Morgunblaðið - 06.06.2017, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 6. J Ú N Í 2 0 1 7
Stofnað 1913 136. tölublað 105. árgangur
Nafnið breytist en áfangastaðirnir hafa enn sama aðdráttarafl.
Ævinlega velkomin um borð. airicelandconnect.is
VALDÍS FYRST
ÍSLENDINGA
Á RISAMÓT? TIL ÍRLANDS EFTIR 50 ÁR
KÓRSTJÓRI MEÐ
GÆSAHÚÐ AF
HRIFNINGU
GAGNFRÆÐINGAR ÚR FLENSBORG 12-13 HÖRÐUR ÁSKELSSON 34ÍÞRÓTTIR 1
Þeir 3.500 farþegar sem voru með MSC Pre-
ziosa, stærsta skemmtiferðaskipinu sem kemur
til Reykjavíkur í ár og var í Sundahöfn um
helgina, voru stálheppnir þegar þeir fóru í lysti-
reisur út úr borginni. Það var sól um alla jörð,
og þess nutu ferðamenn sem aðrir. Vel viðraði
til útiveru og mestur hiti á landinu í gær mæld-
ist á þremur mælingastöðvum sem allar eru í
Reykjavík, það er 15 stig í Geldinganesi, við
Korpu og við Veðurstofuna við Bústaðaveg.
„Það er fremur fátítt á sumrin að hæstur hiti á
landinu mælist í Reykjavík, hvað þá á þremur
stöðum í borginni. Að hlýjast sé á landinu í
borginni gerist frekar á haustin,“ sagði Einar
Sveinbjörnsson veðurfræðingur í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Áfram verður gott veður um landið sunnan-
vert, sólskin þótt aðeins kólni. Um landið norð-
an- og austanvert má þó gera ráð fyrir kuldatíð,
með snjókomu til fjalla – svo sem á Möðrudals-
öræfum, Fjarðarheiði, Oddsskarði og víðar.
Morgunblaðið/Golli
Hjólað í hlýrri höfuðborginni
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Halldór Auðar Svansson, oddviti
Pírata í Reykjavík, segir borgarfull-
trúa hafa talið lítinn áhuga fyrir
rekstri hjólaleigu í borginni og að
WOW air hafi eitt sýnt slíkum
rekstri áhuga. Hann segir að í ljósi
framkominna upplýsinga um meiri
áhuga sé borginni ekki stætt á að
framlengja samninginn þegar hann
rennur út árið 2018 án þess að hann
verði boðinn út.
Eins og fram kom í ítarlegri um-
fjöllun um þetta máli í Sunnudags-
mogganum sl. helgi samdi Reykja-
víkurborg við WOW air um afnot
borgarlands undir hjólastöðvar án
þess að útboð hefði komið fram.
Fulltrúar einnar stærstu hjólaleigu
heims með starfsemi í yfir 70 borg-
um, JCDecaux, voru meðal fjögurra
aðila sem lýstu sig áhugasama um
að koma að slíkum rekstri, en
drógu sig úr forvali vegna þess að
borgin hafði óljósar hugmyndir um
hvernig skyldi staðið að hjóla-
leigunni. Fyrirtækið lýsti þó yfir
áhuga á að taka þátt í útboði, sem
var aldrei haldið.
Halldór Auðar segir í samtali við
Morgunblaðið að þegar málið hafi
verið tekið fyrir í borgarráði hafi
hann auk annarra borgarfulltrúa
talið að aðeins einn aðili hefði haft
áhuga á rekstri hjólaleigunnar, þ.e.
WOW air, og því hefðu allir greitt
samningnum atkvæði sitt.
Halldór Ó. Sigurðsson, forstjóri
Ríkiskaupa, segir borginni líklega
ekki skylt að halda útboð vegna
hjólaleigunnar, þar sem um afnot á
borgarlandi sé að ræða. Hins vegar
sé útboð skynsamleg leið til þess að
ráðstafa auðlindum eða auðæfum,
enda stuðli slík leið að gagnsæi og
jafnræði. Hann þekkir ekki til
málavaxta þessa samnings, en að-
spurður segir hann það óvenjulang-
an tíma að forval standi yfir í fleiri
mánuði, sem var raunin þegar for-
val hjólaleigunnar stóð frá vori
fram á haust.
Ekki framlengt án útboðs
Borgarfulltrúi Pírata segir borginni ekki stætt á að framlengja án útboðs
MTöldu bara einn áhugasaman »6
Einn hryðjuverkamannanna
þriggja sem óku á óbreytta borgara
við Lundúnabrúna á laugardags-
kvöld með þeim afleiðingum að sjö
létu lífið og hátt í 50 slösuðust kom
fyrir sjónir í heimildarmyndinni
„The Jihadis Next Door“ sem var
sýnd á Channel 4 í fyrra. Myndin
fjallar um breska öfgamenn. Bætist
hann í hóp hryðjuverkamanna sem
hafa verið á lista bresku lögregl-
unnar en náð að láta til skarar
skríða.
Mark Rowley, yfirmaður hryðju-
verkalögreglu Bretlands, segir að á
hverjum tíma séu 500 virkar rann-
sóknir í gangi vegna hryðjuverka-
ógnar þar sem um þrjú þúsund
manns eru til rannsóknar. Breska
lögreglan hefur komið í veg fyrir
18 árásir síðan 2013, þar af fimm
frá árásinni á Westminster-brúnni
fyrir tveimur mánuðum. Á undan-
förnum árum hafa alls verið í
kringum 20 þúsund manns til rann-
sóknar hjá lögreglu. »19
AFP
Hryðjuverk Sjö létu lífið í árásinni.
Yfir 20 þúsund í
sigti lögreglunnar
Rúnar Geir-
mundsson, for-
maður Félags ís-
lenskra útfarar-
stjóra, sakar
Kirkjugarða
Reykjavíkur-
prófastsdæma
um að beita hót-
unum til þess að
fá aukið fjár-
magn til rekstr-
arins.
„Þeir eru bara að nota talíbana-
aðferðina, ef þið komið ekki með
peningana sprengjum við allt í loft
upp,“ segir Rúnar, sem telur ákall
sem Kirkjugarðarnir sendu frá sér
síðastliðinn föstudag ekki trúverð-
ugt.
„Þetta er peningaþörf út af ein-
hverju öðru og þeir ætla að nýta sér
það, ég tel að staðan sé ekki svona
slæm.“ »4
Segir Kirkjugarða
beita hótunum
Rúnar
Geirmundsson