Fréttablaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 8
HAFINU
JÓLIN Í
Allt fyrir jólin
í miðborginni
VERSLANIR ERU OPNAR
TIL KL. 23 Í KVÖLD
MIDBORGIN.IS
FACEBOOK.IS/MIDBORGIN
NÆG BÍLASTÆÐI — MUNIÐ BÍLASTÆÐAHÚSIN
Drekktu í þig hinn sanna jólaanda
á Jólatorginu í Hjartagarði
Samfélag „Þeir sem koma til okkar
eru þeir sem eru utangarðs; íslenskir
einstæðingar, hælisleitendur og
innflytjendur. Jafnvel fólk sem er
ekkert endilega fátækt heldur bara
einmana.“ Þetta segir Vörður Leví
Traustason, framkvæmdastjóri
Samhjálpar.
Daglega borða um það bil 200
manns á Kaffistofu Samhjálpar en
Vörður segir að á því verði senni-
lega engin breyting um hátíðirnar.
Á Kaffistofu Samhjálpar er boðið
upp á morgunkaffi, meðlæti og
heita máltíð í hádeginu alla daga
ársins, án endurgjalds fyrir þá sem
höllum fæti standa. Á vefsíðu Sam-
hjálpar segir að árlega séu gefnar um
65 þúsund máltíðir.
Þótt efnahagsástandið sé með
besta móti segir Vörður að þörfin
hafi ekki minnkað. Samhjálp er að
hluta til rekin með fjárhagsstuðn-
ingi borgarinnar en að uppistöðu
til fyrir tilstuðlan velviljaðra ein-
staklinga og fyrirtækja.
Vörður segir Samhjálp ekki finna
mun á góðæri og hallæri hvað fjölda
gesta varðar. „Maturinn sem við
fáum er hins vegar betri,“ segir hann
um muninn á rekstri Samhjálpar nú
og þegar þrengra er í ári. Fyrirtæki,
svo sem matvöruverslanir, gefi þeim
fyrsta flokks hráefni. „Við fáum
fyrsta flokks vöru og það er gaman
að geta boðið upp á góðan og nær-
ingarríkan mat,“ segir hann og
bætir við að ekki væri hægt að reka
Kaffistofuna nema með stuðningi
fyrirtækja, einstaklinga og félaga-
samtaka.
Hann segir aðspurður um sam-
setningu hópsins að einstæðingar
séu áberandi, bæði Íslendingar og
útlendingar. Hann telur að hlut-
fall fólks af erlendum uppruna sé á
bilinu 30 til 40 prósent. „Þetta eru
oft hælisleitendur sem eru komnir
með íslenska kennitölu. Þeir hætta
þá að fá stuðning og lenda í kjölfarið
í fátæktargildru,“ segir hann.
Fátækt er ekki eina ástæða þess að
fólk leitar ásjár Samhjálpar. Vörður
segir að margir þeirra sem komi séu
einstaklingar sem ekki eigi aðra að;
fólk sem glími við einmanaleika.
„Þeir sem leita til okkar þurfa svolítið
þessa félagslegu umönnun,“ útskýrir
hann. Þá séu sumir svo illa staddir
að þeir treysti sér ekki út. Kaffistofa
Samhjálpar reyni þá eftir megni að
koma til þeirra matarpökkum, með
aðstoð vina eða kunningja.
Um jólin og áramótin býður Kaffi-
stofa Samhjálpar upp á hátíðarmat
fyrir þá sem á máltíðum þurfa að
halda. Hangikjöt og hamborgar-
hryggur eru þar á meðal. „Við gerum
svolítið aukalega og reynum að skapa
hátíðarstemningu,“ segir hann.
Aðspurður segir Vörður að ein-
staklingar geti vel látið gott af sér
leiða, annaðhvort með framlagi í
gegn um heimasíðu Samhjálpar,
með því að hringja í hjálparsímann
561-1000 eða með því að koma fær-
andi hendi á skrifstofu eða Kaffistof-
una. Algengt sé að fólk komi með
matarpoka og færi Samhjálp. Öll
slík aðstoð komi að góðum notum.
Hann segir að Samhjálp upplifi
mikinn velvilja víða úr samfélaginu.
Þannig ætli Fíladelfíusöfnuðurinn,
þar sem Vörður gegndi áður prest-
stöðu, að halda skötuveislu í dag
eingöngu til styrktar Samhjálp.
baldurg@frettabladid.is
Tvö hundruð borða
daglega hjá Samhjálp
Einstæðingar af innlendu og erlendu bergi brotnir eru tíðir gestir á Kaffistofu
Samhjálpar. Gestirnir glíma ekki allir við fjárhagsvandræði heldur þurfa félags-
lega umönnun. Framkvæmdastjóri Samhjálpar segir allar gjafir vel þegnar.
Skipulag „Staðreyndin er sú að það
er búið að fækka fyrirhuguðum
íbúðum þarna umtalsvert,“ segir
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri
í Kópavogi. Fréttablaðið greindi í
gær frá andstöðu íbúa í Snælands-
hverfi við breytingu aðalskipulags
á reitnum þar sem Furugrund 3
stendur.
Um er að ræða verslunarhús-
næði sem að mestu hefur staðið
autt í níu ár. Áður var þar verslun
Nóatúns og Snæland video. Tillaga
er nú til meðferðar hjá bænum um
að breyta húsnæðinu í íbúðir. Til
stendur að hækka þakið og heimila
allt að 12 íbúðir í húsinu.
Í fréttinni gagnrýndu íbúar í
hverfinu meðferð málsins og gáfu
í skyn að þeir upplifðu samráðs-
ferli við íbúa sem sýndarmennsku.
Ármann bendir á móti á að vegna
andstöðu íbúa hafi verið fallið frá
hugmyndum um að heimila bygg-
ingu á 32 hótelíbúðum. „Það er
alveg klárlega verið að taka tillit til
sjónarmiða íbúa í þessum efnum,“
segir hann.
Ármann bendir á að húsið hafi
staðið autt lengi og að verslunar-
rekstur hafi þar illa þrifist. Hann
upplifi að miklu meiri samstaða sé
um að byggja þarna íbúðir en fram
hafi komið í fjölmiðlum. „Okkur
ber skylda til að sýna meðalhóf í
okkar stjórnsýslu. Þetta er komið
á þann stað að við getum ekki sagt
nei við öllu.“ Heppilegra sé að hafa
íbúðarhúsnæði á lóðinni – sem er
við skóla og leikskóla – heldur en
aðra starfsemi, sem óljóst er hverr-
ar tegundar yrði. – bg
Segir að bærinn hafi tekið
tillit til sjónarmiða íbúa
Furugrund 3 hefur að stórum hluta staðið ónotað lengi. Fréttablaðið/Vilhelm
Starfsmenn í jólaskapi í eldhúsi Samhjálpar. maturinn er betri nú í góðærinu
en þegar harðara var í ári að sögn framkvæmdastjórans. Fréttablaðið/ernir
Vörður leví
traustason
2 3 . d e S e m b e r 2 0 1 7 l a u g a r d a g u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
2
3
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
9
8
-9
6
3
4
1
E
9
8
-9
4
F
8
1
E
9
8
-9
3
B
C
1
E
9
8
-9
2
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K