Morgunblaðið - 06.06.2017, Side 18

Morgunblaðið - 06.06.2017, Side 18
Rafhitarar í skip, hús og sumarhús Ryðfríir neysluvatnshitarar með 12 ára ábyrgð Hitöld (element), hitastillar, hitastýringar og flest annað til rafhitunar Við erum sérfræðingar í öllu sem Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði Sími: 565 3265 rafhitun@rafhitun.is • www.rafhitun.is viðkemur rafhitun. 18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2017 Sími 571 2000 | hreinirgardar.is Garðsláttur Láttu okkur sjá um sláttinn í sumar 6. júní 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 98.78 99.26 99.02 Sterlingspund 126.82 127.44 127.13 Kanadadalur 73.15 73.57 73.36 Dönsk króna 14.897 14.985 14.941 Norsk króna 11.681 11.749 11.715 Sænsk króna 11.322 11.388 11.355 Svissn. franki 101.85 102.41 102.13 Japanskt jen 0.8883 0.8935 0.8909 SDR 136.58 137.4 136.99 Evra 110.84 111.46 111.15 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 137.9085 Hrávöruverð Gull 1280.7 ($/únsa) Ál 1916.0 ($/tonn) LME Hráolía 50.23 ($/fatið) Brent FRÉTTASKÝRING Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Á mánudag ákváðu fjölmörg músl- imaríki að slíta öllum formlegum tengslum við smáríkið Katar við Persaflóa. Sádi-Arabía, Egypta- land, Sameinuðu arabísku fursta- dæmin og Barein riðu á vaðið og bæði slitu diplómatískum tengslum við Katar og lokuðu öll- um beinum samgöngum til lands- ins. Hið sama gerðu Maldíveyjar, Jemen og stjórnvöld í austurhluta Líbíu síðar á mánudeginum. Er stjórnvöldum Katar gefið að sök að bæði styðja starfsemi hryðjuverkamanna og vera hlið- holl Íran. Katar er eitt af ríkustu löndum heims og mælist iðulega það land þar sem landsframleiðsla á mann er hæst. Katar er fimmta mesta jarðgasframleiðsluland heims og 17. stærsti olíuframleiðandinn en þar búa aðeins rúmlega 2,2 millj- ónir manna. Hafa Persaflóaríkin gefið kat- örskum sendifulltrúum tveggja daga frest til að snúa aftur til síns heima og öllum katörskum rík- isborgurum hefur verið gert að hafa sig á brot innan tveggja vikna. Hafa Sádi-Arabía, Barein og Egyptaland, bannað katörskum flugfélögum að ferðast um loft- helgi sína. Katar er mjög háð innflutningi á neysluvörum og að sögn Reuters er talið líklegt að fljótlega geti orðið vart við vöruskort. Á mánu- dag hermdu fregnir að þúsundir vöruflutningabíla kæmust ekki leiðar sinnar til Katar frá Sádi-- Arabíu, einu landflutningaleiðina til landsins. Er hugsanlegt að Katar gjaldi líku líkt og stöðvi streymi jarðgass til nágrannaríkja sinna. Eru löndin á svæðinu sér- staklega viðkvæm fyrir truflun á framboði á matvöru og gasi á þessum tíma árs, enda stendur trúarhátíðin ramadan núna yfir með tilheyrandi veisluhöldum. Sádi-Arabía lokaði einnig skrif- stofum fréttastofunnar al Jazeera þar í landi, en al Jazeera hefur höfuðstöðvar sínar í Dóha, höf- uðborg Katar. Verður ósamlyndi innan OPEC? Fjárfestar hafa áhyggjur af þeim áhrifum sem ósætti araba- ríkjanna gæti haft á starfsemi OPEC. Eins og Morgunblaðið hef- ur greint frá ákváðu aðildarríki OPEC fyrir skemmstu, ásamt hópi annarra olíuframleiðsluríkja, að framlengja samning um tak- markanir á olíuframleiðslu. Fyrstu fréttir af einangrun Katar urðu þess valdandi að hráolíuverð hækkaði um liðlega 1% en þegar leið á daginn hafði olíuverð lækk- að um um það bil 1,5%. Katar er ekki umsvifamikill ol- íuframleiðandi í samanburði við önnur OPEC-lönd en ósætti á meðal aðildarríkjanna þykir auka líkurnar á að verr muni ganga að fá olíuframleiðslulöndin til að standa við þær framleiðslutak- markanir sem samið hefur verið um. Verð á fljótandi jarðgasi breytt- ist ekki mikið við tíðindi mánu- dagsins og hafa Japan og Indland, umsvifamestu kaupendur jarðgass frá Katar, verð fullvissuð um að jarðgasflutningar þangað muni ekki raskast. Bankar og flugfélög í hættu Að sögn Bloomberg gætu deil- urnar sem nú standa yfir einnig bitnað á katörskum bönkum, sem reiða sig mjög á viðskipti við út- lönd. Eiga erlendir viðskiptavinir 24% af öllum innistæðum í kat- örskum bönkum, en í Sádi-Arabíu er hlutfallið 1,2% og 12% í Sam- einuðu arabísku furstadæmunum. Flugfélögin á svæðinu ættu líka að finna harkalega fyrir einangr- un Katar, og þá sérstaklega Qatar Airways sem er 5. stærsta flug- félag heims mælt í fjölda landa sem flogið er til, og það sjötta stærsta á flugfragtmarkaði. Verð hlutabréfa í kauphöllinni í Katar lækkaði um 7,2% á mánu- dag. Einangrun Katar gæti skemmt fyrir OPEC  Hráolíuverð lækkaði um hálft annað prósent á mánudag AFP Straff Vegfarendur ganga fram hjá auglýsingu Qatar Airways í Ríad í Sádi Arabíu. Fjöldi arabalanda reynir nú að einangra Katar með ýmsum hætti. ● Terry Gou, stjórnarformaður taív- anska raftækjarisans Foxconn, segir að Apple og Amazon muni taka þátt í tilboði Foxconn í örflöguframleiðslu Toshiba. Var þetta haft eftir honum í viðtali við japanska viðskiptablaðið Nikkei. Ekki fékkst uppgefið hvernig þátttöku Apple og Amazon yrði háttað, en Gou sagði að þau myndu „leggja í púkkið“. Toshiba neyðist til að selja frá sér ör- flöguframleiðslu sína vegna mikils tap- rekstrar hjá dótturfyrirtæki. Segir Reut- ers að örflöguhlutinn sé að minnsta kosti 18 milljarða dala virði. ai@mbl.is Apple, Foxconn og Amazon sameinast um kaup á Toshiba Hlutabréf Alphabet, móðurfélags leitarvélarrisans Google, fóru á mánudag yfir 1.000 dala múrinn. Hlutabréf Google fóru áður yfir 1.000 dali árið 2013 en verð hluta- bréfanna var helmingað með út- gáfu jöfnunarhlutabréfa árið 2014. Það sem af er þessu ári hefur hlutabréfaverð Alphabet hækkað um fjórðung, að sögn FT. Alphabet er ekki eina bandaríska hluta- félagið með svo dýr hlutabréf, en fyrir viku fór Amazon einnig yfir 1.000 dala markið. Má geta þess að hlutabréf Berk- shire Hathaway kosta núna 250.000 dali, og er það af ásetningi gert hjá Warren Buffett að gefa ekki út jöfnunarhlutabréf, svo að erfiðara sé fyrir spákaupmenn að valda flökti á hlutabréfaverði samsteyp- unnar. ai@mbl.is AFP Þarfaþing Forvitnir gestir skoða nýjustu vöru Apple, snjallhátalarann HomePod sem kynntur var á WWDC ráðstefnunni í Kaliforníu á mánudag. Hlutabréfaverð Alphabet komið yfir 1.000 dali

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.