Fréttablaðið - 23.12.2017, Síða 4
Fangelsismál „Ég er kominn á þá
skoðun að kjararáð eigi að úrskurða
um kjör fanga,“ segir Guðmundur
Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu,
félags fanga, og vísar til orða fjár-
málaráðherra nú í vikunni þess efnis
að kjararáð úrskurði um kjör þeirra
stétta sem ekki geta sjálfar samið
um kjör sín stöðu sinnar vegna.
Guðmundur segir dagpeninga
fanga ekki hafa hækkað síðan árið
2006 og þóknun fanga fyrir vinnu og
nám hafi í rauninni ekkert hækkað
um langa hríð og séu smánarlega
lág eða 415 kr. á tímann. Hann segir
fangelsin taka mun hærri greiðslur
frá fyrirtækjum fyrir útselda vinnu
og fagnar fyrirspurnum umboðs-
manns Alþingis um þessi efni til
ráðherra heilbrigðis- og dómsmála.
Umboðsmaður Alþingis ritaði
dómsmálaráðherra og heilbrigðis-
ráðherra bréf í síðustu viku þar sem
hann óskar upplýsinga um nánar
tilgreind atriði vegna fyrirhugaðs
álits um aðbúnað og réttarstöðu
fanga í fangelsinu á Litla-Hrauni.
Umboðsmaður óskar margvíslegra
upplýsinga um útreikninga á fæðis-
fé, dagpeningum og þóknunum til
fanga fyrir vinnu og nám í fangels-
unum. Hann spyr meðal annars um
kröfur til næringarinnihalds fæðis
í fangelsum og samhengis þeirra
krafna og þess fæðisfjár sem föngum
er úthlutað. Þá óskar hann eftir upp-
lýsingum um hvernig dagpeningar
eru ákvarðaðir með hliðsjón af
þeirri viðmiðun að fangi eigi fyrir
brýnustu nauðsynjum til persónu-
legrar umhirðu.
Hann gerir sértekjur fangelsisins
á Litla-Hrauni af útseldri vinnu sem
fangar inna af hendi að umtalsefni
og spyr hvernig umræddar sértekjur
hafi áhrif á ákvörðun og greiðslu
þóknunar til fanga sem vinna að
umræddum útseldum verkefnum.
Umboðsmaður gerir einnig gagn-
rýni innlendra og erlendra eftirlits-
aðila á málefnum geðsjúkra fanga
að umtalsefni og óskar eftir upp-
lýsingum frá heilbrigðisráðherra
um hvort framkvæmt hafi verið sér-
stakt mat á almennri þjónustuþörf
á Litla-Hrauni með tilliti til geð-
heilbrigðis- og sálfræðiþjónustu og
hvort tekið hafi verið til skoðunar
að lagt verði mat á það hverju sinni
hvort forsvaranlegt sé að vista sak-
hæfan fanga sem glímir við andleg
veikindi í afplánunarfangelsi með
tilliti til þeirrar þjónustu sem þar
er í boði.
Umboðsmaður spyr einnig um
vistun andlega veikra fanga í afplán-
unarfangelsum, um afgreiðslu
beiðna um innlögn veikra fanga á
geðdeild og form og forsendur fyrir
synjunum slíkra beiðna. Þá óskar
umboðsmaður eftir afritum af
öllum beiðnum um slíkar innlagnir
og afgreiðslu þeirra á árunum 2016
og 2017.
Fyrirspurnir umboðsmanns eiga
uppruna sinn að rekja til athugunar
á aðbúnaði á Litla-Hrauni árið 2013.
Í erindinu lætur hann þess getið
að vafi leiki á um að gerðar hafi
verið fullnægjandi úrbætur á þeim
atriðum sem hann hafi gert athuga-
semdir við og íhugar nú að ljúka
umræddri athugun með sérstakri
álitsgerð. adalheidur@frettabladid.is
Kjararáði verði falið að ákveða
kaup og kjör fyrir vinnu fanga
Formaður Afstöðu vill að kjararáð úrskurði um kjör fanga. Umboðsmaður Alþingis beinir spurningum til
tveggja ráðherra um geðheilbrigðismál í fangelsum og um upphæð dagpeninga og þóknun fyrir nám og
störf í fangelsum og spyr meðal annars hvort og hvernig tekjur fangelsa fyrir útselda vinnu skili sér til fanga.
Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, fylgist grannt með aðbúnaði í fangelsum landsins. FréTTAblAðið/Vilhelm
Guðmundur ingi
Þóroddsson, for-
maður Afstöðu.
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
Opið alla virka daga 10–19 | Helgar 11–19
„... maður getur byrjað á
bókinni aftur og aftur ...“
S U N N A D Í S M Á S D Ó T T I R / K I L J A N
„Það er alltaf gaman þegar skáld-
sögur kýla mann, eða löðrunga
eins og þessi, og skilja eftir óvissu.“
I N G I F R E Y R V I L H J Á L M S S O N / S T U N D I N
H I L D I G U N N U R Þ R Á I N S D Ó T T I R
M O R G U N B L A Ð I Ð
f
T
IL
N
E
F
N
IN
G
2.
PRENTUN
KOMIN
Sigríður Á. Andersen
dómsmálaráðherra
kvaðst efnislega
ósammála niður-
stöðu Hæsta-
réttar Íslands
í Landsréttar-
málinu svokall-
aða. Hæstiréttur
úrskurðaði að dóms-
málaráðherra hefði ekki staðið
rétt að málum þegar hún skipaði
í embætti fimmtán dómara
við Landsrétt síðastliðið vor. Mála-
ferli hafa verið vegna skipunar
Sigríðar á dómurunum og sér
ekki fyrir endann á þeim. Dóms-
málaráðherrann ætlar að leggja
til breytingar er varða skipun
dómara.
Agnes M.
Sigurðar-
dóttir
biskup Íslands
tilkynnti að
hún vildi árétta að
það væri ekki í hennar verkahring
að tjá sig efnislega um úrskurð
kjararáðs þess efnis að laun hennar
skuli hækkuð afturvirkt um ríflega
21 prósent, það er úr 1.281.981
krónum á mánuði í 1.553.000
krónur á mánuði. Vegna hækk-
unarinnar fær Agnes 3,2 milljóna
króna eingreiðslu nú um áramótin
vegna þess að ákvörðun kjararáðs
er afturvirk og gildir
fyrir allt árið
2017.
Albertína
Friðbjörg
Elíasdóttir
þingmaður
Miðflokksins
sagði á Alþingi að við þyrftum á
því að halda að karlar stæðu upp
og létu vita að ofbeldi karla í garð
kvenna væri ekki í lagi, það ætti
ekki að líðast, þetta gengi ekki
lengur. Þingheimur sammæltist
allur um að karlmenn þyrftu að
axla ábyrgð.
Þrjú í fréttum
Lögbrot,
hækkun launa
og ábyrgð
Tölur vikunnar 17.12.2017 Til 23.12.2017
2 milljarða króna
hafa stjórnmálaflokkar sem náð
hafa kjöri á þing eða að lágmarki
2,5 prósentum atkvæða fengið frá
ríkissjóði á árunum 2010 til 2016.
4.609 konur
hafa skrifað undir yfirlýsingar og
mótmælt kynbundnu ofbeldi.
616 frásagnir hafa birst opinber-
lega af ofbeldi karla í garð kvenna.
328%
er hækkun smásöluverðs
neftóbaksdósar frá 2010. Selt
magn neftóbaks á fyrstu 11
mánuðum ársins jafngildir
682 þúsund dósum.
42%
landsmanna senda jóla-
kort með bréfpósti í ár.
ferðamenn eða tæplega það
koma nú hingað til lands
á hvern íbúa. Í fyrra komu
hingað 5,4 ferðamenn á hvern íbúa.
304 þúsund
voru gistinætur á hótelum í nóvem-
ber eða sami fjöldi og í nóvember
í fyrra. Gistinætur á höfuðborgar-
svæðinu voru 210 þúsund sem er 4
prósenta fækkun frá fyrra ári.
7
#metoo
2 3 . d e s e m b e r 2 0 1 7 l a u g a r d a g u r4 F r é T T i r ∙ F r é T T a b l a ð i ð
2
3
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
9
8
-6
E
B
4
1
E
9
8
-6
D
7
8
1
E
9
8
-6
C
3
C
1
E
9
8
-6
B
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K