum sjóðum eða opinberu bótakerfi
umfram kr. 45.000 á mánuði dragast frá
bótaupphæð samkvæmt þessari grein. Eftir
að greitt hefur verið fyrir þrjá mánuði skal
greiðsla falla niður f einn mánuð en heimilt
er að hefja þá greiðslu á ný og greiða aftur
í allt að þrjá mánuði ef veikindi vara enn.
Ekki skal greiða fyrir meira en sex mánuði
á hverju tólf mánaða tímabili. Heimilt er að
greiða úr sjóðnum vegna útlagðs kostnaðar
enda sé framvísað reikningum eða öðrum
fullnægjandi gögnum. Framkvæmdastjórn
er heimilt f einstökum tilfellum að taka tillit
til sérstakra erfiðra aðstæðna umsækjenda.
Fyrstu þrjú starfsár sjóðsins voru styrk-
veitingar eins og sést í töflu 1. Höfuðstóll
sjóðsins var 19.817.288 kr. í árslok 2006.
Tafla 1.
Ár Fjöldi styrkja Heildar- fjárhæð kr.
2004 6 2.404.668
2005 22 7.276.133
2006 15 5.042.911
Starfsmenntasjóður BÍ
Vorið 2006 samþykkti stjórn Bændasamtaka
íslands að stofna starfsmenntasjóð til að
styrkja endurmenntun bænda og starfsfólks
þeirra. Var þetta gert að undangengnum
viðræðum við stjórn Framleiðnisjóðs land-
búnaðarins, sem hafði lýst áhuga sínum
á að breyta því með hvaða sniði sjóð-
urinn stæði að því að styrkja endurmennt-
un bændastéttarinnar. Samþykkt var að
Framleiðnisjóður léti álíka upphæð renna til
starfsmenntasjóðsins og hann hafði veitt til
námskeiðahalds fyrir bændur hjá búnaðar-
skólunum.
Þeir sem eiga rétt til að fá styrki úr sjóðn-
um eru:
a) Félagar í Bf sem hafa fasta búsetu á lög-
býli
b) Starfandi bændur, einstaklingar, hjón
eða sambúðarfólk, sem stunda bún-
aðargjaldskyldan rekstur
c) Starfsfólk bænda sem hefur (við-
urkenndan) ráðningarsamning og
hyggst starfa hjá viðkomandi bónda
lengur en eitt ár samfellt.
Sjóðurinn veitir styrki vegna námskeiðs-
gjalda og ferðakostnaðar og einnig upp í
fjarskipta-/símakostnað þegar um fjarnám
er að ræða.
Umsóknir fóru hægt af stað en á árinu
2006 voru alls veittir 45 styrkir að upphæð
samtals 334 þús. kr.
FREYR 2007