Fréttablaðið - 23.12.2017, Page 16
Janúar
11. janúar Ný ríkisstjórn Sjálf
stæðis flokksins, Viðreisnar og
Bjartrar framtíðar tekur við. Bjarni
Benediktsson verður forsætisráð
herra.
15. janúar Leit að Birnu Brjáns
dóttur.
22. janúar Birna Brjánsdóttir finnst
látin við Selvogsvita eftir leit í viku.
Febrúar
2. febrúar Icelandair sendir frá sér
svarta afkomuviðvörun. 27 millj
arðar af markaðsvirði þurrkast út.
9. febrúar Sigurjón Árnason
krefst endurupptöku mála sinna.
Ástæðan er vanhæfi hæstaréttar
dómara vegna hlutabréfaeignar
þeirra.
15. febrúar Spenna vegna komu
Costco. Heildsalar farnir að lækka
verð hjá sér.
22. febrúar Fréttablaðið greinir frá
því að bandarískir vogunarsjóðir
séu við það að klára kaup á stórum
hlut í Arion banka.
Mars
11. mars Seðlabanki Íslands setur
nýjar reglur sem aflétta öllum gjald
eyrishöftum sem mögulegt er.
20. mars Tilkynnt um kaup Gold
man Sachs og þriggja vogunarsjóða
á tæplega 30 prósenta hlut í Arion
banka. Samið um kauprétt á tæp
lega 22 prósenta hlut til viðbótar.
23. mars Ný skoðanakönnun
Fréttablaðsins sýnir að fylgið er
hrunið af Viðreisn og Bjartri framtíð.
27. mars HB Grandi tilkynnir að
tæplega 100 manns í botnfisk
vinnslu á Akranesi verði sagt upp og
vinnslan færð til Reykjavíkur.
29. mars Ný skýrsla birt þar sem
fram kemur að aðkoma Hauck
& Aufhauser að kaupum á Bún
aðarbankanum hafi verið til mála
mynda. Ólafur Ólafsson neitar.
Apríl
20. apríl Markaðurinn greinir frá
því að Glitnir hyggist greiða 2,7
milljarða í bónus til lykilmanna.
19. apríl Faxaflóahafnir gefa grænt
ljós á uppbyggingu mannvirkja HB
Granda á Akranesi.
Maí
9. maí Svala Björgvinsdóttir tekur
þátt í Eurovision fyrir Íslands hönd.
Nær ekki inn í lokakeppnina.
11. maí Forstjóri HB Granda tekur
endanlega ákvörðun um að leggja
niður botnfiskvinnslu á Akranesi.
17. maí Ólafur Ólafsson mætir á
fund stjórnskipunar og eftirlits
nefndar Alþingis vegna Búnaðar
bankamálsins.
23. maí Costco opnar í Kauptúni.
29. maí Sigríður Andersen dóms
málaráðherra afhendir forseta
Alþingis tillögur um skipun 15
dómara við landsrétt. Tillögurnar
eru ekki í samræmi við mat dóm
nefndar um hæfni.
Júní
4. júní Vopnaðir lögregluþjónar
á ferli á sjómannadaginn. Mikil
umræða um vopnaburð lögreglu
upphefst.
7. júní Arnar Jónsson Aspar
lætur lífið eftir að hafa orðið fyrir
líkamsárás í Mosfellsdal.
22. júní Nefnd fjármála og efna
hagsráðherra leggur til að 5 þúsund
og 10 þúsund króna seðlar verði
teknir úr umferð til að sporna gegn
skattsvikum.
Opnun vöruhúss Costco hér á landi átti sér þriggja ára aðdraganda. Verslunin var
opnuð með pompi og pragt hinn
23. maí og hefur verið örtröð í
versluninni síðan þá. Áður en hún
var opnuð höfðu að minnsta kosti
35 þúsund Íslendingar keypt sér
aðildarkort að versluninni. Lágt
eldsneytisverð á bensínstöð Costco
vekur ekki síst athygli, en forsvars
menn annarra olíufélaga segjast
ekki geta keppt um hagstæðara
verð. Í byrjun júní birti Fréttablaðið
frétt upp úr gögnum Meniga sem
bentu til þess að velta Costco hefði
verið meiri en velta allra verslana
Bónuss fyrstu dagana eftir opnun.
Costco var
opnað í
Kauptúni
Sunnudaginn 15. janúar síðastliðinn var lýst eftir Birnu Brjánsdóttur, liðlega tvítugri
konu, sem þá hafði ekkert spurst til
frá því á aðfaranótt laugardagsins.
Birna hafði hitt vinkonur sínar á
skemmtistaðnum Húrra en síðan
yfirgefið þær, fengið sér að borða á
Ali Baba og svo gengið upp Lauga
veginn, þar sem hún sást á mynda
vélum við Kirkjuhúsið.
Allsherjarleit að Birnu hófst svo
á mánudegi. Grunur beindist fljót
lega að rauðum Kia Rio bíl sem vitað
var að hafði verið ekið niður Lauga
veginn á sama tíma og Birna var þar
gangandi. Eftirgrennslan lögreglu
leiddi í ljós að grænlenskur sjómað
ur á togaranum Polar Nanoq hafði
tekið rauða Kia Rio bílinn á leigu.
Þegar tveir bræður fundu skó
Birnu á hafnarbakkanum í Hafnar
firði varð það til þess að styrkja
grun lögreglu um að skipverjar á
togaranum tengdust hvarfi hennar.
Polar Nanoq, sem þá var á leið til
Grænlands, var snúið aftur í átt til
Íslands og tveir skipverjar hand
teknir. Þeir voru báðir úrskurðaðir
í gæsluvarðhald en öðrum þeirra var
síðan sleppt.
Thomas Møller Olsen var hins
vegar ákærður fyrir morðið og fyrir
smygl á um 20 kílóum af hassi sem
fundust í skipinu. Hinn 29. sept
ember var hann fundinn sekur
um morðið og fíkniefnasmyglið í
Héraðsdómi Reykjaness. Hann var
dæmdur í 19 ára fangelsi, sem er
þyngsta refsing sem manni hefur
verið dæmd frá árinu 1994. Thomas
hefur ávallt neitað sök og hefur
áfrýjað niðurstöðunni. Búist er við
að réttað verði í málinu í Landsrétti
snemma á næsta ári.
Öll þjóðin syrgði eftir að Birna
fannst látin sunnudaginn 22. janúar
í sjónum við Selvogsvita. Vinkonur
lýstu henni sem einstökum vin.
„Hún er yndisleg vinkona, alltaf
til staðar fyrir mann og hún er ein
besta vinkona sem ég hef eignast á
ævi minni, ég treysti henni fyrir öllu
og ég elska hana,“ sagði Matthildur
Soffía Jónsdóttir, vinkona hennar, í
kvöldfréttum Stöðvar 2.
Sigurlaug Hreinsdóttir, móðir
Birnu, sagðist ganga í gegnum erfið
leikana með styrkleika hennar í
huga. „Fegurðin í minningu hennar
hjálpar mér. Ástin til hennar stýrði
mér og kom mér í gegnum erfiðustu
vikur lífs míns,“ sagði Sigurlaug við
Fréttablaðið.
Öll þjóðin slegin óhug
vegna hvarfs Birnu
Þjóðin var slegin óhug þegar fréttir bárust af hvarfi Birnu Brjánsdóttur um miðj-
an janúar. Tveir menn voru handteknir, grunaðir um að bera ábyrgð á hvarfinu.
Í september fékk Thomas Møller Olsen nítján ára fangelsisdóm fyrir morð.
Blóm og kerti voru lögð við Kirkjuhúsið á Laugavegi þar sem Birna sást síðast á lífi. FréttaBLaðið/Ernir
Það hefur verið mikil örtröð í Costco
eftir að verslunin var opnuð. Áður en
opnað var höfðu 35 þúsund aðildar-
kort verið seld. FréttaBLaðið/EyÞór
Hinn 20. mars síðastliðinn var tilkynnt að bandaríski bankinn Goldman Sachs og þrír
vogunarsjóðir hefðu keypt nærri
30 prósenta hlut í Arion banka fyrir
49 milljarða króna. „Við erum að
horfa á þessi kaup sem fjárfestingu
til meðallangs eða langs tíma,“ sagði
Frank Brosens, eigandi bandaríska
vogunarsjóðsins Taconic Capital.
Einnig var samið um kauprétt sömu
aðila á 22 prósenta hlut til viðbótar.
Viðskiptin voru gagnrýnd, meðal
annars á grundvelli þess að ekki
lægi ljóst fyrir hverjir endanlegir
kaupendur væru. Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson lagði til á Alþingi að
ríkið nýtti sér heimild til forkaups
réttar á hlutnum. Endurskipulagn
ing bankakerfisins var eitt helsta
stefnumál Miðflokksins, flokks Sig
mundar, í kosningabaráttunni sem
fór í hönd.
30 prósenta
hlutur í Arion
banka seldur
nokkurrar tortryggni gætti vegna
sölunnar á arion. FréttaBLaðið/PjEtur
20
kíló af hassi fundust um borð
í togaranum Polar Nanoq
þegar lögreglumenn gerðu
leit þar.
iNNleNdar fréttir ársiNs 2017
2 3 . d e s e M b e r 2 0 1 7 L A U G A r d A G U r16 F r é t t i r ∙ F r é t t A b L A ð i ð
2
3
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
9
8
-5
6
0
4
1
E
9
8
-5
4
C
8
1
E
9
8
-5
3
8
C
1
E
9
8
-5
2
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K