Morgunblaðið - 06.06.2017, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 06.06.2017, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2017 ✝ Dóra OttesenJósafatsdóttir fæddist í Reykjavík 29. júlí 1917. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Mörk 24. maí 2017. Foreldrar henn- ar voru Sigríður Jónasdóttir, f. 18. nóvember 1880, frá Galtarholti í Borg- arhreppi á Mýrum, d. 25. janúar 1936, og Jósafat Sigurðsson, f. 6. maí 1876, frá Miðhúsum í Álftaneshreppi á Mýrum, d. 31. desember 1967. Dóra átti níu systkini. Þau voru 1) Óskar Jónas, f. 17. janúar 1905, d. 12. júlí sama ár. 2) Stef- anía Ósk, f. 1. júní 1906, d. 14. mars 1986. 3) Þórunn, f. 14. um á Akranesi, f. 22. nóvember 1894, d. 9. maí 1974, og Jónas Magnússon, f. í Reykjavík 23. ágúst 1888, d. 17. apríl 1946. Dætur Dóru og Haraldar eru: 1) Erla, f. 2. júlí 1943, maki Sigurð- ur Einarsson, f. 7. apríl 1943. Dætur þeirra eru a) Thelma, f. 1965, maki Jón Otti Jónsson, f. 1965, börn þeirra Viktor, f. 1993, og Tara, f. 2001. b) Hrönn, f 1969, maki Haraldur V. Har- aldsson, f. 1969, börn þeirra Brynja Líf, f. 2001, og Hinrik, f. 2003. 2) Jóna, f. 11. október 1950, maki Gunnlaugur Einars- son, f. 9. nóvember 1948, d. 15. mars 2014. Börn þeirra eru a) Margrét, f. 1973, maki Sig- urhans Vignir, f. 1969, börn þeirra eru Jóna Rut, f. 1998, Tómas, f. 2004, og María, f. 2004. b) Halldór, f. 1977, maki Hildur Sveinsdóttir, f. 1981, syn- ir þeirra eru Óttar, f. 2010, Rú- rik, f. 2012, og Grímur, f. 2014. Útför Dóru fer fram frá Bú- staðakirkju í dag, 6. júní 2017, og hefst athöfnin klukkan 11. október 1907, d. 18. október sama ár. 4) Ragnhildur, f. 1. júlí 1909, d. 29. maí 1973. 5) Þórunn Jósefína, f. 26. júlí 1912, d. 10. júlí 1922. 6) Sigríður Svava, f. 9. desem- ber 1913, d. 22. maí 2004. 7) Sesselja Ottesen, f. 6. febr- úar 1916, d. 18. október 1999. 8) Pétur Ottesen, f. 22. júlí 1919, d. 10. október 2006. 9) Haukur Ottesen, f. 24. október 1922, d. 16. júní 2016. 25. maí 1940 giftist Dóra Har- aldi Jónassyni, f. í Reykjavík 25. júlí 1918, d. 10. september 1984. Foreldrar hans voru hjónin Vil- helmína Tómasdóttir frá Sönd- Nú hefur elskuleg tengda- móðir mín kvatt þennan heim. Það eru rúm 50 ár síðan ég kynntist Dóru, þegar við Erla dóttir hennar fórum að draga okkur saman. Dóra var heima- vinnandi alla tíð og annaðist Halla og dætur sínar tvær, hélt heimilinu tandurhreinu og snyrtilegu. Henni var snyrti- mennskan í blóð borin og var alltaf vel til höfð og flott kona. Hún var næstyngst systkina sinna og hélt miklu og góðu sambandi við þau alla tíð, ræddi nánast daglega við eitthvert þeirra, en þau eru nú öll látin. Ég stend í mikilli þakkar- skuld við Halla og Dóru, ekki aðeins tóku þau mig inn á heim- ili sitt einu sinni heldur tvisvar, gættu dætra okkar þegar á þurfti að halda og studdu okkur alla tíð. Við fjölskyldan eigum margar góðar minningar frá aðfanga- dagskvöldum í Ljósheimunum þegar Dóra vildi ganga frá öllu eftir hátíðarmatinn og hafa sig til áður en jólapakkarnir yrðu opnaðir. Á meðan biðu barna- börnin óþreyjufull í meira lagi. Í áraraðir fóru Halli og Dóra suður á Spán, á Costa del Sol, og dvöldu þar í mánuð í senn hvert haust, oftast á íbúðarhótelinu El Remo, sem margir eldri sólar- landafarar kannast sjálfsagt við. Enn fremur fóru þau í heim- sóknir til systurdóttur Dóru sem búsett var í Bandaríkjunum. En lífið var ekki alltaf dans á rósum hjá Dóru. Í ágúst 1984 var öll fjölskyldan saman komin á Costa del Sol, Dóra og Halli, dæturnar, tengdabörn og barna- börn og nutu lífsins saman í þrjár vikur. Skömmu eftir brott- för fjölskyldnanna heim fékk Halli hjartaáfall og lést þar ytra. Þá kom best í ljós hversu sterk og æðrulaus Dóra gat verið, hún huggaði og hughreysti sína nán- ustu og var eins og klettur á þessum sorgartíma. Dóra bjó áfram í Ljósheim- unum eftir andlát Halla en færði sig um set og flutti í litla íbúð á sömu hæð sem hentaði henni vel og dvaldi þar í áraraðir þar til hún flutti fyrir þremur árum á hjúkrunarheimilið Mörk. Þar leið Dóru mjög vel og talaði oft um hversu allir væru góðir við sig bæði starfsfólk og heimilis- fólk og viljum við færa starfs- fólki heimilisins alúðarþakkir fyrir frábæra umönnun og vin- semd sem henni var sýnd. Blessuð sé minning Dóru. Þinn tengdasonur, Sigurður Einarsson. Elsku amma Dóra, við kveðj- um þig með bæninni sem þú hafðir alltaf hjá þér. Guð, gefðu mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. Að lifa einn dag í einu, njóta hvers andartaks fyrir sig, viðurkenna mótlæti sem friðarveg, með því að taka syndugum heimi eins og hann er, eins og Jesús gerði en ekki eins og ég vil hafa hann og treysta því að þú munir færa allt á réttan veg ef ég gef mig undir vilja þinn svo að ég megi vera hæfilega hamingjusamur í þessu lífi og yfirmáta hamingjusamur með þér þegar að eilífðinni kemur. Amen. Hvíldu í friði, elsku amma Dóra. Takk fyrir allt. Thelma og Hrönn. Elsku fallega amma mín. Ég veit að þú ert sátt við hvíldina. Þú varst svo oft búin að segja mér að þetta væri alveg komið gott. Að þú værir svo sátt við allt og alla og þakklát fyrir lífið og fólkið þitt. Að ná næstum 100 ára aldri er stórmerkilegt og að hugsa til þess hvernig heimurinn hefur breyst á þeim tíma sem þú lifðir er ótrúlegt. Ég veit að lífið var ekki alltaf dans á rósum þegar þú varst að alast upp í stórum systkinahópi á þessum árum. Þegar þú kynntist afa varð hann stóra ástin í lífi þínu. Þið voruð stórglæsilegt par og bjugguð um ykkur í stórri glæsilegri íbúð í Ljósheimunum. Þið ferðuðust mikið og það var alltaf veisla þegar þið komuð frá Spáni eða Ameríku. Til ykkar í Ljósheim- ana var alltaf gaman að koma og þaðan á ég svo margar góðar minningar. Við krakkarnir fund- um okkur alltaf eitthvað til að dunda við. Lágum á gólfinu og hlustuðum á kassettur með Elly Vilhjálms og Villa Vill, hjálpuð- um afa að telja mynt og losa frí- merki af umslögum og setja inn í frímerkjabækurnar, lékum okk- ur með litla leikhúskíkinn sem var uppspretta margra leikja og fengum mjólk og kex hjá þér þess á milli. Hjá ykkur á ég líka minn- ingar um æsku minnar jól. Minningu um jól sem voru svo stórkostleg. Allir samankomnir í matarveislu, hrúga af pökkum við jólatréð og lætin eftir því þegar pakkarnir voru opnaðir. Þú í útsaumaða stólnum þínum eins og drottning og alltaf svo flott og vel til höfð. Þú varst allt- af svo fín og smekklega klædd. Með flottar neglur og varalit og fórst í lagningu þannig að hárið var alltaf fullkomið. Og þannig varstu fram á síðasta dag. Það eru ekki nema um þrjú ár síðan þú fluttir úr Ljósheimun- um og fórst á hjúkrunarheimilið Mörk. Mér fannst svo notalegt að vita af þér þar með mömmu og ég veit að þú varst svo glöð og þakklát fyrir að geta verið þarna hjá henni og Hauki bróð- ur þínum. Jákvæðni þín og þakklæti smitaði fólkið í kringum þig og ég upplifði alltaf að allir vildu allt fyrir þig gera. Þú varst bara þannig, elsku amma. Ég kveð þig með söknuði og þakklæti, elsku amma mín. Hvíl í friði. Margrét Gunnlaugsdóttir. 29. júlí næstkomandi hefði Dóra amma, eins og hún var alltaf kölluð, orðið 100 ára. Síð- ustu ár talaði hún alltaf um að þetta væri alveg orðið gott. Henni liði vel, skorti ekkert og væri sátt við menn og dýr. Þetta lýsir Dóru ömmu ákaflega vel. Hún var alltaf jákvæð og fann jákvæðar hliðar á öllu. Amma var glæsileg kona og ávallt vel til höfð allt til síðasta dags, fór í lagningu einu sinni í viku og steig varla út úr húsi nema setja á sig varalit. „Það er aldrei að vita hvern maður hittir í lyft- unni,“ sagði hún alltaf og brosti. Amma var með mjög smitandi bros sem bræddi alla og brosið og jákvæðnin varð til þess að öll- um líkaði ákaflega vel við ömmu og vildu allt fyrir hana gera. Við amma höfum átt margar góðar stundir saman og margar þeirra í Ljósheimunum þar sem amma og afi bjuggu. Eftir að afi dó þegar ég var sjö ára bjó amma þar áfram, allt þar til hún varð 97 ára, geri aðrir betur. Það er því heill hellingur af minningum sem rifjast upp og ómögulegt að koma þeim öllum fyrir hér. Það mátti t.d. aldrei byrja að opna pakkana á jól- unum fyrr en amma var búin að taka af sér svuntuna og setja á sig varalit. Það voru ávallt erf- iðar mínútur fyrir ungan og óþreyjufullan pjakk eins og mig. Þegar ég var unglingur fór ég oft í heimsókn til ömmu. Á jól- unum setti ég saman jólatré fyr- ir hana og jólaljós á svalirnar á meðan við hlustuðum á jólatóna Bings Crosby, sem var og er í uppáhaldi hjá okkur báðum. Þetta var jólahefðin okkar. Það var líka alltaf notalegt að kasta sér í sófann hjá ömmu og taka smá lúr. „Halldór, næst þegar þú kemur skaltu koma við og kaupa handa okkur kjúkling.“ Amma var mjög hrifin af kjúk- lingi og ég hef ekki tölu á því hversu oft við sátum í eldhúsinu, spjölluðum saman og borðuðum Kentucky-kjúkling. Þarna fór amma oft á flug og sagði mér frá alls konar hlutum sem mér fannst ákaflega gaman. Mér fannst amma alltaf ótrúlega fyndin og við hlógum mikið sam- an. Ég man að eitt skiptið talaði amma mikið um ástina og gaf mér heilræði sem ég hef ávallt haft fyrir mig og mun gera það áfram. Það var mikið sem maður lærði af þessum samtölum okkar í gegnum tíðina. Að hafa átt góðan vin eins og ömmu er mér ákaflega dýrmætt. Á stórum stundum í mínu lífi hefur mér alltaf fundist ómiss- andi og gaman að segja ömmu fréttirnar. Það lifnaði alltaf svo yfir henni og hún varð ákaflega ánægð og stolt. Amma var afar stolt af fjölskyldu sinni og ekki síst öllum barna- og barnabarna- börnum og fylgdist vel með þeim öllum í leik og starfi. Ég veit að ömmu líður vel núna, er í góðum félagsskap og fylgist með okkur öllum. Takk fyrir heilræðin, allan kjúklinginn og samverustundirn- ar, elsku amma mín. Halldór. Dóra Ottesen Jósafatsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma Dóra. Nú ert þú farin frá okkur. Það var svo gaman að koma í heimsókn til þín, allt svo fínt hjá þér og þú svo hress, skemmtileg og fyndin. Þú varst alltaf svo sæt og fín, með bleikt naglalakk og bleikan varalit í stíl. Við söknum þín en vitum að þú ert sátt við Guð og menn eins og þú sagðir alltaf. Hvíldu í friði, elsku besta langamma okkar. Þín, Viktor, Tara, Brynja Líf og Hinrik. ✝ FranklínAndri Bene- diktsson fæddist að Steinadal í Fellshreppi í Strandasýslu 31. júlí 1941. Hann lést 25. apríl 2017 á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Foreldrar hans voru Benedikt Þorbjarnarson, f. 20. sept- ember 1898, d. 10. janúar 1948, frá Steinadal, og Að- alheiður Franklínsdóttir, f. 9. júní 1914, d. 13. september dóttir, f. 2. apríl 1949, börn hennar frá fyrri sambúð með Ara Ólafssyni, f. 1950, 1) Hösk- uldur Þór, f. 1971, kvæntur Halldóru Reykdal Tryggva- dóttur, f. 1971, börn þeirra Hafsteinn Reykdal, Tryggvi Ólafur Reykdal og Hafey Mar- grét Reykdal. 2) Hildur Björg, f. 1973, gift Guðna Hafsteins- syni, f. 1971, synir þeirra Haf- steinn, Óttar Atli og Björgvin Nói. Börn Franklíns og Hall- fríðar eru 1) Andrea Hlín, f. 1975, gift Jóni Sindra Stef- ánssyni, f. 1975, börn þeirra Jóhann Andri, faðir Þórarinn Jóhannsson, f. 1972, Haddý María og Stefán Muggur. 2) Ragnar Friðrik, f. 1977, sam- býliskona Bergljót Ólafía Ein- arsdóttir, f. 1987, börn þeirra Benedikt Kári, móðir Val- gerður Rós Karlsdóttir, f. 1986, Ragnhildur Svanhvít og Guðmundur Franklín. Franklín bjó í Steinadal fram yfir fermingu þá fluttist fjölskyldan á Akranes, vann hann þar við hin ýmsu störf. Rúmlega tvítugur flutti Franklín til Þorlákshafnar og keypti sér hús við Skálholts- braut og í kaupunum fylgdi sjoppa, rak þá sjoppu í þrett- án ár. Franklín og Hallfríður keyptu tveggja hæða hús við Knarrarberg 2 og var húsið bæði heimili þeirra og vinnu- staður í tæpa fjóra áratugi, það var sannkallað fjöl- skyldufyrirtæki. Franklín naut sín hvergi betur en fyr- ir aftan búðarborðið. Síðustu ár átti hann við veikindi að stríða sem ágerðust síðasta sumar og lést hann af völd- um þeirra. Útförin fór fram í kyrrþey. 2012, frá Litla- Fjarðahorni. Systkini hans, Þor- björn Jón, f. 1934, Hallfríður Krist- rún, f. 1936, d. 2008, Jón Andrés, f. 1938, d. 2016, Sverrir Gunnar, f. 1943, Stefán Heið- ar, f. 1946. Fyrri eiginkona Alda Kjartans- dóttir, f. 1942, þau skildu. Son- ur þeirra er Benedikt Heiðar, f. 1967. Eftirlifandi eiginkona hans er Hallfríður María Höskulds- Elsku afi minn, núna getum við ekki rifist og þrætt um hluti eins og þér fannst gaman að, sjá hversu þrjósk ég var og að ég vildi ekki hafa rangt fyrir mér. Ég mun sakna þess að sjá glottið á þér þegar þú fannst eitthvað sniðugt til að stríða mér með, til dæmis með að setja mynd af mér í lyklakippu og segjast hafa selt strákunum í þorpinu til þess að fá viðbrögð frá mér sem þú svo sannarlega fékkst. Þú hættir ekki að gantast þrátt fyrir öll veikindin. Sakna þín, þú kenndir mér svo margt, eins og að láta ekki orð frá fólki hrjá mig svona og ekki sýna þeim viðbrögð því þá vinna þau en ekki ég, því sama hvað fólk sagði um þig þá varstu alltaf bara þú og því varstu ein af mínum helstu fyrirmyndum. Þú reyndir að múta mér til að borða fisk fyrir pening sem gekk ekki svo vel, en stundum náðirðu að ljúga að mér hvað væri í matinn til að fá mig til að smakka eitt- hvað nýtt eins og önd sem ég borðaði með bestu lyst. Ég notaði stundum að þú myndir taka í strákana ef þeir myndu stela hjólinu mínu og stríða mér. Þú gerðir allt fyrir okkur systkinin. Fyrsta vinnan mín var hjá ykkur í búðinni og ég átti alltaf sama- stað hjá ykkur ömmu eftir skóla. Minning þín lifir. Þín, Haddý María. Elsku hjartans Franklín minn. Mikið er skrýtið að hugsa til þess að þú sért farinn frá okkur. Þú munt alltaf eiga risastóran stað í hjarta mínu enda fór ég snemma að venja komur mínar í Knarr- arberg 2 og leið mikið vel þar. Það var jú ekki langt að fara, eitt létt skokk yfir götu og dyrnar alltaf opnar mér. Þú opnaðir ekki bara dyrnar að heimilinu þínu, sjoppan þín var mér alltaf opin, sem betur fer segi ég nú bara því þú geymdir lykilinn að heimilinu okkar á Knarrarbergi 1 í peningakassan- um þar. Ég trítlaði ósjaldan yfir í sjoppuna til þín þegar ég hafði læst mig úti og þú áttir það til að hlæja að mér fyrir það. Elsku Franklín, þú varst mér alltaf svo ofboðslega góður. Ef þú og Haddý heyrðuð af því að litla prinsessan á Knarrarbergi 1 væri lasin þá var samstundis sendur poki yfir götuna stútfullur af góð- gæti og nýjustu VHS-myndun- um. Ég átti mér þann draum heitastan sem barn að verða sjoppukona þegar ég yrði stór, ég vildi verða eins og Franklín. Auð- vitað létuð þið Haddý þann draum rætast þegar mér, á ung- lingsaldri, var boðin vinna á laug- ardögum í sjoppunni. Þú hafðir mikið gaman af hversu matvönd ég var sem barn og þú varst ekki í vandræðum með það hvernig hægt væri að koma lýsi ofan í mig. Þú borgaðir mér bara tvo gullpeninga fyrir og ég var alsæl þó ég hafi kúgast á sopanum þér til mikillar gleði. Hingað til hefur engum öðrum tekist þetta og ég hyggst hafa það þannig. Þetta var okkar. Ég biðst innilegrar afsökunar á því að hafa ekki tekið skötuboðinu þínu þegar þú bauðst mér aftur tvo gullpeninga fyrir að fá mér skötubita. Ætli ég fái mér ekki einn skötubita þér til heiðurs um næstu jól. Ég skola því svo að sjálfsögðu niður með kóki í gleri og lakkrísröri. Elsku Franklín, nú ertu kom- inn til elsku Heiðu mömmu þinn- ar. Þú mátt knúsa hana fast frá mér. Hvíldu í friði elsku vinur. Takk fyrir að vera alltaf svona góður við mig. Ég held áfram að passa nafnið þitt. Anna Margrét Káradóttir (Anna Magga). Í huga mínum himinninn er fjarri, og held ég fái að vera hér um sinn. Þó englar Guðs mér þrái að vera nærri, þeir fá þó bara að svífa um huga minn. Þín návist Guð mér gefur allt svo mikið, og gakk þú með mér ævi minnar veg. Ég vildi þú gætir aldrei frá mér vikið, og bið þú verndir mig meðan ég er. Það veit ei nokkur ævi sína alla, og án þín Guð er lífið búið spil. Því á þig einhver engillinn mun kalla, þá endar þetta líf ef rétt ég skil, Þú velja skalt þann veg sem virðist greiður, þinn vilji mun þig leiða í rétta átt. Lof hjarta þínu að tala sértu leiður, Og lífi þínu tak í gleði og sátt. Svo vil ég minna á ljósið sem þér lýsir, þá leið sem Guð þér fylgir alla tíð. Þú anda hans í hjarta þínu hýsir, og heldur fast í hann um ár og síð. Það veit ei nokkur ævi sína alla, og án þín Guð er lífið búið spil. Því á þig einhver engillinn mun kalla, þá endar þetta líf ef rétt ég skil, (Óli Trausta) Minning þín lifir hjá okkur uns við hittumst á ný. Takk fyrir okk- ur. Þín, Andrea, Sindri, Jóhann Andri og Stefán Muggur. Franklín Andri Benediktsson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.