Morgunblaðið - 06.06.2017, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 06.06.2017, Blaðsíða 31
bækur um fólk og fróðleik af ýmsu tagi.“ Fjölskylda Sambýliskona Vigfúsar er Lydía Pálmarsdóttir, f. 9.11. 1957, hús- freyja og ræstir. Faðir Lydíu er Pálmar Árni Sigurbergsson, f. 3.4. 1940, hljóðfærasmiður en eiginkona hans er Jóhanna Snorradóttir. Móð- ir Lydíu er Guðný Kristjana Vil- hjálmsdóttir, f. 28.7. 1939, en eigin- maður hennar er Guðmundur Sigurpáll Guðmundsson og búa þau á Hvolsvelli. Synir Vigfúsar og Lydíu eru: 1) Gísli Vigfússon, f. 14.11. 1979, fisk- eldisstarfsmaður í Þorlákshöfn en sambýliskona hans er Lena Dögg Dagbjartsdóttir tölvunarfræðingur og eru synir þeirra Ísar Máni, f. 2006, og Elmar Kári, f. 2013; og 2) Sigurbergur Vigfússon, f. 18.10. 1985, sjómaður í Þorlákshöfn en sambýliskona hans er Ragna Kristín Jónsdóttir og eru börn þeirra Arnór Daði, f. 2007, og Viktoría Elín, f. 2014. Systkini Vigfúsar eru: 1) Ásta Sig- rún, f. 17.4. 1955, sjúkraliði í Reykja- vík; 2) Sigurður Ómar, f. 18.7. 1960, bóndi í Hemru í Skaftártungu; 3) Jóna Lísa, f. 11.3 1963, skrifstofu- maður í Reykjavík og Noregi; 4) Sigurgeir Bjarni, f. 8.4. 1965, bóndi á Flögu í Skaftártungu, og 5) Sverrir, f. 6.4. 1969, bóndi á Kirkjubæjar- klaustri. Foreldrar Vigfúsar voru Gísli Vig- fússon, f. 29.8. 1923, d. 1.3. 2007, og k.h., Sigríður Sigurðardóttir, f. 19.1. 1934, d. 11.5. 2017, húsfreyja. Þau bjuggu á Flögu í Skaftártungu, voru með hefðbundinn búskap, kýr og kindur, en jafnframt verslunar- rekstur og bensínsölu, auk ferða- þjónustu. Úr frændgarði Vigfúsar Gunnars Gíslasonar Vigfús Gunnar Gíslason Bárður Pálsson b. í Holti Sigríður Jónsdóttir húsfr. í Holti í Álftaveri Ástríður Bárðardóttir húsfr. á Ljótarstöðum og Jórvíkurhryggjum Sigurður Sverrisson b. á Ljótarstöðum í Skaftárt. og Jórvíkurhryggjum í Álftaveri Sigríður Sigurðardóttir húsfr. á Flögu Oddný Jónsdóttir húsfreyja í Hraunbæ Sverrir Bjarnason b. Hraunbæ í Álftaveri Valgerður Gunnarsdóttir húsfr. í Hlíð í Skaftártungu Sigríður Vigfúsdóttir húsfr. og verkak. í Rvík Guðríður Vigfúsdóttir húsfr. á Hálsi í Fnjóskadal Ágústa Þuríður Vigfúsdóttir húsfr. í Suður-Vík í Mýrdal GunnarVigfússon skrifstofustj. á Selfossi Ásgeir Sigurðsson b. á Ljótarstöðum Sigríður Vigdís Vigfúsdóttir framkv.stj. hjá Prímex á Siglufirði Heiða Guðný Ásgeirsdóttir b., baráttu- kona og hagyrðingur (Heiða fjall- dalabóndi) Oddný Steina Valsdóttir b. í Bitru í Fljótshlíð og form. Landssamtaka sauðfjárbænda Helga Valfells framkv. stj. og stjórnarm. í Íslandsbanka Gunnheið- ur Guð- jónsdóttir húsfr. í Hlíð Vigfús Sigvaldason b. í Skagafirði og múraram. í Hveragerði Sigurður Bárðarson bifvélavirki í Garðabæ Valur G. Odd- steinsson b. í Úthlíð í Skaft- ártungu Sveinn Páll Gunnarsson b. og símst.stj. á Flögu Karl Jóhann Gunnarsson skrifstofum. í Vík í Mýrdal og í Rvík Einar Sigurðsson fv. útvarpsstj. og forstj. Mjólkursamsölunnar Vigfús Björnsson rithöfundur Oddur Björnsson leikritaskáld Hilmar Oddsson leikstjóri Bárður Bárðarson fiskimatsmaður í Keflavík Matthildur Valfells húsfr. í Rvík Guðríður Pálsdóttir húsfr., dóttir Páls Pálssonar prófasts og þjóðfundarmanns í Hörgsdal Sveinn pr. í Sandfelli og Ásum, sonur Eiríks Jónssonar b. í Hlíð Sigríður Sveinsdóttir húsfr. á Flögu Vigfús Gunnarsson b. á Flögu Gísli Vigfússon b. á Flögu í Skaftártungu Þuríður Ólafsdóttir húsfr. á Flögu Gunnar Vigfússon b. á Flögu Gísli Sveinsson sýslum. í Skaftafells- sýslum og forseti sameinaðs þings Sveinn Sveins- son b. á Norður- Fossi í Mýrdal Runólfur Sveinsson sandgræðslustjóri Róshildur Sveinsdóttir handa- vinnu- og jógakennari Sveinn Runólfsson fv. land- græðslustjóri í Gunnarsholti Brynja Bene- dikts- dóttir leikstjóri Benedikt Erlings- son leikstjóri Páll Sveinsson landgræðslustjóri Afmælisbarnið Í göngugallanum. ÍSLENDINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2017 Annar í hvítasunnu 95 ára Ingibergur E. Jónsson Jóhanna Guðjónsdóttir 90 ára Lilja Þórarinsdóttir Steingrímur Ragnarsson Theódóra Ásdís Smith 85 ára Gústaf Adolf Jakobsson Ólöf Steinarsdóttir 80 ára Kristín Minny Pétursdóttir 75 ára Anna Sæby Lúthersdóttir Eygló Dóra Garðarsdóttir Haraldur Sigurðsson Ingibjartur Guðjón Þórjónsson Olgeir Erlendsson Signý Guðmundsdóttir Sigurður Björnsson Soffía Zophoníasdóttir 70 ára Einar I. Halldórsson Marta Hauksdóttir 60 ára Danuta Bielecka Elsa Jónsdóttir Guðný Svanfríður Stefánsdóttir Gunnar Kvaran Hrafnsson Halldór Víkingsson Helga Gunnarsdóttir Hrafnhildur Gísladóttir Jóna Þórðardóttir Jón Bergþór Jónsson Stefanía H. Sigurþórsdóttir Sveinn Geir Einarsson 50 ára Helga Birna Valdimarsdóttir Helga Kristín Sigurðardóttir Jóhann Björn Jóhannsson Pála Kristín Buch Stefán Örn Þórisson Sverrir Árnason 40 ára Bjarni Þór Hafsteinsson Dominik Bochra Gísli Kristinn Guðbergsson Harpa Stefánsdóttir Jón Ólafur Sigurbjörnsson Telma Kjartansdóttir 30 ára Andrius Andrijauskas Arnór Gísli Reynisson Ágúst Flóki Þorsteinsson Bettina Vass Corenthin Christian V. Blanchy Einar Finnsson Ingi Páll Eyjólfsson Joel Ereno Balana Kolbrún Lilja Kolbeinsdóttir Lárus Ingi Lárusson Milena Grazyna Maskalewicz Monika Grazyna Adamiak Óli Hjálmar Ólason Róbert Theodórsson Sigríður Ásta Vigfúsdóttir Sigurður Óli Guðmundsson Tinna Guðrún Lúðvíksdóttir Þriðjudagur 85 ára Filippus Guðmundsson 80 ára Bjarni Gíslason Guðfinna Dóra Ólafsdóttir Guðmar Guðjónsson Hólmfríður María Sigurðardóttir Jóhanna Jónasdóttir Sigurlína Konráðsdóttir Steinunn Helga Sigurðardóttir 75 ára Halldór Margeirsson Herbert Marinósson 70 ára Dóróthea Valdimarsdóttir Friðgeir Snæbjörnsson Guðbjörg Þórisdóttir Haraldur G. Harvey Jens Nielsen Linda Guðbjartsdóttir Sigurbjörg Hermundsdóttir Skúli Jóhannsson Þorbjörg Hugrún Grímsdóttir 60 ára Ásta Gunnarsdóttir Erla Hlífarsdóttir Fanney Sigurlaug Bjarnadóttir Halldór Ingimar Tryggvason Jón Olgeir Ingvarsson Ólöf Sigurrós Gestsdóttir Sigurður J. Pálmason Vigfús Gunnar Gíslason 50 ára Alda Sigrún Magnúsdóttir Aldís Björk Ægisdóttir Anna Sveinbjarnardóttir Elín Fjóla Þórarinsdóttir Gísli Tryggvason Grétar S. Sigursteinsson Halla Guðlaug Emilsdóttir Hugrún Ívarsdóttir Jimmy Ronald Routley Pétur Hákon Halldórsson Örnólfur Jónsson 40 ára Berglind Ósk Tómasdóttir Ingimar Trausti Jónsson Jóhanna Kolbrún Guðmundsdóttir Jónheiður Ísleifsdóttir Matthías Kristjánsson Napaporn Sriwilan Pawel Grzegorz Jankowski Ragnar Víðir Kristinsson Stefanía Guðrún Ástþórsdóttir Sunna Ingvarsdóttir 30 ára Anna Lilja Gísladóttir Chomphu Nuatnao Erla Magnúsdóttir Ieva Grigelionyté Ingibjörg St. Sæmundsdóttir Kristjana Þorradóttir Rajmonda Aníta Zogaj Sunna Elvira Þorkelsdóttir Tanja Björk Ómarsdóttir Tómas Aquinas Rizzo Til hamingju með daginn Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einnmánuð. Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Kristín Karlsdóttir hefur varið doktors- ritgerð sína í menntavísindum við upp- eldis- og menntunarfræðideild, menntavísindasviði HÍ. Ritgerðin nefn- ist: Námsferli leikskólabarna (Childr- en’s learning processes). Aðalleið- beinandi var dr. Leigh O’Brien, prófessor við SUNY Geneseo, Banda- ríkjunum. Meðleiðbeinandi var Jó- hanna Einarsdóttir, prófessor við HÍ. Markmið rannsóknarinnar er tví- þætt: að kanna ýmsa þætti sem hafa áhrif á námsferli ungra barna í tveimur ólíkum leikskólum; og að lýsa því af ná- kvæmni hvernig börn læra með þátt- töku í daglegu lífi leikskóla síns. Beitt er eigindlegri rannsóknaraðferð og leit- að til aðferða þjóðfræði (e. et- hnography), til að kanna þátttöku barna í daglegu starfi tveggja leikskóla. Annar skólinn starfar í anda leikskóla í borginni Reggio Emilia á Ítalíu en hinn styðst við íslenska leikskólastefnu, Hjallastefnuna. Niðurstöður benda til þess að í leikskólunum tveimur séu valdatengsl í samskiptum leikskóla- kennara og barna ólík. Þrátt fyrir þenn- an mun sýna gögnin að þátttaka barnanna (e. participation) og hneigð þeirra til náms (e. learning disposition) sé ótrúlega lík í leikskólunum. Leikskólarnir áttu það sameiginlegt að í barnahópnum fengu börnin næg tækifæri til að taka þátt í leik og sam- skiptum og finna lausnir í ýmsum aðstæðum, auk þess var í báðum skól- um beitt sérstökum aðferðum til að hvetja börn til að tjá viðhorf sín. Nið- urstöður benda til þess að dagleg reynsla barnanna, þar sem þau fá tæki- færi til að leika sér í barnahópnum, hafi meiri áhrif á nám þeirra en sértækar aðferðir sem tengjast ólíkum skóla- námskrám leikskólanna. Nýta má nið- urstöðurnar á íslenskum og alþjóð- legum vettvangi í samræðu um það hvernig skóli fyrir fimm ára börn ætti að vera. Draga má þá ályktun af rann- sóknarniðurstöðunum að ákjósanlegt sé fyrir þennan aldurshóp að vera í skóla sem sér börnunum fyrir nægum tækifærum til að leika sér og þar sem jafnframt er beitt sérstökum aðferðum til að tryggja börnunum tækifæri til að tjá hugmyndir sínar og skoðanir. Kristín Karlsdóttir Kristín Karlsdóttir er lektor við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Kristín lauk M.Ed.-prófi í uppeldis- og menntunarfræðum frá Kennaraháskóla Íslands árið 2001. Hún lauk leikskólakennaraprófi frá Gautaborgarháskóla árið 1979 og BA- gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands 1981. Kristín er forstöðumaður Rannsókn- arstofu í menntunarfræðum ungra barna (RannUng). Kristín er gift Guðmundi I. Sverrissyni lækni. Þau eiga börnin Draupni, Ólöfu Ösp, og Björn Ómar. Doktor Leður strigaskór í úrvali SMÁRALIND www.skornirthinir.is Verð: 9.995 Stærðir 36-42 Strigaskór úr leðri að innan sem utan. Mjúkur leðurinnsóli sem gerir strigaskóna einstaklega þægilega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.