Morgunblaðið - 06.06.2017, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 06.06.2017, Blaðsíða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2017 Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Davíð útfararstjóri 551 3485 - www.udo.is Óli Pétur útfararstjóri ✝ Elísabet AldaPétursdóttir fæddist á Hraun- um í Fljótum 15. janúar 1952. Hún lést á líknardeild Landspítalans 10. maí 2017. Hún var dóttir hjónanna Péturs Kristófers Guð- mundssonar, bónda á Hraunum, f. á Refsteinsstöðum í Skaga- firði, og Áslaugar Rósu Pálmadóttur, bónda og hús- þau bændur að Hraunum. Börn Elísabetar eru: 1) Berglind Rós Magnúsdóttir, doktor í menntunar- og upp- eldisfræðum. Eiginmaður hennar er Ásgrímur Ang- antýsson, doktor í málvís- indum. Þeirra dætur eru: a) Auður og b) Björk. 2) Helen Inga Sigurðardóttir, hún lést tæplega tveggja ára að aldri. 3) Telma Ingibjörg Sigurð- ardóttir læknir. Eiginmaður hennar er Ívar Örn Lárusson verkfræðingur. Þeirra dætur eru a) Helen og b) Arna Kar- en. 4) Björgúlfur Kristófer Sigurðsson sálfræðinemi. Eft- irlifandi eiginmaður Elísabet- ar er Sigurður Björgúlfsson arkitekt. Útför Elísabetar fór fram í kyrrþey. freyju, f. á Reykjavöllum í Skagafirði. Elísabet var önnur af þremur börnum þeirra. Elst er Björk, handavinnukenn- ari og dúnbóndi, eiginmaður henn- ar er Friðrik Gylfi Traustason, dún- bóndi og bifreiða- stjóri. Yngstur er Guðmundur Viðar, kona hans er Anna Fríða Kristinsdóttir og eru Við Elsa frænka mín, sem nú hefur lagt aftur augun í hinsta sinn, tengdumst ungar nánum böndum. Við vorum systradætur og þekktumst nær alla ævi. Afi okkar og amma, Pálmi Sveins- son og Guðrún Andrésdóttir, voru bændur að Reykjavöllum í Skagafirði. Þaðan kemur glað- værðin, söngurinn, dugnaðurinn, hagmælskan og þrjóskan sem fylgir mörgum afkomendum þeirra. Ég var í sveit að Hraun- um í Fljótum hjá foreldrum Elsu, þeim Pétri Guðmundssyni og Rósu Pálmadóttur. Þar var gott að vera, margt brallað og sungið á kvöldin og þandi Elsa þá nikkuna eins og enginn væri morgundagurinn. Hún var skemmtilegasta stelpan í sveit- inni, og langfallegust. Elsa var glæsileg svo eftir var tekið og hrókur alls fagnaðar í vina hópi. Leiftrandi húmorinn var aldrei langt undan, jafnvel til hinstu stundar. Hún var traust vinkona, ráðagóð og hlý en flík- aði ekki tilfinningum sínum. Hún var sigld eins og sagt er, bjó lengi í Danmörku ásamt Sig- urði Björgúlfssyni manni sínum og síðar, eftir heimkomuna, fóru þau m.a. til Indlands og Víet- nams. Ein langferð enn var i deiglunni þegar veikindin tóku völdin. Frænka mín barðist eins og hetja í rúmt ár við illvígan sjúk- dóm, en allt kom fyrir ekki. Nú er dillandi hláturinn þagnaður en dýrmætar minningar lifa. Lífið getur verið ósanngjarnt og lætur erfiðum spurningum ósvarað. Ég bið mína engla að gefa mér gæsk- unnar byr er grátandi sit ég í angist og stari í tómið ég get ekki sofið og vakandi vitund mín spyr: Hvað var það sem lét ykkur slíta upp fegursta blómið? (Kristján Hreinsson) Samúðarkveðjur sendum við Þorvaldur Sigurði, Björgúlfi, Telmu, Berglindi, tengdabörn- um, barnabörnum og öðrum ást- vinum hennar. Anna Karitas Bjarnadóttir Yndisleg Elísabet Alda Pét- ursdóttir hefur kvatt þennan heim alltof fljótt eftir erfið veik- indi. Og sorgmædd verður okkur vinum hennar hugsað til baka þegar við kynntumst við nám er- lendis. Við vorum ung og áttum allt lífið framundan. Við vorum í námi í fallegri Danmörku. Við Ólafur Árnason, barnsfaðir minn, bjuggum sam- an í Árósum, nýútskrifuð úr menntaskólanum og vinur okkar Sigurður Björgúlfsson var einn- ig í Árósum í námi og á tímabili bjó hann hjá okkur Óla áður en Elísabet kom út til Árósa. Þann- ig mynduðust falleg tengsl á milli okkar sem aldrei verða frá okkur tekin. Það var svo fallegt að sjá hvað Siggi var yfir sig ást- fanginn af Lísu. Hann sagði okk- ur og ljómaði allur að hún væri fallegasta kona sem hann hefði á ævi sinni séð og þau voru greini- lega alveg sköpuð hvort fyrir annað því þau voru miklir sálu- félagar. Ég man eins og það hefði gerst í gær þegar ég sá Lísu fyrst. Hún var svo ótrúlega fög- ur, með tindrandi augu og svo skemmtilegt glimt í auga og bros sem bræddi alla nærstadda. Lísa var alveg geislandi í feg- urð sinni og hlýju og vakti at- hygli alls staðar þar sem hún kom. Hún var eldklár og það var sama hvað hún tók sér fyrir hendur, allt lék í höndunum á henni. Og svo seinna sem móðir var hún alveg einstök, því hún var bæði einstaklega ástrík, þol- inmóð og gefandi. Lísa skilur eftir sig fallegar minningar fyrir okkur öll sem fengum að kynnast henni. Við erum ríkari fyrir vikið, betri manneskjur og þakklát fyrir það. Til Sigga og barnanna þeirra, Telmu og Björgúlfs, sendi ég mínar hugheilustu sam- úðarkveðjur. Megi Guð vera með ykkur á þessum erfiða tíma. Valgerður Matthíasdóttir. Kær samstarfskona og vin- kona til margra ára Elísabet Alda Pétursdóttir hefur nú kvatt þennan heim langt fyrir aldur fram eftir harða glímu við ill- vígan sjúkdóm. Enn er skarð höggvið í okkar góða hóp starfs- manna sem unnum saman hjá embætti sýslumanns í Skógar- hlíð í Reykjavík en innan við ár er síðan við kvöddum aðra sam- starfskonu af sama starfsvett- vangi og á sama aldri sem einnig féll frá af völdum illvígs sjúk- dóms. Það er ekki á færi nokk- urs manns að skilja slíkt. Elísabet barðist um eins árs skeið af hörku við veikindi sín en varð að lokum að láta í minni pokann. Eftir situr mikill missir og sár söknuður. Þessi einstak- lega glæsilega og fallega kona var góður og traustur félagi, skemmtileg og ávallt hrókur alls fagnaðar í leik og starfi. Snögg og hnyttin tilsvör hennar voru einstök og eftirminnileg og oft var glatt á hjalla í kaffihorninu okkar góða þegar stund gafst milli stríða í dagsins önn. El- ísabet hafði einstakt lag og vilja til að leysa úr fyrirspurnum þeirra sem þurftu að leita til embættisins. Með kurteisi, alúð og hlýju lagði hún sig alla fram við að leiðbeina og aðstoða eins og framast var unnt í erilsömu og vandasömu starfi. Það var svo innilega vonað og ráð fyrir því gert að hún kæmi aftur til stafa á nýja staðinn og hún hefði svo sannarlega gert vinnustaðnum gott með sínum létta húmor og jákvæðni sem alltaf einkenndi hana. Á lífsleið- inni langri má búast við höggum og ekki fór hún varhluta af þunga þeirra þó lífsgleðin hafi af henni skinið alla jafna. Við minn- umst líka með hlýju og þakklæti allra góðu stundanna í fé- lagsskap sem við nokkrar fyrr- verandi og núverandi samstarfs- konur áttum fyrir utan vinnutíma, þar var nú ekki rúm fyrir annað en gleði og kátínu, en minningin lifir og eins og ein úr hópnum orðaði það þá var hún Elísabet stjarnan sem alltaf skein skærust. Það eru orð að sönnu og þessi stjarna mun áfram skína skært. Elsku Elísabet, vinnustaður- inn er fátæklegri án þín, hafðu þökk fyrir samfylgdina og hvíl í friði kæra vinkona. Okkar innilegustu samúðar- kveðjur til Sigga og fjölskyld- unnar allrar. Fyrir hönd samstarfsfólks hjá Sýslumanninum á höfuðborgar- svæðinu Þuríður Árnadóttir. Af öllum þeim gæðum sem okkur veitir viturleg forsjá til ánægjuauka er vináttan dýrmætust. (Epikuros) Það eru orðin mörg árin síðan að við systur kynntumst Elsu. Strax á unglingsaldri tókst með okkur góð vinátta. Stundum gat liðið langur tími að við hittumst en alltaf var vináttan traust. Síð- ustu ár áttum við því láni að fagna að sjást nokkuð reglulega og var stofnað til góðs vináttu- hóps sem stóð fyrir mörgum hittingum. Þar ríkti gleðin og slegið var á létta strengi. Mikill trúnaður ríkti á milli okkar vinkvennanna og gátum við létt á hjartanu við hver aðra vissar um að algjör trúnaður ríkti. Elsa hafði oft frumkvæði að því að við kæmum saman. Síðast þegar við vorum allar mættar hressar og kátar hafði Elsa á orði að við ættum að hitt- ast mikið oftar. Við værum jú allar orðnar miðaldra og við hefðum allar svo gott af samver- unni við hver aðra. Enga okkar gat þá grunað að svo skyndilega yrði höggvið í þennan vin- astreng. Það var dýrmætt að eiga Elsu sem vinkonu. Hún var traust, úrræðagóð en hún opn- aði ekki hjarta sitt fyrir mörg- um. Við vinkonur vorum í þeim hópi sem hún treysti. Elsa var alltaf hrókur alls fagnaðar, sá ætíð spaugilegar hliðar á lífinu og húmoristi var hún mikill. Við vorum afar stoltar af þessari glæsilegu vinkonu okkar. Alls staðar vakti hún athygli og minnisstætt er þegar hún hélt upp á 60 ára afmælið og var hún þá tignarleg sem aldrei fyrr. Það var því svo að ut- anaðkomandi uppistandari sagðist ekki trúa því að um sex- tuga konu væri að ræða þessi kona væri ekki degi eldri en 40 ára. En fegurð hennar var ekki bara að utan heldur var sál hennar einnig falleg. Það var ætíð gott að vera í samvistum við vinkonu okkar og eðliskostir hennar voru þannig að hún var ætíð gefandi en við hinar þiggj- endur. Sorgin reisir hallir í hafdjúpi þinna augna hafdjúpi hreinu, bláu meðan hljóðlátt þú grætur. Útlæg verður gleðin sem áður þar bjó. Ekki tjaldar sorgin til einnar nætur. segir skáldið Hannes Péturs- son. Það var öllum mikið reiðar- slag þegar Elsa veiktist fyrir rúmu ári síðan. Skyndilega var sem dregið fyrir sólu og hún þurfti að leita sér lækninga. Í fyrstu var haldið að ekki væri um alvarleg veikindi að ræða en síðar kom annað í ljós. Það var ekki annað hægt en að dást að henni hvað hún tók tíðindunum um alvarleg veikindi með miklu æðruleysi. En það var sárt að horfa upp á það hvað baráttan var miskunnarlaus. Hvert áfall- ið rak annað og ekki var um neina uppstyttu að ræða. En lengi var vonin til staðar um betra líf og meiri lífsgæði. Siggi maðurinn hennar stóð sem klettur við hlið konu sinnar í þessari baráttu og var öllum stundum hjá henni. Björk systir hennar kom að norðan og vék ekki frá systur sinni í nokkra mánuði. Að lokum viljum við þakka elsku Elsu okkar ljúfar sam- verustundir á mörgum liðnum árum og vottum við Sigga, Berglindi, Thelmu, Björgólfi og fjölskyldunni allri okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Fljúgðu hátt fagra sál. Sigrún J. Þórisdóttir Sigfríður Þórisdóttir. Elísabet Alda Pétursdóttir Faðir okkar, BIRGIR OTTÓSSON, lést mánudaginn 15. maí. Útförin hefur farið fram. Fyrir hönd fjölskyldna okkar, Gunnar Birgisson Gylfi Birgisson Unnur Birgisdóttir Kjartan Birgisson Guðlaug Hildur Birgisdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, BENEDIKTS SVEINSSONAR, skipasmiðs og aðalbókara, Hraunvangi 1, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Landspítalans við Hringbraut, deild 13E. Þórdís Kristinsdóttir Steinunn M. Benediktsdóttir Sverrir B. Friðbjörnsson Svava B. Benediktsdóttir barnabörn og langafabörn Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ERLA AUÐUR STEFÁNSDÓTTIR, Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili Akranesi, andaðist miðvikudaginn 31. maí. Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 9. júní klukkan 13. Sigurgeir Sveinsson Dröfn Viðarsdóttir og ömmubörn Ástkær sonur okkar, bróðir, barnabarn, frændi og vinur, GÍSLI ÞORLÁKUR JÓNSSON, Árhóli, sem lést 27. maí, verður jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju föstudaginn 9. júní klukkan 13. Jón Emil Gylfason Sigríður Kristinsdóttir og fjölskylda ÞÓRUNN INGÓLFSDÓTTIR FLYGENRING, Garðstíg 5, Hafnarfirði, lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund föstudaginn 26. maí. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Starfsfólk Grundar fær alúðarþakkir fyrir góða umönnun. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Kristín Magnúsdóttir Sigurður Helgason Ásta Magnúsdóttir Oddur Borgar Björnsson Okkar elskulega eiginkona og vinur, móðir, tengdamóðir, amma og dóttir, KRISTBJÖRG DAGRÚN ÞORBJARNARDÓTTIR, Hraunhvammi 2, Hafnarfirði, lést á heimili sínu 1. júní síðastliðinn í faðmi fjölskyldu sinnar. Hún verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju föstudaginn 9. júní klukkan 13. Blóm og kransar afþakkað en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Karítas og Krabbameinsfélagið. Sigurður Elvar Sigurðsson Anna Lilja Sigurðardóttir Sæmundur H. Gíslason Kristín Elva Sigurðardóttir Pétur Valur Pétursson Esther Ósk Sigurðardóttir Jón Símon Ottósson barnabörn Dagrún Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.