Fréttablaðið - 23.12.2017, Side 6
KOMIÐ Í VERSLANIR!
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR ALIAS OG BESTA SVARIÐ
KEMUR SPURNINGASPILIÐ ÉG VEIT!
GLÆNÝTT
SPURNINGASPIL!
Dreifing
Kjaramál Ef Alþingi hyggst stuðla að
sátt á vinnumarkaði er óumflýjanlegt
að þingmenn dragi til baka úrskurði
kjararáðs. Þetta segir í ályktun fram-
kvæmdastjórnar Viðskiptaráðs.
Þar kemur fram að nýlegar ákvarð-
anir kjararáðs um launahækkanir
biskups Íslands, forstjóra opinberra
stofnana og launahækkanir þing-
manna og ráðherra á síðasta ári séu
ekki í neinu samræmi við þróun á
vinnumarkaði.
„Úrskurðirnir setja vinnumarkað-
inn í uppnám fyrir komandi kjara-
viðræður með ósætti sem ógnar
efnahagsstöðugleika landsins,“ segir
í ályktun ráðsins.
Bent er á að vegið meðaltal grunn-
launa presta eftir kjarahækkun sé
739 þúsund krónur, grunnlaun
biskups 1.170 þúsund krónur og
grunnlaun alþingismanna 1.101
þúsund. Meðalgrunnlaun stjórnenda
á almennum markaði séu hins vegar
886 þúsund krónur. Tekjuhóparnir
séu því allir nokkuð sambærilegir og
eðlilegt að þeir þróist sambærilega.
Í úrskurðum kjararáðs sé hins
vegar vísað til meðaltals launaþró-
unar allra hópa. Krónutöluhækk-
anir lægst launuðu hópanna hafi
því umtalsverð áhrif á viðmið launa-
hækkana hópa undir kjararáði. Fyrir
vikið hafi hátekjuhópar kjararáðs
hækkað mun meira en sambærilegir
hópar á almennum vinnumarkaði
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir að nýtt og breytt samninga-
módel verði ekki rætt nema þessi
ákvörðun verði dregin til baka.
„Þetta lá fyrir í endurskoðun kjara-
samninga í ágúst 2017,“ segir Gylfi.
ASÍ og Samtök atvinnulífsins hafi
gefið út sameiginlega yfirlýsingu
um að ákvarðanir kjararáðs einar sér
hamli því að hægt sé að halda vinnu
við nýja samningamódelið áfram.
„Það er bara partur af algjörlega
kristaltærri og skýrri stefnu Alþýðu-
sambandsins að þessa leið förum við
ekki ein.“
Gylfi segir kjararáð hafa verið
mjög leiðandi um launasetningu
stjórnenda á Íslandi og segir að svo
virðist vera sem ráðið styðjist við
stjórnendur skráðra fyrirtækja á
markaði þegar horft er til hennar.
Þetta sé farið að valda pirringi í
atvinnulífinu, þar sem millistjórn-
endur í fyrirtækjum geti leitað í
betur launuð störf í stjórnsýslunni
sem krefjist minni ábyrgðar.
„Stjórnendur meðalstórra fyrir-
tækja, sem eru ekki endilega skráð
á markað, eru farnir að horfa á sína
millistjórnendur sem þeir fela mikla
ábyrgð og gera til þeirra miklar
kröfur. Þeir gætu komist í öryggið hjá
ríkinu og fengið miklu betra kaup,“
segir Gylfi. jonhakon@frettabladid.is
Kjararáð veldur usla og
pirringi í atvinnulífinu
Að mati Viðskiptaráðs næst ekki friður á vinnumarkaði nema alþingismenn
breyti ákvörðunum kjararáðs. Forseti Alþýðusambands Íslands tekur undir þá
skoðun. Telur ákvarðanir kjararáðs valda pirringi meðal stjórnenda fyrirtækja.
Frá kröfugöngu 1. maí. Viðskiptaráð segir úrskurði kjararáðs setja vinnu-
markaðinn í uppnám fyrir komandi kjaraviðræður. Fréttablaðið/Vilhelm
Jól nálgast í Reykjavík
Mikill þungi hefur á síðustu dögum færst í jólaverslunina í Reykjavík. Umferðin gengur hægt fyrir sig en flest-
ir ná þó á áfangastað áður en yfir lýkur. Í miðborginni njóta vegfarendur mikillar ljósadýrðar. Sumir ganga
um með rjúkandi kaffibolla í hendi og gægjast inn um áhugaverðan búðarglugga eða tvo. Fréttablaðið/ernir
SKipulagSmál Borgarráð samþykkti
í gær að heimila sölu lóða og bygg-
ingarréttar á Gufunesi undir kvik-
myndaþorp og íbúðabyggð til GN
Studios, fyrirtækis Baltasars Kor-
máks leikstjóra. Samningurinn er
alls upp á 1,64 milljarða króna en
málið bíður nú endanlegrar
afgreiðslu borgarstjórnar.
Borgarráð stóð þó ekki
heilt að baki samþykktinni.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
og Framsóknar og flugvallar-
vina lögðu fram bókun
þar sem gerðar voru
athugasemdir við að
útboð skuli ekki hafa
farið fram á sölu bygg-
ingarréttar fyrir íbúð-
arhúsnæði sem og við
kaupverðið.
Kjartan Magnús-
son segir í samtali
við Fréttablaðið að
líklega sé verið að
selja eignir borgar-
innar á undirvirði. „Þessi vinnu-
brögð eru svolítið vafasöm. Þetta
er töluvert undir þeim verðmötum
sem liggja fyrir,“ segir Kjartan og
vísar þar til verðmata sem Jöfur og
Eignamiðlun unnu.
„Eignamiðlun hefur mikla
reynslu í verðmati á íbúðarhús-
næði og lóðum undir íbúðar-
húsnæði. Þetta er 27 prósent-
um undir því verðmati,“ segir
Kjartan.
Í bókun meirihlutans segir að
veittur hafi verið tíu prósenta
afsláttur frá verðmatinu
vegna umfangs við-
skiptanna, frum-
kvæðis stúdíósins,
frumkvöðlastarfs í
skapandi greinum
ásamt „þeirri fram-
sýnu klasauppbygg-
ingu í kvikmynda-
gerð sem er að
verða að veruleika í
Reykjavík“. – þea
Segir sölu á borgareignum
í Gufunesi vera vafasama
Kjartan
magnússon.
2 3 . d e S e m b e r 2 0 1 7 l a u g a r d a g u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
2
3
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
9
8
-8
2
7
4
1
E
9
8
-8
1
3
8
1
E
9
8
-7
F
F
C
1
E
9
8
-7
E
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K