Morgunblaðið - 06.06.2017, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.06.2017, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2017 Bylting í hreinlæti! Sími 480-0000 sala@aflvelar.is www.iteamglobal.com Hafðu samband og pantaðu kynningu fyrir þitt fyrirtæki Auðveldari og betri þrif, sparar tíma og léttir lífið Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Eyjafjarðarsveit á mikla inn- stæðu til vaxtar og viðgangs,“ segir Ólafur Rúnar Ólafsson, sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar. Íbúar í sveitarfélaginu, sem er hinn víðfeðmi dalur suður af Ak- ureyri, eru í dag alls 1.015 og hef- ur talan verið á því róli um all- langt skeið. Í dag er fólki þó heldur að fjölga, þar sem þétt- býlið í Hrafnagilshverfi er að efl- ast. Kemur þar til að á svæðinu voru boðnar byggingarlóðir fyrir einu og hálfu ári á hagstæðum kjörum í skamman tíma. Nokkrir nýttu sér það og eru langt komnir með sín hús. Í kjölfarið hafa fleiri keypt lóðir, án sérkjara. Í dag eru þar um tíu einbýlishús í smíðum og fleiri væntanleg auk þess sem raðhúsalóðir fyrir minni íbúðir eru til reiðu. Traustir innviðir „Fólkið sem flytur í þetta litla samfélag – með gæðunum sem því fylgja – sækir gjarnan vinnu á Akureyri. Þetta er í raun eitt atvinnusvæði því Akureyr- ingar sækja líka vinnu fram í Eyjafjarðarsveit, svo sem í skólana hér og á Kristnesspítala svo eitthvað sé nefnt. Þannig myndar Eyjafjörður eina heild þar sem hvert sveitarfélag nýtur nálægðarinnar við önnur,“ segir sveitarstjórinn. Í Eyjafjarðarsveit eru, að sögn sveitarstjórans, til staðar traustir innviðir alls þess sem hvert samfélag krefst. Í Hrafna- gilsskóla eru um 150 nemendur í 1.-10. bekk og fyrirhafnarlítið væri þótt þeim fjölgaði eitthvað. Á sömu torfu eru leikskóli, Tón- listarskóli Eyjafjarðar, félags- aðstaða, íþróttahús og sundlaug sem þykir einkar fjölskylduvæn. Landbúnaður er hryggj- arstykkið í atvinnulífi í Eyjafjarð- arsveit. Fróðum mönnum telst svo til að landbúnaður sé stundaður á um 70 bæjum í sveitinni. Þar af eru kúabúin rúmlega 40. Um þessar mundir er verið að end- urbyggja nokkur fjós og önnur hafa verið endubætt vegna nýrra krafna um aðbúnað búpenings. Almenn eru búin nokkuð stór, og nærri lætur að í Eyjafjarðarsveit séu framleidd um 10% af allri mjólk á Íslandi, sem svo fer til vinnslu hjá MS á Akureyri. Ferðaþjónustan er líka í sókn og oft starfsemi smærri aðila, sem gjarnan hafa nýtt gömul íbúðar- hús eða fjós, og breytt í gistihús eða veitingastofur. „ Hér eru ekki ferðaþjónustufyrirtæki með risa- hótel, enn sem komið er að minnsta kosti. Þetta eru að stofni til fjölskyldufyrirtæki sem sprott- ið hafa af frumkvæði og útsjón- arsemi Eyfirðinga,“ segir sveit- arstjórinn. Handverk á heimavelli Aðra helgina í ágúst á hverju sumri er handverks- og hönn- unarhátíð á Hrafnagili, sem fjöl- menni sækir. Handverksfólk úr öllum áttum sýnir þar og selur fallega muni gerða af meist- arahöndum og hönnun. „Allt starf við þessar sam- komur, allt frá undirbúningi til enda, er í höndum heimafólks. Við þurfum ekkert út fyrir sveitina og allt er þetta tekið í sjálfboða- liðsstarfi. Ágóðanum er svo skipt milli félaga sem starfa hér í sveit- inni, til að mynda björgunarsveit- arinnar, ungmennafélagsins, kvenfélaga, hestamannafélagsins og Lionsklúbbsins, sem öll vinna mikilvægt starf. Í því finnst mér endurspeglast samheldni meðal íbúanna og styrkur samfélagsins þegar á reynir,“ segir Ólafur Rúnar - sem tók við sveitarstjóra- starfinu fyrir rúmu ári. Hann er Akureyringur en sem strákur var hann í sveit „frammi í firði“ sam- kvæmt norðlenskri málhefð – og er því á heimavelli. - Þess má og geta að Ólafur Rúnar er bróðir Ármanns Ólafssonar bæjarstjóra í Kópavogi. Að vera framkvæmda- stjóri sveitarfélags virðist því vera í blóðinu, en þetta er hlið- stæðulaust á landinu. Ólafur Rúnar Ólafsson, sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sveitasæla Þar endurspeglast samheldni meðal íbúa og styrkur samfélagsins þegar á reynir,“ segir Ólafur Samfélag með gæðum  Ólafur Rúnar Ólafsson er fæddur árið 1975. Hann er Ak- ureyringur, er hrl. og var í heil- an áratug svæðisstjóri Pacta lögmanna á Norðurlandi. Tók við starfi sveitarstjóra á sl. ári.  Hefur verið formaður sókn- arnefndar Akureyrarkirkju og setið í yfirkjörstjórn. Stunda- kennari við Háskólann á Akur- eyri. Kona hans er Eyrún Krist- ína Gunnarsdóttir og eiga þau 4 börn. Hver er hann? Rafmagn frá virkunum Orku náttúrunnar verð- ur nýtt til boranna sjö holna á Hengilssvæðinu á næstu árum og er reiknað með að boranirnar spari brennslu á yfir milljón olíulítrum miðað við hefðbundnar aðferðir. Fyrsta borunin hefst í sumar. Verkið var boðið út á evrópska efnahags- svæðinu (EES) í vetur og áttu Jarðboranir lægsta boð í borun sjö holna upp á 2,6 milljarða króna. Í fréttatilkynningu frá ON kemur fram að holurnar verði boraðar með rafmagni en ekki dísilolíu eins og algengast er. „Það tekur um mánuð að bora eina holu og aflmiklir borarnir þurfa um 4.500 lítra af olíu á dag. Verði hol- urnar tíu sparast því um 1,3 milljónir lítra af dísli og með því hátt í 50 þúsund tonna út- blástur koltvíoxíðs. Rafvæðing gufuborunar er einmitt einn þáttanna í loftslagsmarkmiðum Orku náttúrunnar. Auk þessa er fjárhagslegur sparnaður af því að nýta rafmagn á staðnum í stað innfluttrar olíu,“ segir í fréttatilkynning- unni. Orka náttúrunnar rekur tvær jarðgufuvirkj- anir á Hengilssvæðinu; Nesjavallavirkjun, sem tekin var í notkun 1990, og Hellisheiðarvirkjun en fyrstu aflvélar hennar voru ræstar 2006. Í báðum virkjununum er hvorttveggja unnið raf- magn fyrir fyrirtæki og heimili og heitt vatn í hitaveituna á höfuðborgarsvæðinu. Lítið hefur verið borað á Hengilssvæðinu síðustu árin með- al annars vegna aðhalds í rekstri hjá ON. Nota rafmagn í stað dísilolíu  Bora sjö holur á Hengilssvæðinu  Spara yfir milljón lítra af olíu með rafmagni Ljósmynd/Jarðboranir Jarðborinn Týr við boranir á Hengilssvæðinu. Björgunarsveitir víða að úr Rang- árvallasýslu voru kallaðar út síð- degis í gær til að- stoðar konu sem slasaðist í Stakk- holtsgjá, sem er við veginn á leið- inni í Þórsmörk. Konan var með áverka á höfði og því var talsverður viðbúnaður hafður. Björgunarmenn komust fljótt á staðinn og báru konuna á börum í sjúkrabíl, sem flutti hana svo áfram til aðhlynningar á slysa- deild. Slasaðist á höfði í Stakkholtsgjá við Þórsmörk Aðstoð Björgunar- sveitarmaður. Allur gangur er á því hvernig opin- berar stofnanir haga upplýsingagjöf sinni. Sumar leggja mikið upp úr því að veita almenningi innsýn í störf sín og nýta til þess hina ýmsu samfélags- miðla. Sem dæmi má nefna lögregl- una á höfuðborgarsvæðinu, en hún heldur meðal annars úti einni vinsæl- ustu Facebook-síðu landsins, með um 85.000 fylgjendur. Aðrar rækja þetta hlutverk verr. Þegar farið er á heimasíðu Ríkis- sáttasemjara blasir við einföld stilli- mynd og einu upplýsingarnar eru heimilisfang og símanúmer stofn- unarinnar. Elísabet Ólafsdóttir, skrif- stofustjóri Ríkissáttasemjara, segir að fyrri síða stofnunarinnar hafi verið tekin niður fyrir um hálfu ári og vinna standi yfir við gerð nýrrar. Með nýju síðunni verður upplýsingagjöf stór- bætt og segir Elísabet að ný árs- skýrsla stofnunarinnar bíði til að mynda nýju síðunnar, en hún verður ekki gefin út á pappír. Lítið upplýsingaflæði Héraðssaksóknari tók til starfa í byrjun síðasta árs. Hlutverk hans er að miklu leyti að sjá um mál sem áður voru á borði ríkissaksóknara og gefur hann út ákærur í flestum mála- flokkum. Heimasíða stofnunarinnar, hersak.is, er nútímaleg í útliti en upp- lýsingastreymi ekki upp á marga fiska. Engar fréttir af starfsemi sak- sóknara er til að mynda að finna á síð- unni. Ólafur Þ. Hauksson héraðs- saksóknari boðar betrumbætur. Nú um mánaðamótin tók einmitt til starfa skjalastjóri stofnunarinnar og mun hann meðal annars sjá um heimasíðuna. Þangað á Ólafur von á að nýjustu fregnir af starfseminni skili sér, svo sem um ákærur. Fleiri stofnanir stefna að endur- bótum á vefsíðu. Í samtali við Morgunblaðið segir Páll Winkel fang- elsismálastjóri að nýs vefs sé að vænta hjá Fangelsismálastofnun á næstu mánuðum. Hann segist full- meðvitaður um að núverandi vefsíða sé ekki mjög aðgengileg. Fram til ársins 2003 gaf stofnunin út árs- skýrslur sem finna má á heimasíðu hennar. Þar var að finna ýmsar töl- fræðilegar upplýsingar, svosem um fjölda fanga, gæsluvarðhaldsúr- skurði, hversu margir sinna sam- félagsþjónustu í stað fangelsisrefs- ingar og þar fram eftir götunum. Með tilkomu heimasíðunnar upp úr alda- mótum var farið að setja þessar upp- lýsingar beint inn á heimasíðuna og því var ákveðið að hætta að gefa þær út í heild í formi ársskýrslu. Ekki stendur til að hefja útgáfu þeirra að nýju. agunnar@mbl.is Nýrra vefsíðna að vænta  Stofnanir ríkisins standa sig misvel Fátt Ekki er miklar upplýsingar að sækja á heimasíðu Ríkissáttasemjara.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.