Morgunblaðið - 06.06.2017, Page 7

Morgunblaðið - 06.06.2017, Page 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2017 Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn fimmtudaginn 29. júní nk. kl. 17.15 í höfuðstöðvumArion banka, Borgartúni 19. Dagskrá 1. Skýrsla stjórnar 2. Kynning ársreiknings 3. Tryggingafræðileg athugun 4. Fjárfestingarstefna sjóðsins 5. Kosning stjórnar og varamanna 6. Kjör endurskoðanda 7. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins 8. Laun stjórnarmanna 9. Önnur mál Meginniðurstöður ársreiknings (í milljónum króna) Efnahagsreikningur 31.12.2016 Lífeyrisskuldbindingar skv. niðurstöðu tryggingafræðings 31.12.2016 Nafnávöxtun Yfirlit um breytingar á hreinni eign til greiðslu lífeyris fyrir árið 2016 Iðgjöld 14.011 Lífeyrir -3.662 Hreinar fjárfestingartekjur 1.344 Rekstrarkostnaður -368 Hækkun á hreinni eign á árinu 11.325 Hrein eign frá fyrra ári 174.220 Hrein eign til greiðslu lífeyris 185.545 Eignir umfram áfallnar skuldbindingar 2.547 Í hlutfalli af áföllnum skuldbindingum 4,9% Eignir umfram heildarskuldbindingar 2.507 Í hlutfalli af heildarskuldbindingum 1,9% Kennitölur 1Meðalfjöldi sjóðfélaga sem greiddi iðgjald á árinu. 2Meðalfjöldi lífeyrisþega sem fékk greiddan lífeyri á árinu. Eignir í íslenskum krónum 80,4% Eignir í erlendri mynt 19,6% Fjöldi virkra sjóðfélaga¹ 16.633 Fjöldi sjóðfélaga í árslok 53.949 Fjöldi lífeyrisþega² 2.171 2016 Sl. 5 ár* Frjálsi 1 -1,3% 8,0% Frjálsi 2 2,2% 6,5% Frjálsi 3 4,3% 4,5% Frjálsi Áhætta -2,0% 8,7% Tryggingadeild 2,0% 7,5% *Á ársgrundvelli Eignir Eignarhlutar í félögum og sjóðum 74.525 Skuldabréf 105.813 Bundnar bankainnstæður 1.342 Fjárfestingar alls 181.680 Kröfur 1.039 Handbært fé 3.755 Eignir samtals 186.474 Skuldir -929 Hrein eign til greiðslu lífeyris 185.545 Mest verðlaunaði sjóðurinn Frá árinu 2005 hefur Frjálsi lífeyrisjóðurinn unnið til tíu verðlauna í lífeyrissjóðasamkeppnum á vegum fagtímaritsins Investment Pension Europe. Þetta er mesti fjöldi verðlauna sem íslenskum lífeyrissjóði hefur hlotnast. Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins Frjálsi lífeyrissjóðurinn hentar þeim sem hafa frjálst val um í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða skyldulífeyrissparnað. Allir geta greitt viðbótar- lífeyrissparnað í sjóðinn. Hafðu samband við okkur í síma 444 7000 eða sendu tölvupóst á lifeyristhjonusta@arionbanki.is. Á frjalsi.ismá sjá upplýsingar um þjónustustaði sjóðsins. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins verða birtar á vef sjóðsins, frjalsi.is, tveimur vikum fyrir ársfund. Á fundinum verður kosið um tvo stjórnarmenn til tveggja ára og tvo varamenn til eins árs. Framboð til stjórnar þarf að liggja fyrir eigi síðar en sjö dögum fyrir ársfund og ber að tilkynna framboð til stjórnar með sannanlegum hætti. Fjórða tölublað matartímaritsins White Guide Nordic verður gefið út 26. júní. Í tímaritinu er að finna lista með 341 af bestu veitingastöðum Norðurlandanna. Á listann koma inn þrír nýir staðir frá Íslandi, en fyrir voru þeir þrettán talsins. Staðirnir sem koma inn eru Geiri Smart, Mat Bar og Tryggvaskáli. White Guide Nordic hefur verið stærsta matartímarit Svíþjóðar frá árinu 2005 en hóf nýlega útgáfu á tímaritinu í Danmörku. Magnús Már Haraldsson, einn eig- enda og matreiðslumaður hjá Tryggvaskála, sem kom inn á listann í ár, segist vera í skýjunum. „Þetta er alveg frábært og gríðarleg við- urkenning á starfi okkar, við erum alveg í skýjunum.“ aronthordur@mbl.is Þrír staðir bætast á listann  Íslenskir veitinga- staðir nýir á listanum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Tryggvaskáli Staðurinn kom inn á listann í ár ásamt tveimur öðrum. Bensínstöð OB í Grafarholti, sem reist var árið 2005 og stendur við Kirkjustétt 2-6, hefur verið þyrnir í augum margra íbúa hverfisins í áraraðir. Ástæðan er sú að stöðin stendur steinsnar frá Ingunnarskóla, sem og frístundaheimilinu Stjörnulandi og félags- miðstöðinni Fókusi. Reglur ríkisins og Reykjavík- urborgar um bensínstöðvar kveða á um að fjarlægð milli bensínstöðva og bygginga þar sem fólk dvelur til lengri tíma, t.d. skóla, skuli vera að lágmarki tólf metrar. Töluverð umferð skólabarna er um stöðina sökum nálægðar hennar við skólann. Þar að auki hafa for- eldrar kvartað yfir því að við ákveðna vindátt berist bensínfnykur inn í skólann. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur frá árinu 2012 ítrekað lagt fram fyrirspurn í borgarráði vegna málsins. Hann hefur meðal annars lagt það til að bensínstöðinni verði fundinn nýr staður. Þeim fyrir- spurnum hefur ekki verið sinnt og undrast Kjartan sinnuleysið. „Þetta var samþykkt af öllum fulltrúum skóla- og frístundaráðs fyrir einhverjum árum en því var ekki fylgt eftir. Það er eitt, en það er sérstakt að svona fyrirspurnum sé ekki sinnt,“ segir Kjartan. Hann segir borgina þurfa að ákveða hvort æskilegt sé að hafa svona stöð nálægt skóla- og frístundaheimili barna. Koma þurfi saman og móta skýra stefnu í þessu máli. katrinlilja@mbl.is Vilja bensínstöðina burt Bensínstöð Íbúar í Grafarholti hafa lengi kvartað undan staðsetningu bensínstöðvar OB, sem stendur of nálægt skóla þar í hverfinu.  Ítrekuðum fyrirspurnum borgarfulltrúa ekki sinnt Forseti Íslands, Guðni Th. Jó- hannesson, kem- ur í opinbera heimsókn í Blá- skógabyggð næstkomandi föstudag, 9. júní. Þetta er í tilefni af fimmtán ára afmæli sveitarfé- lagsins, sem nær yfir Þingvallasveit, Laugardal og Biskupstungur. Heimsóknin hefst formlega kl. 9 á Þingvöllum, þar sem forsvarsmenn Bláskógabyggðar og þjóðgarðsins taka á móti forseta. Þaðan verður svo farið að Laugar- vatni og í heimsókn í kúabú, garð- yrkjustöð, ferðaþjónustufyrirtæki og fleira áhugavert. Komið verður við í þéttbýliskjörnunum Laugarási og Reykholti, þar sem síðdegis verð- ur opið hús fyrir íbúa í félagsheim- ilinu Aratungu. Með þeim viðburði lýkur dagskránni. „Það er margt að sjá í sveitinni og við komumst aðeins yfir lítið af öllu því áhugaverða sem hér er að sjá,“ segir Helgi Kjartansson, oddviti Bláskógabyggðar. Um 1.000 manns búa nú í sveitarfélaginu og fjölgaði um 7% á síðasta ári. Forsetinn í Bláskógabyggð Guðni Th. Jóhannesson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.