Morgunblaðið - 06.06.2017, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 06.06.2017, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2017 www.gilbert.is SJÓN ER SÖGU RÍKARI !SIF NART 1948 Frábært verð á glerjum Einfókus gler Verð frá kr. 16.900,- Margskipt gler Verð frá kr. 41.900,- Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is iGreen V5.06.02M umgjörð kr. 11.900,- Með iGreen umgjörðum getur þú útbúið þá litasamsetningu sem þú vilt. Líflegir litir! Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga DeWALT BORVÉL DCD795M1 Kolalaus 18V (4.0Ah) ÚTSALA Lifandi tónlist mbl.is/tonleikar Skólaslit verða í grunnskólum lands- ins í byrjun næstu viku. Skólabörn halda þá í langþráð sumarfrí og við tekur ýmiss konar frístundastarf, bæði á vegum sveitarfélaga og ann- arra félagasamtaka. Reykjavíkur- borg býður upp á fjölbreytt úrval námskeiða en vinsælust eru nám- skeið íþróttafélaganna. Þau bjóða flest upp á námskeið í vinsælustu boltaíþróttunum; fótbolta, handbolta og körfubolta. KR starfrækir í sumar knatt- spyrnuskóla fyrir krakka á aldrinum 6-11 ára. Hvert námskeið er tvær vikur og fá þátttakendur þjálfun í ýmsum tækniæfingum og öðrum leikjum með boltann. Bojana Besic, umsjónarmaður námskeiðsins, á von á um 400 þátttakendum í sumar. Íþróttafélögin standa einnig fyrir sundnámskeiðum í flestum laugum borgarinnar og er yfirleitt um tveggja vikna námskeið að ræða. Ekki bara boltaleikir Margir muna eftir smíðavöllunum sem starfræktir voru um alla borg áður fyrr, en nokkur ár eru síðan þeir lögðu upp laupana í borginni. Á Seltjarnarnesi lifir smíðavöllurinn hins vegar góðu lífi við Valhúsa- skóla. Þar gefst börnum, átta ára og eldri, tækifæri til að smíða sína eigin kofa undir styrkri leiðsögn leiðbein- enda og segir Baldur Pálsson, svið- stjóri fræðslusviðs Seltjarnarness, smíðavöllinn njóta mikilla vinsælda. Til viðbótar við það heldur bærinn úti leikjanámskeiði, ævintýranám- skeiði og svokölluðu „survivor- námskeiði“ fyrir 10-13 ára börn. Þá mun Bókasafn Seltjarnarness standa fyrir ritsmiðju í samstarfi við Þorgrím Þráinsson rithöfund þar sem markmiðið er að þjálfa börn í ritlist og virkja ímyndunaraflið. Háskóli Íslands býður nemendum í 6.-10. bekk upp á Háskóla unga fólksins. Um er að ræða vikunám- skeið, 12.-16. júní. Nemendur velja fimm námskeið af um fjörutíu sem í boði eru. Af nógu er að taka, en með- al vinsælla námskeiða eru stærð- fræði, skurðlækningar, eldfjalla- námskeið, dýralífsfræði og listfræði. Kristín Ása Einarsdóttir, skólastjóri Háskóla unga fólksins, segir um 350 fróðleiksfúsa krakka taka þátt ár- lega. Sívinsælar sumarbúðir KFUM heldur úti kristilegum sumarbúðum á nokkrum stöðum á landinu. Stærstu búðirnar eru í Vatnaskógi í Hvalfjarðarsveit, en Ársæll Aðalbergsson framkvæmda- stjóri á von á um 2.500 börnum í sumar. Þau yngstu eru 8 ára gömul en elstu krakkarnir, í unglinga- flokki, eru á aldrinum 14-17 ára. Lögð er áhersla á fjölbreytta dag- skrá, útiveru og leiki. Fyrsta nám- skeið sumarsins er gauraflokkur, en hann er ætlaður 10-12 ára drengjum með athyglisbrest, ofvirkni eða skyldar raskanir. Sá flokkur hefur verið í boði í tíu ár og segir Ársæll vel hafa tekist til en viðurkennir að það geti verið krefjandi. Hápunktur sumarsins verður svo fjölskyldu- mótið, sem er útihátíð sem haldin verður um verslunarmannahelgina. agunnar@mbl.is Fjölbreytt sumarstarf fyrir börn víða um land  Íþróttanámskeið vinsæl  Smíðavöllur á Seltjarnarnesi Morgunblaðið/Styrmir Kári Sumar Sumarfríið er handan við hornið og spennandi verkefni fram undan. Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is „Við höfum verið að fá inn fleiri dýr með skógarmítil síðustu tvö ár en áður. Fyrr í vikunni kom á stofuna til okkar hundur sem hafði verið bitinn af skógarmítli í garðinum hjá sér hér í bænum,“ segir Aðalbjörg Jónsdóttir, dýra- læknir hjá Dýralæknaþjónustu Eyjafjarðar. „Áður höfðu flest tilfellin verið hjá dýrum sem voru fyrir utan Akureyrarbæ, í háu grasi eða ná- lægt trjágróðri,“ segir Aðalbjörg og bætir við að enn hafi henni ekki borist dýr sem hafi veikst af biti. „Það er þó nauðsynlegt að vera vakandi fyrir þeirri hættu.“ Getur leitt til heilabólgu og lyme-sjúkdómsins Skógarmítill, sem er liðfætla, er svokölluð smitferja (e. vector) sem ber smit milli spendýra og fugla. Hann getur verið varasam- ur mönnum því hann getur borið bakteríur og veirur sem valda heilabólgu eða Lyme-sjúkdómi. Ekki er hægt að bólusetja við Lyme-sjúkdómi en til eru bóluefni gegn mítilborinni heilabólgu. Að sögn Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis er varla hægt að segja að mítillinn sé landlægur þó hann finnist hér af og til. „Inn- lent smit af mítilborinni heila- bólgu hefur ekki greinst. Mér finnst því ekki vera tímabært að hefja hér bólusetningu.“ Í Evrópu er sjúkdóminn eink- um að finna í Austurríki, Þýska- landi, Suður- og Mið-Svíþjóð, Frakklandi, Sviss, Noregi, Dan- mörku, Póllandi Rússlandi og víð- ar. Skógarmítillinn getur verið skæður  Dýr eru oftar bitin hér á landi Skordýr Tilvikum þar sem dýr eru bitin hefur fjölgað síðustu ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.