Morgunblaðið - 06.06.2017, Blaðsíða 2
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Lögreglan á Akureyri hafði afskipti
af konu sem ók ölvuð í nágrenni
Akureyrar um hádegisbilið í gær.
Vegfarandi tilkynnti undarlegt öku-
lag konunnar til lögreglu, sem hand-
tók konuna. Hafði hún þá ekið utan í
umferðarmerki og skjólvegg við út-
sýnispall við þjóðveginn skammt ut-
an við bæinn, án þess að stöðva för
sína áleiðis inn til Akureyrar.
Tekin var skýrsla af konunni á
lögreglustöð og úr henni tekin blóð-
sýni en var hún látin laus að loknum
hefðbundnum aðgerðum lögreglu í
tilfellum sem þessum. Bíða þarf eftir
niðurstöðum úr blóðrannsókn áður
en tekin verður afstaða um refsingu
vegna brotsins.
Ók á umferðarskilti
og útsýnispall í ná-
grenni Akureyrar
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2017
majubud.is
Fosshálsi 5-9, 110 Reykjavík. Opið mán.-mið. 10-16, fim.-fös. 10-18.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Hótuðu málþófi vegna frumvarps
Ekki verði skylt að fjölga borgarfulltrúum Andstaða var á Alþingi Málið tekið aftur upp í haust
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Andstaða Vinstri grænna og Pírata
við frumvarpið var mjög hörð og hót-
að var málþófi ef ætlunin væri að
málið næði fram að ganga. Ég hafði
fengið málið samþykkt í ríkisstjórn,
sem fór síðan nokkuð fljótt í gegnum
þingflokka Sjálfstæðisflokks og
Bjartrar framtíðar. Viðreisn lá hins
vegar lengi á málinu og var treg, en
hleypti því í gegn að lokum,“ segir
Jón Gunnarsson, ráðherra sam-
göngu- og sveitarstjórnarmála.
Á haustþingi hyggst Jón leggja að
nýju fram á Alþingi frumvarp til
breytinga á sveitarstjórnarlögum
sem gerir ráð fyrir fjölgun fulltrúa í
sveitarstjórn þar sem íbúar eru 100
þúsund eða fleiri. Mál þetta var til
umfjöllunar á vorþingi en mætti þar
mikilli andstöðu og var á endanum
tekið af dagskrá til að greiða fyrir
þinglokum.
Undið sé ofan af
lagabreytingum
Með vísan til íbúatölunnar ná áhrif
þessa frumvarps aðeins til Reykja-
víkur og þar eru borgarfulltrúarnir í
dag 15 talsins, en verða 23 til 31 komi
lög frá árinu 2011
til framkvæmda.
Á nýafstöðu vor-
þingi lagði ráð-
herrann fram
frumvarp sem
gerir ráð fyrir því
að undið verði of-
an af lagabreyt-
ingunni frá 2011
og að borgar-
fulltrúar verði
jafn margir og nú, en aldrei fleiri en
21.
Kosið verður til sveitarstjórna í
lok maí á næsta ári og segir Jón
Í borgarstjórn hafa fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins og Framsókn-
ar talað gegn fjölgun fulltrúa. Í
þeirra ranni hefur þó einnig komið
fram það sjónarmið að ef fjölgað
verði sé rétt að binda kosningu
ákveðins fjölda fulltrúa við hverfin,
þannig að þau eigi sitt fólk í borgar-
stjórn; Vesturbær, Miðborg, Hlíðar,
Laugarnes, Grafarvogur og svo
framvegis. Þá bendir Jón Gunnars-
son á að þess séu líka dæmi að
fulltrúum í bæjar- og sveitar-
stjórnum úti um land hafi verið
fækkað með hagræðingu og skilvirk
vinnubrögð að leiðarljósi.
Gunnarsson að því sé æskilegt að
umrædd breyting á lögum gangi í
gegn fyrir næstu áramót. Hann vill
þó ekki svara því hvort það sé til bóta
fyrir sveitarfélögin að fulltrúum í
sveitarstjórn, í þessu tilviki Reykja-
vík, sé fjölgað. Aðalatriðið sé að af-
tengja lagabreytinguna sem gerð
var fyrir sex árum og halda málum í
óbreyttu horfi, þannig að borgar-
stjórn sé ekki skylt að fjölga borgar-
fulltrúum en geti sjálf ákveðið hvort
fjöldi borgarfulltrúa verði áfram
óbreyttur eða þeim fjölgað um sex,
eins og heimilt yrði innan ramma
laganna.
Jón
Gunnarsson
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Alls höfðu 3.657 manns skrifað undir áskorun til forseta Ís-
lands á tíunda tímanum í gærkvöldi um að undirrita ekki
samþykkt Alþingis um skipan fimmtán dómara við Lands-
rétt. Undirskriftasöfnun þessari, sem Jón Þór Ólafsson
þingmaður átti frumkvæði að, var hleypt af stokkunum á
föstudag, en í formála hennar segir að lögmæti skipunar-
innar megi draga í efa, enda hafi verið farið gegn ráðum
fagnefndar um val á dómurum í einni atkvæðagreiðslu, en
dómara skuli þingið samþykkja hvern fyrir sig ef farið sé á
skjön við ráðgjöf.
Sem kunnugt er fylgdi Sigríður Andersen dómsmálaráð-
herra ráðum fagnefndar varðandi ellefu umsækjendur um
dómarastarf en vék frá ráðum um fjóra umsækjendur og tók
aðra og jafn marga þeirra í stað. Því segir Jón Þór lögmæti
skipunarinnar vafa undirorpið og er for-
seti Íslands af þeim sökum hvattur til að
skrifa ekki undir.
Á laugardag greindi Jón Þór frá því á
Facebook-síðu sinni að hann hefði sett
sig í samband við Guðna Th. Jóhann-
esson, forseta Íslands, vegna skipunar
dómaranna og óskað atbeina hans.
„Var að tala við Guðna forseta sem
ætlar að taka sér góðan tíma að fara vel
yfir málið,“ sagði Jón Þór í stöðufærslu
þar sem hann rekur afskipti sín af málinu frá einu stigi til
annars. Meira hefur þingmaðurinn, sem nú er staddur í
Bandaríkjunum, ekki tjáð sig um málið og ekki náðist í
hann þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir. Þá gaf forseti Ís-
lands ekki kost á viðtali um hvernig hann hygðist bregðast
við undirskriftasöfnuninni.
Ræddi við forseta Íslands
um skipun dómaranna
Jón Þór Ólafsson
Segir Guðna Th. Jóhannesson munu gefa sér góðan tíma
Hið árlega Tweed Ride Reykjavík var haldið á laugardaginn síðastliðinn.
Fjöldi fólks safnaðist saman fyrir utan Hallgrímskirkju, þar sem hópurinn
var myndaður áður en lagt var af stað. Hópurinn hjólaði í gegnum bæinn
og stoppaði á veitingastaðnum Mat og drykk, þar sem boðið var upp á
hressingu. Hópurinn endaði á Kex Hostel, þar sem verðlaunaafhending fór
fram og veittar voru „High Tea“-veitingar frá Sæmundi í sparifötunum.
Tweed Ride var upphaflega haldið í London, þar sem reiðhjólaáhugamenn
stóðu fyrir hóphjólreiðum í borginni. Hjólreiðarnar eru þó ekki bara til
þess að koma saman og hjóla, heldur klæða þátttakendur sig í klassísk föt
og draktir í anda breskra hefðarmanna og -kvenna. aronthordur@mbl.is
Hjólað um borgina í klassískum hefðarklæðum
Morgunblaðið/Golli
Kári Sigurgeirsson, sem lögregla
lýsti eftir í fyrradag, er kominn í
leitirnar og er hann heill á húfi
samkvæmt tilkynningu sem Lög-
reglan á höfuðborgarsvæðinu sendi
frá sér seint í gærkvöldi. Hafði lög-
regla lagt mikla áherslu á að hann
fyndist sem fyrst. Síðast hafði sést
til Kára síðdegis á föstudag. Lög-
regla þakkar öllum sem veittu lið-
sinni við leitina að Kára og aðstoð-
uðu við að finna hann.
Kári Sigurgeirsson
kominn í leitirnar