Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.12.2017, Qupperneq 54

Fréttablaðið - 23.12.2017, Qupperneq 54
Heilsuúr er vinsælasta gjöfin til barna í Danmörku fyrir þessi jól. Svo virðist sem mörg dönsk börn fái heilsuúr í jólagjöf. Úrin hafa runnið út eins og heitar lummur fyrir jólin og eru víða uppseld. Mörg þeirra liggja nú innpökkuð undir jólatrénu. Það eru ekki allir sammála um að þetta sé sniðug gjöf fyrir börn. Sumum finnst fulllangt gengið að foreldrar geti sett börnum fyrir hreyfingu yfir daginn og fylgst með þeim í gegnum app. Lektor við háskólann í Árósum telur að heilsuúrin geti haft alvarlegar afleiðingar. Börnin missi frelsi sitt og geta fundið fyrir óöryggi. Aðrir segja að úrið geti verið mjög gagnlegt í baráttunni við ofþyngd. Úrið getur mælt alla hreyfingu dagsins auk þess sem það segir fólki að standa upp og hreyfa sig hafi það setið of lengi. Þá er skrefamælir í því og það getur talið hitaeiningar. Það getur sett ákveðna pressu á fólk að standa sig í hreyfingu og líkamsrækt. Úrin eru sögð henta börnum frá sex ára. Heilsuúr undir jólatrénu Jóhanna Guðrún syngur í Vídalíns- kirkju í kvöld. Eflaust eru margir sem ætla að klára allt fyrir jólin í dag en hvernig væri að gefa stress­ inu frí og njóta þess að hlusta á ljúfa tónlist og slaka á í leiðinni? Söngkonan Jóhanna Guðrún ætlar að halda Þorláksmessutónleika í Vídalínskirkju í Garðabæ, ásamt gítarleikaranum Davíð Sigurgeirs­ syni. Þau ætla að skapa notalega jólastemningu og flytja sín uppá­ haldsjólalög í glænýjum útsetn­ ingum fyrir gítar og söng. Aðgangs­ eyrir er 2.990 kr. og kirkjan verður opnuð kl. 19.30. Seinna í kvöld mun hljómsveitin Moses High­ tower taka fram hljóðfærin og spila á Bryggjunni Brugghúsi, eða frá kl. 22. Bandið ætlar að spila lög af nýrri plötu sinni, sem heitir Fjallaloft, auk eldri slagara og kannski líka eitt vinsælasta töku­ lag landsins, sem ku vera Wutherin Heights. Frítt er inn. Ljúfir tónar á Þorláksmessu Aðalregla Þorláksmessu er að borða lélegt fiskmeti. Í kaþólskum sið var fastað fyrir jólin. Þá átti ekki að borða góðgæti og einna síst á Þorláks­ messu því að sem mestur munur átti að vera á föstumat og jóla­ kræsingum. Auk þess þótti ekki við hæfi að borða kjöt á dánardegi heilags Þorláks. Aðalreglan var samt sú að borða lélegt fiskmeti á þessum degi. Á Suðurlandi var sums staðar soðinn horaðasti harðfiskurinn og frá Vopnafirði er þessi vísa til marks um mataræðið: Á Þorláksdag í matinn minn morkinn fékk ég hákarlinn harðan fiskinn hálfbarinn og hákarlsgrútarbræðinginn. Um þetta leyti árs veiddist skata einkum á Vestfjarðamiðum. Hún þótti enginn herramannsmatur ótilhöfð og var því algengur Þor­ láksmessumatur á þeim slóðum. Í aldanna rás tókst Vestfirðingum að tilreiða úr skötunni ljúfmeti og mörgum þótti óbrigðult merki þess að jólin væru í nánd þegar lykt tók að berast af skötustöppu. Eftir því sem leið á 20. öld flykktist fólk á suðvesturhorn landsins, Vestfirðingar ekki síður en aðrir. Þeir söknuðu Þorláks­ messuskötunnar og reyndu að útvega sér hana úr heimahögum. Smám saman smitaði venja þeirra út frá sér og eftir miðja öldina fóru fiskbúðir á höfuðborgarsvæðinu að hafa skötu á boðstólum í desember. Fyrir um aldarfjórðungi fóru svo nokkur veitingahús að bjóða til skötuveislu á Þorláks­ messu og þar með varð þetta tíska. Heimild: Vísindavefurinn Hvers vegna skata á Þorláksmessu? SAMA VERÐ 4 ÁRIÐ Í RÖÐ HUMAR 3.600 kr.kg Stærð 30/40 HUMAR 4.900 kr.kg Stærð 24/30 HUMAR 5.900 kr.kg Stærð 18/24 HUMAR 6.900 kr.kg Stærð 15/18 HUMAR 7.900 kr.kg Stærð 12/15 HUMAR 8.900 kr.kg Stærð 9/12 HUMAR 9.900 kr.kg Stærð 7/9 HUMAR Whilst every effort is made to avoid mistakes errors can occur. Please check these carefully. Proofs that are sent back without signature is considered approved and ok. Approved and OK New proof please DATE: SIGNATURE: /Ingenjörsgatan 7-9 Box 814, 251 08 Helsingborg Tel. vx. 042-24 73 00 info@lindsflexo.se, www.lindsflexo.se 14 0 280 Linds Flexo, 1310144 Fiskikongurinn_KORR , 17-JAN-13 YTTER catarinaSogavegi 3 Höfðabakka 1 Sími 587 7755 OPIÐ 23. DESEMBER 8-20 24. DESEMBER 9-12 HUMARSÚPA FISKIKÓNGSINS HUMAR SKELFLETTUR SKATA1.390 kr.kg 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . D e s e m B e R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R 2 3 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :1 8 F B 0 9 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 9 8 -C 2 A 4 1 E 9 8 -C 1 6 8 1 E 9 8 -C 0 2 C 1 E 9 8 -B E F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 9 6 s _ 2 2 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.