Freyr - 01.04.2007, Qupperneq 26
Yfirlit um starfsemi
Lífeyrissjóðs bænda
árið 2006
LÖG OG REGLUR
Lífeyrissjóður bænda starfar samkvæmt
lögum nr. 12/1999 um Lífeyrissjóð bænda
og lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu
lífeyrisréttinda og starfsemi lifeyrissjóða.
Nánari reglur um framkvæmd laganna eru
í samþykktum sjóðsins. Lögum um sjóðinn
var breytt með lögum nr. 78/2006 þar sem
þau voru einfölduð, lífeyrisréttindaákvæði
felld niður til þess að unnt yrði að breyta
lífeyrisréttindaákvæðum í samþykktum
sjóðsins til samræmis við aldurstengingu
réttinda og kafli um eftirlaun til aldraðra f
Lífeyrissjóði bænda gerður sjálfstæður hluti
laganna. f kjölfarið var samþykktum breytt
og voru þær staðfestar af fjármálaráðu-
neytinu þann 29. desember. Með lögum
nr. 167/2006 var mótframlag til sjóðsins
hækkað í 8%.
FJÖLDI SJÓÐFÉLAGA OG
IÐGJALDATEKJUR
Alls greiddu 3.186 sjóðfélagar 123,3 mkr.
iðgjöld til Lífeyrissjóðs bænda vegna tekju-
ársins 2006. Af virkum sjóðfélögum voru
2.891 bóndi. Heildariðgjöld sjóðfélaga
voru áætluð samtals 148,3 mkr. á reiknings-
árinu og mótframlög samtals 286,1 mkr.
Réttindaflutningar námu nettó 2,8 mkr.
Heildariðgjaldatekjur námu því 437,2 mkr.,
sem var um 4,8% hækkun frá fyrra ári.
IÐGJÖLD, IÐGJALDSSTOFN
OG INNHEIMTA
Iðgjöld sjóðfélaga nema 4% af launum.
Iðgjaldsstofn bænda er reiknuð laun í land-
búnaði eða greidd laun þar sem búrekstr-
arformi er þannig háttað. Iðgjöldum þeirra
bænda sem reikna sér laun og njóta bein-
greiðslna er haldið eftir af beingreiðsl-
unum mánaðarlega en iðgjöld annarra
bænda eru innheimt með greiðsluseðlum.
Bændur sem reikna sér ekki laun greiða
iðgjöld sfn beint til sjóðsins mánaðarlega.
Launagreiðendur skila iðgjöldum launþega
í landbúnaði, ásamt eigin mótframlagi,
mánaðarlega til sjóðsins og enn fremur
launagreiðendur þeirra bænda sem hafa
aðra atvinnu og kjósa að greiða iðgjöld af
henni til sjóðsins.
MÓTFRAMLAG BÆNDA
Lög um sjóðinn kveða á um að mótframlag
á móti iðgjöldum bænda skuli greitt af sjóð-
félögum nema samið sé um greiðslu þess úr
ríkissjóði í búvörusamningi eða með öðrum
sambærilegum hætti. Ríkissjóður hefur
greitt mótframlag til sjóðsins vegna sauð-
fjár- og mjólkurframleiðslu. Mótframlag
ríkissjóðs var nægilega hátt á árinu til þess
að iðgjöld vegna annarra búgreina væru
einnig bókuð til fullra réttinda hjá sjóðnum
án þess að sérstakt mótframlag bærist frá
bændum. Mótframlag í Lífeyrissjóð bænda
var hækkað í 8% frá 1. janúar 2007 og
áætlanir benda til að mótframlag ríkisins,
skv. fjárlögum 2007, á móti iðgjöldum
bænda dugi ekki á árinu 2007.
LÍFEYRISGREIÐSLUR
Heildarlífeyrisgreiðslur námu 742,5 mkr. til
3.802 lífeyrisþega, sem var um 5,4% hækk-
un greiðslna frá árinu 2005. Lífeyrisgreiðslur
skiptust þannig á árinu: Lífeyrir greiddur
vegna áunninna réttinda í sjóðnum nam
697,5 mkr., þar af ellilffeyrir 534,4 mkr.,
makalífeyrir 58,8 mkr., örorkulífeyrir 95,1
mkr. og barnalffeyrir 9,2 mkr. Lífeyrir
greiddur af ríkissjóði, þ.e. lífeyrir til bænda
fæddra 1914 og fyrr eða maka þeirra, nam
samtals45,1 mkr.
HREIN EIGN TIL GREIÐSLU LÍFEYRIS,
RAUNÁVÖXTUN OG STAÐA
Hrein eign til greiðslu lífeyris nam 20.905
mkr. í árslok 2006 og hækkaði um 14,6%
frá fyrra ári. Nafnávöxtun var 16,19% og
raunávöxtun 8,83%. Hrein raunávöxtun
nam 8,64%. Meðaltal hreinnar raunávöxt-
unar síðustu 5 ára nemur 5,98% og síðustu
10 ára 5,21%. Endurmetnar eignir voru
22,1% hærri en áfallnar skuldbindingar og
9,8% hærri en heildarskuldbindingar.
VERÐBRÉFAVIÐSKIPTI
Verðbréfakaup sjóðsins á árinu 2006 námu
alls 8,438,5 mkr. Verðbréfakaupin skiptast
þannig: Skuldabréf
556,4 mkr.; hlutdeildir í innlendum
verðbréfasjóðum 5.432 mkr.; hlutdeildir í
erlendum verðbréfasjóðum 2.205,4 mkr.
og hlutabréf 232,5 mkr. Lán til sjóðfélaga
námu 12,2 mkr. Sala og innlausn verðbréfa
nam alls 7.985,1 mkr. Þar af námu seld
og innleyst skuldabréf 338,8 mkr., seldar
hlutdeildir í innlendum verðbréfasjóðum
5.687.5 mkr., erlendum verðbréfasjóðum
1.915.5 mkr. og seld hlutabréf 43,3 mkr.
FJÁRVARSLA
Á árinu 2006 sáu þrír fjárvörsluaðilar um
vörslu og ávöxtun eignasafns lífeyrissjóðs-
ins. (árslok voru um 58% af eignum sjóðs-
ins hjá Glitni og nam nafnávöxtun þeirra
15,88%, 20% hjá Landsbankanum og
nafnávöxtun 17,59% og hjá Kaupþingi
20% og nafnávöxtun 18,21%. Um 2%
eignanna voru í vörslu lífeyrissjóðsins, aðal-
lega sjóðfélagalán. Einungis þrjú ný sjóð-
félagalán voru veitt.
STARFSEMI OG UPPLÝSINGASTARF
Hjá sjóðnum störfuðu á árinu að meðaltali
3,68 starfsmenn í fullu starfi. Sjóðurinn
sendi greiðandi sjóðfélögum yfirlit yfir
greidd iðgjöld til sjóðsins í apríl og sept-
ember. Að lokinni undirskrift ársreiknings
2005 var birt auglýsing í Bændablaðinu um
helstu niðurstöður reikningsins og trygg-
ingafræðilegrar úttektar. í Handbók bænda
er á hverju ári birt ítarleg grein um sjóðinn.
Lífeyrissjóður bænda er ásamt fimm aðilum
í landbúnaði, þar á meðal Bændasamtökum
(slands, þátttakandi í sameiginlegri vefsíðu
íslensks landbúnaðar: "www.landbunadur.
is". Heimasfða lífeyrissjóðsins er "www.lsb.
is". Þar má nálgast allar almennar upplýs-
ingar um sjóðinn auk efnis sem sjóðurinn
hefur birt í Bændablaðinu og Handbók
bænda. Þar er einnig að finna öll nauð-
synleg umsóknareyðublöð svo sem um lán
og lífeyri svo og iðgjaldaskilagreinar og
möguleiki er á rafrænum skilum til sjóðs-
ins. Almennt netfang sjóðsins er "lsb@lsb.
is". Skipt var um auðkenni fyrir sjóðinn í
lok ársins 2006 og er það nú í samræmi við
veffang sjóðsins. Ársfundur sjóðsins 2006
var haldinn í Bændahöllinni 13. júní 2006.
26
FREYR 2007