Fréttablaðið - 23.12.2017, Síða 54
Heilsuúr er
vinsælasta
gjöfin til barna í
Danmörku fyrir
þessi jól.
Svo virðist sem mörg dönsk börn fái heilsuúr í jólagjöf. Úrin hafa runnið út eins og
heitar lummur fyrir jólin og eru
víða uppseld. Mörg þeirra liggja nú
innpökkuð undir jólatrénu. Það
eru ekki allir sammála um að þetta
sé sniðug gjöf fyrir börn. Sumum
finnst fulllangt gengið að foreldrar
geti sett börnum fyrir hreyfingu
yfir daginn og fylgst með þeim í
gegnum app. Lektor við háskólann
í Árósum telur að heilsuúrin geti
haft alvarlegar afleiðingar. Börnin
missi frelsi sitt og geta fundið fyrir
óöryggi. Aðrir segja að úrið geti
verið mjög gagnlegt í baráttunni
við ofþyngd.
Úrið getur mælt alla hreyfingu
dagsins auk þess sem það segir
fólki að standa upp og hreyfa
sig hafi það setið of lengi. Þá er
skrefamælir í því og það getur
talið hitaeiningar. Það getur sett
ákveðna pressu á fólk að standa sig
í hreyfingu og líkamsrækt. Úrin eru
sögð henta börnum frá sex ára.
Heilsuúr undir jólatrénu
Jóhanna Guðrún syngur í Vídalíns-
kirkju í kvöld.
Eflaust eru margir sem ætla að klára allt fyrir jólin í dag en hvernig væri að gefa stress
inu frí og njóta þess að hlusta á
ljúfa tónlist og slaka á í leiðinni?
Söngkonan Jóhanna Guðrún ætlar
að halda Þorláksmessutónleika í
Vídalínskirkju í Garðabæ, ásamt
gítarleikaranum Davíð Sigurgeirs
syni. Þau ætla að skapa notalega
jólastemningu og flytja sín uppá
haldsjólalög í glænýjum útsetn
ingum fyrir gítar og söng. Aðgangs
eyrir er 2.990 kr. og kirkjan verður
opnuð kl. 19.30. Seinna í kvöld
mun hljómsveitin Moses High
tower taka fram hljóðfærin og
spila á Bryggjunni Brugghúsi, eða
frá kl. 22. Bandið ætlar að spila
lög af nýrri plötu sinni, sem heitir
Fjallaloft, auk eldri slagara og
kannski líka eitt vinsælasta töku
lag landsins, sem ku vera Wutherin
Heights. Frítt er inn.
Ljúfir tónar á
Þorláksmessu
Aðalregla Þorláksmessu er að borða
lélegt fiskmeti.
Í kaþólskum sið var fastað fyrir jólin. Þá átti ekki að borða góðgæti og einna síst á Þorláks
messu því að sem mestur munur
átti að vera á föstumat og jóla
kræsingum. Auk þess þótti ekki
við hæfi að borða kjöt á dánardegi
heilags Þorláks.
Aðalreglan var samt sú að borða
lélegt fiskmeti á þessum degi. Á
Suðurlandi var sums staðar soðinn
horaðasti harðfiskurinn og frá
Vopnafirði er þessi vísa til marks
um mataræðið:
Á Þorláksdag í matinn minn
morkinn fékk ég hákarlinn
harðan fiskinn hálfbarinn
og hákarlsgrútarbræðinginn.
Um þetta leyti árs veiddist skata
einkum á Vestfjarðamiðum. Hún
þótti enginn herramannsmatur
ótilhöfð og var því algengur Þor
láksmessumatur á þeim slóðum.
Í aldanna rás tókst Vestfirðingum
að tilreiða úr skötunni ljúfmeti
og mörgum þótti óbrigðult merki
þess að jólin væru í nánd þegar
lykt tók að berast af skötustöppu.
Eftir því sem leið á 20. öld
flykktist fólk á suðvesturhorn
landsins, Vestfirðingar ekki síður
en aðrir. Þeir söknuðu Þorláks
messuskötunnar og reyndu að
útvega sér hana úr heimahögum.
Smám saman smitaði venja þeirra
út frá sér og eftir miðja öldina fóru
fiskbúðir á höfuðborgarsvæðinu
að hafa skötu á boðstólum í
desember. Fyrir um aldarfjórðungi
fóru svo nokkur veitingahús að
bjóða til skötuveislu á Þorláks
messu og þar með varð þetta tíska.
Heimild: Vísindavefurinn
Hvers vegna
skata á
Þorláksmessu?
SAMA VERÐ
4 ÁRIÐ Í RÖÐ
HUMAR
3.600 kr.kg
Stærð 30/40
HUMAR
4.900 kr.kg
Stærð 24/30
HUMAR
5.900 kr.kg
Stærð 18/24
HUMAR
6.900 kr.kg
Stærð 15/18
HUMAR
7.900 kr.kg
Stærð 12/15
HUMAR
8.900 kr.kg
Stærð 9/12
HUMAR
9.900 kr.kg
Stærð 7/9
HUMAR
Whilst every effort is made to avoid mistakes errors can occur. Please check these
carefully. Proofs that are sent back without signature is considered approved and ok.
Approved and OK New proof please
DATE:
SIGNATURE:
/Ingenjörsgatan 7-9
Box 814, 251 08 Helsingborg
Tel. vx. 042-24 73 00
info@lindsflexo.se, www.lindsflexo.se
14
0
280
Linds Flexo, 1310144 Fiskikongurinn_KORR , 17-JAN-13 YTTER catarinaSogavegi 3
Höfðabakka 1
Sími 587 7755
OPIÐ
23. DESEMBER 8-20
24. DESEMBER 9-12
HUMARSÚPA
FISKIKÓNGSINS HUMAR
SKELFLETTUR
SKATA1.390 kr.kg
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . D e s e m B e R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
2
3
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
9
8
-C
2
A
4
1
E
9
8
-C
1
6
8
1
E
9
8
-C
0
2
C
1
E
9
8
-B
E
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K