Fréttablaðið - 23.12.2017, Síða 80
Við sendum
landsmönnum
hlýjar kveðjur
569 6900 08:00–16:00www.ils.is
Með ósk um gleðileg jól
og farsæld á komandi árum
Ha f i ð , j ó l a l e i k r i t Þjóðleikhússins í ár, fjallar um valda-mikinn útgerðar-mann í sjávarþorpi, fjölskyldu hans og
grimmileg átök um fjölskylduauð-
inn. Sigurður Sigurjónsson heldur
þar um alla þræði en hann hefur
líka verið hinum megin borðs því
þegar leikritið var frumsýnt upphaf-
lega fyrir 25 árum var hann meðal
leikenda. „Ég lék Berg, uppeldisson
á heimilinu og sjómann, þann sem
er með saltið í æðunum. Baltasar
Breki Samper leikur hann núna,“
segir Sigurður og telur að kjarni
verksins sé á sínum stað þó eðlilegar
breytingar hafi verið gerðar í takt við
tíðarandann.
„Hafið stendur algerlega fyrir
sínu, enda finnum við það vel á við-
brögðum fólks sem hefur komið til
okkar á æfingar,“ segir leikstjórinn.
„Þó öðruvísi ólga sé kringum kvóta-
kerfið núna en fyrir aldarfjórðungi er
engin endanleg sátt um það hjá þjóð-
inni. Svo er verkið mikið fjölskyldu-
drama og snýst um ágirnd, gleði og
sorg, mál sem koma okkur alltaf við
og birta mannlegt eðli.“
Sigurður segist fyrst og síðast vera
leikari en kveðst samt annað slagið
hafa sest í leikstjórastól áður, bæði
í Þjóðleikhúsinu og á Akureyri og
segir alltaf áskorun að takast á við
það hlutverk. „Ég er auðvitað með
topplið leikenda á sviðinu sem
sýnir á sér nýjar hliðar,“ segir hann.
Nefnir Þröst Leó í gervi fjölskyldu-
föðurins Þórðar, sem ekki vill hlíta
ráðum afkomenda sinna og flytja
í þjónustuíbúð í Reykjavík. Einnig
Guðrúnu S. Gísladóttur sem fer með
hlutverk Katrínar, móður Þórðar.
Sambýliskona Þórðar er leikin af
Elvu Ósk Ólafsdóttur og auk þeirra
sem taldir hafa verið leika þau
Baldur Trausti Hreinsson, Birgitta
Birgisdóttir, Sólveig Arnarsdóttir,
Snorri Engilbertsson, Oddur Júlíus-
son og Snæfríður Ingvarsdóttir í
sýningunni. „Finnur Arnar gerir leik-
myndina, við höfum unnið saman
áður og enginn skuggi fallið á okkar
samband,“ nefnir Sigurður líka.
Sumir furða sig á Þjóðleikhúsinu
að taka Hafið upp nú, mörgum er
sýningin fyrir 25 árum í fersku minni
og svo var Hafið kvikmyndað líka.
Sigurður er á öðru máli. „Efnistökin
eru auðvitað allt önnur í bíómynd-
inni en í leikhúsinu og það kemur
í ljós þegar við mátum sýninguna
við áhorfendur að hún er algert
nýmeti,“ segir hann. „Verkið er full-
æft, það mallar yfir jólasteikinni og
svo berum við réttinn á borð á annan
í jólum.“
Hafið mallar yfir jólasteikinni
Hafið, leikrit Ólafs Hauks Símonarsonar, verður frumsýnt í
Þjóðleikhúsinu á annan í jólum. Siggi Sigurjóns leikstýrir.
Sigurður segir kjarna leikverksins á sínum stað en að auðvitað hafi verið
gerðar breytingar í takt við tíðarandann. Fréttablaðið/anton brink
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
EfniStökin Eru
auðvitað allt
önnur í bíÓmyndinni En í
lEikHúSinu og Það kEmur í
ljÓS ÞEgar við mátum
Sýninguna við áHorfEndur
að Hún Er algErt nýmEti.
2 3 . d e s e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r d A G U r60 m e n n i n G ∙ F r É T T A b L A ð i ð
menning
2
3
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
9
8
-5
F
E
4
1
E
9
8
-5
E
A
8
1
E
9
8
-5
D
6
C
1
E
9
8
-5
C
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K